Morgunblaðið - 05.02.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982
19
OPIÐ LAUGARDAG
A OLLUM HÆÐUM I TORGINU
I ,
'
Tónlistarskólinn
á Akureyri:
Nítján kennar-
ar og nemendur
á styrktar-
tónleikum
Húsgagnasýning
á Kjarvalsstöðum
ÁRLGGIR tónleikar til styrktar Minn-
ingarsjóói um l>orgerði S. Giríksdóttur
verða haldnir í Borgarbíói á Akureyri
á laugardaginn og hefjast kl. 17.
Markmið sjóðsins er að styrkja
efnilega nemendur við Tónlistar-
skólann á Akureyri til framhalds-
náms. Sjóðurinn er stofnaður til
minningar um Þorgerði S. Eiríks-
dóttur, er lést 2. febrúar 1972, að-
eins 18 ára gömul. Þorgerður heitin
hafði þá lokið burtfararprófi í
pianóleik og var rétt að hefja fram-
haldsnám í London. Hún var tví-
mælalaust einn efnilegasti píanó-
leikari er stundað hefur nám á
Akureyri, segir í frétt frá Tónlistar-
skólanum á Akureyri. Þegar hafa 9
nemendur hlotið styrki úr Minn-
ingarsjóðnum, en tekna til hans er
aflað með sölu minningarkorta og
tónleikahaldi.
U mskiptingur inn
í Laugarásbíói
LAUGARÁSBÍÓ frumsýnir í dag,
fostudag, nýja mynd, sem kölluð er
llmskiptingurinn. Gr myndin sögð
magnþrungin og spennandi, um mann
sem er truflaður ■ nútíðinni af fortíð-
inni.
Helstu leikarar eru George C.
Scott, Trish Van Devere, Melvyn
Douglas og Jean Marrsh. Myndin er
tekin og sýnd í Dolby Stereo, er með
íslenskum texta og er bönnuð börn-
um innan 16 ára. Myndin er sýnd kl.
5, 7.05 og 9 síðdegis.
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari. Halldór Haraldsson píanóleikari.
„Myrkir músíkdagar“:
Gömul og ný íslensk tón-
verk á þriðju tónleikunum
ÞRIÐJII tónleikar „Myrkra músík-
daga“ verða haldnir í kvöld, fostu-
dagskvöld, í nýlegum húsakynnum
Tónlistarskólans í Reykjavík, í sal á
4. hæð að l.augavegi 178. Hefjast
þeir klukkan 20:30. Þar flytja þau
Guðný Guðmundsdóttir og Halldór
Haraldsson nokkur innlend og er
lend tónverk.
Mbl. ræddi stuttlega við Guð-
nýju, sem er konsertmeistari Sin-
fóníuhljómsveitar Islands, um
þessa tónleika og lýsti hún í
nokkrum orðum efnisskránni:
— Við byrjum á æskuverki Jóns
Nordal, svítu sem hann samdi árið
1945 og heitir Systurnar í Garðs-
horni. Síðan eru tvær rómönsur
eftir Árna Björnsson, sem hann
samdi á árunum milli 1940 og 1950
og þá sex íslensk þjóðlög í útsetn-
ingu Helga Pálssonar, sem einkum
samdi tónlist fyrir strengi þegar
aðrir fengust mest við sönglaga-
gerð. Karólína Eiríksdóttir samdi
árið 1980 fyrir mig verkið In Vultu
solis, í andliti sólar, og var það
frumflutt á Skerplutónleikum
Músíkhópsins árið eftir. Næst er
verk Sigurðar Egils Garðarssonar,
Poem fyrir fiðlu og pianó, sem
frumflutt var erlendis árið 1972 og
hérlendis á listahátíð 1974, en
verkið var endursamið sl. haust og
er þannig flutt hjá okkur. Síðast
fyrir hlé er síðan verk Þorkels Sig-
urbjörnssonar, G. suite, sem hann
samdi fyrir mig.
Eftir hlé eru síðan tvö verk á
efnisskrá, nýtt verk Áskels Más-
sonar, Teikn, sem hér verður
frumflutt og tónleikar þessir enda
á Sónötu nr. 2 fyrir fiðlu og píanó
eftir Béla Bartók.
Með þessum tónleikum má segja
að við gefum nokkurt sýnishorn af
hvað til er í íslenskri tónlist fyrir
fiðlu og ber einna mest á róman-
tískri tónlist og þjóðlögum.
Er munur að leika verk sem
samin eru fyrir ákveðinn hljóð-
færaleikara?
— Það er alltaf gaman að vinna
með tónskáldi á þann hátt, þá get-
ur hann höfðað til manns og ein-
hvers í fari og persónuleika við-
komandi hljóðfæraleikara. Og séu
verkin erfið þá er hægt að ræða
það við tónskáldið og skiptast á
skoðunum um hvernig eigi að fara
með það og þar fram eftir götun-
um. En fyrst og fremst er þetta
ánægjuleg tilfinning.
Halldór Haraldsson píanóleik-
ari hefur um árabil verið kennari
við Tónlistarskólann í Reykjavík
og oft komið fram sem einleikari,
hérlendis og erlendis, m.a. í
Þýskalandi, Englandi og á Norð-
urlöndum. Hann lærði píanóleik
hérlendis og síðar í Royal Aca-
demy of Music í London.
Rud Thygesen og Johnny Sörensen arkitektar, en sýning á húsgögnum sem
þeir hafa hannað verður opnuð á Kjarvalsstöðum í dag.
í hcimalandi sínu, Danmörku.
Þeir hafa einkum fengist við
formspennt húsgögn, en auk
þeirra verða á sýningunni
„massiv“ maghoni-húsgögn sem
unnu 1. verðlaun í húsgagnasam-
keppni arkitekta 1969. Þeir félag-
ar nefna húsgögnin „kóngahús-
gögn“ þar sem Friðrik 9. fékk þau
í 70 ára afmælisgjöf. „Það er mjög
vönduð vinna á þeim,“ sagði Sör-
ensen, „hér er gamla handverkið í
hávegum haft.“
Þeir nota yfirleitt ekkert nema
náttúruleg efni í húsgögn sín.
„Hér í þessum sessum er m.a.s.
íslensk ull,“ segir Sörensen og
bendir á nokkra stóla. Á sýning-
unni eru borðstofuhúsgögn,
skrifborð, barnahúsgögn. „Við er-
um með þrjár mismunandi stærð-
ir af barnahúsgögnum, bæði af
borðum og stólum." Á sýningunni
eru einnig hillur og skápar og
nytjalist af öðru tagi.
Verk þeirra Thygesen og Sör-
ensen hafa verið sýnd á sérsýning-
um víða um lönd, eiga þeir m.a.
verk á söfnum, svo sem Museum of
Modern Art í New York.
Sýningin verður opin í um 3 vik-
ur.
Borgarnes:
Sameiginlegt
prófkjör
Borgarnesi, 3. febrúar.
NÆSTKOMANDI laugardag fer
fram sameiginlegt prófkjör allra
flokka vegna hreppsnefndarkosn-
inganna í Borgarnesi í vor. Prófkjör
ið fer fram í skólahúsinu og stendur
frá kl. 10 til 18.
Kftirtaldir frambjóðendur eru í
kjöri.
Fyrir A lista, AlþýðuDokks:
Eyjólfur Torfi Geirsson, Kveldúlfsgötu
22.
Ingi Ingimundarson, Borgarbraut 46.
Ingigerður Jónsdóttir, Böðvarsgötu 1.
Jón Haraldsson, Sæunnargötu 2.
Sveinn G. Hálfdánarson, Kveldúlfsg. 16.
Sæunn Jónsdóttir, Borgarvik 10.
Þórður Magnússon, Böðvarsgötu 4.
I’yrir B-lista, Kramsóknarflokks:
Brynhildur Benediktsd., Kjartansg. 20.
Georg Hermannsson, Þorsteinsgötu 15.
Guðmundur Guðmarsson, Klettavík 7.
Halldóra Karlsdóttir, Dílahæð 5.
Hans Egilsson, Gunnlaugsgötu 10.
Indriði Albertsson, Skúlagötu 9a.
Jón A. Eggertsson, Bjargi.
Fyrir D-lista, Sjálfstæðisflokks:
Björn Jóhannsson, Borgarvík 10.
Geir K. Björnsson, Kveldúlfsgötu la.
Gísli Kjartansson, Austurholti 7.
Jóhann Kjartansson, Gunnlaugsgötu 16.
Kristófer Þorgeirsson, Kveldúlfsgötu 8.
Sigrún Guðbjarnadóttir, Böðvarsgötu 5.
Sigrún Símonardóttir, Þórólfsgötu 14.
Fyrir G-lista, Alþýðubandalags:
Áslaug Þorvaldsdóttir, Sæunnargötu 3.
Baldur Jónsson, Kveldúlfsgötu 28.
Grétar Sigurðsson, Höfðaholti 2.
Halldór Brynjúlfsson, Böðvarsgötu 6.
Ingvi Árnason, Berugötu 20.
Margrét Tryggvadóttir, Kveldúlfsgötu 22.
Ósk Axelsdóttir, Gunnlaugsgötu 9.
I Sjá kynningu á frambjóðendum
Sjalf.st.-eðisflokksins á bls. 25. HBj.
„ÞG8SI húsgögn eru mikið notuð í
opinberum byggingum, skólum,
skrifstofum, fundarherbergjum og
víðar,“ sagði Johnny Sörensen arki-
tekt, er hann var að undirbúa opnun
sýningar á Kjarvalsstöðum, en þar
verður sýning á húsgögnum sem
hönnuð hafa verið af honum og Rud
Thygesen arkitekt. Þeir hafa unnið
saman í fjölda ára og eru vel þekktir
Margir stólanna eru auðveldir í
geyraslu, gott að raða þeim saman
eins og sjá má. Myndin var tekin á
Kjarvalsstöðum í gær.
J
B4TNÆHJR A
AÍLA FJÖLSKYLDUNÁ
Austurstmi 10
sími: 27211