Morgunblaðið - 04.09.1981, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1981
Öll herraföt og
stakir jakkar
15%
afsláttur.
Sértilboð
Buxur margar geröir.
M.a. Kakhibuxur
nú á aðeins
150 kr.
Bolir á 25. kr.
rSértilboö |
'Hnébuxurnar
og
pokabuxurnar
vinsælu á aöeins
kr. 100
Tass-fréttin er
enn í rannsókn
SOVÉSKA sendiráðið hefur ekki
lokið rannsókn sinni á þeirri
fullyrðinKU Ilauks Más Haralds-
sonar formanns ..íslensku friðar-
nefndarinnar“ o« hlaðafulltrúa
Alþýðusamhands íslands. að
fyrir tilstuðlan Alexanders Ak-
arkovs yfirmanns Novosti á Is-
landi hafi verið farið með ranjjt
mál á forsíðu Prövdu og í Isvestíu
12. ok 13. ásúst síðastliðinn.
Victor Torfimov blaðafulltrúi
sovéska sendiráðsins í Reykjavík
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að frekari frétta af þessu
máli væri líklega ekki að vænta
fyrr en í kringum 20. september,
um þær mundir sneri Alexander
Agarkov úr sumarfríi sínu til
Moskvu.
A meðan Svavar Gestsson for-
maður Alþýðubandalagsins dvald-
ist í Moskvu birtist um það frétt á
forsíðu Prövdu, að út hefði komið
á íslensku skýrsla Leonid Brezhn-
evs leiðtoga sovéskra kommúnista
til 26. þings Kommúnistaflokks
Sovétríkjanna. Daginn eftir birt-
ist síðan sama frétt í málgagni
Sovétstjórnarinnar Isvestíu. Var
fréttin dagsett í Reykjavík 11.
ágúst og höfð eftir fréttaritara
Tass. Var í fréttinni vitnað til
Hauks Más Haraldssonar, sem
lýsti yfir fögnuði af því tilefni að
umrædd skýrsla væri komin út á
íslensku og fór lofsamlegum orð-
um um Sovétríkin og kommún-
istaflokk landsins. Þegar frá þessu
var sagt í Morgunblaðinu gaf
Haukur Már Haraldsson út yfir-
lýsingu þess efnis, að umrædd
frétt Tass væri uppspuni, enginn
Tass-maður hefði rætt við sig. Við
eftirgrennslan hjá sovéska sendi-
ráðinu í Reykjavík kom í ljós, að
hér á landi er enginn fréttaritari
fyrir Tass, hins vegar sendir
Alexander Agarkov stofnuninni
skeyti ef mikið liggur við. Þar sem
Agarkov hefur verið í sumarfríi
hefur sovéska sendiráðið ekki
fengið botn í málið, eins og áður er
sagt.
Þess má geta, að Haukur Már
Haraldsson er starfsmaður við
blaðið Fréttir frá Sovétríkjunum,
sem María Þorsteinsdóttir gefur
út hér á landi í samvinnu við
Novosti á Islandi. Segir í Fréttum
frá- Sovétríkjunum, að María
Þorsteinsdóttir sé ritstjóri og
ábyrgðarmaður blaðsins í sam-
vinnu við Alexander Agarkov.
Haukur Már Haraldsson sér um
útlit blaðsins Fréttir frá Sovét-
ríkjunum.
Wí m/ffíM VMV /NM-
tfimwLQM vimí mu
Sá stærsti úr Laxá í Kjós
Reknet lögð
á Eskifirði
Eskiíirði. 3. septembcr.
FYRSTU reknetabátarnir lögðu
net sín hér á firðinum.í dag og
voru það Skógey og Andey. 14
tonna bátur héðan, Guðmundur
Þór, kom með 20 tunnur í dag úr
sex lagnetum og átti önnur sex net
ódregin. Sjómenn segja að síldin
fitni með hverjum deginum og
þess verði ekki langt að bíða að
hún verði söltunarhæf.
— Ævar
ST.KRKI laxinn hjá honum ðlafi
II. Jónssyni. sem et til vinstri á
myndinni. er stærsti fiskurinn sem
komið hefur á land í Laxá í Kjós á
þessu sumri.
Það var síðast liðinn sunnudag,
að Olafur var ásamt Páli Olafssyni,
að veiðum í Stekkjarneshyl. Æv-
intýrið hófst á því, að Páll setti í
stærri fiskinn sem hann heldur á á
myndinni, reyndist það 15 punda
hrygna og var Páll rúman hálftíma
að ná fiskinum á land. Flugan:
Black Gnat, númer 6. Páll rölti
síðan með feng sinn upp í bifreið
þeirra félaga, en hafði vart gengið
frá afla sínum, er Ólafur hafði sett
í þann stóra á sömu flugu. Eftir 50
mínútna spennandi orustu gaf lax-
inn sig loks og reyndist hann 21
pund, hængur.
Sértilboð
Barnaanorakkar
nú á 120. kr.
Geysimikiö úrval
50—70% afsláttur.
40-60% afsláttur
aáTÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
KARNABÆR
ÞÚ FÆRÐ MIKIÐ FYRIR PENINGANA HJÁ OKKUR.
Allra síöustu dagar í dag og á
morgun. Opiö til hádegis laugardag.
Nú fer hver aö veröa allra síðastur aö
gera góö kaup, á útsölunni, og þaö
sem meira er
Verðið hefur
lækkað
GARB0##B0NAPARTE#B0NANZA
KARNABÆR ## LAUGAVEGI 66##
GLÆSIBÆ# AUSTURSTRÆTI 22 mm