Morgunblaðið - 05.05.1981, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981
45
Algjör undirlægju-
háttur Framsóknar
Þorkell Hjaltason skrifar:
„Aldrei fyrr í íslenskri stjórn-
málasögu hefur nokkur þingflokk-
ur legið eins kylliflatur undir
kommúnísku jarðarmeni eins og
Framsóknarflokkurinn í atkvæða-
greiðslunni um flugstöðvarmálið,
er fram fór í neðri deild Alþingis
þriðjudaginn 14. apríl sl. Mun slík
atkvæðagreiðsla vera algjört eins-
dæmi í sögu Alþingis á þessari
öld.
Aí einskærri undir-
Keíni við kommana
Það furðulegasta við þessa at-
kvæðagreiðslu Framsóknar er
það, að á aðalfundi flokksins
nokkrum dögum áður, þar sem
meðal annars fór fram kjör
flokksformanns, hafði flokkurinn
tjáð sig samþykkan byggingu
flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli
og raunar talið hana bráðnauð-
synlega framkvæmd, meðal ann-
ars til að aðskilja herflug og
almennt farþegaflug. En nokkrum
dögum síðar er atkvæði um málið
voru greidd á Alþingi, snerust
framsóknarþingmennirnir önd-
verðir gegn fyrri samþykkt sinni
um flugstöðina og greiddu nú
atkvæði á móti byggingunni og
þar með gegn utanríkisráðherra
sínum og fyrrum flokksformanni.
Léku þeir sum sé þannig fullkom-
Þorkell Iljaltason
inn trúðleik af einskærri undir-
gefni við kommana, sem þá höfðu
kippt í spottann og skipað þeim að
greiða atkvæði á móti flugstöð-
inni.
Ekki nothæfur
stjórnaraðili
En utanríkisráðherra hélt fullri
reisn og virðingu sinni í málinu og
greiddi að sjálfsögðu atkvæði með
byggingu flugstöðvarinnar. Og
verður hún áreiðanlega reist, þó ef
til vill verði það ekki í tíð
núverandi ríkisstjórnar. Satt að
Frumvarp sem heimilar hjólreiðar á gangstéttum:
Sendið það út
í ystu myrkur
K-118 skrifar:
„'Ég trúði varla mínum eigin
augum, er ég las í dagblaði fyrir
nokkrum dögum að dómsmálaráð-
herrá hefði lagt fram stjórnar-
frumvarp á alþingi, sem fæli
meðal annars í sér að heimila
hjólreiðar á gangstéttum. Mér
finnst þetta vera svo mikil fjar-
stæða að ég held að þeir, sem að
þessu frumvarpi standa, hafi ekki
gert sér grein fyrir því hversu
hræðilegar afleiðingar gætu orðið
af því, ef það yrði að lögum.
Hafa þeir leitt hugann að því, á
hverjum þetta myndi helzt bitna?
Ef ekki, þá skal ég segja þeim það.
Þeir sem mest nota gangstéttirn-
ar, er roskið fólk og börn, sem
hvorki eiga bíla né reiðhjól og ég
býst við að það sé allstór hópur af
þjóðfélagsþegnunum. En hér er
ráðizt að þeim, sem minnst mega
sín og hafa engan félagsskap að
baki sér, sem gæti skorið upp
herör gegn þessu gerræði. Afleið-
ingin af þessu tiltæki er auðsæ
hverjum, sem hefur oþin augu og
sæmilega skýra hugsun. Gang-
stéttarslys myndu stóraukast og
aldrað fólk og fatlað myndi ekki
þora að fara út fyrir hússins dyr,
nema í fylgd annarra.
Nei, góðir þingmenn, látið það
ekki henda ykkur að samþykkja
þetta vanhugsaða frumvarp.
Sendið það út í ystu myrkur, svo
að það sjái aldrei dagsins ljós
framar. „Ekki veldur sá sem
varar“.“
segja er Alþýðubandalagið alls
ekki nothæfur stjórnaraðili og
hefur raunar aldrei verið það
vegna þvermóðsku sinnar og
afturhaldssemi á flestum sviðum
þjóðlífsins og í öllum þeim stór-
málum, sem til heilla horfa fyrir
þjóðina bæði í nútíð og framtíð.
Þetta er hin mikla ógæfa íslensku
þjóðarinnar við þessa sumarkomu.
13. aldar siðfræði
á hér ekki heima nú
Ég nefni hér nokkur mál, þar
sem nátttröllin og steingerv-
ingarnir í Alþýðubandalaginu
leggjast gegn því, að þjóðhagslega
mikilvægar aðgerðir til eflingar
og uppbyggingar nái fram að
ganga. Svo er um vísitölumál,
orkumál, stóriðjumál og vinnu-
löggjafarmál. Brýn nauðsyn er á
því, að öll þessi ofanskráðu mál
verði leyst á sem farsælastan hátt,
ekki síst vinnulöggjafarmálið, ef
ekki á allt að loga í upphlaupum
og uppreisnum á vinnumerkaðn-
um. Viturlega vinnulöggjöf á að
setja um helstu ágreiningsefnin,
þannig að friður geti orðið í
þjóðlífinu á eyjunni við ysta haf.
Þrettándu aldar siðfræði á hér
ekki heima nú. Á þessum mikil-
vægu punktum veltur framtíð
lands og þjóðar, og öryggi."
Þessir hringdu .. .
Okkar menn
ætla
að bæta um betur
RAM hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: Það var kostu-
legt að fylgjast með þeim Sig-
hvati Björgvinssyni og Páli frá
Höllustöðum í Þingsjánni á
þriðjudaginn var (28. apríl).
Þarna dásömuðu þeir til skiptis
það sem stjórnin hafði gert
SÍKhvatur |>áll
Bjtíritvinsson í'ótursson
annars vegar og það sem stjórn-
arandstaðan hafði gert hins
vegar og hallaði nú heldur á
Alþýðuflokkinn. Þá kvað Sig-
hvatur Alþýðuflokkinn ætla á
komandi vetri að leggja fram
áfengislagafrumvarp sem leggja
mundi grunninn að nýrri áfeng-
ismenningu í landinu, bindind-
issamari þeirri, er núna ríkti.
Þá greip Páll fram í fyrir
honum og sagði: „Okkar menn
ætla nú að bæta um betur.“ Þar
sem ég sat fyrir framan skjáinn
og horfði á þessa snillinga urðu
þessar vísur til:
Bindindisfrumvarp boúar i vetur
hleiklitur Alþýðuflokkurinn.
Okkar menn a'tla aA ha ta um betur.
birtir framsoknarkokkurinn.
Kn alþýða manna vill sjá hvað setur
ok siðan leKKja* á það mat.
hvort Framsókn hefur ei bætt um
betur
ok borað á frumvarpið K&t.
NUDDSTOFA HILKE HUBERT AUGLÝSIR:
Heilnudd, partanudd,
hitalampi, sólarlampi
að Hverfisgötu 39
Upplýsingar og tímapantanir í síma 13680 mánud.
—föstudaga 14.30—18.30 nema þriðjudaga
13.00—17.00.
Fyrir
þvottahús
fjölbýlishúsa
VANDLÁTIR VEUA
WESTINGHOUSE
Westinghouse þvottavélin og þurrkar-
inn eru byggð til að standa hlið við
hlið, undir borðplötu eða hvort ofan á
öðru við enda borðs i eldhúsi eða
þvottahúsi, þar sem gott skipulag nýtir
rýmið til hins ýtrasta.
Traustbyggðar vélar með 30 ára
reynslu hér á landi.
Þið getíð verið
örugg sé vélin Westinghouse
KOMIÐ — HRINGIÐ — SKRIFIÐ!
við veitum allar nánari upplýsingar. ■
Véladeitd
Sambandsins
Ármúla 3 Reyk/avik Simi 38900
Hlustaðu á
AKAI
1/3 út,eftirstöðvará 7mán.
5 ára ábyrgð
ORÐSENDING
TIL FORELDRA
í þessari viku fá nemendur grunnskóla
í hendur bæklinginn
„Sumarstarf fyrir börn
og unglinga 1981“,
með upplýsingum um framboð á
sumarstarfi neðangreindra stofnana.
Foreldrar eru hvattir til þess aö skoöa
bæklinginn vandlega með börnum sínum.
fþróttaráð Reykjavíkur Tjarnargötu 20 s. 28544
Leíkvallanefnd Reykjavíkur Skúlatúni 2 s. 18000
Skólagarðar Reykjavíkur Skúlatúni 2 s. 18000
Vinnuskóli Reykjavíkur Borgartúni 1 s. 18000
Æskulýðsrái Reykjavíkur Fríkirkjuvegi 11 s. 15937