Morgunblaðið - 07.10.1981, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1981
25
Elvis. feitur
og slappur
Viktoría fann sér nýjan ...
+ Nýveriö sagöi hér í þættinum frá henni Viktoríu Principal, sem
leikur hina fallegu, gáfuöu, indælu og snjöllu eiginkonu Bobbýs í
Dallas-sjónvarpsþáttunum, og hvernig hún lék fyrrum mann sinn og
skildi hann eftir nær allslausan úti á götu, þegar hún geröist þreytt á
honum. Núna er konan aftur komin á síöur dagblaöa. Hún hefur
fundiö sér annan mann.
Andy Gibb heitir sá nýji og segja dönsk blöö aö hann sé yngstur
Gibb-bræðra, sem séu þekktir menn í poppheiminum og gangi
undir nafninu „Bee Gees“. Viktoría er oröin 31 árs, en Andy er ekki
nema 23 ára og fyrrum eiginmaður Viktoríu var 24 ára.
— Nei, þaö er ekki náttúrulögmál, segir hún, aö ég falli fyrir mér
yngri mönnum. En margir menn 24 og 25 ára eru meira þroskaöir
og sér meira meövitandi, held ég, en eldi meöbræöur þeirta. Og svo
eru þeir ekki jafn ráösettir og kallar á fertugs-, fimmtugs- og sex-
tugsaldrinum.
Nú hefur Viktoría Principal semsé fundið Andy Gibb til aö halla
sér aö, þegar J.R., Susie Ellen og allt þaö fólk er óþægt, og þau hjú
segjast vera svo yfir sig ástfangin aö þau geti bara ekki einsömul
veriö .. .
Agnetha
téll fyrir
Þorbirni
lögreglukappa
+ Agnetha Fáltskog er sænsk
og syngur í hinum vinsæla
ABBA-flokki. Nú hefur Agnetha
tekiö saman viö lögreglumann
nokkurn sem Þorbjörn heitir
Brander, maöur kominn undir
fertugt. Agnetha er ekki nema
31 árs og var einu sinni gift öör-
um ABBA-meðlimi, sem Björn
Ulveaus heitir, og er tveggja
barna móöir.
Lögreglumanninum Þorbirni
var falið fyrir hálfu ári eöa svo,
aö gæta heimilis poppstjörn-
unnar Agnethu, aö því tíö inn-
brot höföu átt sér staö í þessu
hverfi í Stokkhólmi sem mann-
eskjan haföi heimili. Nú þekkir
Þorbjörn oröiö hvern krók og
koma innan hússins sem utan,
því Agnetha leyfði manninum aö
flytja inn til sín. Þar á Þorbjörn
auövitaö miklu hægar meö aö
passa hana og getur léttilega
sameinað vinnu sína og einkalíf.
Nú er hann kominn í sumarfrí og
þau Agnetha ætla aö baöa sig í
sól á Mallorca fyrir veturinn.
— Viö erum æöislega ást-
fangin, segir Agnetha dreymin,
og af hverju skyldum viö fara í
felur meö þaö? Viö viljum sko
aö allur heimurinn fái aö vita
þaö aö viö erum ástfangin, bæt-
ir hún viö og hlær framan í
Þorbjörn lögreglukappa og
kyssir hann. En þaö hvarflar
ekki aö þeim aö giftast. Þau
hafa súra reynslu í þeim efnum.
Brooke
Shields
+ Brooke Shields er ung
stúlka á leiklistarbrautinni og
gerir þaö gott. Hún hefur nú
opnaö veskiö og borgað
heilsuræktarbúi, sem eru á
hverju strái í Amríku og græöa
vel, 15 þúsund íslenskar krón-
ur fyrirfram til að hjálpa sér að
grennast um heila fjóra senti-
metra um mittið. En Brooke
Shields situr nú sveitt viö að
skrifa ævisögu sína, enda ekki
seinna vænna. Hún er orðin
16 ára ..
fclk f
fréttum
Elvis
dapur um
það lauk
+ Þaö ganga margar sögur af
síöustu dögum rokkkóngsins Elv-
is Presleys og hér er ein. Banda-
ríkjamaöur aö nafni Albert Gold-
man hefur skrifað bók um Elvis,
og segir aö maöurinn hafi dáiö
viö auðmýkjandi og niöurlægjandi
aöstæöur! — Elvis var ruglaöur
af mikilli lyfjanotkun, segir hann,
og mátti sig ekki hræra. Þaö varö
aö bera hann fram á klósett, auk
heldur annaö. Hann liföi síöustu
daga sína í hálfmyrku herbergi,
sambandslaus viö umheiminn.
Hann flatmagaöi í stóru rúmi sínu
og glápti á kappleiki í hnefaleik-
um á risastórum sjónvarps-
skermi. Þaö var hræöileg stybba
þar inni.— Þetta segir Albert
Goldman, og seljum viö þaö ekki
dýrara en viö keyptum þaö . . .
Þrjar
í meyjar
merkinu
Hér eru 3 góðar
plötur í meyjar-
merkinu breska
Virgin, sem hafa ým-
islegt sér til ágætis
og mælum við með
þeim.
sIMPle
Minos
c"’aHonS' ySB,a0'iiu af son c*n“,u>Oa
ha,s að unri Sko,am/r í , "S,sters
s*WaiRr««danförnu n0LS pe M/nds
ri,,a
PIÖtUr fyrir verðe;anher
° e,nnar. strax , dggr 1 ,v*r
°ev° -
«*£!*** cóo/r^rm !rT9ri-
ur
bess/
anoar
9óöp(
mljomoeild
WftKARNABÆR
Laugavegi 66 — Glss>b» — Austurst'.T*ti s,
w Simi fré shiptiborði 85055
Heildsöludreifing
sUíaqtM