Morgunblaðið - 23.09.1981, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1981
inofgtitiÞiftfeifc
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 85 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 5 kr. eintakiö.
Var Skúli fógeti
framsóknarmaður?
Fræðsla um einokunarverslun Dana og ill áhrif hennar á
afkomu þjóðarinnar og hag allan ætti að vera mikil í skólum
landsins til að veita mönnum strax á unga aldri skilning á
mikilvægi frjálsræðisins í sókninni eftir lýðfrelsi og viðunandi
lífskjörum. Einfaldasta lýsingin á böli einokunarinnar felst í
sögunni um Hólmfast Guðmundsson, hjáleigumann á Brunna-
stöðum. Hólmfastur gerði sig sekan um að selja í Keflavík 3 löngur,
10 ýsur og 2 sundmagabönd árið 1698 í stað þess að láta
Hafnarfjarðarverslun sitja fyrir kaupunum. Var Hólmfastur
hýddur við staur fyrir tiltækið, af því að hann gat ekki greitt sektir
fyrir brotið með öðru en gömlu bátskrifli, sem kaupmaður vildi eigi
líta við.
Þessi saga minnir okkur á ofurvald kaupmannanna á einokunar-
tímanum, en þeir drottnuðu hver á sínum stað í krafti fjármagnsins
og enginn gat komið neinu í verð án afskipta þeirra. í krafti
einokunarinnar gátu þeir látið hýða menn fyrir það eitt að selja
afurðir sínar á öðrum stað en einokunin mælti fyrir um. Skúli
Magnússon landfógeti hafði um það frumkvæði að bægja frá
landsmönnum versta bölinu vegna háttalags einokunarkaupmann-
anna og beitti sér fyrir því, að þeir voru skyldaðir til að sigla á færri
hafnir en áður. Málamiðlun hans fólst í því, að skipaðir skyldu 5
yfirkaupmenn í landinu, er búsettir væru hér á landi og gegndu
verslun í aðalhöfnum árið um kring. Horfið var frá þeim háttum, að
kaupmenn hröðuðu svo verslun sinni á höfnunum, að engu var
líkara en hernaðarleiðangri, sem flaustrað var af í mesta skyndi.
Þessar hugmyndir Skúla fógeta komu fram 1757 og voru fram
settar til að losa þjóðina undan ofurvaldi Hörmangarafélagsins.
Síðan er mikið vatn til sjávar runnið og hringinn í kringum landið
eru nú öflugir bæir, þar sem atvinnulíf og verslun standa traustum
fótum og þróast hlið við hlið. Eftir því sem verslunarfrelsið varð
meira, jókst sjálfsbjargarviðleitni þjóðarinnar. Fáum hefði dottið í
hug, að nú kæmu fram raddir í anda Skúla fógeta fyrir rúmum 200
árum, þess efnis, að landinu yrði að nýju skipt milli nokkurra
yfirkaupmanna. Þó hefur það gerst.
Ólafur Þ. Þórðarson, þingmaður Framsóknarflokksins í Vest-
fjarðakjördæmi, lét þá skoðun í ljós á fjórðungsþingi Vestfirðinga
síðustu dagana í ágúst, að verði heildsalar ekki við þeirri kvöð að
greiða flutningskostnað frá innflutningshöfn til smásala, þá væri
rétt að skipta landinu niður í heildsölusvæði, og banna smásöluaðil-
um að versla við heildsala utan síns svæðis. Hugmynd þingmanns
Framsóknar er þannig bæði í ætt við málamiðlun Skúla fógeta
gagnvart Hörmangarafélaginu og refsivald einokunarkaupmann-
anna, sem gátu látið hýða menn, er fóru út fyrir verslunarsvæðið.
Reynslan segir mönnum, að framsóknarmenn móti ekki skoðanir
sínar í verslunarmálum án þess að taka tillit til SÍS — vonandi lítur
Ólafur Þ. Þórðarson SÍS ekki sömu augum og Skúli Magnússon
landfógeti Hörmangarafélagið.
O. Johnson & Kaaber
r
Isömu andránni og fjallað er um neikvæð áhrif einokunarversl-
unarinnar á þjóðarhag íslendinga, fer vel á því, að fagnað sé 75
ára aímæli heildverslunarinnar O. Johnson & Kaaber. Hún var
stofnuð árið 1906 af tveimur ungum mönnum, Ólafi Johnson og
Ludvig Kaaber, og haslaði sér á skömmum tíma völl, bæði í
innflutningi og útflutningi. Auk verslunarinnar stuðluðu þeir
félagar að iðnrekstri til dæmis með kaffibrennslunni, sem fyrirtæki
þeirra stofnaði 1924. Framleiðsla hennar er enn hluti af daglegu lífi
sérhvers Islendings.
Eins og fram kemur í ágripi af sögu O. Johnson & Kaaber, sem
birtist hér í blaðinu í dag, er fyrirtækið einskonar barn nútíma
hátta í viðskiptum, því að með tilkomu símans sáu stofnendur þess
viðskiptamöguleika opnast víðar en í Danmörku. Má í því sambandi
minna á umfangsmikil viðskipti við Bandaríkin á sínum tíma og
raunar alhliða tengsl fyrirtækisins víða um heim á starfsferli
sínum.
Nú, þegar talinn er sjálfsagður hlutur á íslandi að hafa greiðan
aðgang að öllum þeim gæðum, sem hugurinn girnist, má ekki
gleymast, að þá fyrst gátu landsmenn notið þessara gæða, þegar
brautin til viðskiptafrelsis hafði verið rudd. Enn getum við stigið
frekari skref á þeirri braut og eigum óhikað að gera en hafna þeim
sjónarmiðum, sem telja öllu best borgið með opinberum afskiptum
og skipunarvaldi, til dæmis um að landinu skuli skipt á ný milli
yfirkaupmanna. A 75 ára ferli sínum hefur fyrirtækið O. Johnson &
Kaaber staðið af sér innflutningshöft og skömmtunarkerfi, saga
þess sýnir, að frelsið tryggir besta þjónustu og hvetur menn til
stórhuga átaka.
T unguf ossslysið:
Sjópróf hef jast
á þriðjudaginn
SJÓPRÓF vegna Tungufoss-
slyssins hefjast á þriðjudaginn í
næstu viku, samkvæmt upplýs-
ingum sem Morgunblaðið fékk
hjá Eimskipafélaginu í gær.
Munu sjóprófin fara fram í
Reykjavík. Astæðan fyrir því að
sjópróf fara ekki fram í þessari
viku munu vera þau, að vand-
kvæði munu vera á því að kalla
sjórétt saman strax í þessari
viku.
Þorbjörn Gunnarsson, háseti á
Tungufossi. heilsar hér konu
sinni. Sigríði Jónu Ólafsdóttur,
við komuna á Keflavíkurflug-
völl i gærdag. Þar hjá stendur
sonur hans. Friðrik. og bíður
með óþreyju að pahhi taki hann
í fangið líka.
Hjálmar R. Bárðarson um björgunarbúnað flutningaskipa:
Alls ófullnægjandi
við erfiðar aðstæður
„ÞAÐ ER ekki alþjóðakrafa um
að Ijós séu á björgunarbeltum, en
á síðasta fundi Alþjóða siglinga-
málastofnunarinnar, 5. ágúst sið-
astliðinn. kom fram tillaga um að
svo yrði og cr líklegt að það vcrði
gert að alþjóðakröfu að Ijós verði
á björgunarbeltum. Á hinn bóg-
inn cr það hverri þjóð i sjálfsvald
sett að setja slíkar kröfur og því
hugsanlegt að svo sé i Bretlandi.
þó ólíklegt sé að svo sé á öllum
skipum þar.“ sagði Iljálmar R.
Bárðarson. siglingamálastjóri, cr
Morgunhlaðið innti hann eftir
hvers vegna ekki va*ri krafizt
Ijósa á björgunarbcltum.
Hjálmar sagði ennfremur, að
þetta væri ekki krafa hér á landi
heldur og hefði aldrei verið, en það
væri að sjálfsögðu augljóst hag-
ræði að slíkum búnaði, ekki sízt í
veðri sem því, er Tungufoss fórst.
Þá væri það ljóst, að núgildandi
björgunarbúnaður flutningaskip-
anna væri allsendis ófullnægjandi
í fárviðrum, föstu bátarnir kæmu
þá að engum notum og erfitt væri
að eiga við gúmmíbjörgunarbát-
ana vegna veðurhæðar og sjó-
gangs. Þessi tæki þjónuðu hins
vegar fyllilega tilgangi sínum við
aðrar aðstæður, eins og þegar skip
strönduðu eða sykkju í skaplegu
veðri.
Þá sagði Hjálmar, að frá því
1973 hefðu íslendingar tekið þátt í
norrænu samstarfi um þróun
nýrra björgunartækja fyrir flutn-
ingaskip. Þau miðuðust hins vegar
flest við verulega stærri skip,
erfitt væri að koma þessum nýja
búnaði fyrir í smærri skipum eins
og flestum í eigu íslendinga. Þar
væri um að ræða stóra björgunar-
báta, algjörlega lokaða, sem komið
væri fyrir á skut skipanna og fyrir
miðju, þannig að það væri mögu-
leiki á sjósetningu með því að láta
bátinn renna niður eftir rennu eða
fljóta upp ef skip sekkur. Þá væri
líka um að ræða, að aftasti hluti
skutsins væri hannaður sem lok-
aður björgunarfleki, sem rúmaði
alla áhöfnina og hægt væri að losa
frá skipinu. Gallinn viö bæði þessi
björgunarkerfi væri sá, að erfitt
væri að koma þeim fyrir nema á
mjög stórum skipum og þyrfti
jafnvel að gera ráð fyrir þeim við
smíði skipanna, í það minnsta
skutflekanum.
Kjaraskerðingin 10-14%
frá því í desember 1977
Formannaráðstefna BSRB hófst í gærdag
KJARASKERÐING félagsmanna
í BSRB. Bandalagi starfsmanna
ríkis og bæja. miðað við descmber
1977. er á hilinu 10—14%. eftir
launaflokkum. að sögn Haraldar
Steinþórssonar. framkvæmda-
stjóra BSRB. Eins og fram hefur
komið í Mbl.. er kjaraskerðing
félaga í ASÍ á þessu sama tíma-
bili um 9%.
Haraldur Steinþórsson sagði
ennfremur, að kjaramálin væru
eitt af aðalmálunum á formanna-
ráðstefnu BSRB, sem hófst í gær
og stendur í þrjá daga. Þá var lögð
fram skýrsla stjórnar og reikn-
ingar.
— „Það má reyndar segja,
að formannaráðstefnan sé nokk-
urs konar smækkað bandalags-
þing, og er haldin annað hvert ár
þegar þing eru ekki haldin," sagði
Haraldur Steinþórsson ennfrem-
ur.
Um sjötíu fulltrúar sitja fund-
inn og verður þeim skipt niður í
umræðuhópa í dag, þar sem fjall-
að verður um kjaramálin. Niður-
stöðurnar verða síðan ræddar og
samstilltar í nefnd, sern fjalla
mun sérstaklega um kjaramál.
Haraldur Steinþórsson sagði að
síðustu, að launamálanefnd BSRB
SEDLABANKI íslands hefur
ákvcðið. að fengnum tilmælum
ríkisstjórnarinnar. að bæta geng-
istap á afurðalánum, sem þeir
framleiðendur hafa orðið fyrir,
sem tekið hafa afurðalán í dollur-
um. en selt framleiðslu sína í
Evrópumyntum og na*r þetta
fyrst um sinn til framleiðslu á
timabilinu janúar til ágúst 1981.
segir í fréttatilkynningu. sem
Morgunhlaðinu hefur borizt ,frá
Seðlabankanum.
Þar segir ennfremur, að gengis-
þróun undanfarinna mánaða hafi
skapað veruleg vandamál fyrir þá
framleiðslu, sem seld er gegn
greiðslu í Evrópumyntum, meðal
annars vegna þess að afurðalán
hafi verið í dollurum. Því hafi
hefði enn ekki komið saman, en
myndi væntanlega gera það nú
fyrir mánaðamót.
myndazt misræmi, framleiðend-
um í óhag, sem ekki hefði orðið, ef
þeir hefðu notfært sér þá mögu-
leika að taka afurðalán í sömu
myntum og selt er fyrir, eins og
reglur Seðlabankans gera ráð
fyrir.
Segja mætti, að þetta vandamál
kæmi til viðbótar þeim almenna
vanda, sem öll útflutningsfram-
leiðsla hafi staðið frammi fyrir
vegna hækkandi framleiðslu-
kostnaðar innanlands. Þess sé að
vænta, að tilkynningar um fram-
kvæmd á þessum bótum berist, en
nú sé unnið að ýmsum tæknilegum
atriðum, sem nauðsynlegt væri að
leysa úr, áður en til framkvæmda
gæti komið.
Seðlabankinn:
Bætir gengistap
vegna afurðalána