Morgunblaðið - 04.09.1981, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.09.1981, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1981 Leikár Þjóðleikhússins: Fjölbreytt og margir gestaleikir „í>oikárið vcrður afar íjöl- hreytt ok eins og fyrr þá setja íslensk verk svip á starfsemina, einniií má se«ja að þetta verði mikið tíestaleikjaár." sagði Sveinn Einarsson t>j(')ðleikhús- stjóri í viðtali við Morxunhlaðið. Fyrsta frumsýning Þjóðleik- hússins verður 25. september, á Hótel Paradís sem er sígilt verk eftir Georges Feydeau í þýðingu Sigurðar Pálssonar en leikstjóri er Benedikt Arnason. I október verður svo frumsýnt leikritið Dans á rósum eftir leik- konu sem leikið hefur hjá Þjóð- leikhúsinu, Steinunni Jóhannes- dóttur, en mun þetta vera fyrsta leikverk hennar, sem sett er á svið. Leikstjóri er Lárus Ýmir Óskarsson og leikmynd gerir Þór- unn S. Þorgrímsdóttir. I tilefni af 80 ára afmæli Halldórs Laxness verður settur á fjalirnar sjónleikur byggður á skáldsögu Halldórs Laxness úr sagnabálknum um Ólaf Kárason. Verður verkið sýnt í leikgerð Sveins Einarssonar og heitir hún Hús skáldsins. Leikmynd gerir Sigurjón Jóhannsson og leikstjóri er Eyvindur Erlendsson. Nútímaverkið Amadeus eftir Peter Shaffer verður frumsýnt í janúar á næsta ári. Hér er um að ræða verk, sem hlotið hefur feikna vinsældir á Broadway og útnefnt þar besta leikrit ársins síðastiiðið ár. Valgarður Egilsson þýddi leik- ritið og leikstjóri verður Helgi Skúlason en leikmynd gerir Björn G. Björnsson. Islenski dansflokkurinn mun spreyta sig á ballettinum Giselle, eftir sögu Theophile Cartier, sem er feikna mikið fyrirtæki og að sögn Sveins Einarssonar hefur það alltaf verið draumurinn, að taka þennan ballett til sýningar hér á landi. Mun einhver úr íslenska dans- flokknum dansa Giselle, einnig kemur til greina að fá Maríu Gísladóttur, sem starfar í Wies- baden til að dansa á nokkrum sýningum, en María hefur dansaö þetta hlutverk og hlotið mjög góða dóma. Helgi Tómasson hefur líka dansað í Giselle og að sögn Sveins Einarssonar getur verið að Helgi dansi hér einnig. I marz verður frumsýnt leikritið Sögur úr Vínarskógi eftir Ödön von Horváth í þýðingu Þorsteins Þorsteinssonar. Verk þetta hefur gengið að undanförnu á megin- landi Evrópu og hlotið mjög góðar undirtektir. Leikmynd gerir Alist- air Powell og leikstjóri verður Haukur J. Gunnarsson, sem Talið frá vinstri: Gísli Alfreðsson, Árni Blandon, Sigríður Þorvalds- dóttir, Róbert Arnfinnsson og Bessi Bjarnason í hlutverkum sinum i leikritinu Hótel Paradís eftir Georges Feydeau, sem frumsýnt verður 25. september næstkomandi. leikstýrði Kirsublómi á Norður- fjalli á Litlasviðinu í fyrra. Þótti sú uppfærsla afar góð. Óperettan Meyjarskemman eft- ir Schubert verður frumsýnd í apríl, fjallar hún um ævi Schu- berts. Að sögn Sveins Einarssonar munu koma fram í henni margt ungra og efnilegra söngvara, sem annað hvort hafa lært hér heima eða erlendis. Barnaleikrit leikársins verður 10% staðgreiðsluafsláttur eða góo greiðslukjör Landsins mesta úrval af reiðhjolum Góð merki, gæði, glæsileiki, góð þjónusta Lítið sýnishorn: ^pimoip frá Englandi Scorpion torfæruhjól 3 gíra 20“ dekk. Staögr. kr. 2.360. Afborgun kr. 2.620. 12 gíra keppnishjól 27“ dekk, verö frá. Staögr. kr. 2.916. Afborgun kr. 3.240. Gamaldags hjól 26“, 28“ 3 gíra m/fótbremsum. 3 gíra m/stálbremsum. Staðgr. kr. 1.750. Afborgun 1.933. Vantar þig öðruvísi hjól? Hringdu og spurðu eða komdu og skoðaðu Mikið úrval af reiðhjólavarahlutum reiðhjólatöskur hraöamælar, lásar og margt fleira. Sendumí póstkröfu. Varahluta og viðgeröa- þjónusta. Árs ábyrgð. /M4RKIÐ Suðurlandsbraut 30 — sími 35320. hin gamalkunna ítalska þjóðsága, Gosi, í leikgerð David Robinson og þýðingu Árna Ibsen. Á Litla sviði Þjóðleikhússins verða tvö verkefni tekin til sýn- ingar í haust. Annað er Ástarsaga aldarinnar eftir Márte Tikkanen. Leikritið er byggt á ljóðabálki skáldkonunnar og fjallar hann um erfiða ævi hennar. Þýðingu gerði Kristín Bjarnadóttir, leikmynd gerir Guðrún Svava Svavarsdóttir en Kristbjörg Keld verður Ieik- stjóri. Hitt leikritið á Litla sviðinu er Kisuleikur, sem er skopleikur í þýðingu Karls Guðmundssonar. Leikmynd gerir Sigurjón Jó- hannsson en leikstjóri er Benedikt Árnason. Um þessar mundir er verið að æfa af kappi leikrit Bernhard Shaw, Kappar og vopn, og mun ætlunin að frumsýna það utan Reykjavíkur. Það hefur verið liður í viðleitni Þjóðleikhússins að færa leiklistina út á land, að frumsýna ýmis verk utan Reyjavíkur. í tilefni af ári fatlaðra er verið að vinna að leikriti, sem ætlunin er að sýna unglingum í grunnskól- um iandsins og framhaldsskólum og á vinnustöðum. Það er rithöf- undurinn Gunnar Gunnarsson, leikarinn Guðmundur Magnússon og Sigmundur Örn Arngrímsson, sem verður leikstjóri, sem standa að þessu verki. íslenski dansflokkurinn mun flytja 2 verk eftir Hlíf Svavars- dóttur ballettdansara, sem starfar í Hollandi í nóvember. Auður Bjarnadóttir, sem dansar hjá Óperunni í Múnchen mun dansa með dansflokknum. Eins og sagt var í upphafi, þá verður þetta leikár mikið gesta- leikjaár. Á laugardaginn, 5. sept- ember, mun sænska leikhúsið í Helsinki flytja gamanleikinn Kon- urnar í Niskavuori. Þetta er finnskt leikrit flutt á sænsku. Hefur sýning þessi hlotið mjög góðar viðtökur að sögn Sveins Einarssonar. Leikstjóri er Kaisa Korhonen en Kári Halldór er meðleikstjóri. Sænska leikhúsið í Helsinki hefur sýnt íslensku leik- húsi mikinn áhuga en verið er að sýna þar íslenska leikritið Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnars- son. Franskur Gestaieikur byggður á látbragði, sem heitir Andspænis erfiðum degi verður hér einnig tekinn til sýningar bráðlega. Árni Blandon i hlutverki sinu i Hótel Paradís. Sveinn Einarsson Þjóðleikhús- stjóri. I október mun svo Peking óper- an vera með sýningar og mun vera um meiriháttar listviðburð að ræða. Sölumaður deyr verður aftur tekinn til sýningar en á síðast- liðnu leikári voru sýndar 36 sýn- ingar á verkinu og naut það mikillar hylli. Nú er verið að selja áskriftir að 7 sýningum Þjóðleikhússins ög fer áskriftarsalan fram til 25 sept- ember, en þá er fyrsta frumsýn- ingin, eins og áður sagði. 8 þýsk skip að veiðum við Dornbanka ÁTTA þýsk skip og einn norskur rækjubátur sáust að veiðum út af Dornbanka, þegar Landhelgis- gæslan fór í eftirlitsflug í gær. Einnig var á þessum slóðum norska eftirlitsskipið Frithjof. Þá var danskt herskip með einkenn- isstafina F-350 norðan við Dorn- banka. Formaður, ekki fram- kvæmdastjóri í frétt í Morgunblaðinu í gær sagði, að Ingi Tryggvason væri framkvæmdastjóri Framleiðslu- ráðs landbúnaðarins. Það er rangt, hann er formaður ráðsins. Hins vegar er Gunnar Guðbjarts- son framkvæmdastjóri þess. Hlut- aðeigendur eru beðnir velvirð- ingar á þessu ranghermi. Dórshafnartogarinn kem- ur í febrúar eða mars VON ER á Þórshafnartogaranum svokallaða til landsins frá Noregi í fehrúar til mars á na*sta ári, samkva'mt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk hja Ólafi Rafni Jónssyni formanni stjórn- ar Útgerðarfélags Norður-Þing- eyinga. Ólafur sagði að nú væri rekstar- grundvöllur togarans talinn betri en var í fyrra, þannig að málin litu betur út nú en þá var. Ólafur sagði að kaupendur togarans hefðu enga bakþanka vegna kaupanna, enda væri talið að þessi lausn á at- vinnumálum Þórshafnarbúa væri sú besta og eðlilegasta. „Við teljum okkur vel setta að fá þetta skip á góðu verði, miðað við það sem mörg önnur skip kosta, og við ætlum að reyna að standa eins vel að þessari útgerð eins og okkur er framast unnt,“ sagði Ólafur Rafn Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.