Morgunblaðið - 04.09.1981, Side 1
40 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
195. tbl. fi8. ár>?.
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1981
Prentsmiðja Morgunhlaðsins.
Ný stjórn í Iran
Bí irut. 3. soptomhor. AP.
NÝ rikisstjórn tók við völdum i
íran í dají «k fól þinKÍð henni að
binda þesar enda á morðtilræði
Kejjn helztu ráðamönnum lands-
ins. Andsta'ðinxar stjórnarinnar
héldu þó uppteknum hætti i daj;
»K viða kom til Kotuhardaua i
Teheran milli hyltinKarvarða ok
horKarskæruliða úr riiðum
vinstri manna.
Nabavi innanríkisráðherra ír-
ans sakaði í dag marxistasamtök-
in Mujahedeen Khalq um að hafa
1
skipulagt morðið á Rajai forseta
landsins og Bahonar forsætisráð-
herra sl. sunnudag. Nabavi sagði,
að fjöldi manna hefði verið hand-
tekinn grunaður um aðild að
morðsamsærinu, bæði starfsmenn
forsætisráðuneytisins og aðrir.
Ár er nú liðið frá því stríðið
milli Írana og íraka hófst. Þessum
tímamótum var fagnað með sér-
staVri yfirlýsingu í Bagdad höfuð-
borg íraks, þar sem segir m.a. að
írakar hafi fellt 41779 íranska
hermenn í stríðinu og eyðilagt
þúsundir skriðdreka.
Reagan vill ekki
hitta Svíakóng
Heræfingar Sovétmanna skanunt frá landamærum Póllands
— Meðfylgjandi mynd birtist í Rauðu stjörnunni, málgagni sovézka hersins fyrr í vikunni og sýnir hún
sovézka skriðdreka og þyrlur að æfingum við landamæri Póllands. Sovézk blöð hafa sagt mikið frá
heræfingunum og jafnframt varað frjálsu verklýðsfélögin í Póllandi við því að grafa undan sósíalísku
samfélagi í Póllandi. (Simamynd-AP)
Ástandið í Angóla gæti
orðið sem í Afganistan
- segir utanríkisráðherra S-Afriku
Stokkhólmi. 3. sopt. AP.
.RONALD REAGAN forseti neit-
ar að hitta Karl Sviakonung og
Silvíu drottningu. þegar þau
fara til Bandarikjanna í nóvem-
her.“ segir í stórri frétt í sænska
hlaðinu Expressen og er blaða-
manninum sem fréttina skrifar
greinilega mjög hrugðið. Sænskir
embættismenn staðfestu. að kon-
ungshjónin myndu ekki hitta
Reagan. Talsmaður sænska utan-
rikisráðuneytisins sagði, að ekki
hefði verið hægt að koma fundi
milli þeirra inn á dagskrána. og
var horið við önnum Reagans.
Expressen vitnaði hins vegar í
frásögn í síðasta Newsweek þar
sem sagt var að forsetinn ynni sér
engan veginn til húðar og hann
hefði haft yfrið nægan tíma til að
hitta kúrekaleikarann Rex Allen
nýlega.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins Ingrid Iremark sagði í viðtali
við Expressen að ráðuneytið hefði
haft samband við aðila í Hvíta
húsinu, um hugsanlegan fund með
forseta, en því hefði ekki verið
hægt að koma saman og við því
væri ekkert að gera.
Konungshjónin fara til Banda-
ríkjanna í kringum 20. nóvember
og verða þar í vikutíma eða svo.
Fréttin um þetta hefur valdið
hinu mesta fjaðrafoki í diplómata-
hópum í Svíþjóð og alþýða manna
þar í landi er i hinu mesta
uppnámi og þykir sem konungs-
hjónunum hafi verið sýnd sérstök
óvirðing af hálfu Bandaríkjafor-
seta.
Prcloria. 3. scptcmbcr. AP.
PIK Botha utanríkisráóherra
Suóur-Afríku sagði í sjónvarps-
viðtali i kvöld. að íhlutun Sov-
étrikjanna i Angóla nálgaðist
nú að vera jafnmikil og í
Afganistan. Hann sagði sýni-
legt af vopnum og áróðurs-
gögnum. sem s-afrikumenn
hefðu náð á sitt vald í Angóla,
að Sovétmenn hefðu „eitthvað
mikið og aivarlegt i undirbún-
ingi í sunnanverðri Afriku“.
Ummæli utanríkisráðherrans
koma í kjölfar þess að upplýst
hefur verið, að hermenn Suður-
herforingja og tvær sovézkar
konur í bardögum í Angóla.
Hópur 30 skæruliða úr röðum
blökkumanna gerði í dag árás á
GRO IIARLEM Brundtland og
norski Verkamannaflokkurinn
eiga sáralitla möguleika á að
vinna í þingkosningunum í Noregi
14. sept. nk. að því cr segir í
niðurstöðu Gallup-skoðanakönn-
unar. sem var hirt í dag. Verka-
mannaflokkurinn hefur að visu
örlítið ba'tt við sig fylgi síðan í
júni. að skoðanakönnun var gerð.
en skortir enn 7 prósent upp á að
geta haldið áfram völdum í rikis-
stjórn.
I Gallup-skoðanakönnuninni
kemur fram að Verkamannaflokk-
urinn njóti stuðnings 35,5% kjós-
enda, en hafði 33,7% í júní og 42,3 í
kosningunum 1977.
Hægriflokkurinn hefur bætt við
sig og ætti að fá 34,7 prósent en var
spáð 32,1% í júní. í kosningunum
1977 fékk Hægriflokkurinn 24,8%
atkvæða.
Miðflokkurinn virðist eftir þessu
að dæma fá 7,3% en 8,0% fylgdu
honum í júní, og 1977 fékk hann
8,6%. Kristilegi þjóðarflokkurinn
nýtur stuðnings 8,2% en 10,6% í
júní og 12,4% í kosningunum 1977.
Sósíalíski vinstri flokkurinn hefur
5,3%, hið sama og í júní, en hefur
bætt við sig um 1% miðað við
kosningarnar 1977.
Af þessum tölum eru dregnar
þær ályktanir að Hægriflokkurinn,
Miðflokkurinn og Kristilegi þjóðar-
flokkurinn muni mynda stjórn að
afskekkta lögreglustöð í Suður-
Afríku. Notuðu skæruliðarnir
vélbyssur og handsprengjur í
árásinni. Talið er að fjórir hafi
farizt, þ. á m. þriggja ára dreng-
ur og tveir lögregluþjónar.
kosningum loknum og Gro Harlem
Brundtland muni því ekki sitja öllu
lengur á valdastóli en fram að
kosningum, nema endasprettur
Verkamannaflokksins verði því
stórbrotnari.
Damaskus:
20 bíða bana
í sprengingu
Bcirut. 3. scptcmhcr. AP.
SPRENGJA sprakk i bíl skammt
frá Sheraton-hótelinu i miðborg
Damaskus í dag með þeim afleið-
ingum að a.m.k. 20 manns létu
lífið og rúmlega 50 slösuðust. að
því er ferðamenn frá Sýrlandi
greindu frá í Beirut í dag. Ekkert
hefur heyrzt um málið i opinher-
um fjölmiðlum í Sýrlandi.
Að sögn ferðamannanna ók mað-
ur nokkur bíl sínum í bílastæði við
byggingu sýrlenzka flughersins,
lagði honum þar og tók siðan til
fótanna út af stæðinu. Þegar mað-
urinn sinnti ekki hrópum öryggis-
varða skutu þeir hann til bana, en í
sama mund sprakk öflug sprengja í
bílnum með ofangreindum afleið-
ingum.
Miklar skemmdir urðu á b.vgging-
unni og nærliggjandi mannvirkjum.
Ekki liggur fyrir hver ber ábyrgð á
verknaðinum.
Karl Gústaf og Silvía.
Afríku hafi drepið tvo sovézka
Utanrikisráðherrafundur Norðurlanda:
Engar viðræður við Sovétrikin
um kjarnorkuvopnalaust svæði
kaupmannahofn. 3. soptomfx'r.
Frá fróttaritara Mhl.. Ib Ujornhak.
FUNDI utanríkisráðherra Norð-
urlanda lauk i Kaupmannahöfn i
dag. t yfirlýsingu. sem gefin var
út i lok fundarins, segir m.a. að
ráðherrarnir hafi rætt þróun
alþjóðamála að undanförnu og
lýsi áhyggjum sínum vegna
þeirrar spennu og óöryggis, sem
einkenni stjórnmál og efna-
hagsmál i heiminum i dag.
í yfirlýsingunni er látin í ljós sú
von, að Pólverjar muni sjálfir
finna lausn sinna vandamála og
lögð áherzla á þau alvarlegu áhrif
sem ástandið í Afganistan hefur
haft á stöðu alþjóðamála. Jafn-
framt er lýst yfir vonbrigðum
yfir því, hversu hægt miði í
alþjóðlegum afvopnunarviðræð-
um og að ný vopn skuli tekin í
notkun.
Nokkuð var rætt um hugmyndir
um kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum á fundi ráðherr-
anna en í yfirlýsingu fundarins
segir aðeins, að þeir hafi gert hver
öðrum grein fyrir þeim skilyrðum
sem uppfylla verði áður en frekari
viðræður um þessa hugmynd geti
farið fram.
Á blaðamannafundi, sem hald-
inn var að loknum ráðherra-
fundinum, sagði Knut Frydenlund
utanríkisráðherra Noregs, að eng-
ar tvíhliða viðræður yrðu teknar
upp við Sovétríkin um þetta
atriði. Frydenlund sagði einnig að
hugmyndin um kjarnorkuvopna-
laust svæði á Norðurlöndum
mundi ekki breyta neinu um
grundvallarviðhorf Norðurland-
anna fimm í utanríkismálum.
Frydenlund sagði einnig að
málefni þetta yrði að taka til
meðferðar í evrópsku samhengi
og að málið þyrfti að tengja
viðræðum Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna um staðsetningu
eldflauga í Evrópu. Frydenlund
sagöi að menn mættu ekki veikja
það jafnvægi sem nú ríkti á
Norðurlöndum heldur reyna að
treysta öryggi Norðurlandanna.
Olafur Jóhannesson utanríkis-
ráðherra sagði við fréttaritara
Mbl. að Islendingar myndu ekki
leyfa kjarnorkuvopn í landi sínu,
en gætu hugsað sér að ræða
hugmyndina um kjarnorkuvopna-
laust svæði að uppfylltum vissum
skilyrðum og í samhengi við
þróun mála í Evrópu. Ólafur sagði
að einhliða yfirlýsing gerði ekkert
gagn.
Utanríkisráðherrarnir for-
dæmdu hernaðaraðgerðir Suður-
Afríku í Angóla og hvöttu Sam-
einuðu þjóðirnar til að samþykkja
bindandi efnahagslegar refsiað-
gerðir gegn Suður-Afríku.
Þingkosningarnar í Noregi:
Allt bendir til að
Brundtland tapi
Osló. 3. sept. Frá frúttaritara
Mhl. Jan Erik Laurie ok AP.