Morgunblaðið - 05.02.1982, Page 25

Morgunblaðið - 05.02.1982, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982 25 Borgarnes: Kynning frambjóðenda í próf- kjöri Sjálfetæðisflokksins Á MORGIJN, laugardaginn 6. febrúar fer fram prófkjör sjálfstæðismanna í Rorgarnesi vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. Prófkjörið er sameiginlegt með öðrum stjórnmálaflokkum. Morgunblaðið kynnir hér frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins: Björn Jóhannsson, bifreiða.smióur, Borgarvík 10. 37 ára. Maki er Sæunn Jónsdóttir og eiga þau tvær dætur. Björn lauk sveinsprófi í bifreiða- smíði og starfar nú sem verkstjóri hjá B.T.B. Hann á sæti í stjórn Sjálfstæðisfélags Mýrasýslu og hefur setið í stjórn Lionsklúbbs Borgarness. Sigrún Guðbjarnadóttir, húsmóðir, Böðvarsgötu 5. 45 ára. Maki er Steinar Ingimundarson og eiga þau 3 börn. Sigrún lauk námi frá hús- mæðraskóla. Hún starfar nú sem húsmóðir og iðnverkakona í Prjónastofu Borgarness. Sigrún á sæti í stjórn Sjálfstæðiskvennafé- lags Borgarfjarðar og er fulltrúi í áfengisvarnarnefnd. Geir Björnsson, sölustjóri, Kveld- úlfsgötu la. 46 ára. Maki er Hanna C. Proppé og eiga þau tvö börn. Geir lauk sveinsprófi í brauð og kökugerð ásamt framhaldsnámi í Danmörku. Hann hefur starfað sem verslunar- og deildarstjóri hjá Kaupfélagi Borgfirðinga, hótel- stjóri Hótel Borgarness í mörg ár, mælingamaður hjá Vegagerð ríkis- ins og starfar nú sem sölustjóri hjá kjötiðnaðarstöð K.B. Geir hefur átt sæti í stjórnum Ungmennafélags- ins Skallagríms, Ungmennasam- bands Borgarfjarðar og Lions- klúbbs Borgarness. Hann er núver- andi formaður Rauða kross deild- arinnar. Geir á sæti í atvinnumála- nefnd og var fyrsti varamaður Sjálfstæðisflokksins í hreppsnefnd 1974-1978. Sigrún Símonardóttir, skrifstofu- maður, Pórólfsgötu 14. 42 ára. Maki er Ólafur Steinþórsson og eiga þau tvo syni. Sigrún lauk landsprófi frá Gagnfræðaskóla Borgarness. Hún starfaði hjá Landssímanum Borg- arnesi 1958—1964 og hjá sýslu- mannsembættinu í Mýra- og Borg- arfjarðarsýslu síðan, fyrst sem gjaldkeri og nú sem fulltrúi við al- mannatryggingar. Sigrún átti í mörg ár sæti í stjórn Sjálfstæð- iskvennafélags Borgarfjarðar og hefur verið fulltrúi þess bæði í kjördæmisráði og fulltrúarráði. Sigrún á sæti í félagsmálanefnd Borgarneshrepps. Gísli Kjartansson, sýslufulltrúi, Austurholti 7. 37 ára. Maki er Edda Jónsdóttir og eiga þau tvö börn. Gísli lauk lögfræðiprófi frá Há- skóla íslands 1971 og hefur starfað síðan sem fulltrúi sýslumannsins í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Gísli hefur verið formaður Golfklúbbs Borgarness frá stofnun hans 1973. Hann á sæti í stjórn Hótels Borg- arness hf., Sparisjóðs Mýrasýslu, Safnahúss Borgarfjarðar og Hér- aðsbókasafns Borgarfjarðar. Gísli á sæti í fulltrúaráði sjálfstæðisfé- laganna í Mýrasýslu. Jóhann Kjartansson, bifreiðastjóri, Gunnlaugsgötu 16. 34 ára. Maki er Þórhildur Loftsdóttir og eiga þau þrjú börn. Jóhann lauk gagnfræða- prófi. Hann hefur starfað sem bif- reiðastjóri og bifreiðaeftirlitsmað- ur. Jóhann er fyrsti varamaður Sjálfstæðisflokksins í hreppsnefnd. Hann á sæti í skipulagsnefnd og umferðarnefnd. Hann er formaður Kjördæmisráðs Sjálfstæðisfélag- anna í Vesturlandskjördæmi og Fé- lags ungra sjálfstæðismanna í Mýrasýslu. Hann á sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins og fulltrúa- ráði Sjálfstæðisfélaganna í Mýra- sýslu. Jóhann er formaður knatt- spyrnudeildar Skallagríms og hef- ur átt sæti í stjórn J.C. Borgarnes. Kristófer Þorgeirsson, verkstjóri, Kveldúlfsgötu 8. 52 ára. Maki er Ólína Gísladóttir og eiga þau 4 börn. Kristófer lauk prófi úr Reykholtsskóla. Hann hefur starf- að sem garðyrkjumaður og er nú verkstjóri hjá Vegagerð ríkisins. Kristófer hefur verið formaður Fé- lags ungra sjálfstæðismanna í Mýrasýslu og Sjálfstæðisfélags Mýrasýslu um margra ára skeið. Hann á sæti í heilbrigðisnefnd og skólanefnd og er varaformaður íþróttamiðstöðvarnefndar. Hann á sæti í fulltrúaráði sjálfstæðisfélag- anna í Mýrasýslu. Kristófer hefur starfað mikið að málefnum ung- mennafélaganna og UMSB og starfar í Lionsklúbbi Borgarness. HVENÆR? Laugardaginn 6. febr. 1982 kl. 10—18 (aðeins þennan eina dag). HVAR? í skólahúsinu Borgarnesi. Ennfremur utankjörstaÖaratkvæðagreiðsla á skrifstofu Borgarneshrepps 1., 2. og 4. febr. kl. 18—19. HVERJIR? Rétt til þátttöku hafa allir Borgnesingar, 18 ára og eldri samkv. íbúaskrá. HVERNIG? Setja skal x framan við listabókstaf og raöa á þeim lista í a.m.k. 3 efstu sætin með því aö tölusetja nöfn frambjóðenda: 1, 2, 3 o.s.frv. Kjörseðilinn skal síöan setja í kjörkassa merktan sama listabókstaf. ATHUGIÐ: • Ekki má hreyfa við öðrum listum. • Nöfn frambjóðenda á prófkjörsseðlinum eru í stafrófsröð. • Nöfn skrifuð í auðu línurnar hafa sama rétt til efstu sæta og önnur. • Kosningin er leynileg, ekki verður hægt að rekja hvernig einstakir þátt- takendur nota atkvæðisrétt sinn. OPIÐ HÚS: Á prófkjörsdaginn verður Sjálfstæðishúsið opið frá kl. 10. Síminn er 7460. AKSTUR: Bílaþjónusta verður á kjördag fyrir þá sem á þurfa að halda til þess að ____________ komast á kjörstað. Síminn er 7460. . ; r.7v.-------.—rvr Veistu hvaða litsionvarpstæki býðst meó allt aö 5 ára ábyigö?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.