Morgunblaðið - 23.09.1981, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1981
Krákuskeljar valda
eitrun á Spáni
Mílanó. Ítaliu. 22. soptomhor. AP.
ANATOLY Karpov kom með 11
manna fylKdarliði til Milanó i
da«. Ilann mun leika sinn fyrsta
leik Ke«n Victor Korchnoi í
heimsmeistaraeinvÍKÍnu i skák 1.
október.
Sovéski heimsmeistarinn veif-
aði til blaðamanna við komuna ok
sagðist vera tilbúinn að hitta
harðan keppinaut sinn. Hann
svaraði því engu þegar hann var
spurður hvort hann hefði komið
með dáleiðandann, sem truflaði
Korchnoi í einvígi kappanna á
Kilipseyjum, með sér. Heimildir
hermdu að dáleiðandinn kynni að
koma með seinni hópi fylgdarliðs
Karpovs frá Sovétríkjunum.
Irina, kona Karpovs, var í fylgd
með honum. Þeim var ekið til
Merano á Norður-Ítalíu eftir
stutta móttöku í ræðismanna-
skrifstofum Sovétmanna í Mílanó.
Komnir
aftur
Vinsælu herra leöur
inniskórnir aftur
fáanlegir.
Hagstætt verö.
Póstsendum.
GEísíP
Vance og Kissinger
andmæla AWACS sölu
Washington. 22. septemhor. AP.
TVEIR fyrrverandi utan-
ríkisráöherrar Bandaríkj-
anna. þeir Cyrus Vance og
Ilcnry Kissinger, hafa
gagnrýnt fyrirhugaða sölu
Bandarikjastjórnar á
mjög fullkomnum ratsjár-
flugvélum, svokölIuÖum
AWACS-vélum, til Saudi-
Arabíu. Vance hefur skor-
aÖ á handaríska þingið í
hréfi að koma í veg fyrir
söluna og Kissinger sagði:
„ég var á móti hugmynd-
inni frá upphafi.“ á
hlaðamannafundi í Texas.
Kissinger sagði að það
yrði þó enn verra ef þingið
kæmi í veg fyrir söluna nú.
„Mér finnst að stjórnin og
þingið ættu að koma sér
saman um eitthvað sem
myndi auka öryggi allra
viðkomandi frekar en að
bítast um málið."
í bréfi sem Vance skrif-
aði Alan Cranston, öld-
ungadeildarþingmanni
demókrata, sem á sæti í
utanríkismálanefnd deild-
arinnar, 5. ágúst sl. segist
hann óttast að sala vélanna
muni „eyðileggja hernaðar-
jafnvægið" í Miðaustur-
löndum.
Fulltrúar í utanríkis-
málanefnd öldungadeildar-
innar skoðuðu AWACS-
vélarnar í dag í boði stjórn-
arinnar. Ýmis samtök hófu
sama dag sameiginlega
baráttu gegn sölu vélanna.
Karpov
mættur
til leiks
Á móti banvæn-
um sprautum
London. 22. september. AP.
ELLEFU þekktir evrópskir læknar hafa skorað á lækna
í Oklahoma-ríki í Bandaríkjunum að neita að gefa
fanga, sem hefur verið dæmdur til dauða, banvæna
sprautu, samkvæmt fréttum Amnesty International á
miðvikudag. Læknarnir segja að þátttaka lækna í
aftökunni yrði brot á siðareglum læknastéttarinnar.
Thomas „Sonny“ Hays var
dæmdur til að hljóta banvæna
sprautu 1977. Aftakan átti að fara
fram 9. september en þá var henni
seinkað um 30 daga. Hays er einn
af 850 manns sem bíða dauðarefs-
ingar í Bandaríkjunum. 180 þeirra
eiga að hljóta banvæna sprautu.
Þannig sprauta hefur aldrei verið
gefin í Bandaríkjunum, en ríkin
Oklahoma, Idaho, Texas og New
Mexico hafa þá hegningu í hegn-
ingarlögum sínum.
Andre Lwoff og Francois Jacob,
frönsku Nóbelsverðlaunaþegarnir,
og aðrir læknar í Frakklandi,
írlandi, Svíþjóð, Sviss og Bret-
landi sendu áskorunina í skeyti til
lækna í Oklahoma á miðvikudag.
Hvernig væri að skreppa til Reykjavíkur einhverja helgina
og velta sér upp úr dásemdum borgarlífsins svolita stund.
Láta stjana við sig á Esju, Loftleiðum
eða einhverju oðru hóteli, smella sér í hamborgara eða pizzu,
eða fá sér ærlega maltið á einhverjum úrvals veitingastað.
Sjá nýjustu myndimar í bíó, bregða sér í leikhús
og enda á diskóteki, — og lesa morgunblöðin klukkan átta
að morgni.
Helgarreisur Rugleiða eru ódýrar, — þú færð einstök kjör
á flugfari og gistingu.
Leitaðu upplýsinga hjá næsta umboðsmanni.
FLUGLEIÐIR
Traust folkh/a goðu felagi
Madrid. 21. aeptember. AP.
Heilbrigðisráðuneytið spænska skoraði i dag á Spánverja að leggja
sér ekki nýja kræklinga til munns, eða á meðan verið væri að finna
ástæður mikillar matareitrunar, sem olli þvi, að þúsundir manna voru
fluttar á spitala i gær. Tekið var þó fram, að ekki væri um alvarlega
eitrun að ræða.
Einkenni eitrunarinnar eru
uppsölur og niðurgangur og er
talið, að nýir kræklingar séu
sökudólgurinn, en þeir eru mikið
étnir á Spáni. Haldið er, að þessar
eitruðu krákuskeljar hafi komið
frá Galiciu á Norðvestur-Spáni, en
hins vegar hefur borgin Murcia á
Suðaustur-Spáni orðið verst úti.
Spánverjar eiga enn um sárt að
binda vegna annarrar og alvar-
legri eitrunar, en það var þegar á
markaðinn var sett eitruð matar-
olía, sem til þessa hefur valdið
dauða 125 manna. Fyrst varð vart
við eitruðu olíuna fyrir fjórum
mánuðum en ennþá hefur ekki
tekist að finna móteitur við henni.
Stálvaskar
og
blöndunartæki
VfZZJ
ARABIA
HREINLÆTISTÆKI
BAÐVÖRIIRNAR
FRÁ BAÐSTOFIINNI
E)adstofaR
ÁRMÚLA 23 - SlMI 3181«.