Morgunblaðið - 05.02.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.02.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982 3 Vöruskiptajöfnuðurinn árið 1981: Óhagstæður um 949 milljónir króna Vöruskiptajöfnuður lands- manna var á árinu 1981 óhagstæð- ur um 949 milljónir króna, en það er jafnvirði 94,9 milljarða gkróna. I desembermánuði einum var vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæð- ur um tæplega 117 milljónir króna. Á árinu 1980 var vöru- skiptajöfnuðurinn óhagstæður um 342 milljónir króna eða 34,2 millj- arða gkróna. Á árinu 1981 nam útflutningur 6,5 milljörðum króna, en innflutn- ingur nam 7,5 milljörðum. Af út- flutningi nam álmelmi og ál 634 milljónum og kísiljárn 123 millj- ónum króna. Helztu liðir innflutn- ings voru skip að jafnvirði 266 milljóa króna, flugvélar að jafn- virði 20,3 milljóna, innflutningur til Járnblendifélagsins nam 94 milljónum króna, innflutningur til Landsvirkjunar 138,7 milljónum, innflutningur til Kröfluvirkjunar 9,2 milljónum og til ÍSALs var innflutningur jafnvirði 529 millj- óna króna. í fréttatilkynningu Hagstofunn- ar er innflutningur skipa sundur- liðaður þannig, að 4 þeirra koma frá Noregi, skuttogarar að jafn- virði 86 milljóna króna, 2 fiskiskip frá Færeyjum að jafnvirði 23,6 milljóna, 2 vöruflutningaskip frá Danmörku að jafnvirði 99,2 millj- óna, og eitt frá Noregi að jafnvirði 3,8 milljóna króna. Loks er einn skipskrokkur fluttur inn frá Nor- egi að jafnvirði 11,2 milljóna króna. Flugvélakaup eru einnig sund- urliðuð. 8 flugvélar voru fluttar inn frá Bandaríkjunum að jafn- virði 3,3 milljóna, ein þyrla frá Bandaríkjunum að jafnvirði 2,6. milljóna. Þá voru fluttar inn flugvélar frá Bretlandi, Dan- mörku og Frakklandi, en andvirði þeirra allra er undir milljón. Þá segir í fréttatilkynningu Hagstofunnar, að við samanburð á tölum ársins 1981 og ársins 1980 verði þess að gæta að meðalhækk- un erlends gjaldeyris milli áranna hafi verið 37,2%. Heimsókn forseta til Bretlands: Vigdís ræðir við Thatcher og situr hádegisverðar- boð Elísabetar drottningar VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti fs- lands. fer í heimsókn til Bretlands hinn 16. febrúar næstkomandi og heim kemur forseti á ný 21. febrúar. Dagana 17.—19. febrúar verður for setinn opinber gestur brezku ríkis- stjórnarinnar. Á meðan Vigdís Finnbogadóttir verður gestur brezku ríkisstjórn- arinnar mun hún eiga einkavið- ræður við Margaret Thatcher, for- sætisráðherra Breta, og ennfrem- ur mun forsetinn snæða hádegis- verð með Elísabetu Bretadrottn- ingu. í fylgdarliði forsetans verða meðal annars Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra og kona hans Dóra Guðbjartsdóttir. Er ráð fyrir gert að Ólafur og Carrington lá- varður utanríkisráðherra muni hittast og ræða heimsmálin al- mennt. Daginn eftir að hinni opinberu heimsókn Vigdísar Finnbogadótt- ur lýkur, 20. febrúar, heldur ís- lendingafélagið í London sinn ár- lega þorrafagnað og ætlar forset- inn að taka þátt í honum. íbúar Reykjavíkur 84.469 1. des. sl.: Hraunbær fjölmennasta gatan með 2.662 íbúa ÍBÚAR Reykjavíkur voru 84.469 talsins I. desember sl., þar af 41.015 karlar og 43.454 konur. Við 25 götur í Reykjavík bjuggu 500 íbúar og fleiri, en langfjölmennasta gata Reykjavíkur er, eins og áður, Ólafsvík: Góður afli lfnubáta (Hafsvík, 3. febrúar. GODIIR afli hefur verið hjá línubát- um héðan síðan róðrar hófust upp úr miðjum mánuði. Sjö bátar róa með línu og var Gunnar Bjarnason þeirra aflahæstur í janúarlok með 86,4 tonn í 10 róðrum. Ilonum næstur var Garð- ar 2 með 74,4 tonn í 10 róðrum. Átta bátar eru byrjaðir með net en afli þeirra hefur verið tregur. Aflahæstur netabátanna er Matt- hildur með 30,3 tonn í 9 róðrum. Togarinn Lárus Sveinsson iandaði einu sinni í mánuðinum, 105 tonn- um. Már landaði svo í gær 121 lest, mest þorski. Heildaraflinn í Ólafs- vík í janúar varð því 798 tonn. Næg atvinna er hér eftir að róðr- ar byrjuðu aftur og raunar vantar fólk í sumar vinnslustöðvarnar. Fremur kalt hefur verið að undan- förnu og í dag er hvasst af norð- austri og enginn bátur á sjó. Helgi Hraunbær í Árbæjarhverfi, en við Hraunbæ bjuggu 1. desember sl. 2.662 íbúar. Næstfjölmennasta gata Reykja- víkur er Kleppsvegur, en við hann bjuggu 1.613 íbúar 1. desember sl. I þriðja sæti kemur svo Vestur- berg, en við hana bjuggu 1.523 íbú- ar 1. desember sl. — Þá kemur Háaleitisbraut, en við hana bjuggu alls 1.451 íbúi 1. desember sl. Framangreindar fjórar götur skera sig nokkuð úr hvað íbúa- fjölda snertir. Við Langholtsveg bjuggu 976 íbúar 1. desember sl. Við Álfheima bjuggu 868 íbúar og í kjölfarið kemur svo Álfta- mýri, en þar bjuggu alls 809 íbúar 1. desember sl. Við Hvassaleiti bjuggu 1. des- ember sl. 721 íbúi og við Hring- braut bjuggu 713 íbúar. Alls bjuggu 691 íbúi við Engja- sel 1. desember sl., þá 661 íbúi við Rauðalæk og 619 íbúar við Laug- arnesveg. Við Hátún bjuggu 599 íbúar 1. desember sl., við Njálsgötu 583 íbúar, við Ljósheima 565 íbúar, við Sólheima 560 íbúar, við Krumma- hóla 552, við Gnoðarvog 544 íbúar, við Grettisgötu 538 íbúar, við Stigahlíð 528 íbúar, við Unufell 524 íbúar, við Torfufell 503 íbúar, við Stóragerði 502 íbúar og við Laugaveg voru 501 íbúi 1. desem- ber sl. HÉR á landi eru nú staddir nemendur úr skóla norska Hjálpræðishersins og hafa þeir undanfarna daga heimsótt fjölda fyrirtækja og sungið fyrir starfs- menn þeirra í kaffitímanum. í vikunni heimsóttu nemendurnir Morgunblaðj ið og sungu fyrir Morgunblaðsmenn. Myndin er tekin við það tækifæri. í nemendahópnum eru tveir fslendingar, Rannveig María Nielsdóttir og Erl- ingur Nielsson, en þau stunda nám við norska skólann. Eru þau systkin frá Akureyri. í Herkastalanum eru nú samkomur hvert kvöld, en að auki verður mið- nætursamkoma laugardagskvöldið klukkan 23. Nýtt loðnu- verð ákveðið YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávar útvegsins náði í gær samkomulagi um nýtt lágmarksverð á loðnu veiddri til bræðslu frá 1. janúar til loka loðnuvertíðar og ber verksmiðj- unum að greiða 525 krónur fyrir tonnið. Verðið er miðað við 16% fitu- innihald og 15% fitufrítt þurrefni. Þá breytist verðið um kr. 25,50 til hækkunar eða lækkunar fyrir hvert 1%, sem fituinnihald breyt- ist frá viðmiðun og hlutfallslega fyrir hvert 0,1%. Verðið breytist um kr. 33,.70 til lækkunar eða hækkunar fyrir hvert 1%, sem þurrefnismagn breytist frá við- miðun og hlutfallslega fyrir hvert 0,1%. Ennfremur ber kaupendum að greiða 75 aura fyrir hvert tonn til Loðnunefndar. Algjört æði þorrabakkinn og Tuborg öl ■HÚrval þorramatar mmmmm^^^—m^—mmmmmmi Sviðasulta, svínasulta, hrútspungar, lundabagg- ar, pressuð svið, lifrapylsa og blóðmör, hvalrengi, hvalsulta, hákarl, hangikjöt, flatkökur, smjör, harðfiskur, síld, rúgbrauð. Opið til kl. 7 í kvöld. Opið til hidegis i morgun, laugardag. Þorrabakkinn aðeins 60 kr. Ekkert jafnast á við að borða þorramat með Tuborg öli, flaskan aðeins 7.30.-. Laugalæk 2. s. 865II

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.