Morgunblaðið - 08.07.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ1981
11
Einstakt tilboð sem gerir sjónvarpslokunina að engu og þig að dagskrárstjóra.
Uppsagnarbréf Þorsteins Sig-
urðssonar sérkennslufulltrúa
EINS OG fram kom í frétt á bls. 2
í Morgunblaðinu í Kær hefur
Þorsteinn Sigurðsson sagt upp
starfi sínu sem sérkennslu-
fulltrúi Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur. Hér fer á eftir í
heild uppsannarbréf Þorsteins:
Háttvirt Fræðsluráð.
Ég undirritaður segi hér með
upp starfi mínu sem sérkennslu-
fulltrúi Fræðsluskrifstofunnar af
ástæðum sem nú skal greina.
Itrekað hafa þeir samstarfs-
menn mínir er síst skyldi hindrað
ábyrga, faglega umræðu um sér-
kennslu- og ráðgjafarmál skól-
anna og þar með gert kjörnum
stjórnvöldum afar erfitt um vik að
taka ákvarðanir um þessi veiga-
miklu mál — þó keyrt hafi um
þverbak með afgreiðslu Kleifar-
vegsmálsins sl. fimmtudag.
Upphaf þessara ódæma má
rekja til þess er ég viðraði hug-
myndir um breytta skipan ráðgj-
afar- og sálfræðiþjónustunnar
snemma árs 1980. En þá brugðust
starfsmenn sálfræðideildanna, svo
og fagfélög sálfræðinga og félags-
ráðgjafa, við eins og um persónu-
legar árásir á starfsmennina væri
að ræða; töldu vellíðan og starfs-
öryggi sálfræðinga og félagsráð-
gjafa í þjónustu skólanna teflt í
hættu ef breytt yrði hið minnsta
frá ríkjandi starfsháttum.
í umræðunni sem á eftir fór
tókst ekki nema að litlu leyti að fá
formælendur þessara tveggja
starfshópa til að beina huganum
frá þröngum sérhagsmunum sín-
um mótuðum af stöðubaráttu inn-
an kerfisins og setja sig í spor
þeirra sem þjónustunnar eiga að
njóta — þrátt fyrir viðleitni fjölda
reyndra skólamanna.
Það kom svo í ljós í vor, að þeir
sálfræðideildarmenn hugðust
gjalda undirrituðum rauðan belg
fyrir gráan. Eftir að ég hafði að
venju lagt fyrir Fræðsluráð tillög-
ur um fyrirkomulag sérkennsl-
unnar næsta skólaár — að sjálf-
sögðu að höfðu samráði við rétta
aðila, þar á meðal forstöðumenn
sálfræðideildanna — bárust
Fræðsluráðinu óvænt aðrar tillög-
ur um sama efni. Þær höfðu að
sögn formælendanna verið mótað-
ar sameiginlega af öllum starfs-
mönnum sálfræðiþjónustunnar —
og brutu í grundvallaratriðum í
bága við tillögur mínar.
I umræðunum um þessar tvær
ólíku tillögur í Fræðsluráðinu
stillti ég gagnrýni minni á tillögur
sálfræðideildanna mjög í hóf, þótt
mér þættu þær fráleitar — bæði
frá uppeldislegu- og stjórnunar-
legu sjónarmiði. í stað þess hvatti
ég fræðsluráðsmenn til að taka
afstöðu til hinna hugmyndafræði-
legu atriða í tillögum sálfræð-
inganna — og gat þess meira að
segja ekki að ýmsir hinna stjórn-
unarlegu útfærsluþátta væru
óframkvæmanlegir.
Eftir að hafa tekið sér góðan
tíma til að fjalla um málið sam-
þykkti Fræðsluráðið tillögur mín-
ar að öllu leyti óbreyttar — og að
mig minnir einróma.
Mig grunar að þessi afgreiðsla
hafi leitt til hinna dæmalausu
viðbragða sumra sálfræðiþjón-
ustumanna þegar næst kom fram
tillaga frá mér um skipan mála.
Að því sinni var það tillaga um
breytta og aukna þjónustu við
taugaveikluð börn til þess að leysa
af hólmi meðferðarheimili, sem
\l Í.I VSIM. \
SIMINN KH:
22480
ekki aðeins var komið í fjárhags-
legt þrot sakir þess að ríkið hafði
ákveðið að hætta greiðslu helm-
ings kostnaðarins — heldur hafði
verið rekið með þeim hætti undan-
farin ár að dómi allra starfs-
manna sálfræðideildanna að tal-
inn var „ábyrgðarhluti af
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur, að
láta ómenntað starfsfólk bera
ábyrgð á meðferð barna, sem talin
eru í þörf fyrir sérfræðilega að-
stoð“. (Ur greinargerð og tillögum
Sálfræðideilda skóla í Reykjavík
til Fræðsluráðsins, dags. 8.4.
1981.)
Út af tillögu minni upphófu
ýmsir sálfræðideildarmenn og
handlangarar þeirra mikla um-
ræðu án röklegs samhengis við
tillögu mína og án nokkurra
tengsla við eðli þess vanda sem við
er að glíma — og að þessu sinni
töldu þeir sem hér gengu fram
fyrir skjöldu við hæfi að hasla sér
völl í fjölmiðlum. Vafasamar
þrýstiaðgerðir að tjaldabaki voru
heldur ekki sparaðar.
Árangur erfiðisins liggur nú
fyrir í samþykkt borgarstjórnar
um Kleifarvegsmálið frá 2. júlí.
Eins og fram kemur í greinar-
gerð minni um Kleifarvegsmálið
taldi ég — og tel enn — aðeins um
tvo valkosti að ræða; annaðhvort
að hefja rekstur meðferðarheimil-
is sem stendur undir nafni til að
uppfylla skilyrði gefendanna ell-
egar framkvæma tillögur mínar
og vera þess jafnframt albúinn að
reiða af hendi gjafaféð, ef þess
yrði formlega krafist. Mín skoðun
er sú að borgaryfirvöld hefðu með
fuliri sæmd getað valið annan
hvorn þessara kosta, þó ég hefði
fellt mig mun betur við þann
síðari. Niðurstöðu borgarstjórnar
tel ég hins vegar hina mestu
vanvirðu og með öllu óviðunandi.
Ég vil með uppsögn minni mót-
mæla henni; ennfremur þeim
óvönduðu vinnubrögðum ýmissa
starfsmanna sálfræðiþjónustunn-
ar sem þvinguðu fram þessa
fáránlegu niðurstöðu.
Reykjavík, 3. júlí 1981,
Þorsteinn Sigurðsson.
Tvö tæki með aðeins 5000 kr.útborgun.
Það er ekki á hverju ári sem þér býðst annað
eins tilboð. Grundig litsjónvarp og myndsegulband
í einum pakka með 5000 kr. útborgun og
eftirstöðvum sem geta dreifst á allt að 10 mánuði.
Sannkallað sumartilboð semslærallt út.
Ert þú ekki sammála?
Að sjálfsögðu...
. . . getur þú eftir sem áður keypt annað
tveggja, litsjónvarp eða myndsegulband á Nesco
vildarkjörunum.
Efnisbankinn opinn í fulla gátt.
Efnið streymir inn og úrvalið eykst dag frá
degi ( sjá sýnishom af titlum).
Við kaup á Gmndig myndsegulbandi og þá
ekki síður ef þú slærð þér á allan pakkann, öðlast þú
frían aðgang að EFNISBANKA okkar í eitt ár.
Það veitir þér rétt til þess að skipta á
kassettunni, sem þú kaupir með tækinu, fyrir
einhverja aðra, eina í senn, eins oft og þér þóknast
yfir árið.
Sýnishom af titlum hjá okkur;
Þannig geturðu sparað þér stóran pening en
samt verið með nýtt efni í gangi áhyggjulaust og
með lítilli fyrirhöfn.
VIDEO
2000
Laugavegi 10 Sími: 27788
ALIENS FROM SPACESHIP EARTH, ELVIS. PAESANO.
A MAN FOR HANGING. ERUPTION IN CONCERT, POPPEY THE SAILOR,
BLAZING FLOWERS, EAT TO THE BEAT (BLONDIE). ROCK CIRCUS,
BRUCE'S FINGERS, FIST OF FURY (BRUCE LEE), SIN (RAQUEL WELCH),
BLACK BEAUTY, FORMULA 1 RACING, SPY STORY,
BRUCE LEE STORY. GETTING OVER (THE LOVE MACHINE O.FL ), SANTA AND THE THREE BEARS.
BONEY M, HOUSE OF THE LIVING DEAD, STRAMPING GROUND (PINK FLOYD, SANTANA.
BLOOD SABBATH, INVADERS FROM MARS. O.FL).
CROCODILE, IS THIS TRIP REALLY NECESSARY, SCREAM BLOODY MURDER,
CIRCUS WORLD (JOHN WAYNE), JOE PANTHER, SUPER SEAL,
CRYPT OF THE LIVING DEAD, KING OF KONG ISLAND, SLAVERS,
CARTOON SENSATIONS, KING OG KUNG FU (BRUCE LEE), SISTERS OF DEATH,
DEATH GAME, LASERBLAST, STREISAND IN CONCERT SPECIAL,
DISCO DYNAMITE (BONEY M), LEGACY OF BLOOD, SOMEBODY'S STOLEN OUR RUSSIAN SPY,
DONT RIDE ON LATE NIGHT TRAINS, MR SYCAMORE, SINATRA,
DARK STAR. MEAN JOHNNY BARROWS, SCREEM FREE,
DISCO BEAM (DONNA SUMMER O.FL ). MIRRORS, SEEDS OF EVIL,
55 DAYS AT PEKING (CHARLTON HESTON, NIGHT CREATURE, TOUCH ME NOT (LEE REMICK),
AVA GARDNER, DAVID NIVEN), NO 1 OF THE SECRET SERVICE. THE FLORIDA CONNECTION,
EL CID (SOPHIA LOREN, CHARLTON HESTON), POP SENSATION (BONEY M. O.FL). THE BILLION DOLLAR FIRE.
EYES BEHIND THE STARS. PISTOLE. THE FALL OF THE ROMAN EMPIRE (SOPHIA
LOREN, STEPHEN BOYD),
THE MAN FROM BUTTON WILLOW.
THE REAL BRUCE LEE,
THE KILLING KIND.
THE LEGEND OF ALFRED PACKER.
THE BEES.
TOURIST TRAP,
THE HEIST.
THEY CALL ME LUCKY,
THE VIOLENT BREED,
THE BEST OF JUDY GARLAND,
THE HILLS HAVE EYES,
THE PINK GARTER GANG.
THE ALPHA INCIDENT,
THE CAPTURE OF BIG FOOT COUNT DRACULA,
TRAEUMEREIEN/DREAMS,
UNKNOWN POWERS,
WINGS OF EAGLE,
O.FL.