Morgunblaðið - 05.05.1981, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1981
Hvorki gengur né rekur í kjaradeilu fóstra hjá ríki og Garðabæ:
Málið væntanlega rætt
í ríkisstjórninni í dag
HVORKI GEKK né rak i kjara-
deilu fóstra annars ve>tar við
ríkið ob hins veitar við bæjaryf-
irvold í Garðaba- í Bær og eru því
öll daBvistarheimili rekin á vcn-
um ríkisins ob Garðabæjar lokuð.
Fóstrur gengu á fund fjármála-
ráðherra ok ráðuneytisstjóra i
Ba'rdaK ok afhentu þeim ályktun.
þar sem skoraö var á ríkið að
BanBa þenar til samninKa.
„í þessari ályktun leggjum við
fram samningsgrundvöll, sem í
grundvallaratriðum byggir á þeim
samningi, sem fóstrur og Reykja-
víkurborg gerðu með sér fyrir
skömmu," sagði Marta Sigurðar-
dóttir, blaðafulltrúi Fóstrufélags
Islands.
Vegna lokunar dagvistarheimila
rikisins, sem eru sjö talsins, sköp-
uðust nokkur vandræði. Fjölmarg-
ir starfsmenn Landspítala mættu
með börn sín til vinnu í morgun. A
Kleppsspítala og á Kópavogshæli
gerðist það í morgun samkvæmt
upplýsingum Mbl., að yfirvöld á
stofnununum gerðu tilraun til að
opna dagvistarheimilin, en komið
var í veg fyrir það.
Búizt er við, að kjaradeila fóstra
við ríkið komi inn á ríkisstjórnar-
fund í dag, og verður væntanlega
tekin einhver afstaða um fram-
haldið þar. Samkvæmt upplýsing-
um Mbl. stendur það helzt í
fulltrúum ríkisins að samþykkja
að byrjunarlaun fóstra verði eftir
12. launaflokki, eins og gert er ráð
fyrir í samningi þeirra við Reykja-
víkurborg. Þeir vilja halda sig við
Ekki hagkvæmt og ekki hægt
11. flokk, sem t.d. fóstrur í
Reykjavík höfðu samið um í sínum
sérkjarasamningum á síðasta ári.
Sérkjarasamningar fóstra, sem
starfa hjá ríkinu hafa hins vegar
verið lausir síðan í ágúst á síðasta
ári, þannig að byrjunarlaun fóstra
hjá ríki hafa verið eftir 10.
launaflokki.
Gunnar Thoroddsen um verðlagsmálin:
í gærkvöldi hafði ekki verið
boðaður samningafundur með
fóstrum í Garðabæ, samkvæmt
upplýsingum Mbl.
Frá aðalfundi Vinnuveitendasambands íslands, sem hófst i gær.
Fundarstjóri á aðaifundinum er Jón Bergs, en fundarritari Grétar Br.
Kristjánsson. Fundinum lýkur i dag.
Ingimar Óskarsson að gefa verðlag frjálst nú
náttúrufræðingur látinn — er fylgjandi frjálsræði sagði forsætisráðherra
LÁTINN ER í Reykjavík Ingim-
ar Óskarsson náttúrufræðingur.
Ingimar var fæddur að Kænings-
hóli í Skíðadal i Svarfaðardals-
hreppi þann 27. nóvember árið
1892 og var því tæplega 89 ára
gamall. Ingimar var lengi kenn-
ari og aðstoðarmaður var hann
við Fiskideild Atvinnudeildar
Iláskólans frá 1947.
Ingimar gegndi ýmsum trúnað-
arstörfum um ævina. Hann fékkst
við skipulagðar rannsóknir á
gróðri Islands frá árinu 1925,
sérstaklega hundafíflagróðri frá
1950. Þá vann hann að athugunum
á skeldýrum við Island og á
Íslandi frá 1921. Hann var félagi í
Vísindafélagi íslendinga frá 1931
og kjörinn heiðursfélagi Hins ís-
lenska náttúrufræðifélags árið
1960.
Ingimar skrifaði fjölmörg rit
um náttúrufræði og auk þess hafa
birst margar greinar eftir hann
um þau mál í innlendum og
erlendum tímaritum.
Eftirlifandi kona hans er Mar-
grét Steinarsdóttir.
Ingimar Óskarsson
„SUMIR mundu telja, að rétt
væri nú að gefa allt verðlag
frjálst og ég er að sjálfsögðu einn
af þeim. sem er fylgjandi frjáls-
ræði í þeim eínum,“ sagði dr.
Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra í ræðu á aðalfundi Vinnu-
veitendasambands íslands i gær,
„en eins og nú standa sakir, er
það ekki þjóðhagslega hagkvæmt
(>K ekki hægt að Kefa verðlaK
frjálst, miðað við onnur þjóð-
haKsleK markmið,“ saKði forsæt-
isráðherrá ennfremur.
Gunnar Thoroddsen sagði, að
hugsunin væri sú að skapa meiri
sveigjanleika í verðlagsmálum.
Með því verðlagsaðhaldi, sem nú
væri tekið upp, væri gert ráð fyrir
rúmum heimildum til verðbreyt-
inga. Forsætisráðherra kvaðst
telja, að ummæli formanns Vinnu-
veitendasambandsins (sem fram
koma í frétt á baksíðu Morgun-
blaðsins í dag) lýstu grundvall-
armisskilningi á áformum ríkis-
stjórnarinnar og kvaðst hann von-
ast til, að þau yrðu leiðrétt, þegar
VSÍ hefði kynnt sér málið betur.
Þetta nýja skipulag er áfangi til
sveigjanlegra og frjálslegra kerf-
is,“ sagði Gunnar Thoroddsen
ennfremur.
Tíminn kemur út
í breyttu formi
DAGBLAÐIÐ Tíminn kemur út í
breyttu formi i dag, en að sögn
Jóhanns II. Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra, hafa verið gerðar
gagngerar breytinKar bæði á
útliti hlaðsins ok efni.
„Hvað varðar efnið, þá hefur
fjölbreytni aukizt mjög með þess-
ari breytingu og fjöldi fréttasíðna
verður til að mynda aukinn veru-
lega," sagði Jóhann ennfremur.
Það kom fram hjá Jóhanni, að
útlitsbreytingarnar hafa verið
hannaðar af útlitsteiknara blaðs-
ins í samráði við yfirmenn.
Þá verður sú breyting á útgáfu
Tímans, að sögn Jóhanns, að
sunnudagsblaðið verður borið út
með laugardagsblaðinu á laugar-
dagsmorgnum. — „Þetta er aðeins
hagræðingaratriði, en ekki fækk-
un blaða," sagði Jóhann.
Eftir þessa breytingu á útkomu
helgarblaðs Tímans er því ljóst, að
Morgunblaðið er eina dagblaðið,
sem kemur út á sunnudögum.
Staðan í gærkvöldi var sú, að
Jón á Hofi frá Þorlákshöfn var
efstur með 1430 tonn en skip-
stjóri er Jón Björgvinsson. Næst
efstur var Þórunn Sveinsdóttir
frá Vestmannaeyjum, sem land-
aði 45 tonnum eftir nóttina, og
var með 1425 tonn, skipstjóri er
Sigurjón Óskarsson. I þriðja
sæti er Friðrik Sigurðsson frá
Þorlákshöfn með 1415 tonn,
skipstjóri Sigurður Bjarnason. I
fjórða sæti er Höfrungur III frá
Þorlákshöfn með 1384 tonn,
skipstjóri Þorleifur Þorleifsson.
Og í fimmta sæti kemur Suðurey
frá Vestmannaeyjum, sem land-
aði 20 tonnum í gærkvöldi og er
með 1381,5 tonn, skipstjóri
Hörður Jónsson.
Hörkubarátta um toppinn
Lokasprettur vetrarvertíðarinnar:
Fimm aflaklær í einum hnapp
LOKASPRETTURINN á vetr-
arvertíðinni er orðinn mjög
spennandi í baráttunni um
toppinn, mesta vertiðaraflann á
þcssari sérstæðu vetrarvertíð,
þar sem aflahrota hefur verið
vikum saman hjá bátum. sér-
staklcga við Suðurland og Suð-
vesturland. Fimm bátar eru
nokkuð hærri en þeir næstu,
allir með um 1400 tonn. og
hefur roð þeirra breyst frá degi
til dags. Onnur eins aflahrota i
svo langan tíma sem raun ber
vitni hefur ekki komið hjá
vcrtíðarbátum. liklega ekki síð-
an um 1930, og til dæmis hafa
um 10 Eyjabátar fengið yfir
1000 tonn, sem er frábær
frammistaða.
Þeir fimm bátar, sem skara
nokkuð fram úr, eru frá Þorláks-
höfn og Vestmannaeyjum og
voru þeir í gærkvöldi með frá
1381’tonni til 1430 tonn í landi.
Eyjabátarnir landa daglega, en
Þorlákshafnarbátarnir yfirleitt
annan hvorn dag. Aflaverðmæti
þessara báta er að sjálfsögðu
misjafnt, því bæði er aflasam-
setningin misjöfn og einnig hafa
þeir landað misgóðum fiski af
ýmsum ástæðum, en aflaverð-
mæti er ekki síður spennandi en
tonnafjöldinn.
Allir skipstjórarnir, sem eru í
toppsætunum, hafa verið í
fremstu röð í áraraðir, þótt þeir
séu ungir að árum og því getur
ailt gerst á lokasprettinum.
5. Horður Jónsson á Suðurey
VE.
1. .Jón Bjorgvinsson á Jóni á
II«»fi ÁR.
2. Sigujón Óskarsson á Þórunni
Sveinsdóttur VE.
3. Sigurður Bjarnason á Frið- 4. Þorleifur Þorleifsson á Höfr-
rik Sigurðssyni ÁR. ungi III ÁR.