Morgunblaðið - 05.05.1981, Page 19

Morgunblaðið - 05.05.1981, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1981 19 Á myndinni eru írá vinstri: Ole Skjeldal frá Noregi, en Norð- menn urðu i þriðja sæti i keppn- inni, Ra^nar Örn Pétursson frá íslandi með sigurlaunin ok Martti Hamalainen frá Finn- landi, en Finnar hrepptu þriðja sætið. Barþjónar: ísland sigraði á Norðurlandamóti NORÐURLANDAMÓT barþjóna fór fram í síðustu viku ok sÍKraði ísland í keppninni, eins ok fram hefur komið i Mbl.. en að þessu sinni var keppt í medium dry- kokteilum. ísland laKði til tvo drykki i keppnina. Heklu ok Heimaey, ok hlutu þessir drykkir samtals 30 stÍK ok þar með sÍKur í keppninni. Þetta er í fyrsta skipti sem ísland sÍKrar i slikri keppni, en tsland hefur tekið þátt í henni allt frá árinu 1964. Fulltrúar íslands í keppninni voru þeir Ragnar Örn Pétursson, formaður Islenska barþjóna- klúbbsins og Heiðar Sigurjónsson varaformaður. Verðlaun fyrir sig- ur í keppninni eru farandbikar, en um hann verður næst keppt í Kaupmannahöfn á næsta ári. Sigurkokteilarnir eru þannig lagaðir: Heimaeý: 2 cl vodka Smirnoff, 2 cl Plessis (ísbrjótur) og 2 cl kirsuberja 21. Rautt kokteilber. Hrærður. Hekla: 3 cl vodka Smirnoff, 2 cl Royal Mint chokolade, 1 cl Campari. Rautt kokteilber. Hrærður. „VERÐI SÍI niðurstaða þessara deilna, að Einar Hákonarson skólastjóri fari frá skólanum og að sjónarmið hans verði undir. þá tel ég ástæðu til að óttast um framtið skólans og heill hans,“ sagði Helgi TrygKvason bók- bindari ok kennari við Mynd- lista- ok handiðaskóla íslands i samtali við Morgunblaðið i Kær. er hann var spurður álits á þeim deilum sem nú eru uppi i skólanum. — HelKÍ er elsti kennarinn við skólann. <>k hef- ur starfað þar með stuttum hléum i f jörutiu ár. „Á þessum tíma hef ég fylgst með skólanum og þroska hans, og hvernig hann hefur smám saman þróast í tímans rás“ segir Helgi. „Inn í skólann hefur á HelKÍ TryKKvason bókbindari eins og sumir telja, eða lát- bragðsleik eins og aðrir vilja nefna þetta, fari úr skólanum. — Annars væri fróðlegt að taka þessa tvo sjónvarpsþætti fyrir, er ég nefndi áðan, og fá Björn Th. Björnsson listfræðing til að fjalla um „listina" og útskýra hana í smáatriðum. Ég vil taka það fram að ég héf haft mikla ánægju af þáttum Björns í sjónvarpinu í vetur, þeir hafa verið fróðlegir og skemmtilegir, en ekki kæmi mér á óvart þótt honum vefðist tunga um tönn við útskýringar á nýlistinni svoköll- uðu.“ Helgi sagði, að það væri sín skoðun að menntamálaráðherra „Þessi starfsemi á ekki heima í skóla er kennir sig við myndlist og handíðir“ — segir Helgi Tryggvason sem kennt hefur við Myndlista- og handíðaskólann í f jörutíu ár þessum árum komið fjölmargt fólk með ótvíræða listræna hæfileika, og á móti því hafa tekið kennarar, sem verið hafa færir um að leiðbeina því og hjálpa til nokkurs þroska í listinni. Reynt hefur verið að láta skólann starfa í anda Lúð- víks Guðmundssonar stofnanda hans, og það var því fengur fyrir skólann og listina í landinu er núverandi skólastjóri kom að skólanum, harðduglegur hug- sjónamaður og góður stjórnandi. Hann hefur haft góða stjórn á skólanum og hann hefur bein í nefinu til að segja meiningu sína umbúðalaust ef því er að skipta." Helgi sagði, að sú deila, sem nú er uppi innan skólans, væri deila um það hvort innan Mynd- lista- og handíðaskólans ætti að starfa deild sem að flestra mati ætti hvorki samleið með mynd- list né handíðum. „Ég hef orðið var við það hjá fjölmörgu fólki," sagði Helgi ennfremur, „að eftir að sjónvarpið sýndi tvo þætti um þessa svokölluðu nýlist, annan úr skólanum og hinn frá Korp- úlfsstöðum, að menn eru forviða og spyrja sjálfa sig hvað sé eiginlega á seyði hér innan skólans. Ég hef aldrei orðið var við aðra eins óánægju, og fólki ofbýður hvað bjóða á þjóðinni uppá, og margir hafa raunar haft á orði að ætlunin hafi verið að ganga fram af fólki eða gera grín að því nema hvorttveggja sé. Það, sem Einar Hákonarson skólastjóri er nú að gera, er í rauninni ekki annað en það að losa skólann við það, sem alls ekki á heima innan veggja hans og alls enga samleið á með annarri starfsemi skólans. Fólk getur að sjálfsögðu stundað sína list eins og því líkar, „nýlist" sem aðra list, en innan skóla sem fæst við myndlist og handíðir á þetta ekki heima. — Síst af öllu í ljósi þeirrar staðreyndar, að fjölda nemenda er hér vísað frá árlega vegna þrengsla. Með það í huga, verður varla erfitt að skilja rökin fyrir því að „list“ sem meira á skylt við fíflagang ætti að kynna sér þetta mál mjög vandlega áður en hann tæki ákvörðun um að ógilda ákvörðun Einars Hákonarsonar skólastjóra. „Hér hefur verið stigið skref í þá átt að hreinsa skólann af starfsemi sem ekki á heima innan hans, og mennta- málaráðherra hlýtur að hugsa sig vandlega um áður en hann gengur þar í mót. Nýlega var sýnt í sjónvarpi hvar tvær manneskjur stóðu hvor gegn annarri, og blésu upp tyggi gúmmíblöðrur þar til þær sprungu. — Hver heilvita maður sér að „list“ af því tagi á ekki heima í skóla er kennir sig við myndlist og handíðir. Verði ákvörðun skólastjórans í þessu máli hnekkt, skal að minnsta kosti verða héraðsbrestur," sagði • Helgi að lokum. Frá blaðamannafundinum. Fremst á myndinni eru Jóna Sveinsdóttir, formaður félagsins. en við hlið hennar Ásgerður Ingimarsdóttir, deildarstjóri. Gegnt þeim við borðið eru Oddur Ólafsson, formaður hússjóðsins og Anna Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri vinnustofunnar. ■ 5-5 * Oryrkjabandalag Islands 20 ára: Húsnæðisskortur sameig- inlegt vandamál öryrkja ÖRYRKJABANDALAG íslands er 20 ára í daK, en það var stofnað hinn 5. maí 1961. Stofn- endur voru 6 öryrkjafélöK cða styrktarfélöK þeirra, en þau voru: Blindrafélag íslands, BlindravinafélaK íslands, SÍBS, SjálfsbjörK, StyrktarfélaK lam- aðra ok fatlaðra og StyrktarfélaK vangefinna. Síðar hafa bætzt við Geðverndarfélagið, Foreldra- <>k styrktarfélaK heyrnardaufra, Heyrnarhjálp <>k GÍKtarfélaKÍð. Samkvæmt lögum Öryrkja- bandalagsins er tilgangur þess: 1) að koma fram fyrir hönd öryrkja gagnvart opinberum aðiljum. 2) að reka vinnumiðlunar- og upplýs- ingaskrifstofu fyrir öryrkja. 3) að koma á samstarfi við erlend fé- lagasamtök er starfa á líkum grundvelli og hagnýta reynslu þeirra og 4) að vinna að öðrum sameiginlegum málefnum öryrkja. í lögum Öryrkjabandalags íslands segir ennfremur: „Hvert félag innan bandalagsins er algerlega sjálfstætt um sín innri mál.“ Æðsta stofnun bandalagsins er þing þess er kemur saman árlega og samanstendur af þremur full- trúum frá hverju aðildarfélagi. Stjórn er kosin annað hvert ár en í henni er einn fulltrúi frá hverju félagi. Fyrstu starfsár Öryrkja- handalagsins voru meginverkefni þess margvísleg félagsleg þjón- usta og vinnumiðlun. Fram- kvæmdastjóri þess var þá Guð- mundur Löve, hann mótaði störf og stefnu bandalagsins þar til hann féll frá, í maí 1978. Á blaðamannafundi, sem stjórn Öryrkjabandalagsins efndi til í tilefni af 20 ára afmælinu, kom fram að stjórnendum bandalags- ins varð það fljótlega ljóst, að erfiðasta sameiginlega vandamál öryrkja var skortur á húsnæði. Við könnun hafði komið í ljós að öryrkjar bjuggu oftast í lélegu húsnæði og sama ástand virtist ríkja í nágrannalöndunum. Af þessum ástæðum stofnaði Ör- yrkjabandalagið hússjóð 1964 er skyldi fá það hlutverk að byggja og reka leighúsnæði fyrir öryrkja. Byggingarframkvæmdir hófust í sept. 1966 og nú á sjóðurinn 209 íbúðir i 3 háhýsum við Hátún í Reykjavík og 41 íbúð við Fanna- borg 1 í Kópavogi. Allar íbúðirnar eru leigðar öryrkjum og öldruðum. Auk þess leigir hússjóður Ríkis- spítölunum 94 sjúkrapláss í Há- túni — þar af hefur Öldrunardeild Landspítalans 66 en 28 eru fyrir geðsjúka. Þrátt fyrir þetta hús- næði vantar mikið upp á að húsnæðisþörf öryrkja hafi verið fullnægt og eru að jafnaði um 300 manns á biðlista með að fá inni í húsnæði félagsins. Fljótlega varð ljóst að margir íbúar höfðu hug á að dunda eitthvað til gagns og gamans. Þess vegna hefur Öryrkjabandalagið síðustu árin rekið öryrkjavinnu- stofuna Örtækni á 9. hæð í Hátúni lOa. Hjá Örtækni eru nú fram- leiddir gjaldmælar fyrir leigu- og sendiferðabifreiðar, umferðartelj- arar og fleiri rafeindatæki — auk þess viðgerðir og hreinsun á tal- símatækjum fyrir Landssíma ís- lands og frágangur á prjónavörum fyrir Álafoss hf. Um áraraðir hefur skrifstofa bandalagsins veitt öryrkjum ókeypis lögfræðiaðstoð og fjöl- breytta félagslega þjónustu, m.a. séð um margháttuð störf í sam- bandi við úthlutun öryrkjabif- reiða. Nýlega hófust framkvæmdir við tengiálmu í Hátúni á vegum Öryrkjabandalagsins. Þegar sú bygging verður fullgerð mun að- staða til vinnu og margskonar þjónustu verða mun betri fyrir skjólstæðinga félagsins. Að lokum má geta þess að Öryrkjabandalag- ið er meðlimur Alþjóðaendurhæf- ingarsambandsins og hefur frá stofnun haft náið samstarf við ráðamenn þess. Sveit VR sigraði í spurninga- keppni SL SVEIT VerslunarmannafélaKS Reykjavíkur sigraði í spurninga- keppni fagfélaganna. sem haldin hefur verið í vetur á Sólarkvoldum Samvinnuferða-Landsýnar. Sveit VR lagði. í úrslitakeppni. sveit Dagsbrúnar að velli í æsispennandi keppni. Hlutu VR-menn 8 stig, en Dagsbrúnarmenn svöruðu sjö spurningum. Það voru VR-mennirnir Baldur Óskarsson, Pétur Maack og Sigur- finnur Sigurðsson, sem skipuðu hina harðsnúnu sigursveit. Fékk hver þeirra í verðlaun tvær Lundúnaferðir í leiguflugi með Samvinnuferðum- Landsýn. Dagsbrúnarmenn fengu verðlaun fyrir 2. sætið í keppninni, kr. 1.000.- fyrir hvern keppanda, og veglegan blómvönd að auki. Á þessu síðasta sólarkvóldi nýlið- ins vetrar komu einnig fram hinir víðfrægu jassleikarar Chris Woods og Lynett Woods. ítalska fyrirtækið Gucci sýndi hluta af módelfram- leiðslu sinni og ýmislegt var gert til skemmtunar að venju. Sólarkvöld Samvinnuferða- Landsýnar hefjast á nýjan leik í Súlnasal næsta haust. (Fréttatilkynning) Magnús Axelsson afhendir sveit VR verðlaunin. Frá vinstri: Sigfinnur. Pétur og Baldur. Á myndinni er einnig Sigurður Haraldsson, sem skipulagt hefur skemmtikvöld Samvinnuferða- Landsýnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.