Morgunblaðið - 23.09.1981, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.09.1981, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1981 13 í þessu húsi. Lækjargötu 4, voru fyrstu skrifstofur fyrirtækisins. Fyrsta skrifstofan. Luövík Kaaber (t.v.) ok Ólafur Johnson. • Eisendur rúmlcga tvcir tujíir Árið 1918 býðst Ludvig Kaaber bankastjórastaða við Landsbanka Islands og selur hann þá hlut sinn í fyrirtækinu. Arent Claessen, sem starfað hafði við fyrirtækið frá 1912, gerist þá meðeigandi. Árið 1935 er fyrirtækið gert að hlutafé- lagi. Var þá komin önnur kynslóð til starfa við fyrirtækið, Friðþjóf- ur Ó. Johnson, Jean Claessen og Magnús Andrésson, sem byrjað hafði störf hjá fyrirtækinu 13 ára árið 1917. Gerðust þeir allir með- eigendur. Nú eru eigendur rúm- lega tveir tugir, margir af þriðju kynslóð stofnendanna, en Ölafur núverandi forstjóri er yngstur barna Ólafs Johnson stofnanda fyrirtækisins. Árið 1962 hætti félagið að verzla með rafmagnsvörur og eigendur stofnuðu sameignarfélag, sem nú er hlutafélagið Heimilistæki. í dag vinna hjá 0. Johnson & Kaaber 55 manns og að auki 20 manns hjá systurfyrirtækjunum, Kaffibrennslunni og kaffibætis- verksmiðjunni. Sú síðastnefnd er nú hætt framleiðslu á „exportinu", en vinnur pappírspoka, salernis- pappír og pappírsrúilur í reikni- vélar. Enn ber hún þó sama heitið, sem minnir á lönguliðin umsvif, kaffibætisframleiðslu. Á 75 ára ferli fyrirtæksins 0. Johnson & Kaaber hafa auk stofn- endanna tveggja eftirtaldir menn gegnt forstjórastöðu við fyrirtæk- ið: Arent Claessen, Friðþjófur Ó. Johnson, Magnús Andrésson og Jean Claessen, sem sá um verk- smiðjur fyrirtækisins. Þeir eru allir látnir. Núverandi forstjóri er Ólafur Ó. Johnson. - O - I tilefni dagsins, mun 0. John- son & Kaaber hf. hafa opið hús milli klukkan 16 og 19 í dag í félagsheimili Karlakórsins Fóst- bræðra að Langholtsvegi 109— 111. Væntir stjórn fyrirtæksins þess að sjá þar sem flesta af velunnurum, viðskiptavinum og öðrum vinum fyrirtæksins. Afgreiðslan i Hafnarstræti, Fálkahúsinu. í Hafnarstræti Arent_ Claessen og ólafur Johnson. Á veggjum eru myndir m.a. af skonnortunum. sem fyrirtækið átti. Kaffiba'tisverksmiðjan í Fiehersundi. Kaffihrennslan i Hafnarstræti. A myndinni er Ólafur Hjartarson framleiðslustjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.