Morgunblaðið - 05.05.1981, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1981
47
Mannkyninu
f jölgar um 80
milljónir á ári
Jakarta. 4. maí. — AP.
MANNKYNINU fjölj?ar um 80
milljónir aó ári ok um aldamót er
líklcgt á með sama áframhaldi
fjölgi því um 100 milljónir ár-
lega, seKÍr í ályktun alþjóðlexrar
sérfra'ðingaráðstefnu um fólks-
fjölKunarmál. sem lauk i Jakarta
í Indónesíu í dan.
í ályktuninni er lagt eindregið
til að fjárframlög til getnaðar-
varna og rannsókna á því hvernig
hægt sé að stemma stigu við hinni
gífurlegu fólksfjölgun verði hækk-
uð til muna.
Atök Iraka
og Irana
halda áfram
Nikósíu. i. maí. AP.
ÍRAKAR héldu því fram í gær að
þeir hefðu skotiö niður iranska
Phantom-þotu á vigstöðvunum.
íranir sögðust einnig hafa skotið
niður íraska árásarþotu á laug-
ardagskvöld i Vestur-íran.
írakar sögðu í stríðstilkynningu
að þeir hefðu fellt 242 íranska
hermenn á einum sólarhring.
Sjálfir sögðust þeir hafa misst 12
hermenn.
Þeir bættu því við, að herlið
þeirra héldi áfram stórskotaárás-
um á herlið og liðssafnað írana á
mið- og suður-vígstöðvunum, sam-
tímis því sem íraskar þotur hefðu
gert árásir á Nowsud- og Dezful-
svæðin.
íranir kváðust á hinn bóginn
hafa afstýrt tilraun íraka til að
sækja fram á Dezful-svæðinu og
valdið „töluverðu manntjóni" í liði
óvinarins.
í Algeirsborg neitaði ríkisstjórn
Alsírs í dag fréttum frá Wash-
ington um að hún stæði fyrir
vopnasendingum til írans.
Lík tveggja þjóðvarðliða liggja á gólfi kaffihúss í Barcelona. þar sem vinstrisinnaðir skæruliðar skutu þá er þeir sátu að kaffidrvkkju í
gærmorgun. Simamynd AP.
Hershöfðingi og þrír
aðrir vegnir á Spáni
Madrid. 4. mai. AP.
RÓTTÆKIR skæruliðar réðu
spænskan herforingja af dögum
og drápu þrjá lögreglumenn í
dag. greinilega til að reyna að
ögra heraflanum. tveimur mán-
uðum eftir hina misheppnuðu
herbyltingartilraun.
Lögreglan segir að tilræðis-
mennirnir hafi verið úr maoista-
samtökunum Grapo.Arásirnar
voru gerðar með hálftíma milli-
bili. Andres Gonzales de Suso
hershöfðingi var veginn í Madrid
og lögreglumaður var einnig
myrtur þegar hann reyndi að
hindra undankomu tilræðismann-
anna. Tveir aðrir Grapo-menn
drápu tvo þjóðvarðliða í Barce-
lona, þegar þeir voru að fá sér
morgunkaffi.
Juan Carlos konungur, sem
Munkur ákærður fyrir flugrán
Bcthunr. Frakklandi. 4. mai. AP.
FYRRVERANDI munkur frá
Ástralíu. James Downey, var
formlega ákærður í dag fyrir
að ræna Boeing 737-flugvél
írska flugfélagsins Aer Lingus
og beina henni til London á
laugardaginn með 113 manns
um borð.
Hann á yfir höfði sér fimm til
10 ára fangelsi, en verður fyrst
að sæta geðrannsókn.
Hópur Frakka, sem er sér-
þjálfaður í baráttu gegn hryðju-
verkamönnum, yfirbugaði Dow-
ney í flugstjórnarklefanum á
flugvellinum í hafnarbænum Le
Touquet við Ermarsund eftir um
átta tíma samningaviðræður.
Downey hefur krafizt birting-
ar á þvoglulegri, níu blaðsíðna
langri yfirlýsingu trúarlegs eðl-
is í írskum dagblöðum. Ritstýrð
útgáfa var birt í dag í Dyflinni.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum hefur Downey viður-
kennt flugránið í yfirheyrslum,
en neitað að segja frá ástæðun-
um til verknaðarins.
í farangri hans fundust
nokkrar guðfræðibækur og
handrit, sem Downey hefur
samið en ekki fengið útgefin.
Heimildirnar herma að hann
hafi sagt að athyglin, sem flug-
ránið vekti, kynni að gera hon-
um kleift að finna útgefanda.
Downey er eftirlýstur fyrir
80.000 dollara lóðabrask í Ástr-
alíu. Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum hefur hann á heilan-
um opinberun, sem þrjú portú-
gölsk börn eiga að hafa orðið
fyrir frá Maríu mey fyrir 64
árum.
bældi niður herbyltingartilraun-
ina, brást skjótt við og fór í
heimsókn, sem á sér ekki fordæmi,
til fjölskyldna fórnarlambanna í
Madrid.
Tilræðismenn hershöfðingjans
voru vopnaðir skammbyssum og
skutu hann þegar hann fór í
opinberum bíl frá íbúð sinni í
Madrid til vinnu. Bílstjóra hers-
höfðingjans sakaði ekki, en Ign-
acio Garcia lögreglumaður var
skotinn til bana, þegar hann hljóp
út úr lögreglubíl og lamdi einn
tilræðismannanna á flóttanum.
Lögreglan elti annan tilræðis-
manninn til bílageymslu og særði
hann á hálsi í skotbardaga, sem
varð til þess að fjórir vegfarendur
særðust. Hinn tilræðismaðurinn,
sem mun hafa særzt, komst undan
með neðanjarðarlest.
I Barcelona drukku tveir ungir
menn í samfestingum bjór á bar,
gengu aftan að Justiniano Fer-
nandez, liðþjálfa úr Þjóðvarðlið-
inu, og Francisco Montenegro
þjóðvarðliða og skutu þá í bakið.
Báðir tilræðismennirnir komust
undan.
Juan Jose Roson innanríkisráð-
herra sagði að tilræðismennirnir
fjórir væru félagar úr Grapo.
Lögreglan segir að tilræðismaður-
inn sem særðist í Madrid heiti
Emilio Avelino Gomez og kveðst
leita að Miguel Angel Bergado.
Þeir eru báðir 28 ára gamlir.
Alls hafa 22 pólitísk morð verið
framin á Spáni á þessu ári, að
morðunum fjórum í dag meðtöid-
um.
Leopoldo Calvo Sotelo forsætis-
ráðherra sagði í dag, þegar hann
kom he'im frá Lissabon, þar sem
hann ræddi við portúgalska ráða-
menn, að her og ríkisstjórn Spán-
ar væru þess albúin að heyja
langa baráttu gegn hryðjuverkum.
Sjónvarpseinvígi
mun ráða úrslitum
P»rí», 4. mai. AP.
KAPPRÆÐUR í sjónvarpi milli
Valery Giscard d'Estaings for-
seta og Francois Mitterands
forsetaframbjóðanda sósialista,
geta ráðið úrslitum i siðari
umferð forsetakosninganna i
Frakklandi á sunnudaginn.
Samkomulag virðist hafa
náðst um að kappræðurnar fari
fram á þriðjudagskvöld, en slíkt
sjónvarpseinvígi hefur aðeins
einu sinni áður verið háð í
Frakklandi.
Sumir sérfræðingar telja að
Giscard d’Estaing muni ganga
betur í sjónvarpsumræðunum,
enda er hann vanur sjónvarps-
maður og Mitterand er ekki
talinn eins góður í kappræðum
og hann. Framkoma hans gæti
bjargað kosningabaráttu hans,
því að samkvæmt síðustu skoð-
anakönnuninni fyrir kosn-
ingarnar hefur Mitterand heldur
meira fylgi, eða um þrjá af
hundraði atkvæða.
Verðbréf hækkuðu í verði í
kauphöllinni í París þegar frétt-
ist um kappræðurnar, en þau
lækkuðu þegar skoðanakannanir
sýndu að Mitterand hefði meira
fyigi-
Starfsmenn kosningabaráttu
Mitterands hafa látið í ljós ugg
um að sjónvarpseinvígið verði
endurtekning á sams konar ein-
vígi 1974, sem almennt er talið
hafa tryggt Giscard d’Estaing
Giscard
d'Estaing
Mitterrand
sigurinn þá, en hann var naum-
ur, eða um 420.000 atkvæði.
Sósíalistamálgagnið Le Matin
segir í forystugrein að það sé
uggvænlegt að úrslit í mikilvæg-
um kosningum séu komin undir
sjónvarpsumræðum og lýsir sig
mótfallið hugmyndum um lýð-
ræði sem dragi dám af pólitísku
leikhúsi.
Giscard d’Estaing hélt í gær
fund með 120.000 stuðnings-
mönnum í París og biðlaði ákaft
til fylgismanna borgarstjóra
gaullista, Jacques Chiracs.
Sýrlendingar neita
að f æra eldflaugar
Beirút. 4. maí. AP.
SÝRLENDINGAR hafa neitað að
flytja burtu loftvarnaeldflaugar
af gerðinni Sam-6, sem þeir hafa
nýlega komið fyrir í Libanon, og
setja í staðinn fram þá kröfu að
ísraelsmenn verði beittir þrýst-
ingi til að fá þá til að hætta allri
íhlutun í Libanon að sögn vest-
rænna stjórnarerindreka í dag.
Heimildirnar herma að banda-
rískir sendiráðsmenn í Damaskus
hafi verið í daglegu sambandi við
Sýrlandsstjórn til að reyna að
koma því til leiðar að eldflaugarn-
ar verði fluttar burtu frá Austur-
Líbanon og eyða hættunni á hern-
aðarlegu uppgjöri milli Sýrlend-
inga og Israelsmanna.
En Sýrlendingar eru óhaggan-
legir og halda því fram að eld-
flaugunum hafi verið komið fyrir í
sjálfsvörn á fimmtudaginn, þegar
ísraelskar herflugvélar skutu
niður tvær sýrlenzkar fallbyssu-
þyrlur nálægt kaþólsku borginni
Zahle, sem er í umsátri.
Hörð afstaða Sýrlendinga var
undirstrikuð í fréttaskýringu í
ríkisútvarpinu, þar sem sagði að
Sýrlendingar tækju ekkert mark á
einhverri „rauðri línu” ísraels-
manna í Líbanon, og þegar Hafez
Assad forseti hélt því fram að
Bandaríkjastjórn væri að stuðla
að því að tryggja „ísraelsk yfirráð
í Líbanon".
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti sendi Menachem Begin, for-
sætisráðherra ísraels, skeyti, þar
sem hann bað um meiri tíma til að
leysa eldflaugadeilu Sýrlendinga
og ísraelsmanna með diplómatísk-
um ráðum að sögn ísraelska út-
varpsins.
Þetta var staðfest í Hvíta hús-
inu og sagt að Reagan hefði beðið
alla aðilja að gæta stillingar. „Við
teljum ástandið ennþá alvarlégt,”
sagði Larry Speakes varablaða-
fulltrúi. „Við erum vongóðir um að
það færist í eðlilegt horf.“