Morgunblaðið - 05.05.1981, Síða 31

Morgunblaðið - 05.05.1981, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981 31 75 ára í dag: Ráðstefna um Reykjavíkurflugvöll: MIÐVIKUDAGINN 29. apríl sl. var af FluKmálafélani fslands. Fólasi islenskra atvinnuflug- manna og flugmálastjórn, efnt til ráðstefnu um framtið Reykjavík- urflugvallar. Tilefnið var sú umræða, sem nú hefur verið vakin upp, um hugsanlega nýtingu flugvallar- svæðisins undir byggingalóðir. Ráðstefnuna sóttu um 50 manns, fulltrúar frá aðilum, sem allir eru tengdir málinu á ein- hvern hátt, svo sem samgöngu- ráðuneyti, flugráði, flugmála- stjórn, flugrekstraraðilum (flug- félög stór og smá), landshluta- samtökum sveitarfélaga, bæjar- stjórnum, borgarstjórn Reykja- víkur, samgöngumálanefndum efri og neðri deilda Alþingis, almannavörnum ríkisins, Félagi ísl. atvinnuflugmanna og Flug- málafélagi Islands. Ráðstefnuna setti forseti Flug- málafélags íslands, Ásbjörn Magnússon, og skýrði hann tildrög ráðstefnunnar. Fundarstjóri var Baldvin Jónsson hæstaréttarlög- maður. Ræddi hann í upphafi nokkur atriði úr 40 ára sögu flugvallarins. Samgönguráðherra, Steingrímur Hermannsson, ávarpaði ráðstefnuna og kom inn á þá helstu valkosti sem menn hefðu á liðnum árum talið vera á staðsetningu flugvallarins. Framsöguerindi fluttu Agnar Kofoed Hansen, flugmálastjóri. Einar Helgason, forstöðumaður flutningsdeildar Flugleiða hf. Jó- hann T. Bjarnason, framkvæmda- stjóri Fjórðungssambands Vest- firðinga. Að framsöguerindunum loknum hófust umræður og tóku eftirtaldir fundarmenn til máls: 1. Gunnar Sigurðsson, flug- vallarstjóri Reykjavíkurflug- vallar. 2. Dr. Þorgeir Pálsson, flugvérk- fræðingur, dósent við verkfr.deild Háskóla íslands. Ræddi hann sér- staklega um hávaðamengun í og við borgina og gerði samanburð á hávaða frá bílaumferð í borginni, sem hefði stöðugt aukist og há- vaða af flugumferð við Reykjavík- urflugvöll sem hefði stöðugt minnkað á síðustu árum. Minnti hann á hver öryggisþáttur væri að tilveru Reykjavíkurflugvallar þar sem hann er nú, ef til átaka af mannavöldum eða hamfara nátt- úrunnar kæmi. Reykjavíkurflug- völlur væri ekki síður nauðsyn- legur í slíkum tilvikum en aðliggj- andi vegir og svo Reykjavíkur- höfn. 3. Haukur Hauksson, verkfræð- ingur, framkvæmdastjóri flugör- yggisþjónustunar, skýrði frá því að alþjóðlegir staðlar Alþjóða flugmálastofnunarinnar væru haldnir hér og að kröfur flugmála- stjórnar íslands væru jafnvel harðari. 4. Haraldur Gíslason, fram- kvæmdastjóri Sambands sveitar- félaga á Suðurnesjum, benti á að umferðaröngþveiti það sem nú ríkir á köflum á Reykjanesbraut myndi versna til muna ef flytja ætti innanlandsflug til Keflavíkur eða ef byggður yrði nýr flugvöllur sunnan við Reykjavík og yrði því að snúast gegn því með vegagerð. 5. Bjarni Einarsson, hagfræð- ingur, forstöðumaður byggða- deildar framkvæmdastofnunar rikisins, ræddi nauðsyn þess að flugvöllur Reykjavíkur væri sem næst því miðsvæði þar sem stjórn- sýslu- og þjónustustofnanir fyrir allt landið væru. 6. Friðrik Pálsson, hagfræðing- ur og framkvæmdastjóri, benti á að staðsetning flugvallar væri lykillinn að notagildi hans. Skýrði hann frá því hvernig núverandi Reykjavíkurflugvöllur hefði bein- línis gert landsbyggðarmönnum mögulegt að taka þátt í stjórn- arstörfum stofnana og samtaka sem störfuðu fyrir allt landið. 7. Kristján Egilsson, formaður Félags ísl. atvinnuflugmanna ræddi öryggismál og valkosti sem verið hefðu á öðru fiugvallarstæði. 8. Egill Skúli Ingibergsson, borgarstjóri, sagði frá umræðum um mál Reykjavíkurflugvallar í borgarstjórn. Taldi hann æskilegt að öll rök með og móti kæmu fram. 9. Eiður Guðnason, formaður samgöngumálanefndar efri deild- ar Alþingis, benti á að athuga þyrfti þá lengingu flugtíma og með henni kostnaðarauka sem yrði því samfara að flytja innan- landsflug til Keflavíkurflugvallar og að það væri út í hött að tala um lokun Reykjavíkurflugvallar þeg- ar við byggjum við ónýtt vega- kerfi. 10. Oddrún Kristjánsdóttir, B.Sc.,fulltrúi í samgönguráðinu ræddi um könnun er hún gerði á hávaðamengun frá flugvellinum árið 1978 og komst að þeirri niðurstöðu að hún væri ekki stór- vægileg. 11. Rúnar Guðbjörnsson, flug- stjóri, skýrði frá því að hann hefði á sínum tíma verið meðmæltur því að flugvöllurinn yrði fluttur á Álftanesið, en í dag myndi hann ekki styðja slíkt. 12. Birgir Guðjónsson, lögfræð- ingur, deildarstjóri í samgöngu- málaráðuneytinu, ræddi lögfræði- leg mál varðandi Reykjavíkur- flugvöll og landið undir honum og benti á að jafnræði væri milli ríkis og borgar hvað það snerti. Að loknum umræðum var borin upp eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með öllum greidd- um atkvæðum: Ráðstefna Flugmálafélags ís- lands, Flugmálastjórnar og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hald- in 29. apríl 1981, ályktar að nú þegar hefjist virkt samstarf flug- málayfirvalda, Reykjavíkurborg- ar, samtaka sveitarfélaga, flug- rekstraraðila og annarra sem hagsmuna hafa að gæta um að tryggja framtíð og þróun Reykja- víkurflugvallar á núverandi stað. Hugmyndir um breytta stað- setningu Reykjavíkurflugvallar eru andstæðar ákvörðunum borg- aryfirvalda og samgönguráðu- neytisins í svæðisskipulagi frá 1976. Fullyrða má að fyllsta öryggis sé gætt við flugumferð við Reykja- víkurflugvöll í hvívetna. Annað hentugt flugvaliarstæði er ekki til á Stór-Reykjavíkur- svæðinu. Sú staðreynd að Reykjavíkur- flugvöllur er staðsettur í hjarta borgarinnar, skapar umsvif, at- vinnu og tekjur fyrir borgina. Tíðar öruggar ferðir frá dreif- býlinu til Reykjavíkur hafa orðið til þess að íbúar dreifbýlisins hafa sætt sig við að þurfa að sækja til höfuðborgarinnar hvers konar þjónustu sem ella yrði gerð krafa um að dreift yrði um landið með stórlega auknum kostnaði fyrir ríkið og tekjuskerðingu hjá Reykjavíkurborg. (Fréttatilkynning) Helgi J. Helgason bóndi á Þursstöðum Vilja tryggja framtíð og þróun vallarins á núverandi stað Það er greinilega ekki hentug aðferð að mæla tíma eftir útliti og atferli Helga á Þursstöðum. Það er einfaldlega vegna þess að Helgi hefur staðið sig betur í glímunni við tímann en almennt gerist. Fyrstu aðvörunum Elli kerlingar hefur hann svarað með glettni- og spaugsyrðum, þegar rósemin ein hefur ekki. þótt henta. Frændi minn hefur aldrei beygt sig fyrir hótunum hvaðan svo sem þær hafa komið. Langlífi er afstætt orð og vissu- lega eru árin ekki eini rétti mælikvarðinn. Hér gildir að lifa lífinu sjálfum sér og öðrum til gagns og ánægju. Þegar hugur er leiddur að því hvað helst valdi erni Þursstaðabóndans gæti þetta staðið eftir: Hann hlaut í vöggu- gjöf andlegt og líkamlegt atgervi foreldra sinna, rósemi athygli og æðruleysi föðurins, Helga Jónasar Jónssonar frá Bálkastöðum við Hrútafjörð, og hressilegan mynd- ugleik og glaðværð móðurinnar, Guðrúnar Magnen Þórðardóttur frá Gróttu á Seltjarnarnesi. í æðum bóndasonarins rann því sjómannsblóð. Faðir hans var vanur og elskur að sjó og móðirin af Engeyjarætt. Því var Helgi ungur maður margar vetrarver- tíðir á togurum til þess að bæta sér í bú. Slíkt gefur þroska og Iífsreynslu. Menn, sem kynnst hafa kjörum fleiri stétta en sinnar eigin, una betur hag sínum og líta af raunsæi yfir þjóðmálagarðinn. Sú var einnig gæfa Helga sem fyrst og fremst hefur unnað sveitabúskap og lífi hjarðsveins- ins. Sjómannsáranna með Jóni Otta frænda sínum minnist Helgi alltaf með mikilli ánægju. Hann lét líka verða af því, sem menn á áttræðis- aldri gera yfirleitt ekki, að fara í veiðitúr með togara, þegar honum bauðst það sem skemmtiferð. Varð ferðin og samskiptin við strákana um borð honum mjög til ánægju. Ég veit að Helgi tekur undir það að það stuðli að’langlífi að eiga sér yngri konu, sem ekki einasta gleður auga manns síns heldur einnig stuðlar í hvívetna að hag hans og sóma heimilisins. Margur hefur notið gestrisni og mynd- arskapar á Þursstaðaheimilinu. Þar á kona Helga, Guðrún Tryggvadóttir, ekki síðri hlut. Að eiga slíka konu er ekki lítil gæfa. Jafnaðargeð og æðruleysi hlýtur að stuðla að langlífi. Maður, sem á fyrsta búskaparári missir hús, hey og skepnur í eldsvoða hefur þurft á slíku að halda. Kominn af sjómönnum tók Helgi þann kost að leggjast fastar á árina í róðri lífsbaráttunnar í átt til bjargálna. Sá róður tókst. Bóndinn varð vel bjargálna en gleymdi aldrei því að til er fólk sem auðnast ekki eða á ekki kost á að láta lífsróðurinn takast. Hafa slíkir ætíð átt vísa samúð og stuðning Þursstaða- bóndans. Fyrir þremur eða fjórum árum varð Helgi fyrir því óhappi að hljóta slæma byltu og var hann því fluttur í sjúkrahús, meðvit- undarlaus. Er hann kom til ráðs var ung og falleg hjúkrunarkona að stjana við hann. Komu þá fyrstu orðin eftir slysið: „Mikið ert þú falleg, vina mín.“ Auðvitað kom Helgi fyrst auga á björtu hliðina, enda ekki annað séð en hann hafi náð sér að fullu. Gott eiga þeir skilið sem gleði valda, segir gamalt mátæki og á öðrum stað er sagt, að hláturinn lengi lífið. Já, því ekki það. Kannski er þarna skýringin. Fleyg eru mörg tilsvör og gamansögur frá Helga. En ætíð hefur gilt einu hver í hlut hefur átt. Sýslumenn jafnt sem aðrir geta þurft að verja sig á svelli glettninnar, ef svo ber undir, enda flestar stéttir í kunn- ingjahópnum. Éinu „ellimörkin", sem ég tel mig greina á frænda eru meiri rósemi í stjórnmálabaráttunni, en um langan tíma átti Sjálfstæðis- flokkurinn hvergi ötuili baráttu- mann. Áralöng barátta í hrepps- mála- og landsmálapólitík varð þó oft svo hörð að undan sveið. Nú er horft meira úr fjarlægð til bar- dagans og mildari augum. Kannski væri það okkur fleiri hollt. Af mörgum trúnaðarstörfum heldur Helgi enn í sæti sitt í sýslunefnd Mýrasýslu. Segir hann stundum í gamni að nú séu menn hættir að reyna að fella hann, en sagt hefur verið í móti, að sveit- ungar hans séu tillitssamir við gamla menn. Til forna hafi líka verið venja í bardögum að láta gömlu brýnin hafa einhverskonar aukahlutverk. Sú vegtylla, sem Helga hefur þó þótt vænst um, er fjallkóngsstarfið, sem hann hafði á hendi í fjölmörg ár. Rifjar hann upp fjallferðasögur af barnslegri gleði. Kæri frændi! Ur þessu má búast við að Elli kerling fari að teygja hendur sínar lengra í átt til þín. Ég vona einlæglega, að hún handleiki þig ekki af hörku heldur með mjúkum höndum líkt og hjúkrunarkonan fagra á Akranesi. Til slíks hefur þú líka unnið með umhyggju við þá, sem átt hafa á brattann að sækja í lífinu. Þegar svo sá fjallkóngur kemur, sem engan þráan sauð skilur eftir, vona ég að hlíðar dalsins verði enn grænar og minningin um sumarið nái aldrei að fölna. Bestu kveðjur til þín og þinna í tilefni dagsins. Helgi Kristjánsson fj, Törukynning SS a aleggi í SS búöinni Glæsibæ í dag kl. 2 Komið og bragðið á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.