Morgunblaðið - 09.10.1981, Blaðsíða 15
t
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1981
15
Richard Burton með Susan,
konu sinni.
Richard Burton
með magasár
RICHARD Burton var lagður á
sjúkrahús i hasti fyrir skömmu
mcð blæðandi magasár. Allt
bendir til að hann nái sér fljótt
aftur á strik, en varla snýr hann
aftur á leiksviðið í bráð.
Það eru ekki nema þrír mánuðir
síðan Burton var skorinn upp við
brjósklosi í hryggjarliðum. Hann
hefur þurft að ganga með styrkt-
arkraga í allt sumar og tók hann
fyrst niður í síðustu viku. Þá ætl-
aði hann sér að taka við hlutverki
sínu í söngleiknum „Camelot" á
ný, en nú verður bið á því.
Richard Harris fer með hlut-
verk Burtons fyrir hann. Susan,
kona hans, sagði, að Burton væri
mjög máttfarinn eftir uppskurð-
inn. Hún býr í sjúkrahúsinu hjá
honum, en þangað barst stór
blómvöndur frá Elísabetu Taylor í
gær.
Burton hitti Susan 1977 þegar
hann var mjög drykkfelldur „og
kominn á 3. flösku upp úr 8“ eins
og hann hefur sagt sjálfur. Susan
fékk hann til að hætta að drekka
og í megrun. Við læknisskoðun
kom í ljós, að lifrin í honum var
mikið skemmd, en þó hafði hann
verið við góða heilsu þangað til
hann var lagður inn við brjósklos-
inu í vor.
Pólitískir fengar
í 65—75 ríkjum
London, 8. október. AP.
AMNESTY, mannréttindasamtöki
sé að samvizkufangar séu i haldi
rikja SÞ.
Samtökin segja að þau muni
berjast fyrir því í árlegri „viku
samvizkufanga" að 4.000 slíkum
föngum víðs vegar í heiminum
verði „tafarlaust og skilyrðis-
laust“ sleppt úr haldi.
Samvizkufanga kallar Amnesty
þá sem hafa verið fangelsaðir
fyrir að halda fram mannréttind-
um sínum án þess að beita ofbeldi.
í skýrslu frá samtökunum segir
að mat þeirra á fjölda þeirra ríkja
þar sem samvizkufangar séu í
haldi sé „aðeins brot“ af þeim
fjölda ríkja er sennilega brjóti
mannréttindayfirlýsinguna frá
1948 og önnur bönn SÞ við fang-
elsunum pólitískra andófsmanna.
„Auk nafns hvers þess manns
n í Lundúnum, sagði i dag að talið
í um það bil helmingi 154 aðildar-
sem vitað er um ... eru margir
aðrir sem eru óþekktir og þeir
mynda óþekktan fjölda samvizku-
fanga um víða veröld, í yfirfullum
fangelsum, í vinnubúðum, á ein-
angruðum eyjum,“ segir Amnesty.
Talsmaður Amnesty sagði að
samtökin ynnu að málum sam-
vizkufanga í 65—75 aðildarríkjum
SÞ. Amnesty birtir ekki skrá um
lönd sem grunuð eru um að hafa
samvizkufanga i haldi á þeirri for-
sendu að túlka mætti þannig lista
á þann veg að hann hreinsaði af
sök þau ríki þar sem „pottþéttar"
sannanir skortir, sagði talsmaður-
inn. En hann sagði að Bandaríkin
væru ekki meðal þeirra ríkja þar
sem talið væri að samvizkufangar
væru í haldi.
í „samvizkufanga-vikunni"
munu sjálfboðaliðar Amnesty víða
um heim halda opinbera fundi,
vökur og guðsþjónustur til að
knýja á um að sleppt verði 16
föngum, sem hafa verið valdir
„sem tákn um örlög þúsunda ann-
arra“.
í þessum hópi eru Petr Uhl, sem
var dæmdur í fimm ára fangelsi
fyrir að berjast fyrir mannrétt-
indum í Tékkóslóvakíu, Edgar
Borges Abemorad, verkalýðsleið-
togi, sem var dæmdur í átta ára
fangelsi í Uruguay, Gaspard Mou-
en, Martin Ebelle-Tobo, Emmanu-
el Bille og Andre Moune, sem hafa
verið í haldi í fjögur ár í Kamerún
án réttarhalda, og Gong Pinmei,
fyrrverandi rómversk-kaþólskur
biskup í Shanghai, sem hefur ver-
ið í haldi síðan 1955.
Thatcher ræðir við
aíganska flóttameim
Torkham, Nasir Bagh, Pakistan, 8. október. AP.
MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, heilsaði afgönsk-
um hermönnum á landamærum Afganistan og Pakistan i dag, en hún
er fyrsti þjóðarleiðtoginn frá Vesturlöndum sem heimsækir Pakistan
siðan Sovétmenn réðust inn i Afganistan 1979. Thatcher kleif lága
hæð á iandamærunum og leit yfir til Afganistan. „Það er stórkostlegt
að vera hér,“ sagði hún. „Við viljum að þetta landi hijóti aftur frelsi
sitt.“
Thatcher og Mohammad Zia
Ul-Haq, forseti Pakistan, ræddu
ástandið í Afganistan og á landa-
mærum landanna fyrr um daginn.
Eftir fundinn sagði hún, að þau
hefðu ekki getað fundið einfalda
lausn á vandanum, en Sovétmenn
ættu fyrst og fremst að hafa sig á
brott frá Afganistan.
Hún átti fund með nokkur
hundruð afgönskum konum, sem
hafa flúið yfir landamærin til
Pakistan. Hún svaraði ekki bón
kvennanna um vopn fyrir eigin-
menn þeirra til að berjast með í
Afganistan, en sagði, að Bretar
myndu gefa 2 milljónir punda til
viðbótar 5,8 milljónum punda sem
þeir hafa þegar gefið til flótta-
mannaaðstoðar til Pakistan.
Konurnar sögðu Thatcher frá
flóttanum yfir landamærin og
stríðinu sem eiginmenn þeirra há
gegn 85.000 manna sovésku herliði
í Afganistan. Fyrr um daginn
sagði Thatcher 2000 karlmönnum,
að Sovétmenn væru nú að læra
lexíu, sem Bretar hefðu lært á 19.
og 20. öldinni. „Hugrekki og stolt
afgönsku þjóðarinnar er vel
þekkt,“ sagði hún. „Sovétmenn
hljóta að hafa áttað sig á því sem
við þegar vitum, að Afganir munu
aldrei gefast upp fyrir erlendri
harðstjórn. Þeir munu berjast
þangað til innrásarherinn er
hrakinn frá Afganistan."
Thatcher sagði í lok heimsókn-
arinnar til Pakistan, að samband
austurs og vesturs gæti ekki lag-
ast fyrr en vandinn í Afganistan
hefði verið leystur.
Gullfarmurmn komiun
tO hafnar í Murmansk
Moskvu, 8. októbor. AP.
BJÖRGUNARSKIP hlaðið
gullstöngum úr flaki brezka
herskipsins „HMS Edinburgh“
afhenti i dag fjársjóð sinn í
hafnarborginni Murmansk og
sovézkir embættismenn fóru
um borð til að skoða hluta
Rússa af fengnum.
Gullstengurnar, sem eru
stimplaðar með arnarmerki
rússnesku keisarastjórnarinnar,
eru jafnvirði 74 milljóna Banda-
ríkjadala samkvæmt núverandi
gullgengi, að sögn brezku björg-
unarmannanna, og þeim var
bjargað af 245 metra dýpi við
erfið skilyrði. Þetta er talinn
mesti fjársjóður, sem nokkru
sinni hefur verið bjargað úr
sokknu skipi.
Björgunarskipið, „Stephanit-
urm“, er skrásett í Vestur-
Þýzkalandi og fær að sögn sov-
ézkra embættismanna venjulega
afgreiðslu í Murmansk, en koma
skipsins hefur ekki vakið sér-
staka athygli almennings að
þeirra sögn. En sovézkir blaða-
menn mættu ásamt sovézkum
öryggisvörðum og Tass hrósaði
brezku köfurunum, sem björg-
uðu fjársjóðnum:
„Benda verður á hæfni (kafar-
anna) og hetjuskap þeirra. Gull-
Keith Jessop, sem hafði veg og vanda af björguninni, með fyrsta
gullstykkið úr „Edinburgh“. Hann sagðist geta rekið það ofan i
kokið á gagnrýnendum sinum.
inu var komið fyrir við hliðina á
skotfærum."
Leitin að fjársjóðnum fór
fram í 40 daga á Barentshafi,
275 km austur af Murmansk.
Sovézka gullið átti upphaflega
að vera greiðsla fyrir hergagna-
sendingar frá Bandaríkjunum,
en þýzkir tundurspillar sökktu
„HMS Edinburgh" 1942 og 60
Bretar fórust.
Björgunarskipið verður í
Murmansk fram á annað kvöld.
Meðal þeirra sem tóku á móti
skipinu voru Anatoly L. Zlobin,
varaforseti sovézka ríkistrygg-
ingafélagsins, sem gætir hags-
muna Rússa í sambandi við
björgunina. Talning gullstang-
anna hefur enn ekki farið fram.
I Aberdeen sagði forstjóri
brezka kafarafélagsins, sem
bjargaði gullinu, Wharton Willi-
ams, að „næstum því öllu gullinu
hefði verið bjargað" — aðeins
hefðu verið skildar eftir nokkrar
stangir sem ekki hefði þótt
borga sig að bjarga.
Félagið fær 45% af andvirði
gullstanganna, Rússar tvo þriðju
af því sem eftir er og Bretar einn
þriðja. Bandaríkin fengu fyrir
löngu greidda tryggingu fyrir
týnda gullinu.
LESTUNÍ
ERLENDUM
mmm
AMERÍKA
PORTSMOUTH
Junior Lotte
Bakkafoss
Junior Lotte
Bakkafoss
Junior Lotte
NEWYORK
Hofsjökull
Bakkafoss
Bakkafoss
Bakkafoss
HALIFAX
Hofsjökull
Selfoss
14. okt.
21. okt.
4. nóv.
11. nóv.
15. nóv.
9. okt.
23. okt.
13. nóv.
4. des.
13. okt.
19. okt.
BRETLAND/
MEGINLAND
Eyrarfoss 12. okt.
Alafoss 19. okt.
Eyrarfoss 26. okt.
Álafoss 2. nóv.
ANTWERPEN
Eyrarfoss 13. okt.
Alafoss 20. okt.
Eyrarfoss 27. okt.
Alafoss 3. nóv.
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 14. okt.
Alafoss 21. okt.
Eyrarfoss 28. okt.
Alafoss 4. nóv.
HAMBORG
Eyrarfoss 15. okt.
Álafoss 23. okt.
Eyrarfoss 29. okt.
Álafoss 5. nóv.
WESTON POINT
Urriöafoss 14. okt.
Urriöafoss 28. okt.
Urriöafoss 11. nóv.
Urriöafoss 25. nóv.
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Dettifoss 19. okt.
Dettifoss 2. nóv.
Dettifoss 17. nóv.
KRISTIANSAND
Mánafoss 12. okt.
Mánafoss 26. okt.
Mánafoss 9. nóv.
MOSS
Mánafoss 13. okt.
Dettifoss 20. okt.
Mánafoss 27. okt.
Dettifoss 3. nóv.
GAUTABORG
Mánafoss 14. okt.
Dettifoss 21. okt.
Mánafoss 28. okt.
Dettifoss 4. nóv.
KAUPMANNAHÖFN
Mánafoss 15. okt.
Dettifoss 22. okt.
Mánafoss 29. okt.
Dettifoss 5. nóv.
HELSINGBORG
Mánafoss 16. okt.
Dettifoss 23. okt.
Mánafoss 30. okt.
Dettifoss 6. nóv.
HELSINKI
(rafoss 20. okt.
Múlafoss 2. nóv.
irafoss 13. nóv.
RIGA
írafoss 22. okt.
Mulafoss 4. nóv.
Irafoss 15. nóv.
GDYNIA
irafoss 23. okt.
Múlafoss 5. nóv.
irafoss 17. nóv.
THORSHAVN
Mánafoss 5. nóv.
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-framog til baka
frá REYKJAVÍK alla mánudaga
frá ÍSAFIROI alla þriójudaga
frá AKUREYRI alla fimmtudaga
EIMSKIP
SÍMI 27100