Morgunblaðið - 05.02.1982, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982
9
FRÁBÆR KYNNING
Hljóm-
plotur
Finnbogi Marinósson
Pink Floyd
A Collection of Great Dance Songs
SHVL 822
Roger Keith (Syd) Barrett er
fæddur í janúar í háskólaborg-
inni Cambridge á Englandi.
Hann ásamt þeim Waters og
Gilmour, gekk í Cambridge High
School for Boys, en fluttist síðan
til London þar sem hann lærði
að mála og leika á gítar. Þar
spilaði hann og með hinum ýmsu
hljómsveitum.
George Roger Waters yfirgaf
háskólaborgina og hóf að stunda
arkitektúr við Regent Street
Polytechnic í London. Nicholas
Berkeley Mason og Richard
William Wright, báðir Lundúna-
búar voru þar einnig við nám.
Þessir þrír, Waters, Mason og
Wright, stofnuðu hljómsveit sem
þeir kölluðu Sigma 6. Illa gekk
að ná í verkefni og það var ekki
fyrr en þeir breyttu nafninu í
The Abdabs að þeir fengu tekið
viðtal við sig. The Abdabs leyst-
ist upp og Juliette Gale sem
hafði verið söngkona giftist Rick
Wright. Félagarnir þrír reyndu
einu sinni enn og nú fengu þeir
til liðs við sig djassgítarleikara
nokkurn, Bob Close. Waters
bauð einnig Syd Barrett, er hann
þekkti frá heimaslóðum, að vera
með. Það var svo Barrett sem
kallaði hljómsveitina Pink Floyd
Sound eftir tveimur blúsurum
sem hann átti plötu með. Þeir
hétu Pink Anderson og Floyd
Council, ættaðir frá Georgíu.
Fyrsti vísirinn að frægð var á
hljómleikum sem voru haldnir
reglulega á sunnudögum í
Marquee klúbbnum og kölluðust
„The Spontaneous Under-
ground" og um þetta leyti urðu
þeir nokkurs konar opinber neð-
anjarðarhljómsveit. Þetta var í
febrúar 1966.
í október 1966 á reglulegum
vikulegum hljómleikum Pink
Floyd í London Free School’s
Sound sáu parið Joel og Toni
Brown í fyrsta skiptið um um-
gjörð tónleikanna, þá miklu
tækni og ljósadýrð sem æ síðan
hefur einkennt hljómleika Pink
Floyd.
Hljómsveitin spilaði á hinum
ýmsu stöðum, í litlum klúbbum
og á stórum styrktartónleikum
fyrir Rhodesiu og Oxfam. Það
var þó ekki fyrr en í janúar að
þeir hljóðrituðu sína fyrstu litlu
plötu en hún hafði að geyma lag
Syd Barretts, „Arnold Layne".
Þessi litla plata fór hæst í 25.
sæti breska smáskífulistans.
Nokkrum mánuðum seinna
samdi Barrett annað iag,
„Games for May“, og þegar nafn-
inu hafði verið breytt í „See Em-
ily play“ var lagið sett á litla
plötu og hún fór í 5. sæti smá-
skífulistans og Pink Floyd spil-
aði lagið í „Top of the Pops“-
þættinum; um leið voru þeir
orðnir nafn í poppheiminum.
Fyrsta stóra platan kom svo
út undir nafninu „The Piper at
the Gates of Dawn“. Útgáfudag-
ur hennar var 5. ágúst 1967. 18.
nóvember kom út þriðja litla
platan og á henni lagið „Apples
and Oranges". Hún vakti hvorki
ánægju né hrifningu. Nú fór
margt skrýtið að gerast. Syd
Barrett sem var á kafi í ÍSD
gerði fátt annað en að mála
myndir og semja svo lög út frá
þeim. 18. febrúar 1968 hóf svo
David Gilmour að spila á gítar
með Pink Floyd. Hann og Syd
Barrett spiluðu saman í nokkrar
vikur en það stóð ekki lengi því
Barrett hvarf 6. apríl 1968.
Skömmu áður en Barrett hvarf
gáfu þeir út litla plötu, „It
Would Be so Nice“, sem gekk
ekki neitt og þeim sýndist ekki
neinn tilgangur í því að gefa út
litla plötu framar.
Önnur stóra platan kom út og
hét „A Saucerful of Secrets".
Þriðja platan var svo
kvikmyndatónlist úr myndinni
„More“. Segja má að við útkomu
fjórðu plötu þeirra, „Umma-
gumma“, en á henni eru tvær
hliðar með hljómleikaupptökum,
hafi þeir tryggt sér það sæti sem
þeir hafa í dag. Að vísu lyftu
næstu þrjár plötur þeim enn
hærra upp og þá aðallega platan
„Atom Heart Mother". Arið 1972
fór mest allt í að hljóðrita næstu
plötu. Reyndar eyddu þeir 9
mánuðum í að fullvinna plötuna,
sem að lokum kom út undir
nafninu „The Dark Side of the
Moon“. Hún kom út 1973 og seld-
ist ótrúlega. Hún var fyrsta plat-
an þeirra sem komst í 1. sæti
ameríska vinsældarlistans. Til
að kóróna allt var þessi frábæra
plata í 102. sæti vinsældarlistans
í músíkblaðinu Billboard núna
rétt fyrir jólin og er hún þó búin
að vera í 393 vikur inni á listan-
um. Listi þessi telur 200 topp-
plötur. Það var svo ekki fyrr en
rúmum tveim árum seinna að
þeir sendu frá sér nýja plötu.
Hún kom út í septembr 1975 og
heitir „Wish You Were Here“.
10. stóra platan kom út 1977 og
er það „Animals". Síðasta platan
sem þeir sendu frá sér er „The
Wall“ en hún kom út 1979.
Þetta er saga Pink Floyd í
grófum dráttum. Hún er öllu ít-
arlegri í byrjun en það tognar úr
fróðleiknum er líður á og er það
með ráðum gert því ég reikna
með að allflestir þekki sögu
hljómsveitarinnar í seinni tíð og
að þeir hafi gaman af að fá
smjörþefinn af upphafinu.
Það virðist vera orðin venja að
það líði 2 ár á milli platna frá
Pink Floyd, að minnsta kosti
svona í seinni tíð. Nú skömmu
fyrir jól kom út samansafnplata
sem ber það einkennilega heiti
„A Collection of Great Dance
Songs". Á plötunni eru 6 lög og
er það elsta frá árinu 1971, „One
of These Days“ af plötunni
„Meddle" Þetta er fyrsta lag
plötunnar og eru þau siðan tekin
fyrir í tímaröð. „Money“ er ann-
að lagið og er hér um nýja upp-
töku að ræða. Næst er „Sheep"
af plötunni „Animals". Hin þrjú
lögin sem eru á hlið tvö eru tekin
af plötunni sem Pink Floyd til-
einkaði Syd Barrett og að sjálf-
sögðu eru það „Shine on You
Crasy Diamond" og „Wish You
Were Here“. Sjötta og síðasta
lagið er svo „Another Brick in
the Wall“, við það ættu allir að
kannast.
Það væri fásinna að segja að
nýjasta platan væri léleg því allt
sem hljómsveitin hefur sent frá
sér er stórkostlegt. Því til stuðn-
ings er sú hylli sem „The Dark
Side of the Moon“ hefur átt að
fagna. Að eiga plötu inn á lista í
næstum 400 vikur er nokkuð sem
sennilega verður ekki endurtekið
(ekki neitt bendir til þess að
platan sé á leið út af listanum).
Sennilega hefði mátt fylla
tvær hliðar í viðbót án þess að
nokkuð skaðaði, en ég er þá
hræddur um að dýrt hefði orðið
að kynna sér Pink Floyd. Sem
slík (þ.e. kynningarplata) er hún
frábær. Á henni er að finna
helstu lög hljómsveitarinnar,
þau sem hafa hlotið mestu al-
menningshylli en þó er ekki
hægt að segja að þetta sé safn
bestu laganna. Um það verður
hver og einn að dæma.
Ekki er hægt að skilja við
þessa plötu án þess að minnast á
að sum lögin eru slitin úr sam-
hengi. Tekin úr einni heild eins
og plötur þeirra félaga hafa ætíð
verið og við það missa þau sig
nokkuð. En fyrir þann sem lang-
ar að kynnast Pink Floyd í
fyrsta skipti er þetta meira en
tilvalið tækifæri til að heyra
rjómann af rjómanum.
Platan hefur rólegt yfirbragð
yfir sér. Það eru bara lögin
„Money" og „Another Brick in
the Wall“ sem einhver hraði er í.
Um nýju útsetninguna á „Mon-
ey“ er það að segja að þar er allt
eins nema söngurinn, en hann
nýtur sín betur hér en i gömlu
útgáfunni.
FM/AM
26600
Allir þurfa þak
yfir höfuöid
ASPARFELL
3ja herb. ca 80 fm íbúö á 7 hæó i
háhýsi. Vestursvalir. Göóar innrétt-
ingar. Fallegt útsýni. Veró: 680 þús.
ÁLFHÓLSVEGUR
3ja herb. ca. 70 fm ibúó á 2. hæð í
fjórbýlishúsi, steinhúsi Þvottaherb. inn
af eldhúsi. Sér hiti. Mjög fallegar inn-
réttingar. Utsýni. Bilskur meó kjallara.
Verö: 850 þús.
FURUGRUND
4ra herb. ca. 100 fm ibúö á 1. hæó i
blokk Góóar innréttingar. Ðilgeymsla.
Veró: 850 þús.
HAMRABORG
3ja—4ra herb. ca. 100 fm ibúó 3. hæö i
háhýsi. Þvottaherb. inn af eldhúsi.
Næstum fulibúin ibúö. Veró 820: þús.
HÓLAR
3ja herb. ca. 90 fm ibúó i háhýsi. Góóar
innrettingar Útsýni. Veró: 650—680
þús
LJÓSHEIMAR
4ra herb. ca 100 fm ibúó ofarlega i
háhýsi. Góöar innréttingar. Falleg ibúö.
Vestursvalir. Utsýni. Verö: 900—950
þús. Skipti æskileg á stærri æskileg
MOSFELLSSVEIT
Raöhús, ca. 164 fm á þremur pöllum,
byggt 1959. Góöur bilskúr meö gryfju.
Gott hús. Stór og falleg lóö. Verö: 1300
þús. Skipti á minni eign i Mosfellssveit
æskileg.
NJÁLSGATA
3ja herb. ca. 70 fm risibúó i timburhúsi.
Sér hiti. Sér inng. Verö: 550 þús.
SMYRLAHRAUN
3ja herb. ca. 95 fm ibúó á efri hæó i
fjórbýlissteinhúsi. Sér hiti. Sér þvotta-
herb. inn af eldhúsi. Suóaustursvalir.
Góó ibúó. Stór bilskur Veró: 820 þús.
ÆSUFELL
3ja herb. ca. 90 fm ibúö á 1. hæó i
háhýsi. Góö ibúó. Utsýni. Veró: 660
þús
STOKKSEYRI
Einbýlishús, ca. 130 fm timburhús. Hús-
ió er fullbúió utan en tilb undir tréverk
innan. Verö: 550 þús. Skipti á eignum
koma tíl greina.
Fasteignaþjónustan
tustuntrali 17, i. 26600
Ragnar fomasson hdi
Aðalfundur
Aðalfundur Félags íslenzkra stórkaupmanna verður
haldinn fimmtudaginn 11. febrúar nk. aö Hótel Sögu
°g hefst kl. 12.00. Stjórnin
í MOSFELLSSVEIT
100 fm 4ra herb. vandaó endaraóhús
(viölagasjóöshús). Bilskursréttur Falleg
ræktuó lóó. Allar nánari uppl. á skrif-
stofunni.
VIÐ HÁALEITISBRAUT
4ra herb. 120 fm góó ibuö á jaróhæó
Tvöfl verksm.gl. Gott skáparými. Bil-
skúrsréttur Útb. 580 þús.
VIÐ ENGJASEL
4ra herb. 105 fm nýleg ibuö á 1. hæó
Ny teppi. Gott skáparymi. Sameign full-
frágengin m.a. bilastæói i bilhýsi. íbúóin
er laus nú þegar. Verð 900—950 þús.
í HAFNARFIROI
4ra herb. 100 fm vönduó ibúó á 3. hæö
viö Ðreiövang. Bilskúr fylgir Utb. 700
þús.
VIÐ FURUGRUND
2ja herb. 60 fm vönduö ibuó á 4. hæö.
Þvottaaóstaóa i ibúöinni. Útb. 420 þús.
VIÐ BRAGAGOTU
2ja herb. 60 fm íbúö á jaröhæó. Sér
inng. og sér hiti. Útb. 280 þús.
3ja—4ra herb. íbúö
óskast í Austur-
borginni t.d. í
fossvogi, Espigerði
eða Háaleiti. Góð
útb. í boði.
VIÐ HRAUNBÆ
2ja herb. góö ibúö á 2. hæó. Útb. 380
þús.
Eicnanmunifi
ÞINGHOLTSSTRÆTI 3
SÍMI 27711
Sölustjóri Sverrir Kristinsson
Unnsteinn Beck hrl. Sími 12320
MT.I.YSINI. VSIMIW Klí:
22480
BlorounWníiiíi
Hafnarfjörður
Til sölu 3ja herb. nýinnréttuö
íbúö á jarðhæö (steinhús) við
Suöurgötu. Verð kr. 600 þús.
Árnl Gunnlaugsson. hrl.
Austurgotu 10.
HafnarfirÖi. simi 50764
FLÓKAGÖTU 1
SÍMI24647
Hlíðar
4ra herb. rúmgóð íbúö á tyrstu
hæð í fjórbýlishúsi. Bílskúr.
Hlíðar
6 herb. endaíbúö á 4. hæö. 4
svefnherb., svalir. Fallegt út-
sýni.
Breiðholt
Hef kaupanda að einbýlishúsi
eða raðhúsi í smiðum í Breið-
holti eða tilbúnu timburhúsi.
Heigi Ólafsson
löggiltur fasteignasali,
kvöldsími 21155.
FASTEIGIMAMIQUJIM
SVERRIR KRISTJÁNSSON heimasimi: 10070
FJÖLNISVEGI 16, 2. HÆÐ, 101 REYKJAVÍK
Seljahverfi
Til sölu vönduð og mjög vel um-
gengin ca. 190 fm endaíbúö á
3ju og 4. hæð i litlu sambylis-
húsi ásamt bílskýli. Tvennar
svalir. Útsýni. Neöri hæöin er
skáli, saml. stofur, eldhús meö
borðkrók, þvottaherberb. og
stóru svefnherb. Uppi eru 3—4
mjög góö herb., skáli og baö og
gott vinnuherb. Eignin er öll í
mjög góöu standi. Til greina
kemur aö taka upp í góöa
3ja—4ra herb. íbúð, helst með
bílskúr.
Kleppsvegur
Til sölu lítil en snotur 3ja herb.
íbúð á 2. hæð í enda. íbúðln er
skáli, saml. stofur, lítið herb.,
eldhús og þvottaherb. inn af
eldhúsi og gott baö. Geymsla í
kjallara. Seljanda vantar góöa
3ja herb. íbúð, gjarnan í Breiö-
holti.
Seljahverfi
Til sölu mjög góö 4ra herb. ibúð
á 3ju og 4. hæð í sambýlishúsi.
Ibuðin skiptist þannig: Gangur,
eldhús, svefnh., stórt bað með
skápum. Þar er einnig gert ráð
fyrir þvottavél og þurrkara innf.
í innr. Saml. stofur, hringst. milli
hæöa. Uþpi er stórt herbergi,
sem hæglega má skipta.
Vesturberg
Bakkar
Seljahverfi
Hef mjög góða kaupendur að
raóhusum. Húsin mega gjarnan
vera í smíðum og á nánast
hvaöa byggingarstigi sem er.
Garðabær
Hef kaupanda aö góöu víðlaga-
sjóðshúsi. Skipti koma til
greina á mjög góðri efri hæð í
þribýlishúsi í Barmahlíð.
Mosfellssveit
Hef góðan kaupanda að rað-
húsi eða einbýlishúsi, gjarnan í
smiöum i Moslellssveit. Skipti
koma til greina á góöri 120 fm
hæö i þribylishusi í Htíðum.
Seljahverfi
Raðhús
Til sölu ca. 210 fm raðhús
ásamt 50 fm bílskúr. Húsið af-
hendist fokhelt í maí—júni nk.
Ódýrar íbúðir
Til sölu 4ra herb. íbúð á 2. hæð
viö Hverfisgötu. Skipti koma til
greina á minni eign sem má
þarfnast mikillar standsetn-
ingar.
Til sölu litil snotur 2ja—3ja
herb. íbúð í kjallara við Hverf-
isgötu.
Grettisgata
Til sölu ca. 60 tm 2ja herb. íbúð
á 2. hæð. Samþykkt.
Langholtsvegur
Sérhæð ásamt risi
Til sölu ca. 114 fm sérhæð
ásamt risi og ca 48 fm bílskúr.
Hæðin skiptist þannig: For-
stofa, forstofuherb., gangur,
eldhús, borðst., stofa og stórt
svefnherb. I risinu eru 2 herb.
og þvottaaðst. og st. geymsla.
Verð 1.200.000.
Einbýlishús í
Garðabæ
Til sölu ca. 157 fm Siglufjarö-
arhús á steyptum kjallara. I
kjallaranum er ca. 45 fm innb.
bilskúr og ca. 45 fm vinnupláss.
Húsiö er ekki fullgert. Skipti
koma til greina á minna einbýl-
ishúsi eöa raðhúsi á einni hæö.
Hef kaupendur að stórum og
vönduðum einbýlishúsum í
Reykjavik, Kópavogi, Garðabæ,
Hafnarfirði og Mosfellssveit.
Vinsamlega athugiö að oft
koma til greina eignaskipti.
Máltlutningsstofa
Sigríður Ásgeirsdóttir hdl.
Hafsteinn Baldvinsson hrl.