Morgunblaðið - 09.10.1981, Side 5

Morgunblaðið - 09.10.1981, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1981 5 104. löggjafarþingið: Alþingi sett á laugardaginn ALÞINGI íslendinga, 104. lög- gjafarþing, verður sett með hefð- bundnum hætti nk. laugardag. Þingmenn ganga til guðsþjón- ustu sem hefst í Dómkirkjunni kl. 1.30 miðdegis. Þar predikar séra Sigurður Sigurðarson, sóknarpest- ur á Selfossi. Að lokinni guðsþjón- ustu setur forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, 104. lög- gjafarþingið og kveður aldursfor- seta til að stjórna fundi unz for- seti Sameinaðs þings hefur verið kjörinn, eins og þingsköp kveða á um. Aldursforseti þingsins er dr. Gunnar Thoroddsen, forsætisráð- herra. Regluleg þingstörf hefjast eftir helgi. Gert er ráð fyrir að frum- varp að fjárlögum næsta árs verði lagt fram á fyrsta reglulegum starfsdegi þings, svo sem venja er. Lánsfjáráætlun, sem fylgja á fjár- lagafrumvarpi, mun hins vegar lögð fram eitthvað síðar. Meðlimir hljómsveitarinnar Mezzoforte. Sölulisti brezka blaðsins „Blues & Soul“. Eins og sjá má er Mezzoforte í 18. sæti á fyrstu viku. Mezzoforte f ær góðar undirtektir í Bretlandi IIUÓMSVEITIN Mezzoforte hef- ur nú lokið upptöku á þriðju hljómplötu sinni og var hún tekin upp i London. Platan hefur feng- VR7W V\W-MöW/\/ON0H /VflóO Wnu Hír wmr koöt- mmumviN m m %m \immi VKffi vm \wm wm11 ið góðar undirtektir í London og hefur selzt nokkuð vel í verzlun- um þar. Þá er platan komin i 18. sæti á sölulista i brezka blaðinu „Blues & Soul“ þann 6. október. Þar sem meðlimir Mezzoforte hafa ekki atvinnuleyfi í Bretlandi, reyndist þeim ókleift að koma fram til að kynna plötu sína „Mezzoforte", en þeir Eyþór Gunnarsson og Jóhann As- mundsson fengu viðtöl í brezkum útvarpsstöðvum, þar sem platan var jafnframt kynnt. Upptöku á plötunni stjórnaði Simon Hey- worth, sem meðal annars hefur starfað með Mike Oldfield. Útgef- andi er Steinar hf. Eskifjörður: Aðeins að lifna yfir síldveiðinni Kskifirði. 8. október. HELDUR lifnaði yfir síldveiði reknetabáta siðustu nótt, en veið- in hefur verið mjög treg að und- anförnu. Hér lönduðu 10 bátar um þúsund tunnum i dag. Mestan afla hafði Garðey SF, 250 tunnur, og Ólafur Bjarnason SH var með 150 tunnur. Nótaskip- in veiddu lítið sem ekkert, en síld- in sem verið hefur í Reyðarfirðin- um að undanförnu hefur verið mjög smá. Bátarnir hafa fengið góð köst, en orðið að sleppa öllu aftur vegna smæðar síldarinnar. Nú er búið að salta í tæpar 8 þús- und tunnur hér á Eskifirði. — Ævar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.