Morgunblaðið - 07.10.1981, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1981
jl jcjjtitíiv jcjxioíju
Gram
Teppi
berið saman
verðoggæði
Wpmm.
Fjölbreytt úrval ull og gerviefni, breidd 4.00 m
100% Teflon varinn þráður, öll Gram-teppi eru ■■
hver þráður heldur frá sér af-rafmögnuð
óhreinindum 1--
TEPPAVERSLUN
FRIDRIKS BERTELSEN
Ármúla 7 Símar 86266 og 86260
Ásgeir Þórarinsson
Selfossi - Minning
Ásgeir Þórarinsson, bifreiðar-
stjóri, Stekkholti 7, Selfossi varð
bráðkvaddur við vinnu sína mánu-
daginn 28. september sl. nýlega 57
ára gamall, en hann var fæddur 4.
september 1924 á Stokkseyri. Ás-
geir hafði ekki gengið heill til
skógar síðustu 7 til 8 árin, en ekki
lét hann sjúkleika sinn hindra sig
frá störfum, en starfsþrá og
starfsgleði var ríkur þáttur í lífs-
formi hans. Mikið harmsefni er
andlát svo góðs og dugandi manns,
og sem enn var á besta aldri.
Enginn vandalaus maður var
mér kærari en Ásgeir, enda vorum
við einskonar fóstbræður þótt
aldursmunur okkar væri mikill
þar sem ég var 17 árum eldri, en
Ásgeir kom hingað að Brúnastöð-
um á fjórða ári ævi sinnar og var
hér fram að tvítugu. Foreldrar
hans voru hjónin Þórarinn
Guðmundsson í Sandprýði á
Stokkseyri og Jóna Torfadóttir.
Þórarinn andaðist hinn 10. sept-
ember sl. svo aðeins urðu 18 dagar
milli þess sem þeir feðgar voru
burtkallaðir. Þórarinn í Sandprýði
var sonur Guðmundar bónda
Sveinssonar í Traðarholti hinni
fornu landnámsjörð Atla Há-
steinssonar, en móðir hans var
Sigríður Guðmundsdóttir. Ólst
Þórarinn upp í Traðarholti og var
hinn mesti atgerfismaður bæði á
sjó og landi. Stundaði hann marg-
þætt störf og fórst allt vel úr
hendi, meðal annars var hann
bæði hafnsögumaður og heppnis-
formaður um langa tíð á Stokks-
eyri.
Þórarinn Guðmundsson var tví-
giftur. Fyrri kona hans og móðir
Ásgeirs var eins og áður segir
Jóna Torfadóttir formanns í
Söndu á Stokkseyri, en Torfi fórst
við níunda mann í fiskiróðri þar
20. mars 1897. Var hann sonur
Nikulásar bónda í Stokkseyrar-
seli, Bjarnasonar þar, Guðmunds-
sonar bónda á Litla-Hrauni,
Magnússonar.
Þegar afi Ásgeirs, Torfi í Söndu,
drukknaði þá lét hann eftir sig
konu og 5 börn í ómegð. Vegna
kunningsskapar við hjónin Ketil
Arnoddsson og Guðlaugu Sæfús-
dóttur, sem þá bjuggu að Króki í
Hraurtgerðishreppi og síðar á
Brúnastöðum í sömu sveit, þá bað
Ingibjörg ekkja Torfa þau hjónin
+
Þökkum innilega auösýnda samúó og vináttu viö fráfall eigin-
manns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
JÓNS GUÐMUNDSSONAR
frá Geröum.
Sigríður Björnsdóttir,
Þórunn Jónsdóttir, Lúövík Kaaber,
Björn Jónsson, Guörún Valgeirsdóttir,
Ingibjörg Jónsdóttir, Eyjólfur Bjarnason.
og barnabörn.
Rodkál
Rodkal
ogrumn
^KAUPFEIAGIÐ
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
hjónanna,
JÓHÖNNU BJARNADÓTTUR
frá Stapadal og
VALDEMARS P. EINARSSONAR,
loftskeytamanns,
Mjóuhlíó 12.
Ásta Valdemarsdóttir, Magnús Gissuararson,
Jóhanna V. Magnúsdóttir, Hallur S. Jónsson,
Ásta Halldórsdóttir, Sigurveig Hallsdóttir.
vantar
þi3 3Óóan bíl ?
notaóur- en í algjörum sérflokki
Nú eígum viö einn í toppklassa 120L, árgerö 1978,
ekinn aðeins 33.000 km. Litur: Gulbrúnn, var konu-
IbílL_____________________
JÖFUR HF O -