Morgunblaðið - 26.08.1981, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1981
7
Síðasta útsöluvika
Andres, Skólavörðustíg 22.
Menntaskólinn
viö Hamrahlíö
Skólinn veröur settur mánudaginn 31. ágúst kl. 13.
Stundatöflur í dagskólann veröa afhentar aö lokinni
skólasetningu gegn greiðslu innritunargjalds, kr. 250.
Kennsla hefst í dagskóla og í Öldungadeild sam-
kvæmt stundaskrá þriöjudaginn 1. sept.
Rektor.
Tónskóli
Sigursveins D. Kristinssonar
Innritun og greiösla námsgjalda fyrir haustönn veröur
í dag, miövikudaginn 26., á morgun, fimmtudaginn
27. og á föstudaginn 28. ágúst kl. 16.00—19.00 í
Hellusundi 7.
Nemendur, sem sóttu um framhaldsskólavist á
síöastliönu vori, eru sérstaklega áminntir um aö
staöfesta umsóknir sínar meö greiöslu námsgjalda,
þar sem skólinn er fullsetinn nú þegar.
Upplýsingar um stundaskrárgerö og fleira veröa
veittar viö innritun. Ekki verður svaraö í síma meðan
á innritun stendur.
Skólastjóri.
Philips solarium
heimilislampinn kostar
aðeins 3.289- króhur;•
meðstandara
og sjálfvirkum tímastilli
Philips solarium er fisléttur og meðfærilegur og tekur sára-
lítið pláss í geymslu. Það er líka hægt að nota hann án
standarans en þannig kostar hann aðeins 2416 krónur.
Rafmagnseyðsla 0.24 kg. wött
Þyngd - 7,5 kg
Stærð dxbxh - 10x38x74 cm
heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 - SÆTÚN 8 — 15655
ÓSA
Staða atvinnuveganna
Ekki alls fyrir löngu skýröu fjölmiðlar frá því aö
starfsfólk frystihúss á Raufarhöfn heföi lagt niöur vinnu
vegna þess að það haföi ekki fengið laun sín greidd fjórar
vikur í röö. í gær greinir Mbl. frá því aö skipshöfn togarans
Rauöanúps — á sama staö — hafi ekki fengiö laun sín
greidd undanfariö og hyggi á aðgeröir í því sambandi. Þá
er skýrt frá því í Mbl. í gær að tvö frystihús í Skagafirði, á
Hofsósi og á Sauðárkróki, hafi stöövaö fiskmóttöku og
vinnslu vegna fjárhagsörðugleika. Þetta beinir sjónum aö
því aö rekstur fjölmargra frystihúsa í landinu og
fiskvinnslunnar almennt hangir á horrim og aö rekstrarleg
staöa undirstöðuatvinnuvega okkar er meö lakasta móti,
þrátt fyrir ýmis hagstæö ytri skilyrði.
Greiðslu-
örðugleikar
Frystihús i Skagafirði
eiga nú i miklum
sreiðsluörðufdeikum.
Tvö þeirra, Skjöldur hf.
á Sauðárkróki «k
Hraðfrystihúsið hf.
Ilofsósi. hafa af þessum
sökum ekki getað tekið
við fiski úr tveimur sið-
ustu veiðiferðum skipa
Utgerðarfélags Skag-
firðinga hf.. sem þau eru
þó eignaraðilar að.
Að sögn stjórnarfor-
manns útgerðarfélags-
ins og framkvœmda-
stjóra Fiskiðjunnar hf. á
Sauðárkróki, sem enn
tekur við afla, er staða
Fiskiðjunnar einnig
siæm, „enda væri staða
fiskvinnslunnar i land-
inu almennt slæm og
Fiskiðjan væri engin
undantekning frá því".
Marteinn Friðriksson,
f ram kvæmdast jóri
Fiskiðjunnar á Sauðár-
króki. lét i Ijósi vonir
um, að úr myndi rætast.
svo „ekki þyrfti að koma
til uppsagna og ástandið
skánaði".
Staða fiskvinnslufyr-
irtækja i landinu er að
visu misjöfn. en þau
frystihús nyrðra, sem
hér hafa verið nefnd, eru
ekki einsdæmi, „staða
fiskvinnslunnar i land-
inu er almennt slæm“,
eins og framkvæmda-
stjóri Fiskvinnslunnar á
Sauðárkróki komst rétti-
lega að orði. Þessi undir-
stöðuatvinnugrein i
þjóðarbúskapnum og
helzta gjaldeyristekju-
lind okkar hefur ekki
betri rekstrarlega stöðu
en þetta. íslenzkt fisk-
vinnslufólk, sem er á
milli 9 og 10 þúsund
talsins, býr ekki við
traustara atvinnuöryggi
á liðandi stund en fram-
angreindar uppákomur
vitna um.
Fyrirtækin
og fólkið
Rekstraröryggi fyrir-
tækja og atvinnuöryggi
fólks eru tvær hliðar
sama hlutar. Það veltur
þvi á miklu að þannig sé
búið að atvinnurekstrin-
um i landinu, að hann
geti þróast jákvætt,
tæknivæðst til að auka
framleiðni og fært út
kviar. en á það hefur
verulega skort undan-
farin ár.
Rekstrarleg staða at-
vinnufyrirtækja skiptir
og verulegu máli í svo-
kallaðri „kjarabaráttu",
þvi fyrírtæki sem hangir
rekstrarlega á horrim,
en það virðist óskastaða
stjórnvalda gagnvart is-
lenzkum atvinnurekstrí,
er naumast i stakk búið
til að axla aukinn launa-
kostnað.
Það er á margan hátt
sem stjórnvöld geta haft
áhríf á rekstrarlega
stöðu atvinnuveganna.
Þar má fyrst nefna
stefnumörkun i skatta-
málum: sköttum á að-
föng fyrirtækja (tollum),
sköttum á eignir, skött-
um á umsvif (aðstöðu-
gjöld) og tekjusköttum.
Eftir því sem hið opin-
bera tekur hærra hlut-
fall af þjóðartekjum i
sköttum — eftir þvi
verður minna eftir i eig-
in- og rekstrarf jármagni
fyrirtækja og ráöstöfun-
artekjur almennings.
Flest islenzk atvinnufyr-
irtæki eru þvi rekin nær
alfarið fyrir lánsfjár-
magn. Vaxtastefnan hef-
ur því veruleg áhrif á
stöðu þeirra.
Og loks hefur gengis-
þróun og stefnan í geng-
ismálum afgerandi áhrif
á stöðu útflutningsfyr-
irtækja, ekki sizt i fisk-
vinnslu.
Ekki er hægt að segja
að núverandi stjórnvöld
hafi lagt sig fram um að
styrkja stöðu sjávarút-
vegsins, hvorki veiða né
vinnslu. Jákvæðu atriðin
eru ýmist erfð eða utan-
aðkomandi. Endanleg
brottför erlendra veiði-
flota af íslandsmiðum i
kjölfar Oslóarsamninga,
fiskverndaraðgerðir ým-
isskonar, hækkað verð
fiskafurða á Bandarikja-
markaði. og síðast en
ekki sizt styrking
Bandarikjadals, eru af
þeim toga. Hagstæð við-
skiptakjör út á við, en
ekki heimaaðgerðir.
hafa þannig komið i veg
fyrir veruleg áföll i
sjávarútvegi, sem rekstr-
arerfiðleikar, þrátt fyrir
þessi hagstæðu ytri skil-
yrði. sýna vottinn um.
Grœnnietís
kynnmg \
Munið grænmetiskynningu Blómavals.
Kynning — sýnikennsla — tilboðsverð.
Sýnikennsla í dag, miðvikudag kl. 4-6:
Tómatar sem vetrarforði.
Gróðurhúsinu við Sigtún: Símar36770-86340 J