Morgunblaðið - 05.02.1982, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982
Kelduhverfi:
Skutu bláref af búi
eftir eltingaleik
RKFIIR, sem heimamenn telja víst
að sé blárefur, var skotinn í Keldu-
hverfi í fyrradag. Líklegt er talið að
refurinn hafi sloppið frá búi við
Minnisvarði um Sigur-
liða Kristjánsson og
Helgu Jónsdóttur:
Tillögunni
vísað til
borgarráðs
BORGARSTJORN samþykkti á
fundi sínum sl. fimmtudag, að
vísa til borgarráðs tillögu Sjafnar
Sigurbjörnsdóttur, um að reisa
hjónunum Sigurliða Kristjáns-
syni og llelgu Jónsdóttur minn-
isvarða.
í ræðu sem Sjöfn hélt á
fundinum kom m.a. fram að
rétt væri að Reykjavíkurborg
hefði frumkvæði að því að
reisa þeim hjónum minnis-
varða, sem þakklætisvott fyrir
höfðingsskap þeirra og ætti
borgin að leita samvinnu við
aðra aðila, sem hjónin arf-
leiddu að eignum sínum, um
það efni.
I lok ræðu sinnar sagði Sjöfn
að erfðaskráin hefði verið til
umræðu á Alþingi á sínum
tíma, „en sú umræða var sum-
um þingmönnum til lítils sóma
og ætla ég því ekki að rifja þau
mál upp frekar hér. Vona bara
að þvílíkt og annað eins endur-
taki sig ekki hér í borgarstjórn
og viðkomandi aðili hafi lært
að sitja á strák sínum," sagði
Sjöfn.
Kyjafjörð, en dýrið verður sent suð-
ur til Rcykjavíkur til rannsóknar.
Það var fyrir um tveimur vik-
um, að tófa sást skjótast yfir veg í
myrkri, en ökumanninum fannst
dýrið torkennilegt og hvorki hvítt
né mórautt. Um svipað leyti fann
Jóhann bóndi Gunnarsson að Vrk-
ingavatni í Kelduhverfi spor fyrir
norðan Víkingavatn.
Á miðvikudag varð hann á ný
var við dýrið, sem þá hafði verið
að éta langvíu niður við sjó norður
af Víkingavatni. Jóhann fékk
Þorgeir Þórarinsson á Grásíðu,
þaulvana skyttu, til liðs við sig og
hófst þá mikill eltingaleikur, en
dýrið var mjög styggt og vart um
sig. Að lokum tókst þeim félögum
að króa dýrið af við Jökulsá, þar
sem fljótið fellur til sjávar, og þar
felldi Þorgeir rebba. Sagði Jóhann
í gær, að þeir teldu dýrið vera full-
orðinn bláref, sem þá hefði sloppið
af einhverju refabúinu.
Hlegið dátt á nemendamóti
Það sem gerði svona mikla lukku hjá Verzlunarskólanemendunum á myndinni var dagskráratriði 50. nemenda-
móts skólans, sem haldið var í vikunni. Á morgun, laugardag, verða dagskráratriðin sýnd almenningi í
Háskólabíói klukkan 13. Ljósm. Halldór l’áll (ííslason.
Samvinnuferðir-Landsýn semja við Flugleiðir:
Leiguflug með um 3.000 far-
þega til Kaupmannahafnar
Arnarflug mun sjá um sólarlandaflug og Kanadaflug
„VIÐ TEUIJM þcssa samninga við Flugleiðir vera mjög
hagkvæma og erum mjög ánægðir með, að íslenzkt flugfélag
skuli vera með bezta tilboðið," sagði Eysteinn Helgason,
forstjóri Ferðaskrifstofunnar Samvinnuferða-Landsýnar, í
samtali við Mbl., en SamvinnuferðirLandsýn og Flugleiðir
hafa nýverið undirritað leigusamning, sem gerir ráð fyrir
leiguflugi fram í september.
3.000 í Kaupmannahafnarflugi
og síðan sólarlandaferðir og
Kanadaferðir og er í heildina
um þó nokkra aukningu að
ræða á sætaframboði milli
ára,“ sagði Eysteinn Helgason,
forstjóri Samvinnuferða-
Landsýnar að síðustu.
INNLENT
Við vorum með svipað leigu-
flug í fyrrasumar, en þá var
það danska flugfélagið Sterl-
ing Airways, sem var með
bezta tilboðið. Það flug gekk
vonum framar og því var
ákveðið að fara út í þetta
aftur.
Þessar ferðir okkar eru unn-
Sérkjarasamningar sfmamanna:
Fara fram á 20% -
ríkið býður 0,7%
íhuga úrsögn úr BSRB
LÍTIt) hefur mióad við gerð sér
kjarasarnninga hinna ýmsu ríkis-
starfsmannafélaga við ríkid. Vegna
þessa hafa hjúkrunarfræðingar hót-
að fjöldauppsögnum og Félag ís-
lenzkra símamanna íhugar úrsögn
úr BSRB, en félagið færi í staðinn
sjálft með samningsgerð. í kröfum
símamanna var farið fram á flokka-
hækkun, sem símamcnn meta til um
20% hækkunar launa. Ríkið bauð
hins vegar 0,5—0,7% launahækkun,
að mati símamanna, með breyting-
um á flokkaröðun.
„í samningunum við ríkið í des-
ember var sérstaklega samið um
það við fjármálaráðherra, að við
röðun í launaflokka við gerð sér-
kjarasamnings skyldi meðal ann-
ars miðað við sambærilegar
starfsstéttir. Þeir voru margir,
sem samþykktu BSRB-samning-
inn vegna þessa ákvæðis í sam-
ningnurn og eins vegna orða fjár-
málaráðherra í þessa átt í viðræð-
unurn. Nú er hins vegar allt annað
uppi á teningnum og það er mikill
urgur í fólki vegna þessa,“ sagði
Agúst Geirsson, formaður Félags
íslenzkra símamanna í gær.
Hann sagði, að tæknimenn í Fé-
lagi símamanna væru í 9.—13.
launaflokki, en meðallaun allra
rafvirkja, sem fá laun greidd hjá
ríkinu samkvæmt töxtum Raf-
iðnaðarsambandsins, væru sam-
kvæmt 20. launaflokki. ÁgúsP
sagði að þarna væri um sambæri-
lega hópa að ræða og hefðu sam-
ningamönnum rikisins verið af-
hentir útreikningar, sem ríkið
stóð meðal annars að að vinna.
„A félagsfundi síðasta föstudag
var samþykkt áskorun á stjórn
Félags símamanna um að láta
fara fram allsherjaratkvæða-
greiðslu um úrsögn úr BSRB, en
félagið tæki síðan samningamálin
sjálft í sínar hendur. Það er mikil
og almenn óánægja með launa-
kjörin. Fólk er búið að missa trú á
bandalagið eftir tvo síðustu kjara-
samninga og það er ekki jafn ske-
leggt og áður,“ sagði Ágúst Geirs-
son.
ar í samvinnu við aðrar nor-
rænar ferðaskrifstofur og við
munum því geta boðið upp á
mjög hagkvæmar ferðir í
sumarhús í Danmörku á sumri
komanda. Það má reyndar
segja, að samningurinn við
Flugleiðir nú, sé mjög svipað-
ur og samningur okkar við
Sterling Airways í fyrra,“
sagði Eysteinn ennfremur.
Þá sagði Eysteinn það mjög
ánægjulega þróun hversu
samkeppnishæfni íslenzku
flugfélaganna væri orðin mik-
il. — Við verðum á þessu ári
með allt okkar leiguflug hjá
íslenzku félögunum, Arnar-
flugi og Flugleiðum. Arnar-
flug mun sjá um sólarlanda-
flug okkar, sömuleiðis ferðir
okkar til Toronto í Kanada, en
þær ferðir vorum við einnig
með á síðasta ári, og Flugleið-
ir sjá svo um þetta Kaup-
mannahafnarflug okkar.
Á þessu ári verðum við með
alls um 9.000 sæti í leiguflugi,
ASV og vinnuveitendur:
Lítill árangur af
samningafundum
LÍTIÐ gerðist á þriggja klukku-
stunda samningafundi Alþýðu-
sambands Vestfjarða og vinnu-
veitenda, sem haldinn var á ísa-
firði í gær undir stjórn Guðiaugs
Þorvaldssonar ríkissáttasemjara.
Síðustu daga hafa deiluaðilar þrí-
vegis rætt málin á fundum undir
stjórn sáttasemjara, en árangur
verið lítill. Næsti fundur verður
haldinn á ísafirði á föstudag eftir
viku.
Seltjarnarnes:
Framboðslisti
Sjálfstæðisflokksins
FULLTRIIARÁÐ sjálfstæðisfélag-
anna á Seltjarnarnesi gekk í gær
kvöldi frá framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins við bæjarstjórnarkosn-
ingar í maí nk. Listinn var sam-
þykktur samhljóða og er hann sá
fyrsti sem Sjálfstæðisflokkurinn
leRKur fram í komandi sveitarstjórn-
arkosningum. Listinn er þannig
skipaður:
1. Sigurgeir Sigurðsson, bæjar-
stjóri, Miðbraut 29. 2. Magnús Er-
lendsson, fulltrúi, Sævargörðum 7.
3. Júlíus Sólnes, prófessor, Miðbraut
31. 4. Guðmar E. Magnússon, versl-
unarmaður, Barðaströnd 23. 5. As-
geir S. Ásgeirsson, kaupmaður, Sef-
görðum 12. 6. Áslaug G. Harðardótt-
ir, húsmóðir, Látraströnd 6. 7. Erna
Nielsen, húsmóðir, Barðaströnd 11.
8. Jónatan Guðjónsson, vélvirkja-
meistari, Vesturströnd 4a. 9. Anna
Kristín Karlsdóttir, skrifstofumað-
ur, Unnarbraut 12. 10. Skúli Ólafs,
framkvæmdastjóri, Vesturströnd
31. 11. Anna Laufey Þórhallsdóttir,
gjaldkeri, Tjarnarbóli 6. 12. Gísli G.
Jóhannsson, kennari, Skerjabraut 9.
13. Helga M. Einarsdóttir, húsmóð-
ir, Lindarbraut 26. 14. Snæbjörn
Ásgeirsson, framkvæmdastjóri,
Lindarbraut 29.
Nýju barnalögin
rædd á fundi Hvatar
LAUGARDAGINN 6. febrúar kl.
12.00 mun Hvöt halda hádegisverð-
Olöf Pétursdóttir
arfund uppi á lofti í veitingahúsinu
Torfunni. Umræðuefni fundarins
verður nýja barnalöggjöfin. Ræðu-
maður verður Ólöf Pétursdóttir, full-
trúi í dómsmálaráðuneytinu. Olöf
hefur haldið fyrirlestra um þetta
efni.
Margvíslegar nýjungar er að
finna í nýju barnalögunum. Sam-
búðarfólk fær með þeim sameigin-
lega forsjá yfir börnum sínum
eins og um hjónabandsbörn væri
að ræða. Réttur föður óskilgetins
barns er viðurkenndur, þessi at-
riði verða ásamt öðru efni laganna
til umræðu á hádegisverðarfund-
inum. Mikilvægt er að menn kynni
sér sem best þessa löggjöf, og geri
sér grein fyrir þeim áhrifum er
hún getur haft á einstaklinga og
fjölskyldur.
(Fréttatilkynning.)