Morgunblaðið - 08.07.1981, Side 32
.v' Símiáritstjóm Ifilfin
og skrifstofu: IV/ IUU
PLAST
ÞAKRENNUR
Sterkar og endingargóðar
Hagstætt verð
cSb Nýborg?
O Armúla 23 — Sími 86755
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1981
Gasolía á lægra verði frá BNQC:
20.000 lestir á
Rotterdamverði
í GÆR náðust samningar milli viðskiptaráðuneytisins og brezka
ríkisoliufélaKsins BNOC um verð á 20.000 lestum á gasoliu, sem
hinjíað munu koma í þessum mánuði. Allmikil verðlækkun frá fyrra
verði náðist að þessu sinni oj? mun verðið að nokkru leyti miðast við
verð á Rotterdam-markaðinum, sem hefur verið um 50 dollurum lægra
á lestina en BNOC-verðið.
Að sögn Þórhalls Ásgeirssonar,
ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðu-
neytinu var hér aðeins samið um
þennan eina farm innan 100.000
lesta kaupsamnings, sem í gildi er
og var innan heildarsamningsins
ákvæði um að semja mætti sér um
verð hvers farms fyrir sig. Með
þessum 20.000 lestum hafa því
verið keyptar samtals 60.000 lestir
frá BNOC og er því enn óljóst
hvert verðið á þeim 40.000 lestum,
sem eftir á að kaupa, verður.
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir:
Öll góð mál þola að hljóta
umfjöllun í borgarstjórn
„NOKKRIR borgarráðsmcnn hafa þyrlað upp miklu
moldviðri í fjölmiðlum vegna samþykktar tillögu minnar.
Af því tilefni vil ég segja það eitt að öll góð mál eiga að
þola að sjá dagsins Ijós og hljóta umfjöllun í borgar-
stjórn,“ segir Sjöfn Sigurbjörnsdóttir borgarfulltrúi
AÍþýðuflokksins m.a. í grein, sem hún ritar í Mbl. í dag.
I greininni segir Sjöfn
ennfremur að tillögu sína
hafi hún flutt því að hún
telji það ólýðræðislegt og
reyndar ónauðsynlegt með
öllu, að borgarstjórn afsali
sér völdum á sumrin og feli
fámennu borgarráði alræð-
isvald í borginni, óháð sam-
þykki borgarstjórnar eftirá.
Bjarni P. Magnússon, sem
sat borgarstjórnarfundinn í
fjarveru Björgvins Guð-
mundssonar og stóð að sam-
þykkt tillögu Sjafnar, segir
Kvótiiui 40 þús. tonn
IIMSÓKNARFRESTUR fyrir veiði
leyfi á sildarveióunum i haust
rennur út 10. júli. Að sögn Jóns B.
Jónassonar i Sjávarútvegsráðu-
neytinu er kvótinn fyrir haustver-
tíðina 40 þúsund tonn en var i fyrra
45 þúsund.
Sagðist Jón búast við að álíka
margir yrðu um veiðarnar nú og
voru í fyrra en þá voru á vertíðinni
60 til 70 reknetabátar og 150 hring-
nótaskip.
Hafnarfjörður:
m.a. í viðtali við Mbl. í dag
að engin ástæða sé til að
borgarstjórn fari í sumarfrí,
enda sé þegar búið að borga
borgarstjórnarmönnum
laun fyrir þessa vinnu.
Sjá nánar á miðopnu og
í forystugrein Mbl. í
dag.
Lögregluliðið
gekk í heilu
lagi í Víking
GENGIÐ hefur verið frá óvenju-
legum félagaskiptum i hand-
knattleiknum.
3. deildarlið Óðins í Reykjavík,
alls 13 leikmenn, gekk í heilu lagi
í handknattleiksdeild Víkings.
Víkingar eru núverandi Is-
landsmeistarar í handknattleik.
Leikmennirnir 13 eru allir
starfandi lögreglumenn í Reykja-
vík. Þeir hafa sent lið í 3.
deildarkeppnina nokkur undan-
farin ár en hætta nú þátttöku í
deildinni.
Útimarkaðurinn á Lækjartorgi hefur um nokkurt skeið sett svip sinn á bæjarlífið og
ungir sem gamlir nota tækifærið þar til að kaupa og selja. Ungi drengurinn á
myndinni er þó sennilega með yngstu verzlunarmönnunum á staðnum og því verður
það ekki ofsögum sagt að „snemma beygist krókurinn". uósmynd mm. Guðjón
Kristján Thorlacius um launakjörin:
Óánægja er í öllum
starfshópum BSRB
„ÞAÐ ER orðin mjög mikil
óánægja i öllum starfshópum
innan BSRB með launakjörin.
Það hefur verið reiknað út, að
kjaraskerðing frá í desember
1977 til febrúar 1981 er orðin frá
13—17% hjá opinberum starfs-
mönnum. Auðvitað er það hið
fyrsta sem við hljótum að leggja
áherzlu á að vinna upp. Það er
verið nú i sumar að vinna að
viðtækum rannsóknum á þróun
kjaramála i landinu á vegum
bandalagsins. Formanna-
ráðstefna er fyrirhuguð i sept-
ember nk. og þar verður væntan-
lega mörkuð sú stefna sem fylgt
verður við undirbúning samtak-
anna að næstu kjarasamning-
um.“ sagði Kristján Thorlacius i
viðtali við Mbl. um kjaramál
opinberra starfsmanna.
Kristján sagði opinbera starfs-
menn mjög óánægða með hvernig
launamálin hafa þróast. Hann
sagði: „Þessir læknasamningar,
sem fjármálaráðuneytið gefur upp
að séu almennt 19% kemur ofan á
6% hækkun sem þeir fengu tii
samræmis við laun BSRB frá 1.
desember. Kjaradómur kvað upp
þann úrskurð á gamlársdag. Það
má einnig taka fram að töluverður
hluti af þessum kjarabótum lækna
er skattfrjáls þannig að í reynd
eru þetta meiri kjarabætur en
krónutalan segir til um.“
Aðspurður um hvort lækna-
samningarnir hefðu orðið sem olía
á eld óánægju opinberra starfs-
manna vegna launamála sagði
hann að svo væri ekki. Menn væru
mjög óánægðir yfirleitt og BSRB
stæði sjálfstætt i sinni kjarabar-
áttu. „En ég segi og vil endurtaka,
að það er mjög mikil óánægja
innan allra starfshópa BSRB með
launakjörin.“
Hundahald leyft með
ákveðmun skilyrðum
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sfnum þann 30.
júnf síðastliðinn. með 6 atkvæðum gegn 5, að leyfa hundahald i bænum
með ákveðnum skilyrðum. Á fundi þessum var samþykkt ný
lögreglusamþykkt fyrir Ilafnarfjarðarkaupstað jafnframt tillaga frá
þeim Einari Þ. Mathiesen og Árna Gunnlaugssyni um heimild til
hundahalds með ákveðnum skilyrðum. Fyrir var í lögreglusamþykkt
heimild til leyfis fyrir hundi til lögreglu, hjálparsveita og blindra, en
ekki til annarra.
Samþykkt sú sem gerð var, er á
þá leið að einstaklingum er heim-
ilt hundahald með vissum skilyrð-
um. Skilyrðin eru m.a. þau að skrá
verður hundinn og verður hundur-
inn alltaf að bera skrásetningar-
númer. Þá ber hundaeigendum að
greiða áriega leyfisgjald vegna
hundsins. Hundaeigendum er
skylt að hafa hundinn ábyrgðar-
tryggðan og skal hundurinn aldrei
ganga laus á almannafæri, öðru-
vísi en í taumi og í fylgd með aðila
sem vald hefur á hundinum.
Þá er óleyfilegt að fara með
hund inn á sjúkra- og skólahús,
matvöruverslanir eða aðra staði
þar sem matvara er um hönd höfð.
Við brot á skilyrðum sem sett eru
skal viðkomandi hundur fjarlægð-
ur og ef um minniháttar brot er að
ræða er eiganda gefinn kostur á að
leysa hundinn út aftur. Ef brotið
hins vegar er alvarlegt eða ítrek-
að, afturkallast leyfið.
Þeir sem greiddu atkvæði með
hundahaldi voru: Árni Gunn-
laugsson, Andrea Þórðardóttir,
Einar Þ. Mathiesen, Jón Bergsson,
Lárus Guðjónsson og Eiríkur
Skarphéðinsson. Þeir sem á móti
voru eru: Árni Grétar Finnsson,
Stefán Jónsson, Guðmundur Guð-
mundsson, Þorbjörg Samúelsdótt-
ir og Gunnlaugur Jónsson.
Búnaðarmálastjóri um sprettuna:
Æ’
Astand hvergi gott
SPRETTAN nu er ákaflega sein og slæm tíð hefur valdið þar mestu
um og má segja að það gildi meira og minna um landið allt, sagði
Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri er Mbl. innti hann eftir horfum á
grassprettu í sumar.
— Ástandið er hvergi gott,
þótt segja megi að það sé betra á
Suður- og Vesturlandi en fyrir
norðan og austan, sagði búnað-
armálastjóri ennfremur. —
Kuldi er mikill fyrir norðan, en
hér syðra hefur einnig sprottið
hægt vegna þess hve lítil úrkoma
hefur verið. Sláttur er því mun
seinna á ferðinni nú en í meðal-
ári, en þegar allt er eðlilegt hefst
hann oft seinast í júní. Á
einstaka bæ' á nokkrum stöðum
er sláttur hafinn, en ég býst við
að hann hefjist ekki almennt
fyrr en seint í júlí.
Hafrannsóknaskip-
in við bryggju í júlí
ÁKVEÐIÐ hefur vcrið. að hafrannsóknaskipin verði bundin við
bryggju allan júlimánuð i sparnaðarskyni, en haldi siðan út i ágúst.
Skipin, sem um ræðir, eru Bjarni
Sæmundsson, Árni Friðriksson,
Hafþór og Dröfn. Dröfnin er að
vísu enn úti, en er væntanleg.
Jakob Jakobsson, fiskifræðingur,
sagði í samtali við Mbl., að auðvit-
að væri það slæmt, að skipin væru
ekki á ferðinni, enda væru ótæm-
andi verkefni fyrir hendi.