Morgunblaðið - 01.05.1981, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1981
53
Egilsstaðir
1. maí — Þegar flokkspólitísk
sjónarmið foringjanna eru boðuð
Vilhelm Benediktsson
„Pólitískir
toppar ráða
ferðinni“
„1. MAÍ er í dag orðinn dagur
til minningar um liðna verka-
iýðsbaráttu. Verkalýðsbaráttan
hefur raunveruleKa yfirgefið
verkalýðinn. l>að eru einhverjir
pólitískir toppar, sem ráða ferð-
inni,“ sa«ði Sigurður Vilhelm
Bcncdiktsson. iðnnemi á Egils-
stöðum, í stuttu spjalli i vik-
unni.
„Verkalýðshreyfingin á að
vera miklu faglegri og samning-
arnir eiga að færast til fólksins á
vinnustöðunum. Fólk yfirleitt
hefur nú orðið lítil áhrif á
launamál sín og kjarabaráttu.
Forustan þarf að losna úr viðj-
um pólitískra áhrifa. Eftir því
sem manni er sagt, er ASI-þing
ekkert annað en samningafund-
ur pólitískra flokka um áhrif í
verkalýðshreyfingunni," sagði
Sigurður Vilhelm.
1. maí er
dagur loforða
en lítilla efnda
„MÍN skoðun á 1. maí er sú. að
hann sé ekki hinn sanni bar-
áttudagur fyrir réttindum
verkalýðsins hin siðari ár.
Verkalýðshreyfingin hefur fall-
ið I skuggann. 1. mai er dagur
loforða en lítilla efnda,“ sagði
Eirikur Elisson, verkamaður á
Egilsstöðum, formaður Verka-
lýðsfélags Fljótsdalshéraðs.
„Verkalýðshreyfingin í mínum
huga er faglega sterk en póli-
tískt veik. Málefni verkalýðs-
hreyfingarinnar eru alltof oft
notuð þegar einhverjir aðilar
þurfa að auglýsa sig til pólitísks
framdráttar. Þeir sem eru í
pólitík ættu ekki að vera í
forsvari innan verkalýðshreyf-
ingarinnar og ættu ekki að vera
sjálfkjörnir þangað inn aftur ef
pólitísk sól þeirra fölnar. Ég tel
Eirikur Elísson
að verkalýðshreyfingin sé mis-
notuð af áðurnefndum aðilum.
Þeir nota hana sem stökkbretti
til pólitísks frama. Mönnum
hefur jafnan gengið erfiðlega að
þjóna tveimur herrum.
„1. maí hér úti á landi er
afskaplega venjulegur dagur. Öll
smærri verkalýðsfélög fá boð-
skapinn frá Lækjartorgi. Lands-
byggðin kemur lítið nálægt
heildarstefnumótun í kjara-
málabaráttunni.
Fólk utan Reykjavíkur vinnur
langan vinnudag og hefur oft
lítinn tíma til félagsmála. Þessi
langi vinnudagur er afleiðing af
því m.a. að forustan stendur
slaklega í slagnum um hag
láglaunafólksins í landinu, hugs-
anlega vegna stöðu forustu-
mannanna í landsmálapólitík-
inni.
Ég vona að í framtíðinni verði
hægt að vinna þannig að málum,
að nýir samningar séu jafnan
tilbúnir þegar hinir eldri falla úr
gildi svo ekki þurfi að koma til
vinnustöðvunar. Verkföll eru
dýr, þjóðfélaginu og verkalýð til
ama.“
„Vegna kjaraskerð-
inga hefur sigið
á ógæfuhliðina
hjá verkafólki“
„ÁÐUR fyrr var 1. maí til þess
að auka stéttarvitund launa-
fólks og efla baráttuþrek þess
fyrir réttindum sinum. Undan-
farin ár hefur 1. mai orðið eins
konar afmælisdagur verkalýðs-
hreyfingarinnar, þar sem
fiokkspólitisk sjónarmið for-
ingjanna eru boðuð,“ sagði
Rúnar Pálsson, flugafgreiðslu-
stjóri á Egilsstöðum. formaður
Verslunarmannafélags Austur-
lands.
Rúnar Pálsson
„Eins og staðan er nú orðin í
iaunamálum verkalýðsins í land-
inu virðist hinn upprunalegi
tilgangur 1. maí vera í sjónmáli
aftur. Nú þarf að taka upp
faglega baráttu í málefnum
verkalýðshreyfingarinnar og
leggja á hilluna pólitíska tog-
streitu, sem ríkt hefur innan
hennar.
Um kjaramálin er það að
segja, að vegna síendurtekinnar
kjaraskerðingar ríkisstjórnar-
innar og óðaverðbólgu hefur
mjög sigið á ógæfuhliðina hjá
verkafólki.
Þrátt fyrir öll hin fallegu orð
um styttingu vinnuvikunnar er
kjaramálunum nú þannig komið
hjá launafólki, að það þarf að
leggja nótt við dag til að afla
tekna, svo að endar nái saman
við framfærslu þess.
Ég vil óska launþegum í land-
inu til hamingju með daginn og
vona, að íslenzk verkalýðshreyf-
ing beri gæfu til að hafa hinar
faglegu hugsjónir að leiðarljósi í
komandi framtíð."
Breiðholtsleikhúsið:
Segðu pang
Á SUMARDAGINN fyrsta frum-
sýndi Breiðhoitsleikhúsið barna-
leikritið SEGÐU PANG!! en það
er nýtt, íslenskt verk, sem kunn-
ugt er og fjallar um börn og
afstöðu þeirra til sjónvarps og
þess efnis, sem þar er borið á
borð.
Áhorfendur á frumsýningu tóku
verkinu vel, og ekki voru undir-
tektir síðri á næstu tveimur sýn-
ingum, sem voru eins og frumsýn-
ingin, í Fellaskóla í Breiðholti.
Nú er afráðið, að halda með
Segðu Pang!! út á land, og verður
í fyrstu sýnt í nágrenni Reykja-
víkur: á Akranesi, í Garðinum og
víðar. Breiðholtsleikhúsið mun þó
sýna á heimaslóðum um helgar, og
verða sýningar alla laugardaga og
sunnudaga í Fellaskóla kl. 15:00. •
Leikarar í Segðu Pang!! eru
tveir, þau Þórunn Pálsdóttir og
Þröstur Guðbjartsson, leikstjóri
er Jakob S. Jónsson, en höfundur
laga og ljóða er Matthías Krist-
iansen. Leikritið tekur um 50
mínútur í flutningi.
Auk þess að sýna barnaleikritið
Segðu Pang!! er Breiðholtsleik-
húsið að æfa um þessar mundir
nýja íslenska kabarettrevíu undir
leikstjórn Sigrúnar Björnsdóttur,
en höfundar eru þeir Þrándur
Thoroddsen, sem skrifar leiktext-
ann, og Atli Heimir Sveinsson,
sem semur tónlistina við verkið.
Höfundur dansa er Sóley Jóhanns-
dóttir, en leikmynd og búninga
gerir Hjördís Bergsdóttir. Æf-
ingar eru vel á veg komnar, en
áætlað er að frumsýna hina nýju
kabarettrevíu um miðjan maí, og
verða sýningar í Félagsstofnun
stúdenta við Hringbraut.
(Fréttatilkynning).
Kartöfluflögur
Heildsölubirgdir:
Agnar Ludvigsson hf
Nýlendugötu 21
Sími 12134
3völuRaffi
Svölurnar, félag fyrrverandi og núverandi flugfreyja, halda sína árlegu kaffisölu í Súlnasal Hótel Sögu,
föstudaginn 1. maí. Húsiö opnað kl. 14.00.
Glæsilegar veitingar. Tískusýningar. Skyndihappdrætti.
Stórglæsilegir vinningar, þ.á m. flugfarseölar, leikföng o.fl.
Allur ágóöi rennur til líknarmála.