Morgunblaðið - 05.05.1981, Síða 44

Morgunblaðið - 05.05.1981, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981 COSPER Svo fáið þið miða á frumsýninguna! I>ú blakar eyrunum ef það er eitthvað sem éj? get gert! Með morgunkaffinu Mér virðist sem frekar muni þurfa að Krisja meðal veiði- mannanna. HÖGNI HREKKVÍSI 7 MiSI WNAIKM þ'RU mKoO mtfASb'M / " Kleppsspitali Hugleiðing um Klepparaslagorð 1144—8682 skrifar: „Kæri Velvakandi: Þar sem ég veit að dálkar þínir eru mikið lesnir og eru vettvang- ur hinna ýmsu þankaganga dag- legs lífs, er það von mín, að þessari línur nái til einhverra og þá aðallega þeirra, sem hafa þá áráttu að sjá eitthvert samhengi með því, sem þeim líkar ekki í þjóðlífinu og hinna svokölluðu Klepparaslagorða. Lýsir mikilli vanþokkintfu Dæmi: „Þetta er nú alger Kleppari," eða: „Þeir væru nú best geymdir á Kleppi," saman- ber það sem einn skrifaði í dálka þína um hljómsveit eina, sem honum líkaði miður og taldi að best væri fyrir þessa hljómsveit- armenn að fá pláss inni við Sundin blá og vera þar. Mér finnst allt svona tal lýsa mikilli vanþekkingu á málefnum þeirra sem eiga við andlega erfiðleika að stríða. Fer ekki í mann- greinarálit Heilsan er það dýrmætasta sem við eigum og er það nógu sárt að missa hana, hvort heldur er á líkamlega eða andlega sviðinu, þó að ekki þurfi að hafa þessa óhamingju fólks sífellt í flimtingum og fara um það niðrandi orðum. Enginn veit hvar heilsuleysið ber næst niður og eitt er víst að það fer ekki í manngreinarálit. Vonandi eykst þekking og skilningur fólks Og fyrir þá sem ekki vita, hvað Kleppsspítali er: Hann er sjúkrahús, sem tekur við mis- jafnlega veiku fólki og margir fá þar bata, þó að ekki læknist allir þar, því miður, fremur en á öðrum sjúkrahúsum. Það er von mín, að nú, á ári fatlaðra, og á komandi árum, aukist þekking og skiiningur fóiks á málefnum þeirra sem sökum veikinda sinna sitja ekki við sama borð og þeir sem telja sig heilbrigða." Áskorun til Saurbæ- inga bæði f jær og nær Árni Ketilbjarnar skrifar: „Eins og mörgum er kunnugt, þá fauk hin 82 ára gamla Staðarhóls- kirkja í Saurbæ, Dalasýslu, af grunni í ofsaveðri sem geisaði um land allt í febrúar síðastliðnum og lenti kirkjan á félagsheimili þeirra Saurbæinga og stórskemmdist. Er sárt til þess að hugsa, þar sem áður hafði farið fram mikil viðgerð á kirkjunni. Nú hefur hinn áhugasami sókn- arprestur Saurbæinga, séra Ingi- berg J. Hannesson að Hvoli í Saurbæjarhreppi, Dalasýslu, ásamt sóknarnefnd kirkjunnar, ákveðið að endurreisa kirkjuna, og verður hafist handa hið bráðasta, þrátt fyrir að verk þetta muni kosta mikið fé. Nú er það áskorun til allra Saurbæinga, bæði nær og fjær, að koma nú til hjálpar, ennfremur annarra velunnara Staðarhóls- kirkju, og mun sóknarpresturinn, séra Ingiberg J. Hannesson, taka á móti söfnunarfé ásamt Búnaðar- banka Búðardals, þar sem Staðar- hólskirkja hefúr bankareikning. Breiðfirðingar, hefjumst handa og stöndum saman um endurbygg- ingu Staðarhólskirkju. Staðarhólskirkja eftir óveðrið i febrúar. * *

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.