Morgunblaðið - 23.09.1981, Side 3

Morgunblaðið - 23.09.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1981 3 Kaupir borgin Lífshlaupið? Viðræður standa yfir FUNDUR um hugsanleg kaup Reykjavíkurborgar á listaverkinu Lífshlaup Kjarvals var haldinn í gær og ræddi Bjðrn Friðfinnsson, fjármálastjóri borgarinnar, við Guðmund Axelsson í Klausturhólum um málið. Þetta er í annað skipti sem þeir hittast vegna þessa, og verður þriðji fundur þeirra i dag. í samtali við Morgunblaðið sagði Guðmundur Axelsson málin yrðu að skýrast í þessari viku, vegna þess að frestur til að svara tilboði því, sem hann hefði fengið í verkið frá Danmörku, rynni út þann 1. október næstkomandi. Guðmundur kvaðst ekki hafa fengið fleiri tilboð í verkið en það danska, en sagði þó að Þorvaldur Guðmundsson í Síld og fisk hefði verið að hugsa um að gera tilboð, en að öllum líkindum væri hann miðvikudag. fallinn frá því. Að öðru leyti varðist Guðmundur allra frétta. Björn Friðfinnsson vildi sem minnst um málið segja i gærkveldi og benti á að ómögulegt væri að ná nokkrum samningum, ættu þeir að fara fram í blöðum. Aðspurður sagði hann að tilboð yrði gert, teldu menn kost á því. Borgin hefði fullan hug á að kaupa listaverkið, en annað mál væri hvort hún gæti það. Borgarráð: Tillaga um skipun nefndar til kaupa á Lífshlaupinu Á FUNDI borgarráðs, sem haldinn var i gær, lagði Sjöfn Sigurbjörnsdóttir borgarfuiltrúi fram tillögu um að borgarráð skipi 3ja manna nefnd til að annast kaup borgarinnar á listaverkinu „Lífshlaup Kjarvals“. Jafnframt eigi fjármálastjóri borgarinnar að annast kaupin. Tillögu Sjafnar var frestað. í rökstuðningi með tillögunni Guðrún Helgadóttir lagði fram segir, að ekki megi til þess koma bókun vegna þessa máls og þar að borgin sjái á bak listaverkinu segir að hún lýsi eindregnum vilja til útlanda, til þess eins að greiða sínum til að Kjarvalsstaðir eignist fyrir það margfalt verð síðar. umrætt listaverk. Almennur fundur um skólamálin í Kópavogi: Framtíð Þinghólsskóla og hugsanleg stofnun fjölbrauta ALMENNUR fundur um skólamúlin í Kópavogi verður haldinn i dag kl. 20.30 í Þinghólsskóla. Fundarboð- endur eru foreldrafélög Þing- hólsskóla og Kársncsskóla og Kcnnarafélög Þinghólsskóia og Víghólaskóla. liggur fyrir bæjarstjórn Kópa- vogs, þess efnis að Mennta- skólinn í Kópavogi flytjist í Þinghólsskóla en nemendur grunnskólans þar flytjist í aðra skóla bæjarins. Verður á fundinum leitað andsvara við þessari tillögu. Tvö mál verða á dagskrá. Rædd verður tillaga sem nú JNNLENT Þá verður fjallað um fram- tíð Menntaskólans í Kópavogi, en hugmyndir hafa komið fram um að hann verði lagður niður í núverandi mynd en í hans stað komi samræmdur framhaldsskóli, þ.e. fjöl- brautaskóli. Verður þetta mál reifað á fundinum og kannað hvert viðhorf fundargestir hafa til þess. Sjá nánar frótt ok viðtal á hts. 19. Olíufélagið hf.: Magnús Gunnarsson ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri MAGNÚS Gunnarsson, við- skiptafræðingur, hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmda- stjóri við Olíufélagið hf., og tekur hann við þessu starfi 1. febrúar nk. Magnús er 35 ára, lauk stúd- entsprófi frá Verzlunarskóla ís- lands 1967 og prófi í viðskipta- fræðum frá Háskóla íslands 1971. Hann hefur starfað sem kenn- ari í Verzlunarskólanum, var um tíma skrifstofustjóri hjá Sölu- sambandi íslenzkra fiskframleið- enda, framkvæmdastjóri Haf- skips hf. og framkvæmdastjóri Arnarflugs frá stofnun þess, 1976, til 1. september sl. Kona Magnúsar er Gunnhildur Gunnarsdóttir, snyrtisérfræðing- ur, og eiga þau tvö börn. Jóhann Hjartarson unglingameistari JÓIIANN Hjartarson varð í gær- kvöldi Unglingameistari íslands í skák. Teflt var í húsi Taflfélags Reykjavíkur við Grensásveg og voru þátttakendur 40 talsins. 20 ára og yngri. Að s<)gn forystu- manna i skákhreyfingunni er þetta unglingamót eitt hið allra sterkasta sem haldið hefur verið. Jóhann hlaut 6 'k vinning af 7 mögulegum. í öðru sæti varð Róbert Harðarson með b'/i vinn- ing, 3. Arnór Björnsson iheð 5 v., 4. Ágúst Sindri Karlsson með 5 v., 5. Karl Þorsteins með 5 v., 6. Elvar Guðmundsson með 5 v. og 7. Gunnar Freyr Rúnarsson sömuleiðis með 5 vinninga. Allir eru þessir skákmenn í Taflfélagi Reykjavíkur utan Ágúst Sindri, sem er í Skákfélagi Hafnarfjarð- ar. Jóhann Hjartarson hlýtur í verðlaun ferð á sterkt skákmót erlendis, en óráðið er hvert. Unglingameistaramótið fór í alla staði óaðfinnanlega fram. Vöruúrval— Urvalsvörur ÍTSMf Ö.Johnson &Kaaberh.f, wm AScopeSage^denmwk ^ mm CHI VÉRs 7 O.Johnson & Kaaber hf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.