Morgunblaðið - 02.12.1981, Page 28

Morgunblaðið - 02.12.1981, Page 28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 28 + Hjartkær eiginkona mín og móöir okkar, LILJA KRISTJÁNSDÓTTIR, ÁlfaskeiAi 64, HafnarfirAi, andaöist í Landspítalanum 29. þ.m. Fyrir hönd aðstandenda, Ágúst Jóhannesson og börn. + Eiginmaður minn, JÓN EINAR BJARNASON, vélstjóri, Hringbraut 85, Keflavík, lést í Landspítalanum aöfaranótt 30. nóvember. Fyrir hönd aöstandenda, Kristín Þóröardóttir. + Faðir okkar, HALLDÓR SIGURDSSON, beykir, Kirkjuhvoli, Fossvogi, lést Þann 30. nóvember. Krjalín Halldór8dóttiri AuAur Halldórsdóttir, Halldór Geir Halldórsson, Unnur A. Halldórsdóttir. + Útför móður okkar og fósturmóöur, REBEKKUINGVARSDÓTTUR, Merkurgötu 7, HafnarfirAi, fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfiröi fimmtudaginn 3. desember kl. 2 e.h. Börnin. + ÁLFHILDUR RUNOLFSDÓTTIR frá Kornsá, Gnoöarvogi 72, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 3. desember kl. 15.00. Þeir sem vildu minnast hinnar látnu eru beönir aö láta líknarstofn- anir njóta þess. Systkiní hinnar látnu. + Eiginmaöur minn, HANS WÍUM VILHJÁLMSSON, Hagamel 33, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 3. desember klukkan 13.30. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á minningarsjóð Land- spítalans. Fyrir hönd vandamanna, Eygló GuAmundsdóttir. + Þökkum innilega auðsýnda samúö við andlát og útför móöur okkar GUÐRÚNAR MATTHIASDÓTTUR, Sólvallagötu 52, Reykjavík. Ragna Samúelsson, Erla Poschmann. + Við þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug við andlát og útför JÓNS ÓLAFSSONAR frá Ytri-Bakka. Steinunn J. Steinsen, Eggert Steinsen, Gíslína Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum vinsemd vegna andláts BJARNEYJAR S. GUDJÓNSDÓTTUR, fyrrverandi Ijósmóöur, Borgarvegi 19, Ytri-Njarövík. Erlingur Gunnarsson, Bryndís og Richard Rondeau, Bunny og Halldór Gunnarsson, Steinunn og Halldór Guömundsson, Oddný Halldórsdóttir, Dórothea Jóhannsdóttir, Snæbjörn Reynisson og fjölskyldur. Minning: Séra Friörik A. Friðriksson Húsavík Séra Friðrik Aðalsteinn Frið- riksson, fyrrum prófastur á Húsa- vík, er látinn og var til moldar borinn 28. nóv. Hann andaðist í sjúkrahúsinu þar 16. nóvember síðastliðinn eftir nokkurra vikna legu vegna afleiðinga heilablóð- falls, fullra 85 ára að aldri. Á Húsavík hefur hann dvalið ásamt konu sinni hin seinustu ár meðal vandamanna og vina, að loknu löngu prestsstarfi þar og síðar í nokkur ár á Hálsi í Fnjóskadal. Mannfræðirit, svo sem Guðfræð- ingatal, Kennaratal og Islenskir samtíðarmenn geyma heimildir um ætt hans og æviferil fram á efri ár. — Margir munu geta hans að verðleikum. Sá er þetta ritar lætur eftir sér að rifja upp í fáum orðum persónuleg kynni og minn- ast frábærra hæfileika hans og mannkosta. Á útmánuðum 1934 sá ég séra Friðrik í fyrsta sinn. Það var messudagur á Hálsi, og kirkju- gestir sátu í stofu að lokinni guðs- þjónustu. Presturinn, Ásmundur prófastur Gíslason, var þá kvadd- ur fram vegna gestkomu. Brátt kom hann inn aftur og vísaði á undan sér ókunnum manni. Við litum öll upp. í dyrum stóð ungur maður, en þó fullþroska, dökkur á hár, en þó yfirlitsbjartur, þrátt fyrir auðsæjan þreytusvip eftir langa göngu í þungri færð. Tein- beinn og upplitsdjarfur ávarpaði hann kirkjugesti alla í senn, ein- arður en látlaus. Séra Ásmundur kynnti gest sinn, Húsavíkurprest- inn nýja, er komið hafði þangað frá Ameríku á liðnu vori, en væri nú á leið til Akureyrar og vænti bíls á móti sér að Skógum. Prest- arnir ræddust einir við yfir borð- um og við hlýddum á. En brátt reis séra Friðrik úr sæti og kvaðst verða að halda för sinni áfram. Ég bauð samfylgd mína og að bera tösku hans. Aldrei gleymist mér þessi för okkar um berangurinn milli Háls og Skóga. Ég spurði, hann svaraði. Hann færði umræðuefnið út og á hærra svið. Honum var gefið að láta aðra sjá sýnir undir hönd sér. — Bíll beið við Skógahlið og lagði þegar á brattann. Ég stóð einn eft- ir og fannst sem eitthvað sérstakt hefði skeð. Ég var annar en áður. Er ég kom heim á Skógahlað hélt ég enn á tösku séra Friðriks. Árin liðu, og það heyrðist sitt hvað um nýja prestinn á Húsavík. Hann gekk stundum í vinnuföt- um og vann eins og víkingur. Hann safnaði um sig ungum og gömlum og stýrði bæði karlakór og kirkjukór. Hann orti ljóð og söngtexta. Hann samdi lög. Hann skrautritaði og skrifaði nótur, lík- lega fegur en nokkur annar ís- lendingur á þeirri tíð. Hann bjó bækur undir prentun, ýmist einn eða með öðrum. Nefna má: Þing- eysk ljóð, Afmælisdagabók sér- + Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samuö og vinar- hug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur og afa HEIÐDALS JÓNSSONAR. Fyrir hönd ættingja, Gyöa Jóhanneadóttir. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns mins, fööur okkar, tengdafööur og afa, JÓHANNS FRIORIKS VIGFÚSSONAR. vélstjóra, Krosseyrarvegí 1. Sérstakar þakkir til hf. Eimskipafélags Islands og skipstjóra og skipshafnar á ms. Skeiðsfossi. Steinunn Jana Guöjónsdóttir, Frímann Jóhannsson, Jóna S. Jóhannsdóttir, Kristinn E. Guönason. stæða, og skráði til ljósritunar kórlög og lög við Passíusálmana. Síðar á árum þýddi hann merka skáldsögu: „Hún Antónía mín“, er ber þýðanda sínum ljósara per- sónulegt vitni en venjulegt er um þýðingar. Áður en langt leið var séra Frið- rik orðinn fyrirliði nýrrar presta- kynslóðar í héraðinu, frjálshuga, starfsglaðra manna, er kenndu til í þrautum sinnar tíðar og voru ákveðnir í að láta gott af sér leiða. Þeim tókst að gera hugsandi, gagnrýnan almenning kirkjunni vinveittari en áður og glöggsýnni á að í siðalögmáli og kærleiksboð- un Krists felast allar þær mann- bótahugsjónir, sem mannkynið hefur eignast og haldbestar hafa reynst. Um annasaman áhugamann leika jafnan vindar úr ýmissi átt, og tíð séra Friðriks á Húsavík var engin undantekning hvað það snerti. Þar skiptust á skin og skúr- ir, sársauki og sæld. Auk starfa prestsins var hann hlaðinn öðrum störfum fyrir bæjarfélag sitt og sýslu. Ég sá hann oftast um langt skeið í lok hvers sýslufundar á Húsavík. í kveðjuhóf, er sýslu- maður var vanur að halda í fund- arlok, var hann ávallt boðinn. Með honum kom hressandi gustur. Lund manna léttist og gladdist. Karl Kristjánsson, sem þá var enn sýslunefndarmaður Húsavík- ur, gat þess eitt sinn við mig, að þá á útmánuðunum hefðu þeir séra Friðrik gert sér það til gamans að yrkja daglega sína vísuna hvor. Ein þessi vísa prestsins var svona: „Skynjun h«-lg og hugsjón gód, hoim og líf Nom fograr, viólag sé vid yndi.sóó idju hvfrsdagsl<*(írar.“ Hversdagsiðja hins dugandi, heiðvirða manns er yndisóður hans til lífsins. Dýpri skilningur og hærri skal vera honum lífsfyll- ing. Þannig fór séra Friðrik á kost- um. Hugurinn hvarflar einnig til konu séra Friðriks. — Á námsár- um sínum kynntist hann ungri menntakonu, Gertrud Estrid El- ise. Foreldrar hennar voru Holger Nielsen ríkisskjalavörður í Kaup- mannahöfn og kona hans, Dag- mar, fædd Thomsen. Ung ferðaðist hún um vegleysur Islands nær hálfhring um landið til móts við örlög sín. Ung lifði hún síðan með manni sínum þeirra frumbýlingsár í annarri heimsálfu, Ameríku, þar sem hann var þjónandi prestur frjáls- lyndra íslenskra safnaða um skeið. Fullþroskuð kona skóp hún þeim heimili að nýju við nyrsta haf, er þau fluttu til Húsavíkur 1933, og gegndi þar vandasömum störfum utan heimilis og innan í þrjá áratugi af sínum kunna dugnaði. Sá einn, sem reynir, veit hvað það er að eiga maka af öðru þjóðerni, skipta um föðurland og leitast síðan við af alúð að verða honum og þjóð hans samstiga í blíðu og stríðu. Það tókst henni með ágætum. Aldur færðist yfir þessi hjón sem aðra og eðlilegum starfstíma lauk á Húsavík. Beint lá við að þau flyttu til Reykjavíkur, þar sem margs var að njóta og aðstaða best til að sinna fjölþættum hugð- arefnum að frjálsu vali. En sú för var aldrei farin. Þess var óskað við séra Friðrik, að hann tæki að sér um stundarsakir að þjóna Háls- prestakalli, þar til annar prestur yngri leysti hann af hólmi. Hann fékkst ekki um, þótt við- brigðin yrðu mikil, að hverfa frá hinni hátimbruðu Húsavíkur- kirkju til litlu sveitakirknanna í Fnjóskadal. Og dvölin þar varð ekki aðeins tvö misseri eða svo, heldur átta og hálft ár. Ég sannfærðist brátt um, að hér undu þessi rosknu hjón sér vel og kallaði í gamni þetta tímabil Indí- ánasumarið þeirra. „Indíánasum- ar, hvað er átt við með því?“, kann einhver að spyrja. Það er sumar- aukinn ljúfi, sem enginn getur fulltreyst að komi að liðnum anna- og uppskerutíma, en getur orðið allra stunda bestur. Sumarið er þá að ljúka hlutverki sínu, skila ávöxtum liðins þroskaskeiðs í fang framtíðar. En hafi þessi tími á Hálsi verið prestshjónunum góður, þá var hann safnaðarfólkinu það ekki síður. Þau miðluðu því af þekk- ingu sinni og lífsreynslu, en þó fyrst og fremst af kærleika sínum og góðhug. í fersku minni þess er prestskonan roskna, er kenndi börnunum sönginn, æfði kirkjukór á heimili sínu og spilaði án endur- gjalds við guðsþjónustur manns síns á annexíunum, vann sér vin- arhug á hverju heimili presta- kallsins og prjónaði í tómstundum fatnað til þess að gefa litlum börn- um, sem voru að rísa á legg. Barnaskóli sveitarinnar naut starfskrafta hjónanna beggja. Þar var þeirra ávallt beðið með óblandinni gleði. Séra Friðrik var bæði óvenju- legur kennari og prestur. Boð- skapur hans var háleitur og fagur. í hrífandi ræðu, sem hann eitt sinn flutti á bændadegi Suður- Þingeyinga á Laugum og kallaði Draumsól, komst hann meðal ann- ars þannig að orði: „Draumsólirn- ar leita stöðugt ljóssins. Það ætt- um vér líka að geta gjört. Því að yfir oss skín ljósið, sem „upplýsir hvern mann“, — ljósið Krists, sem kom til að sýna oss kærleika, og hjálpa oss að vaxa í elsku, þekk- ingu og allri greind. — Getur það dulist nokkrum þeim, er um það hugsar, að draumur Guðs býr í hverri mannssál?" Við fráfall þessa hugljúfa manns leitar þrátt á hugann er- indi Sigurðar Sigurðssonar frá Arnarholti: ,,l*ungl er Upið, þad er vissa — þó vil ég kjósa vorri móðir: ad ætíð megi hún minning kyssa manna, er voru svona jjóðir — að ætíð eigi hún menn að missa meiri og betri en aðrar þjóðir.“ Blessuð sé minning séra Frið- riks A. Friðrikssonar. 28. nóvember 1981, Jón Kr. Kristjánsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.