Morgunblaðið - 08.07.1981, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ1981
Uátttakendur á íslenskunámskeiðinu með kennurum sínum. Heimir Pálsson fyrir miðju.
Norðkollumenn læra íslensku
FIMM Norðmenn, fimm Svíar
ok fimm Finnar af svokölluðum
Norðurkollusvæðum á Norður-
londum. en það eru svæði, sem
lÍKKja norðan við heimskauts-
bauK. voru hér á landi á veKum
Norræna félaKsins á islensku-
námskeið.
Að sögn Hjálmars Ólafssonar
formanns Norræna félagsins er
forsaga þess að þetta fólk er hér
komið sú að 1973 kom hingað
landshöfðingi frá Norrbotten í
Svíþjóð og hreifst mjög af landi
og þjóð, þannig að þegar hann
sneri til baka, vann hann að því í
samráði við Norræna félagið í
Norrbotten, að koma upp nám-
skeiði í sænsku fyrir Islendinga
og bauð út 15 Islendingum á
námskeið. A sama tíma voru þar
Finnar. Síðan þá hafa þessi
námskeið verið haldin árlega í
Svíþjóð og hafa alls 115 íslend-
ingar sótt þau allt frá upphafi.
Til að endurgjalda þetta var
fyrir fjórum árum boðið hingað
til lands á vegum Norræna
félagsins og menntamálaráðu-
neytisins 15 mönnum frá Norð-
kollusvæðinu á íslensku-
námskeið. Síðan þá hefur þetta
verið árviss viðburður. Stofnuð
var sérstök Norðurkollunefnd en
formaður hennar er Stefán Ólaf-
ur Jónsson og eru aðrir í nefnd-
inni Erling Asperlund, Karl
Jeppesen og Anna Einarsdóttir
og annast hún framkvæmd þess-
ara námskeiða svo og val á
íslendingum sem fara á fyrr-
nefnd sænskunámskeið.
Kennarar á íslenskunámskeið-
inu eru tveir, Heimir Pálsson og
Ingrid Westin frá Svíþjóð. Nám-
skeiðið, sem stóð í hálfan mánuð,
hófst 22. júní og lauk 3. júlí. Það
fór þannig fram að á morgnana
var kennt íslenskt mál, en síð-
degis farið í ferðir, söfn heimsótt
og vinnustaðir. Fyrirlestrar voru
haldnir um atvinnumál og iistir
og fulltrúar allra stjórnmála-
flokka á íslandi héldu fyrirlestra
um stefnuskrár sínar. Þá ferðuð-
ust þátttakendur út fyrir borg-
ina og fóru í þetta skiptið austur
í Skaftafell.
Kennsla og aðstaða fyrir
þátttakendur á námskeiðinu var
í Húsmæðraskólanum í Reykja-
vík og hefur verið í tvö ár, en hin
árin voru námskeiðin haldin í
Skálholti. Sagði Hjálmar Ólafs-
son að námskeiðið byggðist upp
á kynningu á íslandi og jafn-
framt væri reynt að gefa örlitla
nasasjón af málinu. Á námskeið-
unura úti, situr kennsla í fyrir-
rúmi, en þó er farið í fjögurra
daga ferð í lok námskeiðsins og
Norðkollusvæðin skoðuð.
Sagði Hjálmar fólkið hefði
skemmt sér hið besta og var
almenn ánægja með þessi sam-
skipti við Norðkollubúa.
Nýr eigandi
hárgreiðslu-
stofunnar
Spörtu
NÝR eigandi hefur tekið við hár-
greiðslustofunni Spörtu, sem stað-
sett er að Norðurbrún 2 í Reykja-
vík. Núverandi eigandi er Bryndís
Guðjónsdóttir en auk hennar
starfar á hárgreiðslustofunni,
Ingunn Jónmundsdóttir nemi.
Stofan er opin alla virka daga frá
klukkan 9—18.
Bryndis Guðjónsdóttir og
Ingunn Jónmundsdóttir á hár-
greiðslustofunni Spiirtu.
Reyðarfjörður:
Nýr togari, Snæfugl SU 20,
kemur til Reyðarf jarðar
ReyðarfirAi, 7. júli.
„Á SUNNUDAG kom tog-
arinn Snæfugl SU 20 til
Reyðarfjarðar frá Flekke-
fjord í Noregi og hafa
Reyðfirðingar þá loksins
fengið skip til þess að gera
út á, en atvinnuástand
hefur verið heldur dauf-
legt síðan Gunnar SU 139
og gamli Snæfugl voru
seldir,“ sagði Gréta Frið-
riksdóttir í samtali við
Morgunblaðið.
„Reyðfirðingum var boðið í sigl-
ingu um fjörðinn á togaranum og
um kvöldið voru veitingar um
borð. Skipstjóri er Alfreð Steinar
Rafnsson og sagði hann að skipið
hefði verið gott í sjó en þeir fengu
hið besta veður á leiðinni frá
Noregi. Það stendur til að fara í
fyrsta túrinn í dag, miðvikudag.
Nýi Snæfugl er rúm 400 tonn að
stærð en þetta er sami togarinn og
ísfirðingar áttu, en hann hét þá
Guðbjörg. Eigendur Snæfugls eru
GSR hf., sem átti þá Gunnar og
Snæfugl, Kaupfélag Héraðsbúa,
Reyðarfjarðarhreppur og Borgar-
fjörður eystri.
Sprettan í sveitinni hefur ekki
verið mjög góð en sjálfsagt betri
en víða annarsstaðar. Félagslíf er
heldur ekki upp á marga fiska,
Sumargleðin skemmti á Egils-
stöðum og fóru margir héðan að
sjá það. íþróttir eru hér stundaðar
í miklum mæli og mikill áhugi er
fyrir sundi eftir að sundlaugin var
tekin í notkun í febrúar. Knatt-
spyrnuliðið Valur á Reyðarfirði
æfir einnig af miklu kappi."
Gréta.
Styrktarsjóðnum var
hvarvetna vel tekið
— segja forráðamenn söfnunarinnar
en tölur liggja ekki enn fyrir
STYRKTARSJÓÐUR íatlaðra
var stofnaður um helgina, en þá
gengust Iljálparstofnun kirkj-
unnar ok Lionshreyfingin í sam-
vinnu við Umferðarráð fyrir
söfnun meðal landsmanna til
stofnunar þessa sjóðs. Voru
Lionsmenn til taks þar sem
ferðafólk fór um og buðu
mönnum að gerast þátttakendur
í stofnun sjóðsins.
Guðmundur Einarsson fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofnunar
kirkjunnar tjáði Mbl., að undir-
tektir landsmanna hefðu verið
mjög góðar og nánast heyrt til
undantekninga ef fólk hefði ekki
viljað gerast þátttakendur. Tölur
um hve mikið fé safnaðist sagði
hann ekki enn liggja fyrir, en taldi
þó að á 3 til 4 stöðum, sem fréttir
höfðu borist af hefðu alls safnast
hátt í 70 þúsund krónur.
Apocalypse Now
frumsýnd í dag
STÓRMYNDIN „Dómsdagur
nú“, Apocalypse Now, eftir
Francis Ford Coppola verður
frumsýnd í Tónabiói í dag. Mynd-
in hlaut gullpálmann i Cannes og
aðalhlutverk leika Marlon
Brando, Robert Duvall og Martin
Sheen.
Myndin gerist í Víetnam-stríð-
inu árið 1%9 og segir frá ofursta í
bandaríska hernum, Col. Kurts
(Brando), sem kemst úr sambandi
við raunveruleikann, hættir að
hlýða skipunum frá heryfir-
völdum og stofnar sitt eigið ríki í
frumskógum Kambódíu. Willard
kafteinn (Sheen) er sendur honum
til höfuðs af bandarísku her-
stjórninni.
I kvikmyndinni eru mörg stór-
brotin atriði, m.a. þyrluárás sem
um 450 tæknisérfræðingar skipu-
lögðu. Leikstjórinn, Coppola, sagði
að í myndinni hefði hann viljað
sýna fram á siðferðilega tvöfeldni
og reyna að finna heimspekilegar
ástæður þess að maðurinn heyi
stríð.
Ýmislegt hefur tafið gerð kvik-
myndarinnar, m.a. gekk fellibyl-
urinn Olga yfir Baler-eyju í
Kyrrahafi, þar sem gerð hafði
verið eftirlíking af víetnömsku
þorpi, og olli miklum skemmdum.
Tónlistin er eftir Carmine og
Francis Coppola, og Vittorio Stor-
aro kvikmyndaði.
Lítið var að gera
hjá lækninum á Hellu
ARNÓR Egilsson héraðslæknir á Hellu hafði samhand
við blaðið vegna fréttar í sunnudagsblaðinu um ölvun á
fjórðunKsmótinu á Hellu.
Arnór kvað fréttina stórlega
ýkta. Að hans mati hefði ölvun
ekki verið áberandi, þegar haft
væri í huga að 7—10 þúsund
manns heföu sótt mótið. Hann
kvaðst hafa verið á vakt alla
helgina og hefði ekki verið meira
leitað til sín en á venjulegum
erilsömum helgum. Þá sagði Arn-
ór að lokum að skipulagning
mótsins hefði verið góð og Flug-
björgunarsveitarmenn og lögregla
haft góða stjórn á hlutunum að
sínu mati.