Morgunblaðið - 23.09.1981, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1981
31
n
„Þetta veróur tvímælalaust
mjög erfiður leikur"
segir Magnus Bergs
1>ETTA verður tvímælalaust erf-
iður leikur. en með baráttu oíí
duKnaði eigum við að neta náð
viðunandi úrslitum. Þeirra sam-
æfinR er mikil og lið þeirra
sterkt. sajfði Magnús Bergs.
Maicnús vildi en«u spá um úrsiit
leiksins en sanðist ekki hafa trú
á þvi að íslenska liðið feniíi skell.
Aðspurður um hvort hann væri á
förum frá Dortmund ojí hvernijf
honum líkaði dvölin ytra. sa»?ði
Mannús.
— Ég er mjög ánægður með
dvöl mína hjá Dortmund. Og ég
skipti ekki um félag á næstunni.
Ég ætla að bíða og sjá til í 5 til 6
vikur og vonandi kemst ég í 16
manna hópinn á þeim tíma. Það er
erfitt að vinna sér sæti í liðinu
sem varnarmaður. En fái ég ekki
tækifæri þá mun ég íhuga það að
skipta um félag. Dortmund hefur
ekki hag í því að halda mér ef ég
spila ekki. Og hvað mig varðar þá
dauðlangar mig að fá að komast í
kapplið og leika knattspyrnu, en
vera ekki alltaf í varamannahópn-
um. Samningur minn við Dort-
mund rennur út 30. júní 1983.
- -ÞR.
• Majínús Bergs
Bob Latchford
Knattspypna 1
Ólíklegir markakóngar
ÞEGAR fimm umferðum er lokið
í ensku deildarkeppninni i
knattspyrnu, hafa þrir leikmenn
skorað 5 mörk og eru þvi mark-
hæstu leikmenn deildarinnar.
Leikmennirnir þrir verða að telj-
ast óliklegir markakóngar, sér-
staklega Bob Latchford hjá
Swansea, sem hafði hreinlega
gufað upp úr ensku knattspyrn-
unni áður en welska leiðið fékk
hann til liðs við sig. Karlinn er
hálffertugur. Þá er Dave Cross,
miðherji West Ham, ekkert
lambakjöt og Tony Evans hjá
Birmingham, þriðji leikmaður-
inn, hefur ekki einu sinni verið
fastamaður i liði Birmingham
fyrr en i haust. En listi mark-
hæstu leikmannanna litur svona
út:
Dave Cross, West Ham 5
Tony Evans, Brum 5
Bob Latchford, Swansea 5
Trevor Francis, Man. City 4
Lee Chapman, Stoke 4
Arthur Grahman, Leeds 4
Kevin Keegan, South. 4
Alan Brazil, Ipswich 4
Þrír efstu leikmennirnir hafa
allir þrennur til að státa af, Cross
skoraði reyndar fjögur gegn Tott-
enham, Evans þrjú gegn Man-
chester City og Latchford þrjú
gegn Leeds. Tvö marka Trevor
Francis skoraði hann sem leik-
maður hjá Nott. Forest. Mark-
hæstir í 2. deild eru eftirtaldir:
Roger Palmer, Oldham 6
Trevor Aylott, Barnsley 5
Ronnie Glavin, Barnsley 4
Ronnie Moore, Rotherham 4
Derek Parker, Barnsley 4
Athygli vekur, að þrír þessara
kappa eru leikmenn Barnsley,
nýliða í deildinni. En inni í
þessum tölum eru einnig skoruð
mörk í deildarbikarkeppninni.
Þannig skoraði Glavin öll mörk
sín fjögur í þeirri keppni og
Parker tvö af fjórum mörkum
sínum.
Heilbrigð
sál í
hraustum
líkama?
HVER segir að iþróttir séu jafn-
an hollar lífi og limum. Liklega
gefur sig enginn fram er mynd
þessi er barin augum og ekki
laust við að menn finni til með
aðilanum vinstra megin á mynd-
inni. Annars er tilgangurinn með
þessari myndbirtingu ekki annar
en sá. að benda mönnum á
hvernig þeir eigi ekki að haga sér
á leikvelli...
„Ég er í framför
sem knattspyrnumaður“
- segir Arnór Guöjohnsen
„ÉG LÉK allan síðasta leik
með Lokeren þegar við
ma-ttum Standard. og fann
þá ekkert fyrir þeim meiðsl-
um sem hafa hrjáð mig
síðustu vikur. og þvi held ég.
að ég sé kominn yfir þau.“
sagði Arnór Guðjohnsen í
gærdag. Þegar Arnór var
spurður álits á leiknum i
kvöld. sagði hann:
— Lið Tékka er gífurlega
sterkt. Leikmenn hafa mikla
tækni og eru fljótir. En ég
veit, að við getum vel staðið í
þeim. Og því líst mér vel á
leikinn. Vonandi fáum við
góðan stuðning frá áhorfend-
um, ekki veitir af.
Ertu bjartsýnn á keppnis-
tímabilið í Belgíu, og áttu von
á því, að þú verðir fastur
maður í liði Lokeren?
— Já, ég á von á því, að ég
verði fastur maður í liðinu.
Ég er í góðri æfingu um
þessar mundir. Þá er ég í
greinilegri framför sem
knattspyrnumaður. Það er
líka dýrmæt reynsla sem
maður fær með hverju ári
sem líður. Það er leikin góð
knattspyrna í Belgíu núna.
Ég á von á því, að lið Lokeren
verði svipað að styrkleika og í
fyrra og verði í einu af
fjórum efstu sætunum í
deildinni ásamt Standard,
Anderlecht og Brugge. Samn-
ingur minn rennur úr hjá
Ix>keren í júní á næsta ári og
á þessu stigi er alltof fljótt að
fara að ræða um hvað tekur
við, sagði Arnór.
ÞR
Swansea sigraði
Tottenham 2-1
Nokkrir leikir fóru fram í
cnsku knattspyrnunni í
Kærkveldi og urðu úrslit
sem hér segir:
1. deild:
Arsenal — Birmingham 1—0
Coventry — Liverpool 1—2
Everton — NottsCounty 3—1
Ipswich — WBA 1—0
Middlesb. — Man. Utd. 0—2
Swansea — Tottenham 2—1
West Ilam — Southampton 4—2
Wolves — Brighton 0—1
2. deild:
Barnsley — Sheff. Wed. 1—0
C. Palace — Orient 1—0
Grimsby — Norwich 1—2
Luton — Cardiff 2—3
Oldham — QPR 2—0
Rotherham — Leicester 1 — 1
Wrexham — Watford 0—1
3.deild:
Bristol City — Plymouth 3-2
Burnley — Doncaster 0-1
Chesterf. — Carlisle 1-0
Preston — Iluddersf. 1-1
Wimbledon — Fulham 1-3
1. deild:
Colchester — Aldershot 1-1
Darlington — Bradford 1-5
Halifax — Tranmerc 0-2
IIull — Peterborough 1-1
Rochdale — Blaekpool 0-0
Scunthorpe — Ilartlepool 2-1
York — Bournemouth 0-1
Enska
knatt-
spyrnan
Knattspyrnupunktar
Eigi alls fyrir iöngu ákváðu
forráðamenn spænska knatt-
spyrnustórveldisins Barcelona,
að taka dómarann Emilo Guruc-
eta í sátt, en vegna atviks er
dómarinn færði Real Madrid
vítaspyrnu gegn Barcelona í
mikilvægum bikarleik fyrir mis-
tök, hefur Guruceto verið útilok-
aður frá Nou Camp, leikvangi
Barceiona. Atvikið átti sér stað
árið 1968 og má því segja þá
Barcelonamenn í langræknara
lagi...
- O -
Austurríkismenn telja sig búa
yfir heimsmeti, þ.e.a.s. sá leik-
maður sem talið er að hafi oftast
verið rekinn af leikvelli í 1.
deildar- og landsliðsknattspyrnu
er Austurríkismaður. Kappinn
heitir Gustaf Starek og er 34 ára
gamall um þessar mundir. Hann
leikur með Wiener Sportklub og
hefur tíu sinnum verið rekinn út
af...
- O -
Spænska knattspyrnufélagið
Barcelona keypti árið 1979 arg-
entínska leikmanninn Rubio frá
Sevilla. Kostaði drengurinn stór-
fé. Fljótlega kom hins vegar í
ljós, að félagið hafði ekkert við
Rubio að gera, hann var latur og
afhuga knattspyrnu. Þjálfari
Barcelona setti Rubio fyrst út úr
liðinu, en ekki batnaði hugarfar-
ið við það. Nokkru síðar bauð 1.
deildar liðið Hercules Alicante
myndarlega í piltinn og voru
forráðamenn Barcelona yfir sig
ánægðir að losna við hann. En
Rubio hafði engann áhuga á því
að ganga til liðs við HA, raunar
hafði Rubio engan áhuga á því
að yfirgefa Barcelona. Haft var
eftir honum: „Ég hef í höndun-
um samning við Barcelona sem
færir mér 36.000 pund á ári, hví
skyldi ég vilja fara annað?"
Rubio er síðan ekki einu sinni
skráður sem leikmaður hjá
Barcelona, en engu að síður eru
árstekjur hans æði myndarlegar.
Og svo liggur hann heima í sófa
og telur peninga ...
• - O -
Knattspyrnumenn verða fyrir
ýmsum óþægindum er þeir
ganga til liðs við félög á erlendri
grund. Þurfa menn gjarnan að
venjast nýrri menningu, læra
nýtt tungumál og þannig mætti
lengi telja. Sumir eru fljótir að
aðiaga sig breyttum aðstæðum,
aðrir lengur og sumir bugast og
snúa heim á ný eins og gengur og
gerist. En vandamál þessi geta
verið margs konar eins og dæm-
in sanna. Eitt þeirra rak Austur-
ríkismaðurinn Herbert Pro-
haska sig á, er hann yfirgaf félag
sitt í Austurríki og gekk til liðs
við Inter Mílanó á Italíu. Vanda-
mál Prohaska er, að hann getur
ómögulega étið ítalskan mat, og
segir: „Eg hef ekki verið saddur
síðan ég yfisgaf Vínarborg." Að
öðru leyti kann kappinn afar vel
við sig meðal ítala ...
- O -
Knattspyrnufélög um víða
veröld gera ýmislegt til þess að
skapa hlýlegt og vinalegt and-
rúmsloft í herbúðum sínum.
Leikmenn Bayern Múnchen fara
saman með eiginkonunum í
veiðitúra, Valsmenn fara til
Þingvalla og snæða í Valhöll, og
argentínska félagið Argentínos
Juniors stendur fyrir útigrilli á
hverjum laugardegi. Einn laug-
ardaginn fór þó allt í vaskinn.
Stjórnarmaður AJ var á leið að
grasflöt félagsins með 66 pund
af hráu argentínsku nautakjöti
er leigubifreið sú er hann var
farþegi í, hikstaði og drap á sér.
Hlýddi fákurinn engum fortöl-
um og vippaði kjötburðarmaður-
inn sér út úr bílnum, stikaði að
næsta götuhorni og nældi sér í
annan leigubíl. En í millitíðinni
hafði fyrri leigubíllinn fundið
aftur heilsu sína og var á bak og
burt með allt kjötið í skottinu ...
- O -
Dómari nokkur beið bana eigi
alls fyrir löngu i norðurhéruðum
Argentínu. Leikur tveggja liða í
Tucuman-héraði átti að heita
vináttuleikur, en er leikmenn
annars liðsins reiddust svo heift-
arlega vegna dómgæslunnar,
slengdu þeir dómaranum til
jarðar og spörkuðu síðan í
skrokk hans uns hann var allur.
Voru allir 11 ieikmenn liðsins
handteknir þegar í stað og sak-
aðir um manndráp...
i