Morgunblaðið - 05.05.1981, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981
Slátraraverkíall í Danmörku:
Heggur löggjaf-
inn á hnútinn?
Kaupmannahofn. frá frótta-
ritara Mor>funhlaAsins. Ih Bjornbæk.
DANSKA þjóðþinKÍð var kvatt
saman til aukafundar á mánu-
da«. on rétt áóur en þingfundur
átti aó hofjast. kom ríkisstjórnin
saman á skyndifund til að taka
afstoðu til þess hvort löggjafar-
valdið ætti að binda endi á
kjaradeilu slátrara.
Sláturhús í landinu eru lokuð
vefjna slátraraverkfallsins og út-
flutningur á landbúnaðarvörum
hefur að mestu stöðvazt þess
vegna. Slátrararnir hafa á fund-
um sínum tvívegis hafnað sátta-
tillögum, sem trúnaðarmenn
þeirra og samninganefnd hafa
lagt til að gengið yrði að. Þegar
fyrri sáttatillagan kom fram,
reyndi stjórnarandstaðan að fá
stjórnina til að skipta sér af
málinu, en forsætisráðherrann,
Anker Jorgensen, lagðist eindreg-
ið gegn slíkri málsmeðferð, ekki
sízt þar sem óvenjuve! hefur
gengið að útkljá kjaradeilur með
friðsamlegum hætti í Danmörku
íranir tóku bandarískt
skip með 19 manna áhöfn
að undanförnu. Þegar síðari sátta-
tillögunni var hafnað, varð
ástandið strax mjög alvarlegt, en
að undanförnu hafa svínin hlaðizt
upp í hundraðatali hjá bændum.
Stjórnin og þingið eru í vanda
stödd vegna þessa ástands, ekki
sízt vegna þess, að yfirvofandi er
verkfall háskólamenntaðra manna
í landinu. Ef niðurstaða atkvæða-
greiðslu um fyrirliggjandi sátta-
tillögu í deilu háskólamanna verð-
ur sú, að þeir hafna tilboði hins
opinbera, verður afleiðingin sú, að
verkfall þeirra skellur á, en það
mun hafa mjög víðtækar afleið-
ingar.
Sonia Sutcliffe, eiginkona kvennamorðingjans, kemur ásamt móður
sinni frá réttarhöldunum i Old Baily sl. miðvikudag.
Kuwait. 1. maí. — AP.
SENDIFIERRA írans í Kuwait
skýrði frá þvi i dag að iranskt
herskip hefði tekið handariskt
olíurannsóknaskip i sina vörzlu
með manni og mús, þar sem það
hafi verið statt á svæði þar sem
styrjaldarástand sé rikjandi, en
skipstjórinn hafi þrátt fyrir
ítrekaðar aðvaranir daufheyrzt
við fyrirskipun um að hverfa af
svæðinu.
Andar hjálp-
arlaust með
nýtt hjarta
og ný lungu
Staníord. Kaliíorníu. 1. mai. AP.
MAÐUR, sem nýtt hjarta og
lungu voru grædd i i siðustu
viku. gat í gær dregið and-
ann án hjálpartækja, að þvi
er stjórn Stanford University
Medical Center skýrði frá í
dag.
Charles Walker, sem er
þrítugur að aldri, gekkst und-
ir skurðaðgerðina á föstudag-
inn var, en hann var tekinn úr
öndunarvélinni daginn eftir.
Þótt líðan Walkers sé fram-
ar öllum vonum telja læknar
að hann sé enn ekki úr
lífshættu.
Skipið er nú i höfn í Bushehr,
sem er við austanverðan Persa-
flóa, og að sögn sendiherrans er
skipshöfnin öll við beztu heilsu.
„Þar sem skipið var á svæði,
sem Irakar hafa yfirlýst ófriðar-
svæði, gátum við ekki látið skipið
afskiptalaust," sagði sendiherr-
ann. Hann kvað málið hið flókn-
asta, þar sem skipið væri banda-
rískt og í þokkabót búið tækjum
sem hægt væri að nota til annarr-
ar upplýsingaöflunar en vísinda-
legra rannsókna.
Skipið sem heitir „Western Sea“
hefur að undanförnu leitað olíu og
gass undan ströndum Kuwaits og
þar í grennd. Það er 247 tonn að
stærð og um borð er nítján manna
áhöfn. Yfirvöld í Kuwait hafa
hafið viðræður við irönsk yfirvöld
í því skyni að fá þau til að heimila
skipstjóranum að láta úr höfn, en
skipið siglir undir panamískum
fána.
Féll grunur á Sutcliffe 18
mánuðum fyrir handtökima?
Peter Sutcliffe
Lundúnum. i. maí. AP.
THE SUNDAY Times held-
ur þvi fram um helgina að
átján mánuðum fyrir hand-
töku kvennamorðingjans frá
Yorkshire hafi ungur leyni-
lögreglumaður bent á Peter
Sutcliffe og talið sennilegt
að hann væri morðinginn,
sem leitað var að.
Segir blaðið að yfirmenn
lögreglumannsins, sem heit-
ir Andrew Laptew, hafi látið
undir höfuð leggjast að sinna
ábendingum hans, með þeim
afleiðingum að Sutcliffe hafi
tekizt að myrða þrjár konur
til viðbótar áður en hann var
handtekinn.
Sutcliffe hefur játað á sig
morð 13 kvenna á fimm
árum, en réttarhöldin í máli
hans halda áfram á morgun,
þriðjudag. Myndin hér að
ofan var tekin af Sutcliffe
fyrir þremur árum.
Sprenging í Kabulháskóla
Nýju Delhi. i. maí. AP.
AFGIIANSKA ríkisútvarpið
sagði í gær, að tveir menn,
stúdent og fyrirlesari, hefðu
særzt þegar sprengja, sem sagt
var að uppreisnarmenn hefðu
komið fyrir. sprakk í verkfra*ði-
deild Kabul-háskóla á laugardag-
inn og olli töluverðu eignatjóni.
Mótmælafundur var haldinn í
háskólanum í gær með þátttöku
Óeirðir í Ósló
Frá fróttaritara Moncunhlaósins í Ósló.
ÓEIRDIR hlossuðu upp í Ósló
aðfaranótt 1. maí, þ<i ckki eins
víðtækar og 1. maí í fyrra. Tvö
hundruð og þrjátíu ungmenni
voru handtekin og 30 úrskuröað-
ir í fangelsi fyrir ofbeldi.
Rúmlega 300 lögreglumenn voru
kallaðir út og mikill liðssafnaður
lögreglu var sennilega ástæðan til
þess að ekki keyrði um þverbak.
Óeirðasamt hefur verið 1. maí í
Ósló þrjú ár i röð. Tjón upp á
mörg hundruð þúsund norskar
krónur varð í fyrra þegar rúður
voru brotnar meðfram Karl Jo-
han-götu.
í ár söfnuðust um 2.000 ung-
menni saman í borginni og köst-
uðu grjóti og flöskum að lögreglu.
Lögreglan dreifði ungmennunum
og hrakti þau af aðalgötunum.
Tjón á byggingum varð lítið.
— I .atirc
rektors skólans og Sawar Mangal
varamenntamálaráðherra og þar
var samþykkt ályktun, þar sem
fordæmdar voru „glæpsamlegar
aðgerðir" „bandarískra heims-
valdasinna og útsendara kín-
verskra yfirdrottnunarsinna“. Há-
skólastúdentar í Kabul hafa að
undanförnu staðið fyrir mótmæl-
um gegn nærveru sovézkra og
kúbanskra prófessora. Nokkrar
kennslustofur eyðilögðust í
sprengingu seint í apríl.
Jafnframt hefur „sérstakur
byltingardómstóll" í Kabul dæmt
tvo menn úr uppreisnarsamtökun-
um Hezbi-I-Islami í Pakistan til
dauða fyrir hryðjuverkastarfsemi
og mennirnir hafa verið líflátnir.
Samkvæmt fréttum frá Islam-
abad hafa sovézkir og afghanskir
skriðdrekar hert herkvína um
Kandahar, aðra stærstu borg
Afghanistans, og nær hún nú til
þorpa í 5—10 km fjarlægð.
Skothríð heyrist ennþá öðru
hverju í Kandahar, mörgum dög-
um eftir að skriðdrekar voru
sendir út á göturnar og borgin var
einangruð frá nálægum þorpum.
þar sem margir flokkar skæruliða
hafa hreiðrað um sig. Herflugvél-
ar og þyrlur hafa flogið lágt yfir
borginni í ógnunarskyni. Skæru-
liðar höfðu mestalla borgina á
valdi sínu í fjóra daga í röð seint í
apríl.
Afghanskir og sovézkir her-
menn hafa leitað í húsum í
borginni. Vegna umsátursins er
skortur á nauðsynjavörum eins og
sykri, matarolíu og hveiti.
Alþjóðadómstóll í Stokkhólmi,
sem rannsakar meinta glæpi
Rússa í Afghanistan, hefur fengið
um það upplýsingar frá sjónar-
vottum, að sovézkir hermenn hafi
fallið í Afghanistan þegar á árinu
1978.
Indverskur blaðamaður hefur
eftir Babrak Karmal forseta í dag,
að hann og aðrir afghanskir
stjórnmálamenn, sem voru í ónáð,
hafi gert samsærið um byltinguna
27. des. 1979 og beðið um sovézka
herliðið, sem steypti Hafizullah
heitnum Amin af stóli. Karmal
hefur lengi sagt að Amin hafi
verið útsendari CIA og ætlað að
svíkja málstað marxismans.
- ,i - ~ - j — r->r~>—r. ut a ^ukuiuai uui^ui vai vci iu uiscnuall v^l A ccviiXU
isamt hefur verið 1. maí í — I-aur<1 einangruð frá nálægum þorpum, svíkja málstað marxismans.
jón reif í sig móðnr og þrjú böm
e. Zimhahwc. 1. mai. AP. hana á hol líka. Að svo búnu sig komið og því ófært um að vik’unni bárust af því fregnir, að
ruddist inn í kofa í þorpi hvarf það aftur til skógar. verða sér úti um æti á þeim Ijónynja hefði grandað fiski-
Dande. Zimhahwe. 1. maí. AP.
LJÓN ruddist inn í kofa í þorpi
í námunda við náttúruvernd-
arsva*ði í NA-Zimbabwe í síð-
ustu viku og reif í sig þrjú börn,
sem þar sátu og biðu móður
sinnar. Þegar hún kom á vett-
vang síðla kvölds. var ljónið
enn að rífa í sig bráð sína. Sneri
það sér nú að konunni ug reif
hana á hol lika. Að svo búnu
hvarf það aftur til skógar.
Stofnun sú, sem hefur umsjón
með náttúruvernd í landinu,'
sendi frá sér orðsendingu um
helgina, þar sem sagði, að at-
burðir sem þessi væru afar
fátíðir og bentu líkur til að það
ljón, sem hér hefði verið að
verki, væri á einhvern hátt illa á
sig komið og því ófært um að
verða sér úti um æti á þeim
óbyggðu svæðum, þar sem ljón
héldu sig aðallega. Mörg ár væru
liðin síðan ljón hefði síðast orðið
mönnum að bana á þessum
slóðum, en nú vildi .svo til, að
Ijón hefði tvívegis á tveimur
dögum rifið fólk á hol. Fyrr í
vik'unni bárust af því fregnir, að
Ijónynja hefði grandað fiski-
manni þar sem hann var að
veiðum í Zambezi-fljóti. Um
Ijónið, sem varð konunni og
börnunum að bana, er vitað, að
það er karlkyns, en tilraunir til
að elta það uppi hafa ekki borið
árangur.
Veöur
víöa um heim
Akureyri 2 snjóól
Amsterdam 13 skýjaó
Aþena 24 heiósklrt
Barcelona 21 hálfskýjaó
Berlín 13 skýjað
Brdssel 8 rigning
Chicago 25 rigning
Dyflinni 12 skýjaó
Feneyjar 9 rigning
Frankfurt 10 skýjað
Færeyjar 4 hólfskýjað
Ganf 9 rigning
Helsinki 5 heiðskírt
Hong Kong 20 skýjað
Jerúsalem 24 heiðskírt
Jóhannesarborg 18 heíóskírt
Kaupmannahöfn i 9 heiðskírt
Kairó 32 skýjað
Las Palmas 21 hólfskýjað
Lissabon 18 heiðskirt
London 12 heiðskírt
Los Angeles 23 skýjað
Madrid 23 heiðskírt
Mallorka 20 skýjað
Malaga 25 heiðskírt
Mexicoborg 27 heíðskírt
Míami 24 heiðskírt
Moskva 12 heiðskírt
Nýja Delhi 41 heiðskírt
New York 21 heiðskírt
Osló 11 rigning
Paris 19 skýjað
Beykjavík 4 rigning
Ríó de Janeiro 32 skýjað
Rómaborg 19 skýjað
San Francisco 17 heiðskírt
Stokkhólmur 4 snjókoma
Sydney vantar
Tel Aviv vantar
Tókýó vantar
Vartcouver vantar
Vinarborg vantar