Morgunblaðið - 09.10.1981, Síða 10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1981
10
_I>AÐ ERU vissar forsendur,
sem nauðsynlegt er að skapa.
eiífi þróun iðnaðarins að verða
möKuleg- Menn (jeta taiað um
hyKKÍnnu virkjana og fyrirtæki
tengd þeim. en rekstrargrund-
völlur verður að vera fyrir
hendi, eigi eitthvað að vera
ha*gt. Áframhaldandi uppbygg-
ing iðnaðarins cr óframkvæm-
anleg miðað við núverandi að-
sta-ður,“ sagði Gunnar Ragn-
ars. framkvæmdastjóri Slipp-
stöðvarinnar á Akureyri, er
Morgunblaðið ræddi við hann
að loknu fjórðungsþingi Norð-
lendinga.
Jafna verður aðstöðu-
mun iðnaðar og sjávarútvegs
„Nú er 0-stefnan svokallaða
stöðumun verður að jafna, en þó
án þess að um auknar álögur á
sjávarútveginn verði að ræða,
því má hann ekki við. Það er
ljóst að sjávarútvegurinn tekur
ekki við mannaflaaukningu
næstu ára og því verður að gera
eitthvað þessu líkt til þess að
iðnaðurinn verði fær um það, ef
ekki á að verða atvinnuleysi. Það
er því ábyrgðarhluti að aðhafast
ekkert nú.
Leggja verður áherzlu
á orkufrekan iðnað
Eg er einn af þeim, sem lengi
hafa haft áhyggjur af iðnaði á
Akureyri og í nágrenni, sem á
erfitt uppdráttar vegna ójöfnuð-
ar og áðurnefndra aðstæðna og
báta og stærstu skipasmiðjurnar
eru fyllilega færar um að byggja
þá. Fáist stöðug verkefni og
raðsmíði, verða þær einnig fylli-
lega samkeppnisfærar hvað verð
snertir. íslenzkar skipasmiðjur
verða að fá tækifæri til að sýna
hvers megnugar þær eru og það
væri eðlilegasta þróunin að efla
fáar, stórar stöðvar. Við í
Slippstöðinni teljum okkur geta
smiðað nokkurn fjölda vertíð-
arbáta á fáum árum og með
raðsmíði þeirra gætu þeir orðið
verulega ódýrari en ella. Það er
algjörlega ósambærilegt að vera
að miða byggingarkostnað skipa
hér á landi við kostnað erlendis,
þar sem fjöldi sams konar skipa
er smíðaður í seríu. Við höfum
Áf ramhaldandi uppbygging iðnaðar ill-
framkvæmanleg við núverandi aðstæður
alltof ríkjandi í hugsunarhætti
stjórnvalda, en hún er á öllum
sviðum erfið fyrir atvinnurekst-
urinn og beinlínis hættuleg
þróun iðnaðarins og á mikinn
þátt í að hefta hana. Þá veldur
það mikilli mismunun milli iðn-
aðar og sjávarútvegs, að iðnað-
urinn verður að greiða fyrir all-
ar sínar auðlindir, en sjávarút-
vegurinn ekki, en síðan er allt
miðað við gengi sjávarútvegsins,
sérstaklega erlendur gjaldeyrir.
Gengi hans er því breytt til hag-
ræðis fyrir sjávarútveginn, en til
óhagræðis fyrir iðnað og land-
búnað, sem eiga erfitt uppdrátt-
ar í þessu sambýli. Þennan að-
hefur því hvorki þróazt né
byggzt upp eins og skyldi. A
Akureyri byggist atvinnulífið nú
á mjög fáum stólpum. 70% vinn-
andi fólks starfa hjá 7 fyrirtækj-
um og þar með eru talin Akur-
eyrarbær og Fjórðungssjúkra-
húsið. Þá má nefna Útgerðarfé-
lag Akureyringa, Sambands-
verksmiðjurnar og Slippstöðina.
Ekkert þessara fyrirtækja virð-
ist hafa mögulegan vaxtarbrodd
eins og staðan er í dag, eins og
ástandið í ullar- og skinnaiðnað-
inum bendir meðal annars til.
Okkur er því mikil nauðsyn að
gæta okkar og það má leitast við
að byggja upp áframhaldandi
— segir Gunnar
Ragnars, fram-
kvæmdastjóri
Slippstöðvarinnar
á Akureyri
iðnað, en það er engin framtíðar-
lausn eins og ástandið er í dag.
Það verður að leggja áherzlu á
orkufrekan iðnað til þess að nýta
þessar tvær auðlindir, sem við
eigum, orkuna og sjóinn. Slík
uppbygging tekur líklega 7 til 8
ár og ef Akureyringar ætla sér
að fara varhluta af þessari
mögulegu, og að mínu mati
sjálfsögðu uppbyggingu, gæti
orðið um umtalsverða stöðnun
að ræða.
Raðsmíði fiskiskipa for-
senda innlendra skipasmíða
Þetta hefur gengið erfiðlega
hjá okkur í Slippstöðinni vegna
viðhorfa stjórnvalda hvað varð-
ar nýsmíði skipa. Viðhald vertíð-
arbáta hefur verið vanrækt og
nú virðist þurfa um 20 nýja slíka
nú smíðað 8 skip í röð og ekkert
þeirra eins og það hlýtur Hverj-
um manni að vera augljóst hvert
óhagræði er af því, en þó tel ég
okkur hafa náð undraverðum ár-
angri.
Með raðsmíði og eðlilegri
skipulagningu væri mögulegt að
auka vaxtarmöguleika skipa-
smíðastöðvanna og þannig brúa
að nokkru leyti bilið þar til stór-
iðjan verður að veruleika. Það
ætti öllum að vera ljóst, að nú
þegar verður að hefjast handa
um aðgerðir og leiðréttingu
rekstrargrundvallar iðnaðarins,
ef ekki á að fara illa,“ sagði
Gunnar.
Kirkjudagur Óháða safn-
aðarins á sunnudag
Hveragerði:
Skortur á
þjónustu
IlveragorðÍ. 29. septemher.
VIÐ Hvergerðingar búum við
heldur erfiða verslunarhætti
og held ég að víða megi leita til
að finna þeim hliðstæðu. Tvær
matvörubúðir eru hér í þorp-
inu. en háðar eru útibú. önnur
frá Kaupfélagi Árnesinga á
Selfossi. hin frá Allabúð á
Stokkseyri. Þá er hér fiskhúð,
en eigandi tclur rekstur henn-
ar erfiðan.
Blómabúðirnar tvær, Blóma-
borg og Eden, bjóða auk blóma
og grænmetis, gjafavörur og
veitingar. En þá eru líka upp-
taldir valkostir í verslun í
Hveragerði.
Fataverslun er hér engin. Til
skamms tíma voru þær tvær, en
Eddý lokaði í fyrra og Mídas
fyrir nokkrum dögum. Engin
álnavara er á boðstólum hér, né
smávörur til fatagerðar, ekki
svo mikið sem tvinni og renni-
lásar til að gera við bagalegustu
bilanirnar! Byggingarvörur
þurfum við allar að sækja til
annarra bæja og kemur það sér
afar illa, því hér er mikið byggt,
breytt og bætt. Þá er hér engin
bókabúð né ritfangaverslun.
Ekki heldur búsáhaldabúð og
enga skó né stígvél að fá.
Lengi vel verslaði útibú KA
með nauðsynlegustu hluti, af
því sem hér er talið, en hefur nú
að mestu lagt þá þjónustu niður
og fært verslunina í matvöru-
markaðsform.
Með þessari grein vil ég reyna
að vekja athygli manna á þeim
þjónustuskorti sem hér er, ef
einhver vildi úr bæta, því ljóst
er, að hugur Hvergerðinga virð-
ist beinast að öðru fremur en
verslun og viðskiptum.
Sigrún
NK. sunnudag, 11. október, er
hinn árlegi kirkjudagur Óháða
safnaðarins i kirkjunni og safnað-
arheimilinu Kirkjubæ við Ilá-
teigsveg.
Að Þessu sinni prédikar í kirkj-
unni Sigurður Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra, en hann er jafn-
framt formaður safnaðarstjórnar
Óháða safnaðarins. Að lokinni
helgistund í kirkjunni verða bornar
fram veitingar í Kirkjubæ á vegum
kvenfélags safnaðarins.
Kirkjudagurinn hefur verið hald-
inn á hverju ári frá því söfnuðurinn
tók til starfa fyrir rösklega 30 ár-
um. Þá er jafnan minnst þeirra-
mörgu, sem af einstökum áhuga og
fórnfýsi tóku þátt í stofnun og síð-
an uppbyggingu safnaðarins og
unnu að byggingu sjálfrar kirkj-
unnar og félagsheimilisins. Að
þessu sinni verður kirkjudagurinn
að sjálfsögðu einnig að nokkru til-
einkaður ári fatlaðra og má m.a.
geta þess, að kvenfélag safnaðarins
beitti sér fyrir því nýlega, að gerðar
voru fullkomnar skábrautir við inn-
gang kirkjunnar til að auðveida að-
gang fatlaðra. Einnig hefur verið
gerð skábraut innanhúss úr kirkju í
safnaðarheimili og á næstunni
verður hafist handa um endurbæt-
ur á snyrtiaðstöðu.
Segja má að á hverju ári sé
eitthvað gert til að bæta aðstöðuna
Sigurður Magnússon
utanhúss og innan- og til að fegra
kirkjuna. Nýlega voru kirkjunni
færðar að gjöf tveir gylltir og veg-
legir altarisstjakar til minningar
um hjónin frú Margréti Hall-
dórsdóttur og Skæring Markússon,
en þau voru á meðal stofnenda
Óháða safnaðarins og fremst í
flokki þessa áhugasama fólks sem
vann hvað mest að kirkjubygging-
unni. Það voru börn hinna látnu
hjóna sem færðu söfnuðinum þessa
kærkomnu og fallegu gjöf.
Stjorn Óháða safnaðarins hvetur
alla til að fjölmenna á kirkjudag-
inn, taka þátt í helgistund og njóta
þeirra stórglæsilegu veitinga, sem
jafnan eru framreiddar af kvenfé-
lagskonunum.
(Fréttatilkynning.)
Bók um þjóðhagfræði
eftir Gylfa Þ. Gíslason
ÚT ER komin á vegum Iðunnar
ný kennslulx'tk eftir Gylfa Þ.
Gíslason prófessor, Þjóðhag-
fra-ði. Hókin er ætluð mennta-
skólum og öðrum framhaldsskól-
um, þar sem um er að ræða
námshraut á viðskiptasviði.
Hún skiptist í fimmtán kafla er
svo heita: Hagfræði, efnahags-
mál, stjórnmál; Framleiðsluskil-
yrði; Framboð og eftirspurn;
Verðmætahringrásin í hagkerf-
inu; Þjóðarframleiðsla og þjóðar-
tekjur; Þjóðhagsreikningar;
Neysla, sparnaður, fjárfesting;
Opinber fjármál; Peningar og
vextir; Utanríkisviðskipti; Vinnu-
markaður; Hagsveiflur, verð-
bólga, hagvöxtur; Hagkerfi; Úr
sögu hagfræðikenninga; Markmið
og leiðir í efnahagsmálum.
í frétt frá Iðunni segir, að í
eftirmála víki höfundur að við-
fangsefni þjóðhagfræðinnar, „þ.e.
„macroeconomics", sem þýða
mætti með „heildarhagfræði".
Þar er ekki fjallað um þá þætti
hagfræðinnar sem taldir eru til
„microeconomics", sem þýða
mætti með „deildarhagfræði",
Gylfi Þ. Gíslason
svo sem kostnað fyrirtækja og
verðmyndun einstakra vöruteg-
unda við ólíkar aðstæður. Það er
gert í rekstrarhagfræði." Áður
hefur komið út kennslubók eftir
sama höfund um þau efni, Þættir
úr rekstrarhagfræði. Þjóðhag-
fræði er 218 blaðsíðna bók, með
allmörgum skýringarmyndum.
Prentrún prentaði.
ÞJÓÐHAGFRÆÐl
11)1 NN
Box, ný plata
samnefndrar
hljómsveitar
HOX heitir nýútkomin hljóm-
plata samnefndrar hljómsveitar
í Keflavík. Útgefandi cr Geim-
steinn.
Box er skipuð kornungum
hljóðfæraleikurum og er þetta
þeirra fyrsta hljómplata. Með-
limir sveitarinnar eru þessir:
Baldur Þ. Guðmundsson, Eðvarð
Vilhjálmsson, Óskar Nikulásson,
Kristján E. Gislason og Sigurður
Sævarsson. Lögin á plötunni eru
5 að tölu, öll eftir meðlimi
hljómsveitarinnar. Upptaka fór
fram í Hljóðrita hf. undir stjórn
Jónasar R. Jónssonar.