Morgunblaðið - 07.10.1981, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1981
23
börn, sem verða þjóðfélaginu nýtir
þegnar. Fimm mannvænleg börn
eignuðust þau Þóra og Friðrik,
sem öll hafa stofnað eigin heimili.
Þau eru: Sigríður, býr í Californiu,
gift Richard Allen, deildarstjóra í
Bank of America, Halldór, flug-
stjóri, giftur Villu Gunnarsdóttur.
Erla, gift Óskari Guðmundssyni,
verslunarmanni í Reykjavík, Guð-
ríður, gift Pétri Rafnssyni,
framkv.stj. í Reykjavík og Árni,
arkitekt, giftur Liv Kristoffersen,
býr í Reykjavík. Þessi hópur hefur
sett mark sitt á heimilið að Nes-
vegi 64 ásamt 14 barnabörnum.
Mér hefur ávallt virst að hið innra
svipmót móðurinnar leyni sér ekki
í öllum lífsþáttum þessara afkom-
enda þeirra Þóru og Friðriks.
Þungbærar hugsanir fylgja
ávallt því, að kveðja bestu vini á
dánarstund. Að sefa þann trega
þeirra ættingja og ástvina Þór-
unnar Halldórsdóttur vildi ég að
væri á mínu valdi. Til þess gagna
ekki orð mín þótt ósk mín um það
fylgi hér. Þó tel ég það huggun
harmi gegn, er ástvinur hefur
heimaskipti — úr jarðheimi yfir
til ljósheims — staðföst vissa um
líf á nýju sviði og endurfundir við
þá og það er kærast hefur verið í
jarðheimi. Ekki er það mín full-
yrðing, heldur staðfesting þess er
mest hefur í sölurnar lagt fyrir
ósáttan mannheim, Jesú Krist.
Þessi fátæklegu orð eru þakkir
okkar er Þóru kynntust sem hinni
bestu fyrirmynd í daglegu lífi.
Megi endurminningin um hana
verða ástvinum huggun og traust í
framhaldi lifsins — eilífu lífi.
Ilafsteinn Guðmundsson
I dag er kvödd hinstu kveðju
Þórunn Halldórsdóttir, Nesvegi
64, Reykjavík. Hún lést í Land-
spítalanum 28. september sl.
Þóra, eins og hún var ávallt
kölluð, var fædd á Norðfirði 11.
september 1909. Foreldrar hennar
voru hjónin Guðríður Hjálmars-
dóttir og Halldór Ásmundsson.
Þóra ólst upp í góðum foreldra-
húsum, elst í glaðværum systkina-
hópi. Þau systkin voru níu að tölu,
mikið farið að hraka hin síðari ár.
Þorbjörn Guðmundsson hefur
kvatt langt fyrir aldur fram. Við
eigum erfitt með að sætta okkur
við brottför hans. En hann lætur
eftir sig auð sem er dýrmætari öll-
um veraldlegum fjársjóðum:
vinarþelið hlýja og umhyggjuna
sem munu búa í hugum ástvina
hans og kunningja til æviloka
þeirra.
Við hjónin og börn okkar vott-
um þér, Inga mín, og öðrum ást-
vinum Þorbjörns samúð okkar og
biðjum Guð að blessa ykkur minn-
inguna um góðan og sannan
dreng. Hörður Pálsson
I dag, 7. október, verður vinur
okkar Þorbjörn Guðmundsson
jarðsettur frá Akraneskirkju.
Hann varð bráðkvaddur að
kvöldi 30. september. Það voru
okkur mikil harmatíðindi. Maður-
inn með ljáinn gerir ekki boð á
undan sér.
Þorbjörn var fæddur og uppal-
inn á Hellissandi. Foreldrar hans
voru hjónin Kristín Hjartardóttir,
sem lifir son sinn og Guðmundur
Sæmundsson sem lést árið 1948
með sama hætti og Þorbjörn nú.
Þorbjörn var næstelstur fimm
systkina, Sigríður elst og þau
yngri eru Jóhanna, Sæmundur og
Guðrún. Þorbjörn var aðeins 23
ára, þegar hann tók að sér forsjá
móður sinnar og yngri systkin-
anna þriggja.
Snemma fór hann að stunda
sjóinn eins og títt er um unga
menn í sjávarplássum okkar
lands. Sjórinn heillaði og því kom
það engum á óvart að hann valdi
sjómennsku að ævistarfi.
Þegar hann stofnaði heimili
með heitkonu sinni Ingveldi Eð-
valdsdóttur, sem einnig er frá
Hellissandi, fluttu þau á Akranes,
settust þar að og bjuggu þar allan
sinn búskap.
Ingveldur bjó manni sínum eitt
yndislegasta heimili sem við höf-
um komið á. Þar var alúð og
tvö dóu ung, en sjö komust upp,
fimm systur og tveir bræður og
voru þau mjög samrýnd alla tíð.
Trega þau nú systur sína, sem
fyrst hverfur úr þeirra hópi. Þóra
fór fljótt að vinna fyrir sér er
bernskuárin voru að baki, enda
var hún samviskusöm og dugleg.
Ung fluttist hún suður á land og
hér fyrir sunnan kynntist hún sín-
um góða eiginmanni, Friðriki
Guðmundssyni, sem í fjöldamörg
ár var starfsmaður Mjólkursam-
sölunnar í Reykjavík. Á þessum
árum hefur eflaust verið erfitt
fyrir ung hjón að hefja búskap,
þar sem atvinnuleysi og húsnæð-
isskortur hrjáðu landsmenn.
Fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau
í leiguhúsnæði, en af miklum
dugnaði og samheldni byggðu þau
sér hús við Nesveg í Reykjavík.
Þar var ávallt þeirra heimili síð-
an. Þangað var gott að koma, og
þar sat gestrisni húsráðenda í
fyrirrúmi. Á ég bjartar minningar
frá þeim stundum er ég sem barn
kom á heimili móðursystur minn-
ar og naut alúðar hennar og hlýju.
Þóra var mikil húsmóðir og hafði
einstakt lag á því að gera allt fal-
legt og fínlegt í kringum sig og
móðurhlutverkið rækti hún svo
sem best má verða.
Þóra og Friðrik eignuðust fimm
börn, en þau eru: Sigríður, búsett í
San Francisco, Bandaríkjunum,
gift Richard Allen, Halldór,
hjartahlýja í fyrirrúmi. Þau voru
einkar samrýnd og sambúð þeirra
til fyrirmyndar. Þeim varð ekki
barna auðið.
Þorbjörn var sérstakt prúð-
menni og snyrtimennska var hon-
um í blóð borin. Þegar stund gafst
frá sjónum, vann hann við að lag-
færa húsið og prýða fagurt heimili
þeirra. Honum féll aldrei verk úr
hendi.
Sama var hvað hann fékkst við,
alla hluti vann hann jafnvel.
í návist Þorbjarnar leið manni
ávallt vel, hann var þeirrar gerð-
ar. Það var gott að sækja hann
heim, þar bjó ylur hjartans og
frábær gestrisni.
Engan höfum við fyrirhitt á
lífsleiðinni sem var jafn barngóð-
ur og Þorbjörn, enda hændust
börnin að honum. Það er rúmur
aldarfjórðungur síðan við kynnt-
umst og eigum við öll honum
margt að þakka, en ekkert eins og
það hvað hann var góður börnun-
um okkar og síðar barnabörnun-
um.
Um margra ára skeið áttum við
því láni að fagna að þau Þorbjörn
og Inga komu til Reykjavíkur og
juku á gleði jólahátíðarinnar með
því að dvelja hjá okkur.
Allar stórgjafirnar sem þau
færðu börnunum í fallegum pökk-
um voru fyrirferðarmiklar við
jólatréð og ógleymdar, en mest
þótti okkur umvert það sem þau
gáfu okkur af gleði sinni og sjálf-
um sér og aldrei firnist. Stærri
gjöf getur enginn gefið.
Við þökkum Þorbirni að leiðar-
lokum trygga og ógleymanlega
vináttu allt frá okkar fyrstu kynn-
um.
Móðir, hans Kristín Hjartar-
dóttir, liggur í dag rúmföst og
sjúk á Landspítalanum í Reykja-
vík. Við sendum henni og þér Inga
mín, svo og öllum öðrum aðstand-
endum innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Róbert Sigmundsson
og fjölskylda
kvæntur Villu Gunnarsdóttur,
Erla, gift Óskari Guðmundssyni,
Guðríður, gift Pétri Rafnssyni, og
Árni, kvæntur Liv Kristoffersen.
Barnabörnin eru fjórtán og nutu
þau öll sérstakrar umhyggju
ömmu sinnar. Elsta dóttirin, Sig-
ríður, kom í heimsókn til Islands
nokkru fyrir andlát móður sinnar
og gat átt góðar stundir með for-
eldrum sínum, þrátt fyrir veikindi
Þóru.
Að leiðarlokum kveð ég kæra
frænku mína. Ég og fjölskylda
mín þökkum henni hugþekka sam-
fylgd. Ég bið algóðan Guð að
styrkja eiginmann hennar, börn
og fjölskyldur þeirra. Megi minn-
ingin um mæta konu lýsa þeim um
ókomin ár.
Fíyðist datcur. friður. faKur.
fa^ur da^ur þo aftur ris.
KilífAardaKur ununarfaKur.
eilif skin sólin i l'aradís.
ó. hve feKri ok yndisleKri
unun mun sú. cr þar er vis.
Ragna Bjarnadóttir
í dag, miðvikudaginn 7. október
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju tengdamóðir mín, Þórunn
Halldórsdóttir.
Þórunn andaðistá Landspítal-
anum eftir að hafa átt við veikindi
að stríða. Þórunn fæddist í Vind-
heimi við Norðfjörð og voru for-
eldrar hennar Halldór Ásmunds-
son og Guðríður Hjálmarsdóttir.
Þórunn ólst upp í foreldrahúsum
ásámt systkinum sínum þeim
Guðnýju, Stefáni, Láru, Rúnu,
Gísla og Svanbjörgu.
Til Vestmannaeyja fluttist Þór-
unn 1932 og síðan ári síðar til
Reykjavíkur, þar sem hún kynnt-
ist eftirlifandi manni sínum, Frið-
rik Guðmundssyni. Þau hjón hófu
búskap sinn 1935 að Berg-
staðastræti 40 en fluttust á Hverf-
isgötu lOOb árið 1936. Þar fæddust
fjögur elstu börn þeirra, þau Sig-
ríður Friðriksdóttir, sem búsett er
í Kaliforníu, Halldór Friðriksson,
flugstjóri, Erla Friðriksdóttir og
Guðríður Friðriksdóttir. Yngsta
barn þeirra, Árni Friðriksson,
arkitekt, er fæddur á Nesvegi 64,
en þar byggði Friðrik fjölskyldu
sinni mjög snoturt hús, sem hefur
verið heimili þeirra frá 1947. Þór-
unn hefur sannarlega séð um fegr-
un heimilisins og að viðhalda
þeirri hlýju og einurð sem ein-
kennir yfirbragð þess. Mér hefur
ætíð fundist þau Friðrik og Þór-
unn sérstaklega samhent og sam-
valin hjón. Enginn er fullkominn
og þau bættu hvort annað vel upp,
og mynduðu í sameiningu sterka
og samhenta einingu. Allt far
þeirra bar ávallt vott um sterkar
tilfinningar og gagnkvæma virð-
inu.
Frá árinu 1976 hef ég vanið
komur mínar á heimili Þórunnar,
fyrst sem vinur dóttur hennar,
Guðríðar, og síðar sem tengdason-
ur. Alltaf hefur mér þótt gaman
að koma til Þórunnar á litla og
fallega heimilið að Nesvegi 64. Oft
að aflokinni vinnu fór ég vestur-
eftir, drakk kaffibolla með Þór-
unni og ræddi við hana um daginn
og veginn. Þessi hægláta kona
fylgdist vel með líðandi stundu
enda hafði hún ætíð mjög ákveðn-
ar skoðanir í samræðum okkar.
Við vorum alls ekki alltaf sam-
mála, en hún bar virðingu fyrir
mínum skoðunum og ég fyrir
hennar. Eitt var henrti mikið
hugðararefni sem við ræddum oft,
en það voru mál ungviðisins og
vandi táningaaldursins. Þórunn
hugsaði ekki að ástæðulausu um
slík mál. Hún velti mikið vöngum
yfir framtíð barnabarna sinna og
bar mikla umhyggju fyrir þeim,
enda hafa þau öll verið heima-
gangar á heimili þeirra hjóna og
mjög oft gætti hún þeirra um
lengri eða skemmri tíma.
Ég flyt Friðriki, tengdaföður
mínum, og fjölskyldunni allri
innilegustu samúðarkveðjur.
„Far þú i friAi,
íriAur (íuAs þi^ hlessi.
IlafAu þökk fyrir allt «k allt.
Gekkst þú mcA (iuAi.
(iuA þér nú fylgi.
Hans dýrAar hnoss þú hljóta skalt.“
Pétur
VOLVO ÞJONUSTA
Nú bjóða öll umboðsverkstæði VOLVO
umhverfis landið sérstaka
VETRARSKOÐUN
1. Vélarþvottur
2. Hreinsun og feiti á
geymissambönd
3. Mæling á rafgeymi
4. Mæling á rafhleðslu
5. Hreinsun á blöndung
6. Hreinsun á bensíndælu
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
Skipt um kerti
Skipt um platínur
Stilling á viftureim
Skipt um olíu og olíusíu
Mæling á frostlegi
Vélastilling
Ljósastilling
Verð með söluskatti:
4 cyl. Kr.l
6 cyl. Kr.|
871.05
897.70
Innifalið í verði: Platínur.
olíusía, ísvari,
kerti, vinna, vélarolía.
Fasteign á hjólum
Akranes: Bílvangur, Bílaverkstæði Gests Friðjónssonar.
Borgarnes: Bifreiða- og trésmiðja Borgarness.
Stykkishólmur: Nýja bílaver.
Tálknafjörður: Vélsmiðja Tálknafjarðar.
ísafjörður: Bifreiðaverkstæði ísafjarðar.
Bolungarvík: Vélsmiðja Bolungarvíkur hf.
Sauðárkrókur: K.S., Sauðárkróki.
Akureyri: Þórshamar hf.
Húsavík: Bifreiðaverkstæði Jóns Þorgrímssonar.
Þórshöfn: Bifreiðaverkstæði K.L.
Egilsstaðir: Fell sf., Hlöðum við Lagarfljótsbrú.
Hornafjörður: Vélsmiðja Hornafjarðar, Höfn.
Kirkjubæjarklaustur: Bifreiðaverkstæði
Gunnars Valdimarssonar.
Hvolsvölur: K.R. Hvolsvelli og Rauðalæk.
Selfoss: K.Á. Við Austurveg.
VOLVO)
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200