Morgunblaðið - 05.05.1981, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.05.1981, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981 Sighvatur Björgvinsson um „aðhaldslögin44: „Lítils virði og leysir ekki úr neinu vandamáli Sighvatur Björgvinsson, formaður þin«flokks jafnað- armanna, sagði m.a. í umræðu um stjórnarfrumvarp um VerðlaKsaðhald o.fl., að frum- varpið hefði verið samið „án samráðs við allar þær helztu sérfræðistofnanir í þjóðfélaK- inu, sem Alþingi og ríkis- stjórnir hafi sér til ráðuneytis. Ein mikilvægasta jfrein frum- varpsins um hindiskyldu, fjall- ar um Seðlahanka íslands, en cr samin á nokkurs samráðs við Seðlahankann. Seðlahanka- stjórar sáu ekki frumvarpið fyrr en því var dreift prentuðu hér á Alþinéi. Seðlabanka- stjórnin er og andvíjf þeirri mismunun lánastofnana. sem Kert var ráð fyrir í upphaflejíri Kerð frumvarpsins ok þeir töldu einnÍK ranjft að veita svo víðtæka bindiheimild ótil- Kreinda, án þess að þar væri sett þak á. Auk þess var Þjóðhagsstofn- un, önnur mikilvægasta sér- fræðistofnun okkar í efna- hagsmálum, ekki aöeins snið- gengin sem umsagnaraðili, heldur er ríkisstjórnin og að setja fram tillögur til Alþingis um málefni þessarar stofnunar, sem stjórnendur hennar voru andvígir. Sighvatur spurði „hvort verið gæti að sú fræga kerling með svarta kassann, sem sótt var til útlanda á þeim tíma þegar Stálbræðsla: Eignarhluti ríkisins 40% Staðsett á höfuðborgarsvæðinu forsætisráðherra var iðnaðar- ráðherra, og fjallaði um vanda- mál Kröflu, væri nú orðinn helzti efnahagsráðgjafi ríkis- stjórnarinnar. Sighvatur benti á að verð- lagsstjóri, sem mætt hefði á fundi þingnefndar um þetta mál, hefði staðhæft að verð- hækkanir hjá einstökum aðilum umfram ársfjórðungsleg mörk sem ríkisstjórnin hefur sett sér, „hlyti auðsjáanlega að koma niður á öðrum verðhækkunar- tilfellum", eins og Sighvatur hafði eftir verðlagsstjóra. Ef ríkisstjórnin þannig leyfði verð- hækkun hjá opinberri stofnun eða stofnunum, umfram þessi mörk, yrði að leyfa minni verð- hækkanir á þjónustu og vöru hjá einkaaðilum heldur en ella hefði verið gert. Þetta gæti einnig þýtt, eftir upplýsingum verðlagsstjóra, að verðhækkun- arkvótar yrðu fullnýttir á miðju tímabili, á miðjum ársfjórð- ungi, og þá yrði að frysta allar verðhækkanir, hvað svo sem liði tilkostnaðarhækkunum, sem sagt án tillits til nauðsynjar. Sighvatur sagði það hafa komið fram hjá Jónatan Þórmunds- syni, lagaprófessor, að mismun- un sem slík framkvæmd gæti leitt til, án tillits til nauðsynjar, væri framkvæmd sem stangað- ist á við stjórnarskrá lýðveldis- ins. Sama álit kom fram hjá lagaprófessornum varðandi mismunun á bindiskyldu inn- lánsstofnana, eins og hún var fram sett í upphaflegri gerð frumvarpsins. Þá var það álit prófessorsins að efni fjórðu greinar væri „fortakslaust stjórnarskrárbrot", þ.e. heimild til lækkunar ríkisútgjalda um ótiltekna upphæð, þar með talin lögbundin fjárframlög, en í slík- um tilfellum þyrfti löggjafinn að nefna „hvaða lög það væru sem ríkisstjórn væri heimilt að breyta og með hvaða hætti slík breyting mætti vera“. „Frumvarp ríkisstjórnarinn- ar, sem hér um ræðir, er lítils virði," sagði Sighvatur. „Það leysir ekki úr neinum þeim vandamálum, sem stjórnvöld þurfa að fást við.“ Ríkisstjórnin er heldur ekki „ásátt um, hvern- ig framkvæma skuli þau við- fangsefni, sem frumvarpið fjall- ar um. Þrátt fyrir þetta hefur ríkisstjórnin lagt ofurkapp á, að þetta marklitla frumvarp verði afgreitt fyrir 1. maí og þing- menn Alþýðuflokksins munu ekki leggjast gegn því að svo geti orðið". I frásögnum af umræðum um þetta mál á þingsíðu Mbl. fyrir helgi, urðu þau mistök, að ummæli Sighvats um svart- kassakonu, sem að framan greinir, féllu inn í frásögn af ræðu Matthíasar Á. Mathiesen, sem ekki orðaði þetta fyrirbæri. Þetta leiðréttist hér með. Frumvarp um steinullarverksmiðju: Fram hefur verið lagt stjórnarfrumvarp á Alþingi sem heimilar ríkisstjórninni að gerast eignaraðili að Stál- félaginu hf. og leggja í því skyni fram allt að 40% af hlutafé þess. í greinargerð segir. að einstaklingar. fyrir- tæki og sveitarfélög verði eigendur 60% hlutafjár. I tengslum við aðild sína að hlutafélaginu er ríkisstjórn- inni heimilt að: 1) leggja fram allt að 12 m.kr. af fé ríkissjóðs sem hlutafé og að taka lán í þessu skyni, 2) veita ríkis- ábyrgð fyrir lánum eða taka lán, er hlutafélaginu verði veitt til byggingar verksmiðj- unnar, að fjárhæð samtals 17,5 m.kr. eða jafnvirði þess í erlendri mynt, 3) að fella niður aðflutnings- og sölugjöld af vélum, tækjum og varahlutum til verksmiðjunnar. Frumvarpið gerir ráð fyrir frávikum frá gildandi lögum um hlutafélög varðandi tölu stofnenda (2. mgr. 3.gr.) og tölu hluthafa (1. mgr. 17. gr.). Fulltrúa ríkissjóðs á aðal- fundi og öðrum hluthafafund- um skipa iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra að jöfnu. Stofnkostnaður verksmiðj- unnar er áætlaður 110 m.kr. miðað við verðlag í apríl 1981. Við stálbræðsluna er áætlað að starfi rúmlega 60 menn. Aflþörf verksmiðjunnar er um 10 MW, en til framleiðslu eins tonns af steypustyrktarstál, þarf 900 kwst, þannig að við 15.000 tonna framleiðslu notar verksmiðjan 13,5 Gwst. Stað- setning verksmiðjunnar „er áformuð innan Stór-Reykja- víkursvæðisin3, bæði vegna nálægðar við markaðinn og þess að um 60% brotajárns- magnsins fellur til á höfuð- borgarsvæðinu. Tveir staðir hafa helzt komið til álita; Korpusvæðið (Geldinganes, Grafarvogur, Gufunes) og Straumsvík, norðan álverk- smiðjunnar." Það sem mælir með þessum stöðum er m.a. nálægð hafnar, nálægð raf- magnslína, gott vegakerfi, svæði sem ætlað er til iðnaðar og möguleikar á byggingu við- legubakka. Vegna þess hve seint þetta frumvarp er fram komið á yfirstandandi þingi, þykir ekki fullvíst að það fái fullnaðar- afgreiðslu nú. Engin ákvörðun um stærð né staðsetningu Fram hefur verið lagt á Al- þingi stjórnarfrumvarp um stein- ullarverksmiðju. sem heimilar ríkisstjórninni að taka þátt i stofnun hlutafélags er rcisi og reki steinullarverksmiðju og leggja fram í því skyni 40% hlutafjár þess. Málefni verk- smiðjunnar heyra undir iðnað- arráðherra segir í frumvarpinu. Engin afstaða er tekin í frum- varpinu til þcirrar stærðar eða staðsetningar steinullarverk- smiðju, sem verið hefur deiluefni og keppikefli milli aðila á Sauð- árkróki og í Þorlákshöfn. Vegna stofnunar hlutafélagsins er ríkisstjórninni heimilað, ef og þegar frumvarpið verður sam- þykkt: 1) að leggja fram 14 m.kr. í hlutafé og taka lán í því skyni, 2) að veita ríkisábyrgð fyrir lánum eða taka lán, er hlutafélaginu verði veitt til byggingar verk- smiðjunnar, að fjárhæð samtals allt að 21 m.kr., eða jafnvirði í erlendri mynt, 3) fella niður að- flutningsgjöld og sölugjöld af vél- um, tækjum og varahlutum. Gert er ráð fyrir frávikum frá gildandi hlutafélagalögum varðandi tölu stofnenda og hluthafa. Fulltrúar ríkisins á aðal- og hluthafafund- um verða að jöfnu skipaðir af iðnaðarráðherra og fjármálaráð- herra. í greinargerð segir að til greina hafi komið tvær verksmiðjustærð- ir, annarsvegar verksmiðja með um 15.000 tonna afkastagetu á ári, hinsvegar með 5.000 tonna verk- smiðju. Stærri verksmiðjan er miðuð við útflutning, en sú minni nær einvörðungu við innanlands- þarfir. Heimildir í frumvarpinu, sem snerta framlag ríkissjóðs og lántökur, eru miðaðar við stærri kostinn, „þótt með frumvarpinu sé engin afstaða tekin til hvor ráða- gerðin verði fyrir valinu", segir í greinargerð. Vegna þess hve frumvarp þetta er seint fram komið er erfitt að spá um afgreiðslu þess á yfir- standandi löggjafarþingi. Þingfréttir í stuttu máli 57 breytingartillögur við stjómarfrumvarp Atkvæði um sérskatt á verzlunarhúsnæði ★ Frumvarp um framlengingu sérstaks skatts á verzlunar- og skrifstoíuhúsnædi var samþykkt með atkvæðum stjórnarliða við aðra um- ræðu í efri deild Alþingis i gær, gegn atkvæðum sjálf- stæðismanna. Þingmenn Al- þýðuflokks sátu hjá. Gert er ráð fyrir að frumvarp þetta vcrði að logum eftir þriðju umræðu í þingdeiidinni nk. miðvikudag. * Lárus Jónsson (S) sagði þenn- an skatt hluta af þeim hinum nýju vinstri stjórnarsköttum 1978/1979, sem sjálfstæðis- menn hefðu lofað að afnema, enda væri hér um ranglátan skatt að ræða, viðbótarskatt ofan á aðra eigna- og sparn- aðarsköttun, sem einnig hefði farið vaxandi, auk þess sem fasteignamat ætti að vera skattstofn fyrir sveitarfélög. Þessi skattur kæmi illa við verzlunina, sem ekki væri of vel á vegi stödd, allra sízt strjálbýlisverzlun, en væri jafnframt dragbítur í bygg- ingariðnaði, hvar þegar bryddaði á umtalsverðum samdrætti. ★ Eiður Guðnason (A) mælti fyrir 57 breytingartillögum allsherjarnefndar við stjórn- arfrumvarp til laga „um kerf- isbundna skráningu á upplýs- ingum, er varða einkamál- efni“, en hliðstæð lög hafa verið sett í nágrannalöndum vegna ört vaxandi tölvunotk- unar. * Ólafur Þ. Þórðarson (F) gagry rýndi harðlega í neðri deild ýmis efnisatriði í stjórnar- frumvarpi um „hollustuhætti og hollustuvernd". Hann taldi frumvarpið „traðka á sveit- arfélögum og þeirri starfsemi sem þar hefur átt sér stað“ á þessum vettvangi. Hann sagði það „vekja undrun sína“ að hollustunefnd skuli nánast fá valdsvið sem hingað til hafi heyrt til dómstólum, og heim- ild til að beita lögreglu, án þess að menn hafi átt kost að leita réttar síns fyrir dómstól- um. „Ég mótmæli svona laga- setningarhugleiðingum," sagði Ólafur, „og hvaða aðili er ábyrgur á hugsanlegum af- glöpum slíkrar nefndar, sem kann að geta valdið einstök- um aðilum verulegu tjóni?“ Ekki tóku aðrir þingmenn undir þetta sjónarmið Ólafs Þ. Þórðarsonar (F). * Frumvarp Ágústs Einarsson- ar (A), Matthíasar Bjarna- sonar (S), Guðmundar G. Þór- arinssonar (F) og Árna Gunn- arssonar (A), þess efnis, að létta söluskatti af vogum og rafeindatækjum sem notaðar eru í fiskiðnaði var afgreidd frá efri deild til neðri deildar. * Jósep Þorgeirsson (S) mælti fyrir nefndaráliti um frum- varp um „horfna menn“, sem fjallar um breytingu á lögum frá 1922 um sönnunarskyldu á dauða einstaklings.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.