Morgunblaðið - 07.10.1981, Qupperneq 32
Síminná OQflQQ
afgreiðslunni er OOUOO
Jílor0itní>lní>ií) A
5 krónur
eintakið
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1981
Lifshlaup Kjarvals:
„Rvíkurborg
út úr myndinni46
- segir Guðmundur i Klausturhólum
„ÉG TEL, að Reykjavíkurborg sé út úr myndinni sem kaupandi að Lífs-
hiaupi Kjarvals, þvi fulltrúar borgarinnar í viðræðunum virðast ekki hafa
haft umboð til þess að gera neitt í alvöru í málinu og þeir jíerðu ekkl einu
sinni tilboð í listaverkið,” sagði Guðmundur Axelsson í Klausturhólum í
samtaii við Mbi. í gær. en þá var byrjað að pakka Lífshlaupinu niður i
kassa á Kjarvaisstöðum. Guðmundur kvað kaupanda vera að verkinu, en
vildi ekki tjá sig um það hvort þar væri um innlendan eða erlendan aðila að
ra ða. Kvað hann það koma i ljós á næstu dögum.
Aðspurður sagði Guðmundur, að
þaö væri ekki einkaaðili á Islandi
sem hefði gert tilboð í myndina og
ekki kvað hann Seðlabanka, Hús
verzlunarinnar eða aðra aðila sem
nefndir hefðu verið í fréttum hafa
rætt málin.
Þá svaraði Guðmundur því til, að
viðræðunefnd borgarinnar hefði lagt
fram tillögu í málinu, þar sem gert
hefði verið ráð fyrir að greiða hon-
um 400 þús. kr. auk kostnaðar við
viðgerð myndarinnar. „Þar af,“ sagði
Guðmundur, „myndu 266 þús. kr.
fara í skatta og eftir stæðu 144 þús.
kr., sem er ámóta verð og Kjarvals-
staðir greiddu í sumar fyrir litla
rauðkrítarmynd eftir Kjarval. Við-
ræður fulltrúa borgarinnar við mig
voru eins óljósar og frekast gat, til
þess eins að því er virðist að kanna
hvað væri hægt að komast langt með
mig.“
Sjá bls. 3.
Hvorum megin hurðarinnar verður Lífshlaup Kjarvals staðsett í framtíðinni, innan lands eða utan? t gær
var hyrjað að pakka listaverkinu niður á Kjarvalsstöðum, en Guðmundur Axelsson, sem segir að Reykja-
víkurborg hafi ekki áhuga á að kaupa verkið, segir að kaupandi sé til staðar og muni það sjfýrast á næstu
dögum. Ljósn^nd Mbl. Ól.K.M.
Ljósm. Mhl. Emilla.
Risagúrka
í Garðabæ
Á SÍÐASTA vori reistu hjón-
in Kristín Þorsteinsdóttir og
Þórður Jónsson Htið gróð-
urhús á loð sinni. Furulundi
2. Garðabæ, en áberandi
áhugi hefur verið þar í bæ í
sumar á viðbyggingum úr
gleri og gróðurhúsum.
Þau Kristín og Þórður
ræktuðu meðal rósa og blóma
agúrkur og tómata. Uppsker-
an var framar vonum að sögn
þeirra og er risagúrkan sem
sonur þeirra, Nonni, heldur á í
fangi sér á myndinni hér að
ofan, áreiðanlega ekki algeng
sjón í litlum gróðurhúsum
sem þessu. Agúrkan er um tvö
kíló að þyngd og hin myndar-
legasta, eins og sjá má.
„Taprekstur á frystihús-
unum ekki langt frá 10%“
„ÞAÐ ER ljóst að frysti-
húsin eru nú rekin með
tapi, sem er ekki langt frá
10% og verst virðist af-
koman vera hjá frystihús-
um sem ekki tilheyra hinu
hefðbundna vertíðarsvæði,
það er á Vestf jörðum,
Norðurlandi og Austfjörð-
um, en þessi hús þurfa
meðal annars að borga
miklar upphæðir í kassa-
upphót,“ sagði Sigurður
Stefánsson, endurskoð-
andi, en hann hefur að
undanförnu unnið að út-
tekt á stöðu fiskvinnslunn-
ar og útgerðarinnar í
landinu.
Morgunblaðið spurði Sigurð
hvort hann styddist við sömu
forsendur og Þjóðhagsstofnun,
en eins og kunnugt er sýna töl-
ur Þjóðhagsstofnunar mun
minna tap á frystihúsunum en
tölur Sigurðar. „Það sem
okkur ber einungis á milli eru
deilur um vexti og ennfremur
hefur Þjóðhagsstofnun fram-
reiknað tölur frá árunum 1978
og 1979, sem er tilgangslaust í
verðbólgu þeirri sem geisar á
íslandi," sagði Sigurður.
Sigurður sagði, að niður-
stöður hans um saltfisk- og
skreiðarverkun væru svipaðar
þeim og Þjóðhagsstofnun
hefði fengið út, nema hvað
hann tæki inn í dæmið þá
lækkun sem orðið hefði á
skreið að undanförnu. Þá
sagði hann, að ljóst væri að
togaraflotinn væri rekinn með
tapi og ætti vaxtakostnaður
þar stóran hlut að máli.
Norðanmenn um Blönduvirkjun:
„Bíðum enn ákvörð-
unar ríkisstjórnar“
„Spurningin er um samningsflöt norð-
ur frá“ - segir iðnaðarráðherra
„ÞAÐ STENDUR ekki á okkar
afstöðu. Ef þeir eru reiðubúnir að
ákveða Blönduvirkjun sem næstu
virkjun, þá crum við reiðubúnir
að skrifa undir samningsdröKÍn,
sem liggja tilhúin. Við bíðum enn
ákvörðunar ríkisstjórnar. Það er
meirihluti fyrir þessu hér og það
vita stjórnvöld,“ sagði Jón ís-
berg, sýslumaður, einn fulltrúi
norðanmanna í viðtali við Mbl.
um stöðu mála vegna Blöndu-
virkjunar. „Spurningin er um að
ná saman — að sjá hvort það cr
samningsflötur norður frá,“
svaraði Iljörleifur Guttormsson,
er hann var spurður um hver biði
eftir hverjum i þessu máli.
Jón ísberg sagði, að meirihluti
væri fyrir hendi bæði vestan og
austan Blöndu um að skrifa undir
samninginn, eins og ríkisstjórnin
hefði óskað eftir að hann yrði. Sá
fyrirvari væri eingöngu gerður, að
Blanda yrði fyrsta virkjunin. „Við
förum ekki að skrifa undir samn-
ing, ef það á síðan að fresta virkj-
uninni um 5—6 ár, jafnvel leng-
ur,“ sagði hann.
Þessi afstaða norðanmanna hef-
Deilt um eftirmann í borgarráði
Björgvin til BUR um áramót
„EG MUN skýra málið síðar í vik-
unni,“ sagði Björgvin Guð-
mundsson borgarfulltrúi og ný-
ráðinn framkvæmdastjóri Ba*jar-
útgerðar Reykjavíkur, þegar
Morgunblaðið spurði hann hvort
rétt va*ri að hann tæki ekki við
framkvæmdastjórastöðu BÚR
fyrr en um áramót, en Björgvin
átti að taka við af Marteini Jón-
assyni framkvæmdastjóra um
mánaðamótin. Þcgar Morgun-
blaðið spurði Björgvin frekar
hvers vegna hann tæki ckki við
framkvæmdastjórastöðunni nú,
vildi hann ekkert segja.
Morgunblaðið hefur hinsvegar
fregnað að ein höfuðástæðan fyrir
því, að Björgvin tók ekki við fram-
kvæmdastjórastöðunni um sl.
mánaðamót, sé að ekki hafi enn
náðst samkomulag um hver eigi að
taka við af Björgvin í borgarráði
Björgvin Sjöfn
Reykjavíkur, samstarfsaðilum Al-
þýðuflokksins og sérstaklega Al-
þýðubandalaginu sé í nöp við ef
Sjöfn Sigurbjarnardóttir eigi að
taka við af Björgvin.
Marteinn Jónasson átti að láta
af störfum framkvæmdastjóra
Bæjarútgerðarinnar um sl. mán-
aðamót, en ekki er Mbl. kunnugt
um hvort hann muni gegna störf-
um Björgvins fram til áramóta. Á
sínum tíma var hins vegar skýrt
frá því að Marteinn myndi gegna
störfum sem ráðgjafi fyrirtækis-
ins a.m.k. fyrst í stað eftir að
Björgvin tæki við.
ur komið fram áður í fréttum og
var Hjörleifur því spurður í gær
hver raunverulega staðan væri og
hvort norðanmenn færu þá ekki
rétt með. Hann svaraði: „Þeir hafa
haft í ýmsu að snúast, bændur
fyrir norðan, annað en funda um
þetta þessa dagana."
— Þeir segja samningana til-
búna til undirritunar?
„Þeir hafa fengið ákveðið tilboð
frá ráðuneytinu til þess að svara
og það hefur ekki gengið saman
eins og komið er. Þeir hafa ekki
fallist á það og ýmis atriði í því
sambandi."
Hjörleifur var að lokum spurður
hvort samkomulag væri um röðun
virkjananna í ríkisstjórn. Hann
svaraði því til að ekki hefði reynt
á hvort samkomulag væri um
þetta tiltekna mál.
Sjö ára stúlka
lést í bílslysi
SJÖ ára stúlka varð fyrir flutn-
ingabíl í Keflavík um klukkan 19.30
í gærkveldi og lést hún síðar á Borg-
arspítalanum.
Slysið varð við Birkiteig, og sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar
eru atvik óljós, en ökumaður bif-
reiðarinnar varð ekki var við þegar
slysið átti sér stað. Stúlkan var flutt
í sjúkrahúsið í Keflavík og síðan á
Borgarspítalann þar sem hún lést.