Morgunblaðið - 05.02.1982, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 05.02.1982, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982 23 hagnýtt sér það, bankar og fleiri aðilar, þar til allt þjóðfélagið væri meira og minna komið inn í einn stóran vísitöluútreikning. Nú væri enda svo komið, að eng- inn treysti sér lengur til að búa við óbreytt kerfi. Eitt dæmi þess væri að finna í efnahagsmála- skýrslu ríkisstjórnarinnar, og at- hyglisvert væri að það væri þang- að komið vegna frumkvæðis laun- þegahreyfingarinnar, þó hún hafi barist hvað harðast fyrir vísitölu- útreikningum til að halda raun- gildi launa. Nú sagði Þorsteinn menn vera komna svo langt út í fen þeirra aðgerða, sem ekki hafi skilað þjóð- inni áfram, heldur aftur á bak undanfarin ár, að nauðsynlegt væri að leita nýrra leiða. Hér þyrfti að taka upp frjálsa verð- myndun og frjálsa vexti. Taka verði upp raunhæfa gengisskrán- ingu, og gera arðsemiskröfur til atvinnulífsins. Um leið verði vegna sérstakra aðstæðna að taka upp stjórnun fiskveiða og land- búnaðar, og huga að framtíðar- möguleikum í stóriðju og virkjun- um, um leið og leitað væri nýrra leiða, svo sem í efnaiðnaði. Atvinnustefna Sjálfstæðis- flokksins sagði Þorsteinn að væri skýr valkostur, gegn þeirri stefnu er fylgt hafi verið upp á síðkastið með dapurlegum árangri, hinni raunverulegu stefnu Alþýðu- bandalagsins í atvinnumálum. Á sínum tíma hefði verið sagt, að sannfæringarmáttur Gunnars Thoroddsens, þá borgarstjóra í Reykjavík, hefði verið svo mikill að hann hefði getað talið fólki trú um að Vatnsmýrin væri aldin- garður. Vafasamt væri að slíkt dygði lengur, fólk væri farið að átta sig á raunveruleikanum eins og hann væri. Nú væri því tæki- færi til raunhæfra aðgerða í at- vinnumálum landsmanna. Eftir að Þorsteinn Pálsson hafði lokið máli sínu hófust almennar umræður og fyrirspurnir til fund- armanna. Fyrstur kvaddi sér hljóðs Brynleifur Steingrímsson. Hann hóf mál sitt á að segja það stórt orð, lífskjör. Efni fundarins væri óneitanlega viðamikið, þar sem ræða ætti hvaða leið fara bæri að bættum lífskjörum. Þor- steinn hefði fyrst og fremst rætt um aukinn hagvöxt í þessu sam- bandi, en væri það svo víst að auknum hagvexti fylgdi aukin hamingja og betri lífskjör? Bryn- leifur kvaðst efast um að svo væri, þjóðin byggi í rauninni við alls- nægtir, en vandinn lægi á félags- lega sviðinu. Sjálfstæðismenn þyrftu að gera það upp við sig, hvort þeir vildu auka eða minnka samneysluna. Sannleikurinn væri sá, að þegar einstakir liðir eða þættir sam- neyslunnar væru ræddir, vildu flestir auka útgjöld í viðkomandi málaflokkum, jafnvel þótt þeir hinir sömu töluðu almennt um að draga þyrfti úr samneyslunni. Einnig yrðu menn að velta því fyrir sér, hvort þeir væru fylgj- andi aukinni miðstýringu í þjóð- félaginu, eða hvort færa ætti ákvarðanatökuna sem næst þeim er hana snertu. Sagði Brynleifur ekki vafa í sínum huga, um að valddreifing væri æskilegri en miðstýring, og nefndi hann ýmis dæmi því til áréttingar. Að lokum vék hann að vísitölu- málum, og varpaði þeirri spurn- Brynleifur Steingrímsson Ilelgi ívarsson Salóme Þorkelsdóttir ingu til frummælenda, hvort í rauninni væri hægt að ætlast til þess að launþegahreyfingin féllist nokkurn tíma á afnám vísitölu- bóta og útreikninga, verðtrygg- ingarkröfur verkalýðshreyfingar- innar væru í rauninni það eina sem hún hefði til að tryggja hag umbjóðenda sinna. Jón Guðbrandsson varð næstur til að kveða sér hljóðs. Beindi hann þeirri spurningu meðal ann- ars til Þorsteins Pálssonar, hvort „leiftursóknin" svonefnda hefði verið gjörsamlega misheppnað fyrirtæki, og hvort búið væri að kasta henni fyrir róða. Þá beindi hann þeirri spurningu til Salóme Þorkelsdóttur, hverju þyrfti að hennar mati að breyta í vísitölunni, og hverju væri hægt að breyta. Einnig ræddi Jón um tekjuskiptingu í þjóðfélaginu, um skattamál og fleira. Salóme Þorkelsdóttir sagði það alveg ljóst að sín skoðun væri að stefna bæri að því að færa sem mest heim í hérað til fólks, og að sem minnst yrði blandað saman ríki og sveitarfélögum, þar ætti verkaskiptingin að vera skýr. En um leið og menn ættu að geta ver- ið sammála um hver verkefni sveitarstjórna ættu að vera, þá Gísli Björnsson Jón Guðbrandsson Þorlákur Björnsson mættu menn vissulega ekki gleyma mikilvægu hlutverki ríkis- ins í margvíslegu tilliti, svo sem varðandi rekstur stóru sjúkrahús- anna. Varðandi leiftursóknina sagði Salóme það sína skoðun, að stefnuskráin þar að baki hefði ekki verið röng. Nafnið hefði á hinn bóginn verið slæmt, og and- stæðingunum hefði á árangursrík- an hátt tekist að snúa út úr stefn- unni. Þorlákur Björnsson tók næstur til máls, og gerði lífskjör í landinu að umtalsefni. Nú væri efnahag þjóðarinnar svo komið, að þeir menn er nú teldust vera einna verst settir, hefðu jafnvel verið taldir ríkir menn í sínu ungdæmi. Þorlákur kvaðst vilja vara við sí- felldum erlendum lántökum, og hvatti menn til hófsemdar í kröf- um og til aðhalds. íslenskt þjóðfé- lag ætti í vök að verjast, og jafnvel væri það svo að upplausn og glæp- ir væru sýnd í sjónvarpi, en um leið gæfist þjóðinni minni og minni tími til lestrar góðra og uppbyggjandi bóka. Til Sjálfstæðisflokksins sagðist hann vilja gera þær kröfur að hann væri jákvæður í gagnrýni sinni, og benti á leiðir til úrlausn- Guðjón Pétursson Olafur Helgi Kjartansson Þorsteinn Pálsson ar um leið og bent væri á það sem miður færi. Helgi ívarsson tók undir tilefni fundarins, og sagði uppbyggingu atvinnulífsins vera mikilvægasta verkefni líðandi stundar, og um leið raunar verkefni sem sífellt þyrfti að vinna að. Atvinnuleysi sagði hann í rauninni vera út- flutningsvöru frá íslandi. Menn státuðu sig af því að hérlendis væri ekki við atvinnuleysisdraug- inn að glíma. Þá vildu menn oft gleyma því að hundruð og þúsund- ir manna flyttu úr landi, og kæmu þannig ef til vill í veg fyrir at- vinnuleysi hér heima. Gísli Bjarnason sagði það sína skoðun, að erfitt væri að koma í veg fyrir brottflutning fólks af landinu, menn væru að leita ævintýra, og að ýmsu því sem ekki fyndist hér á landi. Slíkt yrði allt- af til, hvernig sem áraði hjá okkur. Þá ræddi hann einnig um kosti íslands sem lands til búsetu, nefndi meðal annars heitt og kalt vatn, sem við hefðum nóg af en aðra skorti. Helst sagðist hann telja að íslendinga skorti hófsemi í kröfum. Guðjón Pétursson talaði næstur, og sagði lífskjör fólks hér á landi í rauninni ágæt, en launamismunur í landinu væri á hinn bóginn allt of mikill, ef miðað væri við 40 stunda vinnuviku Undrandi sagó ist hann hafa verið á Þorsteit Pálssyni í sjónvarpi nýlega, þar sem hann taldi af og frá að hækka laun þeirra lægst launuðu. Þor- steini sagði hann hafa verið í lófa lagið að taka undir þau sjónarmið, og þar með að auka við atkvæða- fjölda Sjálfstæðisflokksins. Olafur Helgi Kjartansson sagði menn líklega vera sammála um það, að lífskjör fólks hér á landi væru almennt mjög góð, en það sem að okkur sneri nú væri að sjá til þess að lífskjörin haldist óbreytt, eða versni að minnsta kosti ekki. Olafur Helgi minnti á mikilvægi fiskveiða og vinnslu fyrir Islend inga, og að ekki mætti gleyma þeim þáttum í umræðum um at- vinnulíf landsmanna. Sérstaklega sagði hann ástæðu til að huga aö þessum málum í ljósi nýrra frétta af aukinni samkeppni frá Kan- andamönnum. Þorsteinn Pálsson tók aftur til máls, og svaraði ýmsu því er fram kom í máli manna. Hann sagði bollaleggingar manna um það, hvort auka ætti hagvöxtinn eða ekki, vera á misskilningi byggðar. Væri það vilji manna að bæta þjóðfélagið, svo sem með aukinni félagslegri þjónustu út um land, eða með aukinni heilsugæslu og fleiru í þeim dúr, þá yrði að efla atvinnulífið í þeim tilgangi að auka þjóðartekjur. Þá stækkaði sú kaka sem skipta ætti, og meira kæmi í hlut hvers og eins. Varðandi leiftursóknina sagðist Þorsteinn telja það sína skoðun, að þar hafi verið farið út á rétta braut. Ovenjulegt hafi verið í þeirri stefnuskrá, að flokkur í stjórnarandstöðu sagði það fyrir kosningar hvað hann vildi gera eftir kosningar, en ekki hafi tekist að sannfæra kjósendur um nauð- syn þess að sinni. En það sem Sjálfstæðisflokkurinn hafi í raun- inni gert hafi verið að leggja fram einskonar „aðgerðaplan" á svipað- an hátt og ríkisstjórnir gera oft er þær taka við. Launamismuninn innan laun- þegahreyfingarinnar sagði Þor- steinn ekki vera of mikinn að sínu mati, nauðsynlegt væri að menn fengju greitt fyrir hugvit sitt eða framtak, og einnig væri nauðsyn- legt að atvinnufyrirtæki gæti greitt mönnum misvel eftir af- köstum þeirra eða mikilvægi. Launþegahreyfinguna sagði Þorsteinn vera sammála þessum sjónarmiðum, og að þar hafi jafn- an verið andstaða gegn jafnlauna- stefnu. Launþegahreyfingin vill launamismun, það hefur oft komið fram sagði Þorsteinn. Að lokum sagði hann, að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að hefja sig yfir hið oft á tíðum lága plan íslenskra stjórnmálaum- ræðna. Auðvitað gætu menn ekki hætt að taka þátt í stjórnmála- baráttu frá degi til dags, en aukna áherslu þyrfti að leggja á lang- tímasjónarmið, þar sem horft væri lengra en til morgundagsins eða dagsins í dag. Stefnu Sjálf- stæðisflokksins í atvinnumálum og fundaherferðina um leiðina til bættra lífskjara sagði hann bera vott um áhuga forystu sjálfstæð- ismanna á þessum sjónarmiðum. - AH. Veistu hvaða litsionvaipstæki hefiir higelsla hátalaiakerfi ?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.