Morgunblaðið - 07.10.1981, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1981
5
Spurt & svarað
Geir Hallgrímsson
svarar spurningum lesenda
um stjórnmálaviðhorfið
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun á næstunni
svara spurningum lesenda Morgunblaðsins um stjórnmálaviðhorfið.
Þeir sem óska að bera fram spurningar við Geir Hallgrímsson eru
beðnir um að hringja í síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstu-
dags og verða þá spurningar teknar niður. Einnig er hægt að senda
þær skriflega til ritstjórnar Morgunblaðsins. Óskað er eftir að spurn-
ingar séu bornar fram undir fullu nafni.
Finnbjörn Iljartarson 2317-9628:
Nú hefur þú lýst því yfir, að þú
gefir kost á þér til endurkjörs á
næsta landsfundi. Slagorðunum
„báðir burt“ hefur verið haldið á
loft og margir þykjast sjá í þeim
lausn, sem þeir telja bæði einfalda
og hagkvæma. Hvað segir þú um
það?
Svar:
Ég kannast við slagorðið „báðir
burt“ í þeirri merkingu, að með því
sé átt við að bæði formaður og
varaformaður Sjálfstæðisflokksins
eigi að láta af störfum á næsta
landsfundi.
Varaformaður hefur hvað eftir
UKMfNtK.
annað lýst því yfir, að hann verði
ekki í framþoði. Ég hef hins vegar
kynnt þá ákvörðun mína að vera
áfram í kjöri sem formaður flokks-
ins. Ágreiningurinn í Sjálfstæðis-
flokknum nú er um afstöðu flokks-
ins til ríkisstjórnar. Sá ágreiningur
verður ekki leystur með manna-
skiptum, hann er málefnalegur.
Lausnar á vanda Sjálfstæðisflokks-
ins er því ekki að leita í innantóm-
um vígorðum heldur í málefnalegu
starfi sem tryggi, að allir sjálf-
stæðismenn hafi sömu afstöðu til
ríkisstjórnar.
Ég geri mér vonir um, að komandi
landsfundur verði Sjálfstæðis-
flokknum til styrktar og samheldni
eflist meðal sjálfstæðismanna eftir
landsfundinn.
Ég tel ekki, að sjálfstæðismenn
greini á um meginstefnumið, en
ljóst er, að menn greinir á um af-
stöðuna til ríkisstjórnarinnar,
myndunar hennar, starfa og
stefnu. Þingflokkur, miðstjórn og
flokksráð hafa með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða lýst yfir
stjórnarandstöðu og landsfundur
hlýtur að álykta um afstöðu flokks-
ins til ríkisstjórnarinnar. Ég á ekki
von á að sú afstaða verði önnur en
þeirra ákvörðunaraðila flokksins,
sem áður hafa fjallað um málið.
Ingvar Þórarinsson,
Ilúsavík:
Hversvegna gefur þú kost á þér til
formannskjörs á landsfundi í
haust?
Svar:
Ég var kjörinn formaður Sjálf-
stæðisflokksins á síðasta lands-
fundi fyrir rúmum 2 árum með yfir
70% atkvæða, þótt um gagnfram-
boð væri að ræða. Þá gengu yfirlýs-
ingar um nauðsyn þess, að sjálf-
stæðismenn stæðu saman og gefin
fyrirheit, að svo mundi verða.
Því miður gengu síðan nokkrir
þingmenn til liðs við andstæðinga
okkar við síðustu stjórnarmyndun
gegn vilja meirihluta þingflokks,
miðstjórnar og flokksráðs.
Ég tel mig vera að bregðast trausti
sjálfstæðismanna á síðasta lands-
fundi, ef ég hopaði af hólmi á erfið-
leikatímum, gæfist upp og gæfi
ekki kost á mér til endurkjörs. Það
er svo landsfundarfulltrúa auðvit-
að að ákveða hvort ég verð endur-
kjörinn.
Unnur S. Ágústsdóttir,
Sóleyjargötu 23:
Við, sem erum í fyrirsvari fyrir
samtökum kvenna hér á landi, höf-
um það m.a. að markmiði að stuðla
að aukinni þátttöku kvenna í
opinberu lífi og ábyrgðarstöðum.
Okkur þykir stjórnmálaflokkarnir
á margan hátt eftirbátar að þessu
leyti.
Hefir forysta Sjálfstæðisflokksins
ekki hugleitt að ríða á vaðið nú,
þegar landsfundur flokksins er á
næsta leiti og gera tillögu um konu
í starf varaformanns og gefa þann-
ig öðrum flokkum fordæmi sem
erfitt væri að horfa framhjá?
Svar:
Ég er sammála fyrirspyrjanda um
það, að hlutur kvenna á vettvangi
stjórnmálanna mætti gjarnan vera
meiri en nú er. Á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins fara fram
óbundnar kosningar til embætta
formanns og varaformanns. Mið-
stjórn flokksins eða aðrar æðstu
stofnanir hans hafa ekki neitt
formlegt frumkvæði að kjöri eins
né neins í þessar stöður. Reynsla
Sjálfstæðisflokksins af störfum
kvenna í flokknum er hins vegar
slík, að ef varaformaður veldist úr
hópi þeirra mætu kvenna, sem
standa í fremstu röð meðal sjálf-
stæðiskvenna í dag, þá mætti
flokkurinn vel við una og væri full-
sæmdur af.
Auðvitað ber ekki að kjósa menn til
trúnaðarstarfa af því að viðkom-
andi er karl eða kona, yngri eða
eldri, hæfileikar einstaklingsins til
að gegna stöðunni hljóta að ráða
úrslitum.
Mynda-
brengl
í MORGUNBLAÐINU í gær
birtist grein eftir Hermann
Sveinbjörnsson um málefni
ísal. Röng mynd birtist með
greininni.
Hér með fylgir mynd af höf-
undi greinarinnar, sem er beð-
inn velvirðingar á þessum
mistökum.
Höfrungur III
Góðar sölur ytra
FJÖGUR islenzk fiskiskip seldu
ytra í gær og I fyrradag, og fengu
þau öll ágætt verð fyrir aflann.
Freyja RE seldi í Grimsby í fyrra-
dag fyrir 416,6 þús. kr. Meðalverð á
kíló var kr. 8,86. Þá seldi Bylgja VE
sama dag í IIull, alls 74,4 tonn fyrir
600,7 þús. kr. og var meðalverð á
kíló kr. 8,07.
Höfrungur III frá Þorlákshöfn
seldi 100,6 tonn í Bremerhaven á
mánudag fyrir 737,5 þús. kr. og var
meðalverð á kíló kr. 7,35, en uppi-
staðan í afla Höfrungs III var ufsi.
Sigþór frá Húsavík seldi síðan 50
tonn í Grimsby í gær fyrir 482,8 þús.
kr. og var meðalverð á kíló kr. 9,65.
Leiðrétting
PRENTVILLA var í grein
Geirs Borg í Morgunblaðinu í
gær um Lífshlaup Kjarvals.
Þar stóð: „ ... og aðra óar við
þeirri staðreynd, að hver króna,
sem oftast er ekki eign nema að
einum þriðjungi". Rétt er setn-
ingin svona: „ ... og aðra óar
við þeirri staðreynd, að hver
króna, sem aflast er ekki eign
nema að einum þriðjungi".
Þetta leiðréttist hér með.
JNNLENT
Prúttmarkaóur
aö Laugavegi 66, 2. hæö.
Opiö í dag kl. 1—6.
Lítið sýnishorn af úrvali okkar:
Ullarkápur.
Stakir dömujakkar.
Ullarfrakkar, (lítil númer).
Herrabuxur, lítil númer.
Buxur: ull, flannel, slétt-
flauel, kakhi, rifflaö
flauel (5 sniö).
Hnébuxur.
Alullarpeysur.
Skyrtur.
Blússur.
Bolir.
Sportblússur.
Jakkaföt, (lítil númer).
Pils.
Sumarkjólar.
Otrúlegt úrval af alls konar efnum metrinn frá 10 kr.
Ekkert dýrara en 50 kr. metrinn.
HLJ0MPL0TUMARKAÐUR
Viö þurfum ekki aö prútta um plötuveröiö, því þaö er svo
þrælskega lágt. Þú getur fengiö nýjar og gamlar plötur, á
klassaprísum og þaö er bezt aö hafa hraöann á, til aö
missa ekki af neinu.
Utangarðs-
menn
— Geislavirkir
-^eop0'
_ O’
kóM