Morgunblaðið - 09.10.1981, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.10.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1981 11 Valdníðsla viðskiptaráðherra — fyrir vini og dekurbörn Eftir Óttar Yngvason framkvæmdastjóra Bjarni Magnússon, forstjóri ísl. umboðssölunnar, hefur í Mbl. 29/9 sl. fundið hjá sér þörf til að reyna að verja valdníðslu Tómasar Arnasonar viðskiptaráðherra við útgáfu útflutningsleyfa fyrir frystum þorskflökum og þorsk- blokk til Bandaríkjanna. í sjálfu sér er það ekki undarlegt, þótt Bjarni reyni að bera blak af flokksbróður sínum og vini, sem í krafti stjórnarsetu sinnar og póli- tískrar afstöðu hefur fært honum fjárhagslegan ávinning á silfur- fati með því að „millifæra" til hans viðskipti, sem aðrir hafa haft. Frá gamalli tíð? Höfuðpunktur Bjarna er sá, að útflutningsleyfi til Isl. umboðssöl- unnar sé ekki nýtt, heldur hafi þetta verið svona frá gamalli tíð, án þess þó að nokkur annar ís- lenskur fiskseljandi hafi um það vitað. Bjarni segir, að leyfi sitt hafi erfst frá Sjöstjörnunni í Keflavík, sem hafi fengið leyfið fyrst 1968. Hann sleppir hins vegar að geta þess, að Sjöstjarnan seldi alla framleiðslu sína hjá SH um árabil þar til fyrir 2—3 árum. Þá tók hann aftur við, en síðan hefur ekki verið nein framleiðsla á þorskflök- um og þorskblokk fyrir Banda- ríkjamarkað í því fyrirtæki, fyrr en nú allra síðustu vikurnar. Hefðin fyrir þessum útflutningi er nú ekki meiri en þetta. Fyrir þá, sem ekki vita um fyr- irkomulag þessara mála, er rétt að geta þess, að útflutningsleyfi er ekki gefið út í eitt skipti fyrir öll, heldur er leyfi gefið út fyrir hverja sendingu, sem úr landi fer eða fyrir tiltekið magn eitthvert ákveðið tímabil. Síðan þarf að gefa út leyfi á ný eða framlengja ónotuð eldri leyfi. Þá hefur yfir- leitt verið í heiðri höfð sú verk- lagsregla í viðskiptaráðuneytinu, að sá, sem hefur byrjað ákveðin viðskipti, hefur fengið að halda þeim áfram, nema í algjörum und- antekningartilvikum, sbr. hina órökstuddu neitun Tómasar Árna- sonar á áframhaldandi leyfa- útgáfu til íslensku útflutnings- miðstöðvarinnar hf. fyrir flaka- og blokkarsölu til Bandaríkjanna. Ný stefna ráðherra — og enn ný stefna Það vill svo til, að ég trúi frekar orðum Þórhalls Ásgeirssonar ráðuneytisstjóra og Stefáns Gunnlaugssonar deildarstjóra en staðhæfingum Bjarna Magnús- sonar. Á fundi með þeim tveimur ráðuneytisstarfsmönnum í lok ágúst sl., var upplýst, að Tómas Árnason hefði tilkynnt um nýja „Það er þjóðarnauð- syn að veita einokun- arsinnum og samtök- um aðhald með heið- arlegri samkeppni og verslunarfrelsi44 óttar Yngvason stefnu varðandi útflutningsleyfi fyrir frystum þorskflökum og þorskblokk til Bandaríkjanna. Þessi stefna sá dagsins ljós eftir fund þeirra Bjarna og Tómasar 21/8 og var hún staðfest af hálfu ráðuneytisins við fleiri utanað- komandi aðila en undirritaðan. Hin nýja stefna Tómasar var sú, að veita eingöngu Bjarna Magn- ússyni (framsóknarmanni) leyfi til útflutnings á Bandaríkjamark- að við hliðina á dekurbörnum samtryggingarkerfisins SH og SÍS — og ekki aðeins fyrir Sjöstjörn- una í Keflavík, heldur einnig fyrir Sæfang h/f Grundarfirði, sem ís- lenska útflutningsmiðstöðin hf. hafði annast nær allan frystiút- flutning fyrir um nokkurra miss- era skeið. Það undarlegasta er, að nokkru áður hafði Tómas samkvæmt sam- eiginlegri kröfu einokunarpostul- anna í SH og SÍS gefið það út sem nýja stefnu, að aðeins SH og SIS fengju leyfi til freðfiskútflutnings til Bandaríkjanna og þar með hætt útgáfu leyfa til minni aðila, sem höfðu flutt út nokkurt magn. Afleiðingin af þessum hringlanda- hætti viðskiptaráðherrans er svo hin versta valdníðsla. Sjálfsögð leyfisveiting — en frekleg mismunun í sjálfu sér er það ágætt og sjálfsagt, að fyrirtæki Bjarna Magnússonar fái leyfi til útflutn- ings á Bandaríkjamarkað, og hef ég ekkert við það að athuga. Að- eins það, að aðrir fái ekki að sitja við sama borð og að ráðherra skuli vera að beita ríkisvaldinu til að rífa viðskiptasambönd frá einum aðila og afhenda þau öðrum aðila. Valdníðsla Tómasar felst m.a. í því, að hann færir með ráðuneyt- istilskipun viðskipti á milli fyrir- tækja í sömu grein, án nokkurra efnislegra röksemda. Hann sem sagt útilokar einn og hleður undir annan að eigin geðþótta. Þetta er pólitísk valdníðsla — af verstu gerð. Svona mismunun og ranglæti er hegðun, sem ekki má láta stjórn- málamenn komast upp með þegj- andi og hljóðalaust. Hvaða borg- i verður næstur? Þakkarverð hreinskilni Það er þakkarverð hreinskilni hjá Bjarna Magnússyni, fyrrver- andi Sambandsforstjóra um ára- bil, þegar hann talar um Sjávaraf- urðadeild Sambandsins sem „valdamikinn einokunarsinna". Einokunareðli Sambandsins hefur sjaldan verið staðfest af öruggari heimild. Það er þjóðarnauðsyn að veita einokunarsinnum og samtökum aðhald með heiðarlegri samkeppni og verslunarfrelsi, sem hefur ávallt verið ein helsta undirstaða velmegunar landsmanna. Því verður að gera þá kröfu til stjórn- valda landsins, að þau standi vörð um verslunarfrelsið en vegi ekki að því. Óttar Yngvason Nú liggur straumurinn ii HUSGAGNARYMINGARSOLIWA hjá okkur. Gerið sérdeilis góö kaup Aöeins í örfáa daga Húsgagnaáklæði í úrvali verkstæði og lager, Síðumúla 23 (Selmúlamegin)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.