Morgunblaðið - 07.10.1981, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1981
13
Jóhanna
ardóttir -
Fædd 3. dcsember 1906.
Dáin 23. ágúst 1981.
2. september sl. bar svo við eftir
marga rigningardaga, að um há-
degi lygndi og sólin skein skært
yfir Reykjavíkurborg. Einkennileg
tilviljun og þó, kl. 1.30 var kvödd
frú Jóhanna Sigurðardóttir í
Dómkirkjunni.
Hanna var Reykjavíkurbarn,
hún flutti aldrei úr borginni eins
og margar af vinkonum hennar
þurftu að gera vegna starfs maka
þeirra.
Þær voru 8 talsins, sem bundist
órjúfandi tryggðarböndum í MR
árið 1921. Hanna var einstök
manneskja, hún var sú, sem ætíð
var fyrst til að taka hvað mestan
þátt í gleði og sorgum vinkvenna
sinna, börnum þeirra og barna-
börnum, og ekki hvað síst undir-
ritaðri, sem unni henni mjög allt
frá barnæsku. Alltaf var hlýja,
mjúka höndin til að þerra burt
tár, þegar tregi var og alltaf gam-
an að segja henni gleðitíðindi, þá
gladdist hún jafnan líka.
Sigurð-
Minning
Hanna var óvenju glæsileg
kona, mjög fríð sýnum og vakti
athygli hvar sem hún fór. Gaman
var að koma á Freyjugötuna þar
sem hún bjó lengst af og aldrei
þreyttist hún á að segja okkur
sögurnar um „gamla daga“, um
„sprellið" í MR, um göngutúrana
kringum Tjörnina að loknum
dansæfingunum í skólanum, um
„rúntinn" og um svo ótal, ótal
margt fleira.
Sveinn Pétursson, augnlæknir,
varð þeirrar gæfu aðnjótandi að
kvænast Hönnu, enda höfðu þau
verið heitbundin allt frá skólaár-
unum. Eignuðust þau 2 dætur,
Snjólaugu, tannlækni, og Guðríði,
hjúkrunarfræðing. Velferð dætr-
anna og fjölskyldna þeirra var
hennar mesta hamingja, og oft
sagði hún við undirritaða að börn-
in væru okkar dýrmætustu perlur.
Enda þótt íeiðir Hönnu og
Sveins hafi skilið, hélst ósvikið
ástríki með þeim alla tíð, svo að
segja má máske, að hún hafi geng-
ið sólarmegin götunnar, enda
Þessi mynd átti að íylgja minningar-
orðum um Jóhönnu Sigurðardóttur,
sem birtist i blaðinu i gsr. Þar fylgdi
mynd af nöfnu hennar sem einnig er
látin. — Er beðist afsökunar á mistök-
unum. ok minninKargreinin hirt hér á
ný.
skein sólin og tjörnin var svo und-
urmild og blíð eins og sú, sem átti
leið þar um síðasta spölinn. Nú er
hún áreiðanlega búin að hitta vini
og ættingja sem hafa tekið henni
opnum örmum, jafnvel að þau
syngi nú öll saman „Vort æskulíf
er leikur sem líður, tra-la-la“, sem
hún svo oft söng sjálf í góðra vina
hópi.
Dætrum hennar og öðru vensla-
fólki sendum við mæðgurnar
okkar dýpstu samúðarkveðjur og
biðjum henni blessunar Guðs, með
þökk fyrir allt og allt.
Sigríður Jónsdóttir
íslenskir
listamenn sýna
í Danmörku
FÖSTUDAGINN 2. október sl. var
opnuð sýning á verkum íslenskra
listamanna á Bangsbomuseet í
Frederikshavn. Sýningin verður
opin til 8. nóvember nk. og er safn-
ið opið frá 10 til 17 daglega. Að
þessu sinni taka 23 íslenskir lista-
menn þátt í sýningunni og eru 212
verk unniní gull, silfur, keramik,
gler o.fl. Meðal þeirra sem eiga
verk á sýningunni eru Jens Guð-
jónsson, Kolbrún Björgólfsdóttir,
Steinunn Marteinsdóttir, Edda
Óskarsdóttir, Sigrún Guðjónsdótt-
ir, Eva Vilhelmsdóttir auk fjölda
annarra þekktra listamanna.
22480
Jllorjjunblntiib
Þótt 1981 árgerðin af LANCER hafi verió fullkomin hafa verið gerðar talsverðar
breytingar á árgerð 1982, sem eru m.a. þessar:
5 gíra kassi (minni bensíneyðsla) — Diskabremsur á öllum hjólum —
Kraftmeiri vél — Nýtt og endurbætt mælaborð —
íburðarmeiri innrétting og m.fl.
Það er umhyggja höfö fyrir farþegunum
í LANCER, dúnmjúkt fjöðrunarkerfi
og farþegarýmiö er sérstaklega styrkt
í samræmi við alþjóðlegan öryggis-
staðal.
Sem sagt „MITSUBISHI“ öryggi.
HEKIAHF
Laugavegi 170 -172 Sírni 21240
Y
Veistu hvaóa litsionvarpstæki
býöst meö ÍOOÖ krróia
staögueiösluafslætti ?