Morgunblaðið - 06.03.1982, Page 1

Morgunblaðið - 06.03.1982, Page 1
40 SIÐUR OG LESBOK 5(1. Ibl. 69. árg. Yfirmanni verkalýðs- mála í Sovét vikið frá Moskvu, 5. mars. Al*. ALEXANDER I. Shibayev, yfir manni verkalýðshreyfingarinnar í Sovétríkjunum undanfarin fimm ár, var í dag vikið úr embætti án nokkurra skýringa eftir því sem TASS—fréttastofan segir. Shiba- yev var af mörgum talinn skjól- stæðingur Leonid Brésnev, for- seta. Stephan A. Shalayev, sem til þessa hefur verið skógamála- ráðherra landsins, var settur í embættið í hans stað. Shibayev var vikið úr embætti á fundi æðstu stjórnar verka- lýðshreyfingarinnar. Honum er vikið frá á sama tíma og fram- leiðni í sovézku efnahagslífi fer minnkandi og skorin hefur verið upp herör gegn spillingu sov- éskra embættismanna. Eftir að- eins 11 daga hefst 17. þing verkalýðshreyfingarinnar. Shibayev tók við embætti yf- irmanns verkalýðsmála 18 mán- uðum eftir að Alexander Shepel- in var vikið frá 1975. Var Shep- elin um tíma talinn helsti keppi- nautur Leonid Brésnevs í valda- baráttunni innan kommúnista- flokksins. Ráðist á Mengistu Nairohi, 5. mars. Al'. ÓSTAÐFESTAR fregnir frá höfuðborg Eþíópíu, Addis Ab- eba, herma, að þjóðhöfðingi landsins, Mengistu Haile Mari- am, hafi orðið fyrir skotárás í áhlaupi sem uppreisnarmenn í norðurhluta Eritreu gerðu gegn stjórnarherliði sem hann stjórn- aði. Mengistu hefur ekki sést opinberlega undanfarnar vik- ur, en bent er á að erlent stórmenni hefur ekki komið í heimsókn nýlega svo það gæti verið skýringin, því að hann sést sjaldan opinberlega. En í tilkynningu Frelsis- fylkingar Eritreu frá Kuwait í gær var því haldið fram að Mengistu hefði „særst alvar- lega“ í árásinni þegar hún var gerð snemma í mánuðinum. Frelsisfylkingin hefur barist fyrir sjálfstæði Eritreu und- anfarna tvo áratugi. LAUCiARDAGIJR 6. MARZ 1982 Prentsmiðja Morgunhlaósins. Loftbelgjum með leiðbeiningum til Pólverja slcppt á Borgundarhólmi Frelsisblöðrum til Póllands sleppt frá Borgundarhólmi Nexö, Korgundarhólmi, 5. mars. Al*. MORG hundruð manns fylgdust í dag með því er fyrstu 10.000 blöðr unum var sleppt frá Borgundarhólmi áleiðis til Póllands. Aðgerð þessa skipuleggur frönsk hreyfing, sem nefnir sig „Frelsisblöðrur handa Pólverjum", og mun hún taka þrjá daga. Danska lögreglan tók niður nöfn 40 Frakka og gerði þeim ljóst að hér gæti verið um brot á dönsk- um lögum að ræða. Talið var að um 3.000 blöðrum hefði verið sleppt í dag. Aðeins 60 sjómílur eru frá Borgundarhólmi yfir til Póllands. Yfirvöld í Póllandi lýstu sig andvíg þessum aðgerðum. I blöðr- unum eru litlir bæklingar ætlaðir almenningi í Póllandi með ýmsum nytsömum upplýsingum um hvernig bregðast eigi við kúgunum og handtökum svo eitthvað sé nefnt. Danska utanríkisráðuneytið til- kynnti pólska sendiráðinu í Kaup- mannahöfn, að aðgerðir þessar væru í trássi við fyrirmæli þess. Sleppa átti blöðrunum fyrir nokkru, en því var frestað þar sem veðurskilyrði voru ekki nægilega hagstæð. Ekkert var hins vegar að veðri í dag. Herdómstóll dæmdi í dag rómversk-kaþólskan prest í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir ummæli sem hann lét falla í garð yfirvalda í guðsþjónustu. Þetta er í fyrsta sinn sem vitað er til þess, að látið hafi verið til skarar skríða gegn prestum síðan herlög gengu í gildi. Yfirmenn pólsku kirkjunnar PLO tekur ummæl- um Mitterrand fálega Tel Aviv, 5. mars. AP. OPINBERRI heimsókn Francois Mitterrand Frakklandsforseta til ísrael lauk í dag. Sagðist forsetinn vera sannfærður um að lagður hefði verið grunnur að gagnkvæmu trausti landanna tveggja eftir áralangan stirðleika í samskiptum þeirra. Á meðan á heimsókninni stóð lýsti Mitterrand því yfir, að hann hygðist fara í opinbera heimsókn til Jórdaníu. Heimsókn forsetans var tíð- indalítil ef undan eru skilin skyndileg veikindi Begins í kveðjuhófi, sem haldið var Mitter- rand til heiðurs. Varð Begin að yf- irgefa hófið, en var orðinn það brattur í morgun, að hann gat tek- ið á móti og rætt við utanríkis- ráðherra Frakka, Claude Cheys- son. Háttsettir embættismenn innan frelsishreyfingar Palestínu- manna, PLO, létu litla hrifningu í ljós yfir ummælum Mitterrands í Israel. Sögðu þeir afstöðu Frakka til Isralsmanna hafa breyst og þeir hafa ákveðið einhliða stuðn- ing við þá. Ennfremur sögðu þeir hann hafa reynt að dylja afstöðu sína með kurteislegum ummælum um Araba og Palestínumenn. hafa ekki látið hafa neitt eftir sér vegna þessa máls. Skýrt var frá því í dag, að leið- togar stjórnmálaflokks, sem verið hefur við lýði undanfarin fimm ár, en aldrei hlotið fullkomna blessun yfirvalda, hefðu verið handteknir er herlög skullu á í desember Yfirvöld segja að 100.000 manns hafi brotið herlög á undanförnum vikum. Þá var sagt að um 700 skotvopn hefðu verið gerð upptæk frá því herlög gengu í gildi. Tveir menn voru í dag hand- teknir í Varsjá, grunaðir um hlutdeild í dauða lögreglumanns, sem lést eftir skotárás í almenn- ingsvagni í síðasta mánuði. Að auki handtók lögreglan þrjá menn, þar af einn prest, sem sakaður er um að hafa leynt skotvopni. Tveir Pólverjar fundust í dag í vörugámi um borð í skipi í höfn- inni í Middlesbrough á norðaust- urströnd Englands. Höfðu þeir smyglað sér um borð í skipið þar sem það lá við hafnarbakka í Gdansk. Þeir hafa báðir beðið um hæli sem pólitískir flóttamenn. Carlos setur frönskum yfírvöldum úrslitakosti l‘arís, 5. mars. Al*. FRÖNSKU ríki.sstjórninni hefur borist hótun frá hryðjuverkamannin- um Carlos þess efnis, að hann muni láta til skarar skríða gegn ráðherr um stjórnarinnar verði tveir hryðjuverkamenn, sem hann tilgreinir, ekki látnir lausir. Hótun þessi var afhent franska sendiráðinu í Haag á miðvikudag. Var hún undirrit- uð af Carlos og til frekari sönn- unar fylgdu tvenn fingraför. Var síðar staðfest að þau til- heyrðu honum. Þetta er fyrsta vísbendingin í sjö ár um að Carlos sé á lífi. Reyndar bárust óljósar fregnir af þátttöku hans í libýskri morðsveit, sem sett var til höf- uðs bandarískum ráðamönnum í fyrra. En síðasta „afrek“ hans svo vitað sé með vissu, var árásin á aðalstöðvar Samtaka olíusöluríkja í Vín þegar þar stóð yfir ráðherrafundur 1975. Carlos, sem heitir réttu nafni Ilich Ramirez Sanchez og geng- ur einnig undir nafninu „Sjak- alinn“, krefst þess að þau Magdalena Kaupp frá V-Þýska- landi og Bruno Breguet frá Sviss verði látin laus. Ennfrem- ur krefst hann þess að þau fái flugvél til afnota og fái að fljúga til ákvörðunarstaðar að eigin vali. Verði ekki gengið að kröfum hans hótar hann að taka til sinna ráða, í eigin per- sónu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.