Morgunblaðið - 23.09.1981, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1981
Aflafréttir
af Skipaskaga
Vkranosi. 21. soptombor.
FYRSTA loðnan að þessu sinni
barst hingað á laugardaKÍnn, til
Sildar- ok fiskimjolsverksmiðj-
unnar. Skírnir AK 16 var með
132 lestir. og Örn KE 13 með 100
lestir.
Haraldur Böðvarsson og Óskar
Magnússon eru hér í dag að landa.
Haraldur er með 170 lestir, og
Óskar með um 180 lestir.'Aflinn er
mestmegnis þorskur. Einn bátur
er gerður út héðan á línuveiðar, og
hefur afli hans verið um fimm
lestir í veiðiferð að undanförnu.
Togbátar hafa aflað 15 til 30
lestir í fimm daga veiðiferðum að
undanförnu. — Július.
Góð loðnuveiði:
Grindvíkingur
með 950 lestir
úr einu kasti
LOÐNUVEIÐI var ágæt í gar-
morgun. en skipin fóru að tínast
á miðin í fvrrakvold eftir óveðrið
sem var á miðunum um helgina.
Skömmu eftir hádegi í gær hofðu
fimm skip tilkynnt um afla.
samtals 3290 lestir. og má nefna
að Grindvíkingur fékk 950 lestir
í einu kasti.
Skipin sem höfðu tilkynnt um
afla eru þessi: Víkurberg 500
lestir, Grindvíkingur 950, Skarðs-
vík 620, Jón Finnsson 570 og
Hrafn 650 lestir. Þá var vitað um
allmörg skip, sem komin voru með
góðan afla, en höfðu ekki tilkynnt
sig.
Óánægja sjómanna með matið
llofn í llornafirói. 21. M'ptcmhor.
FYRSTA síldin á þessari vertíð
harst til Ilornafjarðar síðastlið-
inn föstudag. en það var aflinn af
Steinunni SF 10. um 300 tunnur.
Síldin var mjög falleg og stór.
Steinunn landaði aflanum á
Djúpavogi en síldin var síðan
flutt á hílum til Hafnar.
Síldin var söltuð í hinni full-
komnu söltunarstöð Fiskimjöls-
verksmiðju Hornafjarðar, og gekk
söltunin mjög vel. Allir bátarnir
héðan frá Höfn eru nú að veiðum
fyrir austan og allt norður að
Langanesi og eftir að veiðin byrj-
aði hefur afli verið sæmilegur, en
eitthvað hefur veður þó hamlað
veiðum þar norðurfrá.
Hornfirðingar vonast til að síld-
in fari að hugsa til hreyfings og
komi á hinar hefðbundnu veiði-
slóðir, hér við suðausturhornið,
sem fyrst svo að bátarnir geti
farið að landa hér heima, en eins
og er þá er siglingin af miðunum
og til Hornafjarðar of löng.
En ef um mikla veiði verður að
ræða út af Austfjörðum má búast
við að stöðvarnar fyrir austan geti
ekki tekið á móti öllum aflanum
og þá má gera ráð fyrir að
1982
Ford Transit
Nú getum viö í fyrsta skipti boöiö
Ford Transit diesel sendibíla frá
Þýskalandi
Eftirfarandi geröir eru fyrirliggjandi:
Transit 100 sendibíll
buröarþol 1100 kg.
Transit 130 sendibíll
buröarþol 1400 kg.
Transit 100 12 sæta fólksbíll
Verd 130.000.
Verð 162.000.
Verð 180.000.
Sveinn Egi/sson hf.
SKEIFUNNI 17 SÍMI 85100
einhverjir bátanna komi með afl-
ann til Hornafjarðar, þrátt fyrir
langa siglingu.
Að sögn Arnar Þorbjörnssonar
skipstjóra og útgerðarmanns á
Hornafirði ríkir mikil óánægja
meðal sjómanna vegna nýrrar
reglugerðar um mat á síldinni, en
sú reglugerð felur í sér það
fáranlega mat að „síld með skadd-
aðan haus, en að öðru leiti 1.
flokks er dæmd í gúanó, og þykir
sjómönnum það súrt ef hluti
aflans er dæmdur óvinnsluhæfur
og verðlaus, en að loknu mati fer
þessi sama síld í vinnslu með
annarri síld og endar að lokum í
sömu tunnu og fyrsta flokks síld-
in.“ Að lokum sagði Örn að þeir
sem stunda þessar veiðar hljóti að
fara fram á að þetta hróplega
óréttlæti verði leiðrétt hið fyrsta.
Einar.
Athugasemd
vegna
blaðaskrifa
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi athugasemd vegna
hlaðaskrifa um morð Hans Wied-
busch:
Roykjavlk. 22. scptombor 1981.
Við erum nokkrir vinir og kunn-
ingjar Þjóðverjans Hans Wied-
busch, sem myrtur var aðfaranótt
fimmtudags 17. september sl., sem
mótmælum harðlega málsmeðferð
og fréttatilkynningu Rannsóknar-
lögreglu ríkisins og skrifum síð-
degisbtaða um þetta mál. Einnig
viljum við koma á framfæri vitn-
isburði fólks, sem þekkti vel til
Hans Wiedbusch.
Okkur var vel kunnugt um að
Hans var „homosexuel", en það
kom ekki í veg fyrir að hann átti
sér stóran hóp vina, karla sem
kvenna, fjölskyldna sem ein-
hleypra, sem kunnu að meta
manngildi hans. Hans var að
okkar dómi sérstakt ljúfmenni,
heiðarlegur, tilfinninganæmur og
traustur vinur.
Þar sem hinn látni getur ekki
varið sig sjálfur, krefjumst við
þess í minningu hans að leiðrétt sé
sú villandi mynd sem af honum
hefur verið gefin í fjölmiðlum.
Pora Asdís Arnfinnsdóttir. (íudrún Ák.
Janusdóttir. Munika Ahondruth. I’áll I'amp-
iohlor Pálsson. Ililko Jakoh MaKnússon.
Aóalmundur MaKnússon. Karin llróhjarts-
son. AAalhoióur l'álsdóttir. InKrid llalldórs-
son. Markús SÍKUrrtsson.
INNLENT
Góð sala Bessa
í Þýzkalandi
TOGARINN Bessi frá Súðavík
lauk við að selja í Bremerhav-
en í gærmorgun, en hluti
aflans var seldur á markaðn-
um þar i fyrradag.
Alls landaði Bessi 140,4
tonnum og fékk 1.037 millj. kr.
fyrir aflann. Meðalverð á kíló
var kr. 7,37, sem er mjög gott
verð fyrir karfa.
Þá seldi Gandi frá Vest-
mannaeyjum 53,8 tonn í
Cuxhaven. 334,1 þús. kr. feng-
ust fyrir aflann og þrátt fyrir
að 11,7 tonn af aflanum hafi
verið ónýt var meðalverð á kíló
kr. 6,21.
Pólverjar tilbúnir að kaupa
25 þús. lestir af fiskimjöli
- en vilja greiðslufrest i tvö ár
ANDRI hf. hefur samið við aðila i
Póllandi um solu á 25 þúsund
lestum af loðnumjöli af fram-
leiðslu nýbyrjaðrar vertiðar.
Þessi samningur er þó bundinn
því skilyrði að Pólverjar fái
greiðslufrest í tvö ár, en verðið
sem þeir bjóða er 7,20 dollarar
fyrir prótcineininguna.
Haraldur Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Andra hf., sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær,
að verðið sem Pólverjarnir byðu
þætti mjög gott um þessar mund-
Fram til þessa hefði lítið sem
ekkert af loðnumjölsframleiðslu
þessarar vertíðar verið selt, enda
birgðir talsverðar í heiminum, eða
um 500 þúsund tonn.
Þá sagði Haraldur að hann teldi
mjög mikilvægt að orðið yrði við
greiðslufrestsbeiðni Pólverja,
enda myndu þeir borga fulla
meðalbankavexti. Auk þess hefðu
Pólverjar verið stærstu kaupend-
ur á fiskimjöli frá íslandi undan-
farin 15 ár og keypt 30—45 þúsund
lestir ár hvert.
Skyndikönnun á
þörf fyrir
leighúsnæði
BORGARRÁÐ samþykkti sam-
hljóða á fundi sínum í gær, að
fram skyldi fara skyndikönnun á
þörf fyrir leiguhúsnæði í borginni.
Könnuninni skuli ætlað að leiða í
ljós fjölda þeirra fjölskyldna og
einstaklinga sem í húsnæðis-
vandræðum eru, fjölskyldustærð
og núverandi dvalarstað, auk ann-
arra aðstæðna.
„Áfengisvarnir og æskan“
FREEPORT-klúbburinn gengst
fyrir almrnnum fundi i Kristals-
sal Hótel Loftleiða á fimmtudags-
kvöld. 24. september nk.. um
fundarefnið „Afengisvarnir og
æskan.“
Frummælendur verða Árni Ein-
arsson, formaður íslenskra ung-
templara og Hrafn Pálsson, sem
lokið hefur meistaragráðu í fé-
lagsvísindum og -ráðgjöf frá
Adelphi University í New York.
Að loknum framsöguerindum
verða frjálsar umræður. Allir
áhugamenn um áfengismál eru
velkomnir á fundinn, sem hefst kl.
20.30.