Morgunblaðið - 04.09.1981, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1981
29
Klofningurinn í Sjálf-
stæðisflokknum?
Kæri Velvakandi!
3066—5635 skrifar:
Skoðanakönnun Dagblaðsins í
sumar sýndi að Gunnar Thor-
oddsen nýtur meira fylgis hins
almenna kjósanda Sjálfstæðis-
flokksins en Geir Hallgrímsson.
I blóra við þessa skoðun virðast
öflin í Heimdalli og SUS, vafa-
laust sömu menn í báðum hreyf-
ingum, samt ota Geir sem vænt-
anlegum formanni flokksins.
Þetta líkist einræði Brésnefs í
Rússlandi, sem ekki hefur fylgi
almennings en hefur fylgi í
ýmsum ráðum og nefndum
flokksins ef svo má kalla. Ég vil
benda á að Gunnar Thoroddsen
hefur margt tekist mjög vel nú í
stjórn landsmála, m.a. í því að
samþykkja ekki allar kröfur
ríkisfyrirtækja um gjaldskrár-
hækkanir. Og einnig spyrnir
hann við fótum í sífelldu væli
frystihúsa um rekstrarstyrki úr
ríkissjóði. Þetta sýnir að Gunn-
ar er hinn sterki maður í
fjármálum þjóðarinnar í dag.
Geir hefði vafalaust samþykkt
allar þessar hækkanir og væl
frystihúsa um rekstrarstyrki
líka. Launþegar eru alltaf undir
í rimmunni um fjármagn þegar
A 1 ' | • »4
Þessir hringdu
Hefði átt að halda
áfram að reisa góðar
biðstöðvar
Eldri kona hringdi og vildi
taka undir þá umræði sem verið
hefur í dálkum Velvakanda um
strætisvagnabiðskýli að undan-
förnu. „Ég er aíveg sammála
þeim sem um þetta mál hafa
fjallað,“ sagði hún. „Ég hef ekki
bíl lengur því ellilífeyrinn dugar
ekki til að reka slíkt farartæki og
verð ég því að ferðast allra
minna ferða með strætó. Ég get
ekki annað sagt en illa sé búið að
þeim sem ferðast með strætis-
vögnum og er það sérstaklega
slæmt í kuldum á veturna. Mér
þótti samt mikil bót að því þegar
strætisvagnabiðstöðin við
Hlemmtorg komst upp því þar
skipti ég um vagn og þar er gott
að bíða þegar kalt er. Svo er
aðstaðan á Lækjartorgi sjálfsagt
góð líka þó ég komi eiginlega
aldréi þár.'
Mér finnst að það hefði átt að
halda áfram að reisa svona
stöðvar fyrir okkur sem ferðumst
með strætisvögnunum. Það má
auðvitað segja að við borgum
ekki mikið fyrir okkur og þess
vegna verði strætisvagnafarþeg-
ar bara að bíða úti á víðavangi
eða í þessum kuldalegu járnskýl-
um. Þó þetta sé réttmætt svo
langt sem það nær finnst mér að
núverandi borgarstjórn hefði átt
að halda áfram að byggja vönduð
skýli því peningarnir sem í það
fara nýtast svo mörgum. Ég hef
líka oft veri að hugsa að það gæti
verið hagkvæmara í heild af
fleiri ferðuðust með strætó því
þá eyddist minna bensín. Þannig
gæti það borgað sig að gera
meira fyrir okkur sem ferðumst
með strætisvögnum."
Geir ræður — einu úrræði Geirs
eru lækkun launa til að bjarga
þjóðarskútunni. Gunnar hefur
til að bera stjórnkænsku en Geir
ekki. Og mitt val er því Gunnar
Thoroddsen en ekki Geir.
G.I.G.
„Fann það
rétta í
Herrahúsinu“
Þannig er mál með vexti að ég var
farinn að verða tilfinnanlega var við
fataskort og einkum þegar ég ætlaði
að bregða fyrir mig betri fætinum
og fara út að skemrrita mér, náði
þessi ónotakennd hámarki. Þegar
hvert föstudags- og laugardags-
kvöldið á fætur öðru lagðist á eitt
um að gera áætlaðar gleðistundir
helgarinnar að engu, sá ég að ég
mátti ekki lengur láta undir höfuð
leggjast áform um fatakaup — þau
var ég búinn að leggja fyrir „nefnd“
fyrir löngu en hvað tefst ekki í
nefndum.
Eg brá mér sem sagt í bæinn til
að kaupa föt. Fötin fann ég eftir
eðlilega leit, ef taka má svo til orða.
Úrval í verzlununum virtist mikið
svo að segja undantekningarlaust.
Gæði klæðanna að sjá viðunandi —
þannig að smekkur einn réð — að
vísu fór eins og oft áður að ég fann
þaö rétta í Herrahúsinu, Aðalstræti.
Tilgangur þessa sögustúfs hér á
undan er að vera gamansamur og
sannur inngangur meginefnis grein-
ar þessarar. Astæðan til þess að ég
skrifa er að mig langar til að þakka
starfsmönnum Herrahússins mjög
góð viðskipti. Sú þjónusta sem þið
veitið er svo sannarlega þess virði
að á hana sé minnst á prenti.
Góðir borgarar. Ef ykkur finnst
stuðningur í því að vita af stað sem
hefur verið lofaður í viðskiptum, þá
á þetta greinarkorn erindi til neyt-
enda. Það er ekki síst minn/þinn
hagur að verzlanir, sem eru á réttri
leið og á ég þar ekki bara við
Herrahúsið, haldi velli — því í
slíkum verzlunum geri ég/þú mín/
þín framtíðarkaup fyrst og fremst.
Jakoh P. Jóhannsson
SIG6A V/öGA g
Lifandi vera
Hver er hin lifandi vera? Hvaö er lifandi vera? Hvers
vegna er veran lifandi?
Fyrirlestur veröur um hina lifandi veru í Norræna
húsinu í kvöld kl. 20.30. Fyrirlesari er Finnbjörn
Finnbjörnsson.
Heimsmynd Martinusar.
Okkar Skráð
verö verð
Ávaxtasalat 100 gr. 6,00
Síldarsalat 100 gr. 5,30
Rækjusalat 100 gr. 6,50
ítalskt salat 100 gr. 6,50
ítalskt salat 100 gr. 3,40
Lauksalat 100 gr. 3,40
Skinkusalat 100 gr. 6,80
Hrásalat kr. per kg. 3,20
Ódýra kindahakkið 29,90 41,40
Svínahakk 49,00 73,50
Nautahakk 55,50 81,35
Lambahakk 39,00 57,50
Saltkjötshakk 39,00 57,50
Úrvals saltkjöt 39,50
Nýreykt hangikjötslæri - 59,40
Úrbeinuö hangikjötslæri 88,00 109,15
Úrvals hangikjötsframpartar 36,40 77,70
Úrbeinaöir hangikjötsframpartar 69,00 77,70
Frosin ýsuflök (sérvalin) kr. kg. 25,00
Nautagrillsteikur 39,50 51,50
Nauta Roast Beef 97,50 122,40
Nautaschnitzel 107,50 155,55
Nautagullasch 88,50 119,65
Nautainnanlæri 113,00 155,55
Nautahamborgari 4,70 7,00
T-Bonesteik 64,00 84,10
Nýr frosinn lax 80,00
(ath.: góöur smálax, sneiddur) 65,80
Ódýra lambalifrin (Ath.: þetta er á hálfviröi.) 18,50 37,15
Svínaschnitzel, þaö bezta 89,00 121,00
Svínakótelettur 107,50 134,75
Sfmi 86511.
Góður matur
— Gott verð
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
éuvtyv sevi v/Q/
fyóvovi omA
vmi
SKKí