Morgunblaðið - 06.03.1982, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 06.03.1982, Blaðsíða 40
Síminn á afgreiöslunni er 83033 njrgivwjMíi^ií' , Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 2ttorjjunIiIaí>ií» LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982 Sjö hafa nú veikst af taugaveikibróður SJÖ MANNS á þrcmur hcimilum hafa veik.sl af laujjaveikihróður eftir aó hafa smita.st af skjaldhökum, sem voru fluttar ólöglega til landsins. llm 50 skjaldhökum var smyglaó inn í landió undir því yfirskini, að verið væri að flytja inn skrautfiska, en innflutningur á skjaldhökum er hannaður. Tugir smitaðra dýra hafa fundist. Tvær verzl- anir í Kcykjavík fluttu inn og seldu litlar vatnaskjaldbökur. Enn hefur ekki tekist að ná öllum þeim skjaldbökum sem seldar voru, en heilbrigðisyfirvöld benda þeim á, sem slík dýr eiga og vilja losna við þau, að fara má með þau til heil- briuðiseftirlitsins í Heilsuverndar- stöðinni eða að Keldum til yfirdýra- læknis. Þó aðeins sjö manns hafi veikst af taugaveikibróður, þá er fjöldi smitbera óljós, því ekki veikj- ast allir, þó þeir smitist. En hversu alvarlegt mál er á ferð- inni? „Veikindin geta verið alvarleg og varað í margar vikur. Þá geta bakt- eríurnar borist í matvæli og valdið faraldri. Fyrir um 20 árum geisaði hér á landi alvarlegur faraldur og smituðust þá fleiri hundruð manns af taugaveikibróður," sagði Skúli Johnsen, borgarlæknir í samtali við Mbl. Iðnaðarráðherra býð- ur til einkaviðræðna Sem svar við boði Alusuisse um við- ræður við þriggja manna ráðherranefndina Ljósm. KAX T T£ \ T?l JVTT JVTIVTT Vertíðin er að komast í hámark um þessar mundir og undanfarið flVJx 1111 N 1 hefur afli glæðst eftir tregt fiskirí og rysjótta tíð framan af. Erlendar skuldir jukust um 10 milljónir króna á dag 1981 - sagði Davíð Scheving Thorsteinsson, fráfarandi formaður Félags ísl. iðnrekenda „I>AÐ er ýmislegt, sem gert hefur það að verkum, að undan- farin áratug hefur verið hægt að dylja það hvert stefnir í atvinnu- og búsetumálum okkar og má þar t.d. nefna gífurleg- ar erlendar lántökur, að verulegum hluta til neyzlu, en ekki til arðbærrar fjárfestingar,“ sagði Davíð Scheving Thor- steinsson, fráfarandi formaður Félags íslenzkra iðnrekenda, á ársfundi félagsins, sem haldinn var í gærdag. í TILEENI af svari dr. Mullers, for manns framkvæmdastjórnar Alu- suisse, til íslenzkra stjórnvalda, þar sem hann kvaðst reiðubúinn til að koma til íslands hinn 24. marz nk. til viðræðna við þriggja manna ráðherra- nefndina, sem skipuð var af ríkis- stjórninni til umfjöllunar málsins eftir að henni barst bréf frá Alusuis.se frá I. fehrúar sl„ hefur iðnaðarráðherra sent frá sér fréttatilkynningu. í tilkynning- unni segir, að hann hafi í svarskeyti hoðið dr. Miiller til viðræðna við sig í ráðuneytinu þann 25. mars nk., en áð- ur hafði ráðherra sent dr. Miiller skeyti með ósk þess efnis að hann ka-mi til fundar við iðnaðarráðherra og formann álviðræðunefndar. Iðnaðarráðherra var að því spurð- ur í gær hvað hann hefði í hyggju að leggja fyrir dr. Múller á þeim fundi sem hann boðaði til. Hann sagðist myndu kynna viðhorf ríkisstjórnar- innar, ríkisstjórnarsamþykktina varðandi deilumál fortíðarinnar, einnig óskir um endurskoðun á sam- ningum. Hann var einnig spurður, hvort hann myndi kynna dr. Múller hugmyndir sínar sem miðstjórnarf- ulltrúa Alþýðubandalagsins þar a meðal um eignarnám fyrirtækisins. Hann svaraði: „Ég vil ekki tjá mig neitt um það efni á þessu stigi mála,“ og bætti því við, að hann myndi koma fram sem fulltrúi ríkis- stjórnarinnar í viðræðunum. Niðurlag fréttatilkynningar frá ráðuneytinu er svohljóðandi, en þa’ skal tekið fram í tilefni hennar, að dr. Múller er formaður fram- kvæmdastjórnar Alusuisse, stjórn- SÖKUM þess, að stöðva þurfti loðnuveiðarnar og fyrirsjáanlegt er að lítil eða engin loðna verði veidd fyrr en undir næstkomandi áramót, þurfa flestar, ef ekki allar loðnu- verksmiðjurnar í landinu að segja upp starfsfólki um lengri eða skemmri tíma. Sökum þessa er hætt við að tímabundið atvinnuleysi verði hjá mörgum þeirra, sem hafa byggt afkomu sína á vinnu í loðnuverk- smiðjunum á undanrörnum árum. Þeir forráðamenn loðnuverksmiðja, sem Morgunblaðið ræddi við, sögðu hins vegar, að þeir vomiðust il að loðnustofninn yrði fljótur að ná sér, sökum þess hve l'ljótt ioðnan verðui kynþroska. arformaður Alusuisse er Emanuel Weibel: „Svar hefur nú borist frá Alu- suisse þar sem stjórnarformaðurinn telur sig geta mætt á fundi í Reykja- vík eftir 24. marz nk. I framhaldi af því hefur iðnaðarráðherra boðið honum til viðræðna við sig í ráðun- eytinu þann 25. marz.“ Sjá viðtal við iðnaðarráðherra á bls 19. „Sem dæmi má nefna, að við jukum erlendar skuldir okkar um 10 milljónir nýrra króna á hverjum einasta degi allt síðasta Jónas Jónsson, framkvæmda- stjóri Síldar- og fiskimjölsverk- smiðjunnar h.f. í Reykjavík, sagði að veiðibann á loðnu væri mikið áfall fyrir verksmiðjurnar. Hins vegar ef litið væri til baka , þá væri Ijóst að fiskifræðingar hefðu haft rétt fyrir sér, því það sem þeir hefðu sagt væri nú komið á daginn. Síldar-og fiskimjölsverksmiðjan rekur nú tvær fiskimjölsverksmiðj- ur í Reykjavík og sagði Jónas, að annarri verksmiðjunni yrði alveg lokað þar til að veiðar á bræðslu- fiski hæfust að einhverju marki á riý. Verksmiðjan á Kletti yrði hins vegar starfrækt, enda malaði hún allan úrgang frá frystihúsum og ár, á laugardögum, sunnudögum, jólum, páskum, já, jafnvel 1. maí,“ sagði Davíð ennfremur. Þá nefndi Davíð stækkun öðrum fiskvinnslustöðvum, en verk- smiðjan yrði rekin á næstunni með lágmarksmannafla. Aðalsteinn Jónsson, forstjóri á Eskifirði, sagði að eðlilega væri loðnuveiðibannið mikið áfall fyrir verksmiðjurnar, sem stæði. Sem betur fer væri rekstur loðnubræðsl- unnar aðeins einn þáttur í rekstri hans fyrirtækis og ættu ekki margir að tapa vinnu sökum stöðvunar verksmiðjunnar. „Ég held líka að það sé aðeins tímaspursmál hvenær okkur verður heimilað að hefja loðnuveiðar á ný. Togararnir, sem eru á veiðum úti fyrir Austfjörðum, fá nú trollin upp loðin af loðnu og það á öllu svæðinu frá Langanesi að Hornafirði og því landhelginnar, sem einn þáttinn í þessu. „Þá má nefna brottflutn- ing rúmlega 5.000 manns á síð- astliðnum 10 árum, sem hefðu margir hverjir líklega átt í erfið- leikum með að fá vinnu við sitt hæfi hérlendis," sagði Davíð ennfremur. Þá benti Davíð á dulbúið atvinnuleysi hér á landi, sem hann fyrir fáum árum hafi bent á, að gæti numið e.t.v. á bilinu 15—20 þúsund manns. „Eg held, held ég að stofninn verði fljótur að ná sér á ný, ef skilyrði í sjónum verða góð.“ Jón Reynir Magnússon, fram- kvæmdastjóri Síldarverksmiðja ríkisins, sagði að undanfarið hefðu verið starfræktar 4 loðnuverksmiðj- ur á vegum SR. „Ég býst fastlega við að segja þurfi upp fólki, en þegar best lætur vina um 300 manns hjá SR. Að vísu er stór hluti þessa fólks, fólk sem kemur til starfa yfir háannatímann hjá fyrirtækinu. Það virðist vera að í Siglufiröi sé erfiðast fyrir fólk að finna sér vinnu þann tíma, sem verksmiðjurnar eru ekki í gangi," sagði Jón Reynir. að tímabil þessa sjónarspils sé senn úti og að við blasi nakinn raunveruleikinn. Raunveruleik- inn er sá, að við höfum þegar uppskorið árangurinn af stækk- un landhelginnar. Við getum ekki aukið erlendar eyðsluskuld- ir með sama hraða og hingað til, án þess að draga niður lífskjör afkomendanna. Þótt fólksflótt- inn hafi sem betur fer stöðvazt á síðasta ári, getum við ekki komið í veg fyrir stóraukna fólksflutn- inga úr landi á næstu árum, ef ekki verður breytt um stefnu gagnvart atvinnuvegunum," sagði Davíð ennfremur. „Til þess að stöðva atgervis- flóttann og fá einhverja hinna brottfluttu til að flytja heim, til að stöðva söfnun erlendra skulda, til þess að bæta lífskjör- in og til þess að tryggja sjálf- stæði þjóðarinnar, verður að auka framleiðsluna í þessu landi. Við verðum að auka fram- leiðsluna, því á henni lifum við. Framleiðslan er grundvöllur allra lífsgæðanna. Það er fram- leiðslan í þessu landi, sem stend- ur undir velferðarríkinu. Þegar ég fæddist voru 8% launþega opinberir starfsmenn. Nú eru þeir um það bil 26%. Auðvitð er það framleiðslan sem þessi yfir- bygging hvílir öll á. En nú virðist, sem þetta und- irstöðuatriði sé gleymt. Nú er talið eðlilegt, að fyrirtækin séu rekin með tapi. Núll-stefnan hef- ur tekið völdin," sagði Davíð Scheving Thorsteinsson að síð- ustu. Loðnuverksmiðjurnar: Segja þarf upp fólki sök- um banns við loðnuveiði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.