Morgunblaðið - 08.07.1981, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1981
31
Valur mætir Enqlandsmeisturum Aston Villa
DREGIÐ var til fyrstu umferðar-
innar í Evrópukeppnunum þrem-
ur í knattspyrnu i (?a“r og er, eins
og va nta mátti, marRt athyKÍis-
verðra ieikja fram undan. í
Evrópukeppni meistaraliða má
setíja að Valsmenn hafi heldur
hetur dottið í lukkupottinn. en
þeir drógust geKn enska meist-
araliðinu Aston Villa ok dróst
nafn Villa á undan þannig að
liðið á rétt á heimaleik á undan.
Valsmenn hafa hins vegar þegar
hafið umleitanir að breyta því.
Tveir Islendingar verða meðal
leikmanna í meistarakeppninni
auk Valsmanna, Ásgeir Sigur-
vinsson, sem kominn er til þýska
meistaraliðsins Bayern Munchen,
og Pétur Pétursson, sem genginn
er í raðir Anderlecht frá Belgíu.
Ásgeir og félagar mæta sænska
meistara- og yfirburðaliðinu Öst-
Ein skærasta
stjarna Aston Villa
er Gary Shaw.
Aöeins 21 árs var
hann kjörinn efni-
legasti ungi leik-
maður Englands.
er, Pétur og Anderlecht heim-
sækja hins vegar pólska liðið
Widzew Lodz. Drátturinn lítur
annars svona út:
Widzew Lodz — Anderlecht
St. Etienne/D. Berlín — FC Zur.
Ferencvaros — Banik Ostrava
Celtic — Juventus
Hibern. Möltu — Rauða Stjarnan
Oulon Pallusera — Liverpool
Öster — Bayern Munchen
Benfica — Omonia Nocosia
Austria Vín — Partizan Tirana
Din. Kiev — Trabzonspor
IK Start — AZ ’67 Alkmaar
Aston Villa — Valur
Progress Niederk. — Glentoran
BK Köben — Athlone
CSKA Sofia — Real Sociedad
Uni Craiova — Ol. Pireus
ppReynum að fá fyrri
leikinn hér heima“
-VID SETTUM okkur strax i samband við forráðamenn Aston
Villa þegar við vissum um dráttinn. Við hofum sett fram óskir um
að fyrri leikur liðanna verði á Laugardalsvellinum 15. sept.
Samkvæmt drættinum eigum við að leika útileik okkar fyrst. En
þar sem við förum í keppnisíerð til Vestur-Þýskalands og leikum
við Borussia Dortmund I októberbyrjun þá myndi það henta okkur
vel að leika fyrri leikinn hér heima. Við íáum svar við þessu á
næstu dögum.“ sagði formaður knattspyrnudeildar Vals, Jón
Gunnar Zoega í gær.
Jón sagði ennfremur að það væri mikill fengur fyrir islenska
knattspyrnu og knattspyrnuáhugamenn að fá sjálfa Englandsmeist-
arana í heimsókn. Lið Aston Villa væri í fremstu röð í heiminum og
þar væru margir mjög snjallir knattspyrnumenn. Það er ekki á
hverjum degi sem slík lið leika hér á landi. _
„Mjög ánægður
með mótherjana”
— segir varnarmaðurinn
sterki Dýri Guðmundsson
“ÉG ER mjög ána'gður með
mótherja okkar í Evrópukeppni
meistaraliða. Það er ávallt
ánægjulegt að fá fræg og sterk
lið í heimsókn,” sagði hinn sterki
varnarmaður Valsliðsins í
knattspyrnu Dýri Guðmundsson
er Mbl. spjallaði við hann í
gærdag.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
meistaraflokkur Vals í knatt-
spyrnu fær lið frá Englandi sem
mótherja í Evrópukeppni. Valur
hefur mætt liði frá Skotlandi en
ekki frá Englandi. Lið Aston Villa
er mjög sterkt. Þeir hafa jöfnu,
sterku og duglegu liði á að skipa
eins og kom svo greinilega fram á
síðasta keppnistímabili er þeir
urðu enskir meistarar. Eg á mitt
uppáhaldslið í Englandi og það er
Liverpool. Auðvitað vonaði ég að
þeir yrðu mótherjar okkar en
næst á eftir þeim á óskalistanum
var lið Aston Villa. Valur er með
mjög frambærilegt lið í dag þegar
allir leikmenn liðsins eru heilir.
Ég hef þá trú að'við getum vel
staðið í þessu snjalla liði hér á
Laugardalsvellinum, sagði Dýri
sem fær væntanlega nóg að gera í
vörninni þegar liðin leika leiki
sína.“
- Þr.
Dýri Guðmundsson hinn
sterki miðvöröur Valsliðs-
ins.
DINO fyrir dáðadrengí og draumadísír.
DINO samfestingar, peysur og buxur
úrlwill, khaki, denim og rifEluðu flaueli í mörgum, mörgum litum.
GYLMIR ♦ G&H 3.15