Morgunblaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAI 1981 61 samfara var útstreymi hennar." í tímaritinu Morgunn skrifar Haraldur Níelsson um Englend- inginn V.N. Turvey, sem var verkfræðingur að mennt, vand- virkur gerhugull. Athuganir Turveys sýna enn mjög greini- lega og í fullu samræmi við rannsóknir þeirra Kilners (sem fyrstur myndaði útgeislun mannslíkamans) og Kotiks, að frá mannslíkamanum geislar orka, sem hagar sér líkt og rafmagn. Afar eftirtektarverðar eru þær tilraunir er hann lá í rúmi sínu eða hallaðist aftur í hægindastól, og gat af munni annars talað við fólk, sem var að halda miðilsfund í fjögurra (enskra) mílna fjarlægð. Aðrir geta vitað meira Á þessu má sjá að heili eins hefur áhrif á heila annars með orkuflutningi vegna samstill- ingarinnar; þá hugsa þeir eins. Eins getur einhver haft áhrif á heila annars sem stillir hann inn á ákveðinn draum þegar hann sofnar. Þetta nefnir dr. H.P. Stillilögmál og telur það hafa afgerandi áhrif á mann- kynið um alla veröld. Við verð- um að gera ráð fyrir að geta náð vitundarsambandi við aðra líf- hnetti, eins og næst milli manna hér á jörðu. Aðeins á þann hátt getum við skilið og leyst þá gátu sem dulfræðin nær til. Munum það ávallt að vera vakandi; aðrir geta vitað meira en þér. Hafið þá hugfast, ef einhver boðar kenningu, sem varðar lífstefnu alheimsins, þá er það þess virði að athuga hana gaumgæfilega því um visku- brunn getur verið að ræða.“ Eitt skyggir á Ágústa Ágústsdóttir skrifar: „Velvakandi! Alveg er það með eindæmum, hvað fólki er boðið upp á í okkar tæknivædda þjóðfélagi. Eg sé t.d. ekki betur en allt leggist á eitt um að gera Breiðholtið óbyggilegt öðrum en vélmennum. í gangi allan daginn Hér er loks komin hin lang- þráða sundlaug, sem er bæði falleg og fullkomin. En eitt skygg- ir verulega á. Hátalarakerfi eitt firnavoldugt er þarna í gangi allan daginn og notað í tíma og ótíma bæði við kennslu og eftirlit. Sjálfsagt auðveldar þetta starfs- fólki störfin við eftirlit á staðnum, en gagnvart íbúum nærliggjandi húsa er þetta óafsakanlegt. Tekur út yfir á þriðjudags- kvöldum ug um helgar Hávaðinn frá þessum ófögnuði þrengir sér inn í hvert herbergi hér við Austurbergið a.m.k., alveg frá því kl. 8 á morgnana. Það er varla næði til eins eða neins. Kannski halda þeir sem þessu ráða, að fólk sé hér ekki nema yfir blánóttina. Þó tekur fyrst út yfir á þriðjudagskvöldum og um helgar, þegar poppmúsík úr útvarpinu dynur yfir og eirir engu. Maður getur ímyndað sér, hvað það verður unaðslegt, eða hitt þó heldur, í sumar, þegar maður loksins getur farið að ganga úti á kvöldin, og ekki síður um helgar, um hið mjög svo fallega og að mörgu leyti óspillta umhverfi hér í Breiðholti, að eiga þá alltaf vísar drunurnar úr mögnurum sund- laugarinnar. Verið að beita fólk andlegu ofbeldi Ég veit ekki, hvort ráðamenn sundlaugarinnar gera sér nokkra grein fyrir þessu, eða hvort þeir hafa tök á að bæta hér úr að öllu leyti. En þeir ættu í öllu falli að geta komið í veg fyrir hávaðasam- an tónlistarflutning með þessum tækjum, því að með honum er beinlínis verið að beita fólk and- legu ofbeldi, svo að ekki sé meira sagt. Með þökk fyrir birtinguna.“ Bankarnir hreinsa til á hverju kvöldi Einar Jónsson hjá Sparisjóði Reykjavíkur hringdi og sagði: — Vegna kvörtunar Huldu Valdi- marsdóttur í dálkum þínum í gær, er rétt að taka það fram að bankarnir hreinsa allir til hjá sér á hverju einasta kvöldi. Strax morguninn eftir er sent með alla gírómiða til Seðlabankans, þar sem fram fara ávísanaskipti (clearing). Fjármunirnir eru því komnir í hendur Póstgíróstofunn- ar um kl. 10 morguninn eftir að viðkomandi greiðsla fer fram í banka eða sparisjóði. * ■ ■ Felagsmalastofnun Reykjavikurborgar Vonarstræti 4, sími 25500. 'V 18 ára gömul stúlka meö barn á fyrsta ári óskar eftir aö fá aö búa hjá fjölskyldu. Nánari uppl. í síma 25500 milli kl. 11 og 12. SERLEYFISBIFREIÐIR KEFLAVÍKUR Sandgeröi — Reykjavík Keflavík — Reykjavík Við aukum þjónustuna Nýjar ferðir frá og með 11. maí. Alla daga nema helgidaga: Frá Sandgerði: Frá Keflavík: Frá Reykjavík: kl. 10.35 kl. 11 kl. 11.30 Á laugardögum: Frá Sandgerði: Frá Keflavík: Frá Reykjavík: kl. 22 kl. 22.30 kl. 24 Breytingar á brottfarartímum frá og meö 11. maí: .Frá Sandgerði: Frá Keflavík: kl. 8.30 (í stað kl. 9) kl. 9 (í stað kl. 9.30) ATH. í öllum ferðum frá Keflavík, nema kl. 17.30, aukaferö- um og kl. 9 á helgidögum, er ekiö í Reykjavík um Kringlumýrarbraut, Laugaveg, Skúlagötu og Lækjar- götu. SÉRLEYFISBIFREIÐIR KEFLAVÍKUR. MORGUNBLAÐIÐMORG MORGUNBLAÐIÐMOR MORGUhRLAÐIOMQ? MORGU7 MORGl/£ //" Blað- burðar- fólk óskast Austurbær Blönduhlíö Stigahlíö frá 26-97 Vesturbær Skerjafjörður s/ flugvallar II. Hringið í síma 35408 MOMORGUNBLAÐiU ^qmorgunblaðið ^gunblaðið ^JBLAÐIÐ BLAÐIÐ (BLAÐIÐ ’ALAÐIÐ ^AOIÐ Uðio J\OIÐ 3ÐIÐ SBLAÐIÐ \'J\OIO IÐIÐ |dið Loio 02P S\öeA V/öGá fi ^ILVE^N MORGUNBLA^fcs. MORGUNBLAÐIÐMtV^ ÍNBLAÐiÐMI jlmOIÐ iBLAÐIÐ 5LAOIÐ r4BLAÐIÐ ONBLAÐIO 6UNBLAÐIÐ 'íGUNBLAÐIÐ GUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.