Morgunblaðið - 04.09.1981, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1981 3
Tveir í gæslu
vegna fíkni-
efnamáls
TUTTUGU ok þrÍKKja ára Kamall
maður var í gær úrskurðaður í 14
daga gæsluvarðhald vegna gruns
um aðild að fíkniefnamáli, en nú
situr annar maður i gæslu vegna
sama máls.
Sá var handtekinn á Keflavík-
urflugvelli þann 25. ágúst síðast-
liðinn, með 200 grömm af fíkniefn-
um í fórum sínum. Hann var þá
úrskurðaður í 6 daga gæsluvarð-
hald og rann það út á miðvikudag,
en hann var síðan úrskurðaður á
ný í 8 daga varðhald í gær.
Samkvæmt upplýsingum fíkni-
efnadeildar lögreglunnar er talið
að mál þetta sé nokkuð umfangs-
mikið.
Breytingar á Borgartúni 1:
Kostnaðaráætlim 13-faldast
Embættismenn villtu um fyrir borgarfulltrúum, segir Davíð Oddsson
VIÐ UMRÆÐUR í borgar-
stjórn í gærkveldi gagnrýndu
Davíð Oddsson og Albert Guð-
mundsson borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins, harð-
lega þá samþykkt borgarráðs
um tæplega 650 þúsund króna
aukafjárveitingu borgarsjóðs,
vegna lagfæringa á húsnæði
að Borgartúni 1, vegna flutn-
ings Borgarskipulags þang-
að. Meirihluti borgarstjórnar
staðfesti fjárveitinguna við
atkvæðagreiðslu í gærkveldi,
gegn atkvæðum sjálfstæð-
ismanna.
Davíð Oddsson sagði að á
sínum tíma hefðu embættis-
menn gagngert villt um fyrir
borgarfulltrúum með því að
fullyrða, er á þá var gengið, að
5 milljónir gkr. myndu nægja
til breytinganna, en þegar
kostnaðaráætlun hefði verið
gerð nokkrum mánuðum
seinna, hefði upphæðin 13-
faldast. „Það var beinlínis log-
ið að opinberum fulltrúum og
þeir fengnir til að taka rangar
ákvarðanir. Ég tel engan vafa
á því, að ef réttar upplýsingar
hefðu legið fyrir, hefði sú
ákvörðun ekki verið tekin.að
flyja Borgarskipulag í Borg->
artún,“ sagði Davíð. Kvað
hann þessi vinnubrögð ámæl-
isverð og taldi að viðkomandi
embættismaður ætti í það
minnsta að fá áminningu. Al-
bert tók undir orð Davíðs og
lýsti því yfir að breytingarnar
og flutningur Borgarskipulags,
bæru vott um bruðl og sóun og
litla stjórnkænsku. Kvað hann
það furðulegt að kostnaðar-
áætlun 13-faldaðistá nokkrum
mánuðum, á meðan sagt væri
að á sama tíma hefði verð-
bólguhraðinn minnkað. Sigur-
jón Pétursson forseti borgar-
stjórnar játaði að hann hefði
ekki búist við því að endanleg
kostnaðaráætlun myndi
hækka jafn gífurlega frá því
að upphafleg fjárveiting til
breytinganna var samþykkt.
Hvernig vœri að bregða undir sig betri fœtin-
um og heimsœkja sólina á Miami? Flugleiðir íara 7
sérstakar sólskinsferðir til Florida á nœstu þremur
mánuðum.
Brottfarardagar eru: 18. og 27. september, 18.
og 31. október, 14. og 31. nóvember og svo sórstök
jólaskólskinsíerð 19. desember. Allar íerðimar eru
3ja vikna langar, en þú hefur möguleika á að stytta
þœr eða lengja. Verðið er 8.298 krónur miðað við
þriggja manna herbergi á Chateau.
Gist verður á úrvals hótelum á ameríska vísu, -
hótelum eins og Chateau, Konover, Konover
Flamingo og Sheraton Bal Harbour. Maturinn er
stórfínn, drykkjarvatnið er gott og tungumálið skilja
ílestir. Auðvitað verður svo íslenskur fararstjóri á
staðnum.
Má bjóða þér meira?
Á heimleiðinni er boðið upp á nokkurs konar
ábót. Helgardvöl í alheimsborginni New York
(þessari sem allir segjast elska!).
Þú þarft engar áhyggjur að hafa, og allra síst
aí því hvemig þú átt að eyða tímanum. Hann bók-
staílega hleypur frá þér.
Þú kemur heim í sólskinsskapi!
FLUGLEIDIR
Traust fólkhjá góóu félagi