Morgunblaðið - 07.10.1981, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.10.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1981 3 Framkvæmdaráð Reykjavikurborgar: Gerð verði áætlun um framkvæmdir borg- arinnar í Breiðholti segir í tillögu Markúsar Arnar Antonssonar Á FUNDI framkvæmdaráðs Reykjavíkurborgar sem haldinn verður í dag, miðvikudag, verður að líkindum afgreidd tillaga frá Markúsi Erni Antonssyni borg- arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um heildaráætlun framkvæmda á vegum borgarinnar i Breiðholts- hverfi. í tillögunni segir, að þar sem uppbygging Breiðholtshverfa sé komin á lokastig, beini fram- kvæmdaráð því til borgarráðs, að „Hvað er að gerast um helgina?“ ÞEIR, sem óska eftir að fá birtar fréttir í þættinum „Hvað er að gerast um helgina?", eru vinsam- legast beðnir um að koma þeim til ritstjórnar Morgunblaðsins eigi síðar en á miðvikudagskvöld í hverri viku. Þáttur þessi mun framvegis birtast í Morgunblað- inu á föstudögum. gerð verði heildaráætlun um framkvæmd þeirra verkefna í hverfinu sem borgin eigi að ann- ast. Einnig verði gerð áætlun um byggingu stofnana sem þjóna eigi íbúunum, áætlun um umferðar- og samgöngumál, um gerð gangstétta og stíga, um ræktun og frágang útivistar- og leiksvæða og fleira. Segir í tillögu Markúsar að með slíkri áætlanagerð skuli stefnt að því að fastmóta áform borgaryf- irvalda um lokaátak í mannvirkja- gerð, umhverfismálum og þjón- ustu í þessum borgarhluta og skapa grundvöll fyrir ákvarðanir um fjárveitingar og hröðun fram- kvæmda, að undangenginni al- mennri kynningu áætlunarinnar. í samtali við Morgunblaðið sagði Markús Örn Antonsson, að ástæðan fyrir tillögu þessari væri sú að heildaráætlun fyrir Breið- holtið vantaði, hvernig fara ætti með ýmis svæði í hverfinu og hvernig þeim yrði ráðstafað. Markús sagði að nú væri full ástæða til þess að gera slíka heild- aráætlun, þar sem innan tíðar yrði séð fyrir endann á uppbygg- ingu Breiðholtshverfis. Fasteignamatið á Fjalakettinum lækkar úr röskum 3 milljónum í 2,3 milljónir. Fasteignamat lækk- ar á Fjalakettinum og fleiri byggingum NÚ ER nýlokið endurmati á fast- eignum í Grjótaþorpinu í Reykja- vík og niðurstöður matsins eru þær. að mörg eldri húsanna. eins og t.d. Fjalakötturinn. lækka mik- ið í fasteignamati, en hús eins og Aðalstræti G hækkar því sem næst um helming i mati. Sævar Geirsson tæknifræðingur hjá Fasteignamati ríkisins sagði í samtali við Morgunblaðið að húsið Aðalstræti 8, Fjalakötturinn, hefði verið metið þann 1. desember 1980 á 304.222 millj. kr. eða röskar 3 millj. nkr. Hið nýja fasteignamat væri hins vegar 2,3 millj. kr. Hús- eignirnar Aðalstræti 14—16 lækka í mati úr 3,1 millj. kr. í 1,3 millj. kr. Hins vegar hækkar fasteigna- mat hússins Aðalstræti 6 úr rösk- lega 3,8 millj. kr. í 7,6 millj. kr. Guðsteinn aft- ur til veiða - Gerður út frá Grindavík NÚ MUN vera nokkuð ljóst, að skuttogarinn Guðsteinn, sem lcfíið hefur bundinn á fjórða mánuð vegna rekstr- arerfiðleika fari til veiða á næstunni og þá frá Grinda- vik, en fram til þessa hefur toffarinn verið gerður út frá Ilafnarfirði. Eiríkur Alexandersson, bæjar- stjóri í Grindavík, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að nú væri unnið að því, að togarinn kæmist algjörlega í eigu Grindvík- inga, en nú ættu Grindvíkingar 71% eignarhlutar og Barðinn hf. í Kópavogi 29%. Kvað Eiríkur að stefnt væri að því að togarinn færi í slipp þann 12. október nk. og yrði skipið þá málað og gerðar þær lag- færingar sem þyrfti, en þær væru ekki miklar. Þá yrði útgerðaraðili skipsins eftir sem áður Samherji hf., þótt allur eignarhluti flyttist til Grindavíkur. Að vísu kvað Eiríkur að ekki væri með öllu öruggt að hægt yrði að gera togarann út frá Grindavík fyrst í stað, sökum þess hve höfnin þar væri grunn, og yrði þá aflan- um landað í Njarðvíkum, þar til höfnin í Grindavík hefði verið dýpkuð nægilega, en dýpkun stæði þar nú fyrir dyrum. Þorvaldur í Síld og físk um Lifshlaupið: „Þeir sem hafa pen- ingana þora ekki“ EINN þeirra aðila sem hafa haft mikinn áhuga á að tryggja það að Lífshlaup Kjarvals verði i framtíðinni staðsett á íslandi er borvald- ur Guðmundsson og i samtali við Mbl. i gær sagði hann það Ijóst að öllum þætti leitt ef Kjarvalsstaðir eignuðust ekki Lifshlaup Kjarvals, hér væri um einstakt listaverk meistarans að ræða og þótt verðgildi væri ávallt matsat- riði þá mætti til fróðleiks geta þess að fyrir skömmu hefði 40 sinnum 80 sm mynd eftir Kjarval verið seld á 100 þús. kr. „Ég var mjög hissa á því á sínum tíma þegar Listasafn íslands átti húsið með vinnu- stofu Kjarvals og því ásamt ríki og bæ var boðið að kaupa Lífshlaupið af ættingjum Kjarvals á um það bil 20 millj. kr. að mati sérfræðinga, en þessir aðilar þorðu ekki að taka áhættuna. Þá kom Guð- mundur Axelsson til og tók vissulega mikla áhættu og maður skilur ekki að það skuli ekki vera hægt að komast að samkomulagi um kaup á lista- verkinu, en virðist vera erfitt þar sem margir ráða ferðinni hjá borginni og það er sorg- legt ef menn sem segjast unna list geta ekki unnt þeim manni, sem tók áhættuna í þessu máli, að njóta afrakst- urs af því verki sem allir sjá nú að var mjög merkilegt framtak. Þeir sem þora í þess- um efnum hafa ekki pen- ingana, en þeir sem hafa pen- ingana þora ekki.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.