Morgunblaðið - 04.09.1981, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1981
Enska fyrir börn
Beina aöferöin. Börnum er kennd enska á ENSKU.
íslenzka er ekki töluð í tímum. LEIKIR — MYNDIR —
BÆKUR. Skemmtilegt nám.
MÍMIR, Brautarholt 4,
5 Sími 10004 og 11109 (kl. 1—5 e.h.)
Blaðburðarfólk
óskasf
VESTURBÆR
Tjarnargata 3—40
Tjarnargata 39 og uppúr
AUSTURBÆR
Snorrabraut,
Freyjugata 28—49
Miöbær
Háahlíö
Hringiö í síma^
35408
5 fœttur
vélritunarstóll
á hjólum
Sérstaklega stööugur og
lipur vélritunarstóll með
stillanlegu baki. Auðvelt er
að festa arma á stólinn.
Setuhæð erfrá 42-57cm.
SKRIFSTOFUVtLAR h.f.
Hvortisgotu 33
Sim, 20560
M (.I.VSIM.ASIMINN KR:
22480
jrt#rj5iinbtnÖit>
ÁRBÆJAR-
MARKADURINN
__ Rofabæ 39 sími 71200_
Verslunin sem býður vöruúrvalið.
NAUTA- ^ .
HAKK
^S^auta
tfnllas
NÓATÚN
Nóatúni 17 s.17260 -17261
Umdeilda svæðið. lleila linan: bKilnínjrur Norðmanna. Brotna
línan: Skilninjrur Dana.
Óttast loðnustríð milli
Dana og íslendinga
„DEILUR Norðmanna og Dana um skiptingú hafsins í
kringum Jan Mayen munu bráðlega þróast yfir í fiskistríð
milli Danmerkur og íslands." segir í íorsíðufrétt danska
blaðsins Berlingske Tidende á þriðjudag. „t»að er fjöldi
starfsmanna fiskiðnaði' -ins sannfærður um.“
BÍaðið segir ennfremur: „Eftir
rúma viku mun stór hluti loðn-
unnar verða kominn yfir á danska
svæðið þar sem íslenskir nótabát-
ar mega ekki veiða. Um 100
íslenskir togarar eru gerðir út á
loðnuveiðar en stór hluti þeirra
verður nú að sitja heima og þola
mikið tap af.
Island hefur á síðustu árum
veitt milii 50 og 70% af heildar-
afla sínum á þessu svæði. Danir
fengu yfirráð yfir því í fyrra og
íslendingar missa því mikilvæga
tekjulind í ár ef þeir virða 200
sjómílna fiskveiðilögsögu Dana.
Island hefur neitað að ræða við
Efnahagsbandalagið um loðnu-
kvóta og hefur meinað dönskum
togurum aðgang að íslenskum
höfnum. Veiðar íslendinga á
danska svæðinu verða þar af
leiðandi ólöglegar. Heimildir
Berlingske herma að íslenskum
skipherrum þyki sjálfsagt að
halda til veiða á danska svæðinu
þrátt fyrir það.
Það getur því hæglega komið til
átaka líkt og í þorskastríðinu
fyrir nokkrum árum, þótt Dan-
mörk hafi sent varðskip og flug-
vélar til að fylgjast með dönsku
lögsögunni. Danska utanríkis-
ráðuneytið sagði á mánudag að
það byggist við að íslendingar
virtu 200 sjómílna svæðið út af
Grænlandi."
Jens Evensen, sendiherra, mun
sjá um viðræður danskra og
norskra embættismanna um
loðnudeilurnar við Jan Mayen
fyrir Noregs hönd samkvæmt
fréttum fréttaritara Mbl. í Osló.
Hann segir að ákvörðun Dana að
leggja svo mikla áherslu á 200
mílna fiskveiðilögsögu út frá
Austur-Grænlandi eigi eftir að
hafa mikil áhrif á afstöðu Norð-
manna í málinu.
„Einlægni vestrænna
leiðtoga treystandi“
- segir í bréfi Jörgensens til Brezhnevs
brndon. 2. soptembcr. AI\
ANKER Jorgensen, forsætisráð-
herra Dana. hefur skrifað Lconid
Brezhnev bréf og bent honum á,
að viðræður austurs og vesturs
séu þýðingarlausar nema
Kremlverjar hætti að draga ein-
la*gni leiðtoga á Vcsturlöndum í
efa. „bað er ósanngjarnt að
draga einlægni vestrænna leið-
toga í efa aöeins vegna þess að
þeir hafa bent á vopnauppbygg-
ingu Sovétríkjanna sem hclstu
ástæðu aukinnar spennu i al-
þjoðamalum.” sagði i bréfi Jörg-
ensens.
Caspar Weinberger, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
sagði á þriðjudag, að hann hefði
„ekki hugmynd um“ hvort Sovét-
menn hygðust ráðast inn í Pól-
land. Hann sagði, að heræfingar
Sovétmanna á landamærum Pól-
lands bentu ekki til þess, að innrás
væri á næstu grösum.
Weinberger varði ákvörðun
Bandaríkjanna að beita neitun-
arvaldi sínu í Öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna gegn tillögu um að
fordæma S-Afríku fyrir innrásina
í Angólu í viðtali við breska
útvarpið, BBC. Hann sagði, að álit
bandalagsþjóða Bandaríkjanna á
umdeildum málum eins og nift-
eindasprengjunni skiptu Banda-
ríkjamenn miklu máli. Weinberg-
er sagði, að Bandaríkjamenn
hefðu fullan hug á að hefja
samningaviðræður við Sovétmenn
um takmörkun kjarnorkuvopna í
heiminum.
New Yörk Times hafði eftir
háttsettum embættismönnum í
dag, að stjórn Reagans forseta
hefði tilkynnt Sovétmönnum, að
þeir yrðu að fallast á eftirlit með
vopnabúnaði, ef nýjar umræður
um vopnatakmarkanir eiga að
geta hafist. Stjórnin bíður enn
svars. Sovétmenn hafa ávallt sagt,
að eftirlit með vopnabúnaði þeirra
myndi jafnast á við afskipti af
innanríkismálum og vera afsökun
fyrir njósnastarfi.
Flugslys í
Kólombíu
Itoicota. Kólomhiu. 3. srpt. AP.
FLUGVÉL í leiguflugi fórst í gær
í Kólombíu og létust 20 af 22 sem
voru með vélinni. Þeir sem komust
af eru alvarlega slasaðir. Vélin
fórst í Paipa austur af Bogota.
Skömmu eftir flugtak varð bilun í
vélinni og reyndi flugstjórinn að
lenda vélinni aftur, en tókst ekki.