Morgunblaðið - 05.05.1981, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981
27
• Fyrirliði Arsenal. Pat Rice, tekur við bikarnum eítir að Arsenal
sÍKraði Man. Utd. 3—2 1979. Lengst til vinstri er Karl Bretaprins.
Stanley gamla til þess að vinna til
einhverra verðlauna sem vit var í.
En þegar um 20 mínútur voru eftir
af leiknum benti fátt til þess að
eitthvað slíkt væri í vændum,
enda var staðan þá 3—1 fyrir
Bolton.
En þá tók Matthews til sinna
ráða, sýndi slíka takta að leik-
menn Bolton réðu ekki neitt við
neitt. Þegar upp var staðið hafði
Blackpool sigrað 4—3 og voru tvö
síðustu mörkin skoruð á fjórum
síðustu mínútunum. Leikmenn
Bolton settu 2—3 leikmenn til
höfuðs Matthews, en allt kom
fyrir ekki, einn fékk krampa,
annar slasaði sig á eigin bragði er
hann reyndi að stöðva snillinginn
með örþrifaráðum. Það var Matt-
hews sem lagði grunninn að hin-
um frækna sigri Blackpool, en
góðvinur hans, Stan Mortensen,
lék einnig stórt hlutverk, en hann
afgreiddi þrjár vítaspyrnur rétta
• Allt er jafnan í röð og reglu á boðleið í leiknum. Er það í eina
Wembley og nágrenni þegar úr- skiptið sem leikmaður hefur skor-
slitaleikirnir fara fram. Og til að
svo sé þarf þúsundir af lögreglu-
þjónum. Og þeir eru mættir til
leiks snemma morguns sama dag
og leikurinn fer fram. Því að
aðdáendur félaganna þurfa jafn-
an að undirbúa sig á bjórkrán-
um.
seinna stríðið og meðan það stóð
yfir lá kriattspyrnuhald Breta
niðri að mestu.
Óvenjulegt atvik átti sér einnig
stað í fyrsta úrslitaleiknum eftir
stríðið. Þá áttust við Charlton og
Derby. Er leikurinn var rétt að
hefjast og dómarinn var að ræða
við fyrirliðana sagði hann skyndi-
lega: „Jæja strákar, möguleikarnir
á því að knötturinn springi í
leiknum eru einn á móti milljón."
Enginn gerði sér grein fyrir því
hvers vegna dómarinn lét orð
þessi falla, en auðvitað sprakk
knötturinn!
Matthews sló í gegn
Margir úrslitaleikir hafa ein-
kennst af því að einn eða fleiri
leikmenn hafa „brillerað". Einn
leikur þykir þó standa hátt upp úr
þeim leikjum sem þetta á við um
og er það úrslitaleikurinn milli
Blackpool og Bolton árið 1953.
Stanley Matthews hafði lengi ver-
ið stjarna Blackpooi og er það mál
manna, að fáir hafi jafnast á við
kappann er hann var upp á sitt
besta. Blackpool hafði tvívegis
leikið til úrslita, árið 1948 gegn
Manchester Utd. og 1951 gegn
Newcastle, en báðum hafði liðið
tapað. Þess vegna litu menn svo á,
að úrslitaleikurinn gegn Bolton
myndi vera síðasta tækifæri
að þrennu, eða „hat trick" eins og
Bretar kalla fyrirbærið, í úrslita-
leik þessum.
Ekki alltaf
einstakir leikmenn
En það eru ekki alltaf einstakir
leikmenn sem stela senunni. Vorið
1979 voru aðeins fjórar mínútur
eftir af úrslitaleik Arsenal og
Manchester Utd., er flestir voru á
því, að einum lakasta úrslitaleik
sögunnar væri senn lokið. Staðan
var þá 2—0 fyrir Arsenal og ekki
annað að sjá en að leikurinn
ætlaði að fjara út í sömu logn-
mollunni og hafði einkennt hann
frá byrjun. En þessar síðustu 4
mínútur áttu eftir að verða
ógleymanlegar og sjaldan hefur
Wembley-leikvangurinn nötrað
jafn hressilega.
Gordon McQueen potaði knett-
inum í netið fyrir United á 86.
mínútu og flestir töldu að það yrði
síðasta markið. En rúmri mínútu
fyrir leikslok prjónaði Sammy
Mcllroy sig í gegn um vörn
Arsenal og jafnaði! Allt var ger-
samlega á suðupunkti og fóru
ýmsar bollaleggingar í gang.
Töldu flestir skyndilega United
sigurstranglegri aðilann ef út í
framlengingu færi og sannarlega
virtist allt stefna í það. En á
síðustu mínútu leiksins geystist
Liam Brady upp vinstri vænginn,
sendi fyrir markið og leikmenn
United höfðu í sigurvímu sinni
gleymt að leikurinn var ekki
búinn. Alan Sunderland beið við
fjærstöngina og er hinn ungi
markvörður United, Garry Bailey,
missti knöttinn yfir sig, þurfti
Sunderland ekki annað en að ýta
honum í tómt markið. Innsiglaði
hann þar með sigur Arsenal eftir
ævintýralegar lokamínútur. Var
það mál manna, að þessar fáu
mínútur hafi haft margfalt
skemmtanagildi á við þær 86
mínútur sem liðnar voru.
En hver sem úrslit verða á
laugardaginn má alltaf búast við
atvikum á borð við þau sem hér
eru nefnd. Leikir þessir eru oftast
nokkuð frá því að teljast góðir
knattspyrnulega séð, enda spenna
alltaf mikil og geysilega mikið í
húfi. En mitt í öllum taugaæs-
ingnum og allri spennunni eru
ólíklegustu hlutir vísir til þess að
skjóta sér upp á yfirborðið. Það er
gömul saga og ný í úrslitaleikjum
F A-bikarkeppninnar.
(Þýtt, endursagt,
samantekið og fl. — gg.)
Aston Villa hefur
oftast sigrað
HVAÐA lið skvldi nú hafa
sigrað oftast í ensku bikar-
keppninni frá því að keppnin
hófst fyrir 100 árum? Það er
Aston ViIIa. Liðið sem varð
Englandsmeistari í ár. Aston
ViIIa hefur sigrað alls sjö sinn-
um í keppninni. Það var árið
1920 sem liðið sigráði siðast. Þá
vann það Huddersfield 1—0
eftir framlengdan leik.
Lið Newcastle og Blackburn
hafa bæði sigrað sex sinnum.
Þar næst koma lið Arsenal,
Tottenham og Wanderers. Þau
hafa sigrað fimm sinnum.
Þau lið sem oftast hafa kom-
ist í úrslitaleikinn eru þessi:
Newcastle, Arsenal og WBA.
Þau hafa leikið 10 úrslitaleiki
frá upphafi.
-þr.
■
......
• í fyrra sigraði lið West Ham Arsenal nokkuð óvænt 1—0 í úrslitaleiknum. Á myndinni sjást þeir Trevor
hlaupa sigurhringinn með bikarinn. Það vár Trevor Brooking sem skoraði sigurmark ieiksins.
Brooking (t.v.) og Frank Lampard
• Þó svo að sigur vinnist á Wembley er mikið eftir enn. Stærsta stundin er þegar liðin fara með hikarinn
á heimaslóðir. Hér er það lið Arsenal sem er að mæta með bikarinn til Norður-Lundúna.
kí