Morgunblaðið - 08.07.1981, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ1981
5
Minnisvarði um fyrstu krístniboðana:
Húnvetningar minnast
1000 ára kristniboðs
Kindahakk á sérverði
I'ESS verður minnst á veglegan
hátt norður i Húnaþingi 19. júli
nk. að 1000 ár eru liðin frá
upphafi kristniboðs á íslandi, en
fyrstu kristniboðarnir, Þorvald-
ur víðförli og Friðrik biskup,
dvöidu að Stóru-Giljá i Húna-
þingi á árunum 981—986. Bisk-
upinn yfir íslandi, herra Sigur-
björn Einarsson, mun afhjúpa
minnisvarða um fyrstu kristni-
boðana við Gullstein i Þingi kl.
16, miðvikudaginn 19. júli nk.
Hátíðarguðsþjónusta fer fram í
Þingeyrarkirkju og hefst kl. 13.30
19. júlí nk. Prófastur Húna-
vatnsprófastsdæmis, síra Pétur Þ.
Ingjaldsson, prédikar, en fyrir
altari þjóna síra Árni Sigurðsson,
síra Andrés Ólafsson og síra Pétur
Sigurgeirsson vígslubiskup Hóla-
stiftis. Kirkjukórar Undirfells- og
Þingeyrarkirkna syngja undir
stjórn Sigrúnar Grímsdóttur með
aðstoð Sólveigar Sövik, organista.
Bæn í kórdyrum flytur Erlendur
Eysteinsson, meðhjálpari. í guðs-
þjónustunni verður þess minnst,
að 1000 ár eru liðin frá upphafi
kristniboðs á íslandi.
Hátíðarsamkoma verður sett af
síra Árna Sigurðssyni, sóknar-
Gunnar Iijarnason
Líkaböng
hringir
— væntanleg bók eftir
Gunnar Bjarnason
LÍKABÖNG hringir nefnist bók
sem væntanleg er frá Bókafor-
lagi Odds Björnssonar á Akur-
eyri i haust, en í bókinni er að
finna ýmis brot minninga Gunn-
ars Bjarnasonar fyrrum hrossa-
ræktarráðunautar.
Að sögn Geirs S. Björnssonar
framkvæmdastjóra Bókaforlags-
ins segir Gunnar meðal annars
frá því í bókinni, er hann var
skólastjóri Bændaskólans á Hól-
um í Hjaltadal sögulegan vetur,
og margt fleira forvitnilegt verð-
ur að finna í bókinni. „Ýmsir
þekktir menn koma við sögu,“
sagði Geir í samtali við Morgun-
blaðið, „ekki síst í kaflanum um
Hólaárið, enda var það um rnargt
sögulegt ár. En þarna lýsir
Gunnar því máli öllu eins og það
kemur honum fyrir sjónir."
Áður hafa komið út hjá Bóka-
forlagi Odds Björnssonar tvær
bækur eftir Gunnar, en það eru
fyrsta og annað bindi Ættbókar
og sögu íslenska hestsins á 20.
öld. Þriðja bindið er væntanlegt í
haust.
Gunnar Bjarnason var hrossa-
ræktarráðunautur Búnaðarfé-
lags Islands um langt árabil, og
kunnastur er hann vafalaust
fyrir afskipti sín af málefnum
hesta og hestamanna síðustu
áratugi. Gunnar starfar nú sem
ráðunautur á Keldum, en hefur
einnig starfað að kynningu á
íslenska hestinum erlendis.
Þess má geta, að „Líkaböng“
nefndist stór klukka í Dóm-
kirkjunni aö Hólum í Hjaltadal
til forna, og var henni hringt við
jarðarfarir. Mun þaðan vera
komið nafn bókar Gunnars.
presti, við Gullstein í þingi kl.
16.00 sama dag. Ávörp flytja síra
Pétur Sigurgeirsson, vígslubiskup,
herra Hinrik Frehen, biskup kaþ-
ólskra á íslandi og Friðjón Þórð-
arson, dómsmálaráðherra. Hátíð-
arkvæði flytur Kristján Hjartar-
son. Biskup þjóðkirkjunnar, herra
Sigurbjörn Einarsson, flytur síðan
aðalræðu dagsins og afhjúpar
minnisvarða um fyrstu kristni-
boðana. Kirkjukórar Húna-
vatnsprófastsdæmis annast söng
undir stjórn Helga Ólafssortar,
Hvammstanga.
Minnisvarðinn, sem afhjúpaður
verður, er eftir Ragnar Kjartans-
son, myndhöggvara.
doktor í
HINN 29. júní sl. varði Helgi
Þórsson doktorsritgerð í tölfræði
við háskólann i Montpellier i
Frakklandi. Ritgerðin nefnist:
„Aðferð til tölfræðilegrar athug-
unar á töflum um flutninga“
(Une Contribution a l'Analyse
Statistique des Tableaux d'Ech-
anges).
Helgi Þórsson er þrítugur
Reykvíkingur. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð 1971, BS-prófi í stærð-
fræði frá Háskóla íslands 1975 og
magistersprófi (maltrise) í stærð-
fræði frá háskólanum í Stras-
bourg 1976. Næstu 2 ár var hann
kennari við Tækniskóla íslands og
Kennaraháskólann, en hélt þá til
Montpellier, þar sem hann hefur
síðan unnið að rannsóknum í
tölfræði. Aðalleiðbeinandi hans
var prófessor Yves Escoffier. And-
mælendur við doktorsvörnina auk
hans voru stærðfræðiprófessor-
arnir Charles og Lemaire svo og F.
Auriac, dósent í landafræði.
Helgi er sonur hjónanna Ragn-
hildar Helgadóttur og Þórs Vil-
hjálmssonar, Stigahlíð 73 í
Reykjavík. Hann er kvæntur Guð-
rúnu Eyjólfsdóttur. Foreldrar
hennar eru Svanfríður Þorkels-
dóttir og Eyjólfur Guðmundsson,
Akurgerði 36, Reykjavík. Helgi og
Guðrún eiga tvær dætur, 4 og 9
ára gamlar.
Doktorsritgerð Helga Þórssonar
er á sviði svokallaðrar gagna-
greiningar eða lýsandi tölfræði. í
ritgerðinni er þróuð nálgunarað-
ferð, þar sem notaðir eru eigin-
vektorar hermískra fylkja til að
lýsa bæði heildarflutningum og
flutningsjöfnuði á einni mynd.
Fjallað er um nokkrar aðferðir til
að velja hornalínu í flutningstöfl-
ur, og einnig er nýleg aðferð til að
lýsa röð af töflum löguð að
flutningstöflum. Aðferðin er í
ritgerðinni prófuð á töflum um
búferlaflutninga milli kjördæma á
íslandi. Þá er nokkuð fjallað um
grundvallaraðferðir landafræð-
innar til að lýsa búferlaflutning-
um.
I gæsluvarðhald
en sleppt aftur
MAÐUR um þrítugt var úrskurð-
aður í gæsluvarðhald á föstudags-
kvöld, en var sleppt aftur í gær.
Var hann grunaður um að eiga
aðild að árás sem gerð var á
norskan ferðamann sem dvaldist á
farfuglaheimili fyrir nokkru.
Maðurinn er rúmlega tvítugur
að aldri og hefur hann viðurkennt
að hafa stolið þremur töskum á
farfuglaheimilinu um líkt leyti.
Töskurnar hafa komist til skila,
en maðurinn hefur ekki viður-
kennt árásina.
1000
ÁRA
KRISTNIBOD
Á
ÍSLANDI
S81-1SB1
tölfræði
Helgi Þórsson
KJÖTVINNSLUR á höfuðborg-
arsvæðinu hafa ákveðið að selja
kindahakk á sérverði næstu
daga. Er það 30% lægra en skráð
verð í dag eða 29,90 kr. kilóið.
í Fréttabréfi upplýsingaþjón-
ustu landbúnaðarins kemur fram
að samtímis þessu nýja verði fari
fram víðtæk kynning á gómsætum
réttum úr kindahakki. Dreift verði
ókeypis í matvöruverzlunum
bæklingi með 5 uppskriftum að
hakki, en það mun vera fáanlegt í
öllum helztu matvöruverzlunum.
Litir: Hvitt og bleikt.
Sóli extra slitsterkur.
Stæröir 34—41.
Verö
190
Austurstræti
:27211
Ný ljóðabók eftir
Matthías Johannessen
VEÐUR
„ ^ Matthias
Jotiannessen
Almenna
bókafélagið
Austurstræti 18, sími 25544.
Skemmuvegi 36, Kópavogi, sími 73055.
Tveggja.
bakka
veður
Vísir 27/6. 1981
Andrés Kristjinsson
.. . ,Mér finnst þessi Ijóöabók vera skýrari vitnisburö-
ur um þaö en flest annaö, sem Matthías Johannessen
hefur iátiö frá sér fara, aö hann er kominn í tremstu
röö Ijóöskálda eftirstríösáranna og túlkar gerjun,
hrynjandi og sviptingar þess tímabits betur en önnur
Ijóöskáld á íslandi. “ .. .
Dagblaöiö 27/6. 1981
Rannva'tg G. Ágústsdóttir
. .. .Matthías er engum líkur. Það er hægt aö þekkja
Matthías á löngu færi. Hann samsvarar sér vel. Þó
getur hann kinnroöalaust líkt eftir bestu söngfuglum:
Steini Steinarr, Stefáni Heröi, Agli Skallagrímssyni. “
... .Matthías er, ekki síöur en nafni hans heitinn, séra
M„ snillingur í aö yrkja um menn og málefni og
erfiljóð“...
Tíminn 21/6. 1981
Jónas Guömundsson
.. ..veröur þaö aö víöurkennast, aö sem skáld situr
hann nú í traustu sæti."...
Helgarpósturinn 26/6. 1981
Gunnlaugur Astgeirsaon
.. „ég er ekki frá þvíað hugmyndln um Guö sé nálægt
í fleiri Ijóöum en lítur út fyrir í fljótu bragði. Tilfinningar
skáldsins koma viöa mjög einlægt fram íIjóðunum...“
Morgunblaöiö 13/6. 1981
Jóhann Hjélmarason
.. „Bn þaö er umhugsunarvert aö eftlr þvísem
listrænn þróttur skáldsins vex veröur rödd þess
nærtækari og höföar beint tll lesandans. *...
Helgi Þórsson