Morgunblaðið - 06.03.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.03.1982, Blaðsíða 13
Finnur Ingólfsson, formaður Stúd- entaráðs: jjTöluðu ekki sama tungumál og hinn al- menni stúdent"** „Það hefur tvímælalaust breyst til batnaðar, en þó tel ég að gera þurfi enn betur. Stærsti ávinning- urinn til þessa, er sá að það er nú fjármagnað að mun stærri hluta en áður með auglýsingum, en ekki eru þó allir umbótasinnar sam- mála mér um það.“ — Og önnur mál? „Það er af mörgu að taka, en eitt af brýnustu hagsmunamálum hlýtur að vera að fá meira fjár- magn til Háskólans, því fjársvelti hans kemur beint niður á stúdent- um í formi veigaminni stjórn- sýslu, minna námsvali og ekki síst, fjöldatakmörkunum. Við höfum barist mjög eindregið gegn öllum hugmyndum um slíkar takmark- anir og munum halda því áfram." — Hvað um áframhaldandi sam- starf? Bæði Félag umbótasinnaðra stúdenta og Vaka, taka þátt í kom- andi kosningum með algerlega óbundnar hendur. Við búumst ekki við að Vaka og vinstrimenn vinni saman og við munum vinna með þeim aðilum eftir kosningar, þar sem við náum flestum af okkar málum fram. Eitt ár er stutt í stjórn samtaka eins og Stúdentaráðs, en þó er löng stjórnarseta sömu fylkingar ekki til bóta, eins og reynsla síðustu ára gefur til kynna. Hvað um það, þá munum við láta verkin tala fyrir þessar kosningar. Við mun- um láta stúdenta velja hvort þeir vilja núverandi meirihluta áfram eða vilja skipta um. Sjálfur tel ég að gera ætti umbótaárin fleiri." Sigurbjörn Magnússon, fulltrúi stúdenta í stjórn Lánasjóðsins: „Starfað með hagsmuni stúdenta að leiðarljósi“ SIGURBJÖRN Magnússon laganemi situr í stjórn Stúdenta- ráðs Háskóla íslands og er full- trúi stúdenta í stjórn Lánasjóðs íslcnskra námsmanna. Hann var fyrst spurður um þær breyt- ingar sem orðið hefðu á högum stúdenta síðan Vaka og Félag umbótasinnaðra stúdenta tóku við stjórn þeirra mála. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982 13 Sigurbjörn Magnússon fulltrúi stúd- enta í stjórn LÍN: jjKrafan um 100 prósent lán og aðild að lif- eyrissjóði tekin til greina í frumvarpinu** „Það má byrja á því að segja að það hafa orðið miklar umbætur í rekstri Stúdentaráðs. Þar var mikill skuldahali eftir viðskilnað vinstrimanna og vasabókhald þeirra. í þessu hefur verið gert stórátak og ljóst er að fjárhags- staða SHI verður mun betri í vor, en þegar við tókum við stjórnar- taumunum vorið 1981. Hluti af breytingunum er endurskipulagt bókhald Félags- stofnunar stúdenta, en róttækl- ingar trössuðu árum saman að halda bókhald fyrir stofnunina. Auk þess hafa verið gerðar stór- kostlegar breytingar á matsölu, aukin fjölbreytni og lægra verð. Samdar hafa verið úthlutunar- reglur fyrir stúdentagarðana og unnið hefur verið markvisst að undirbúningi framkvæmda við fleiri hjóna- og stúdentagarða og barnaheimili og mikilvægt er að taka upp á næsta ári öfluga bar- áttu til að afla fjármagns til þess- ara framkvæmda. Stúdentablaðið hefur gjörbreyst og er nú ekki lengur trúboðsrit marxista, heldur skólablað stúd- enta við Háskóla Islands. Stúd- entar hafa líka séð að þetta er orð- ið þeirra blað og eru farnir að skrifa mun meira í það, en áður var. Eg held að enginn vilji skipta á því blaði sem við höfum nú og þeirri aukaútgáfu af Þjóðviljanum sem það var áður.“ — Ilvað um lánamálin? — „Við tókum þar mjög ein- dregna afstöðu og ákváðum að berjast fyrir því að lagt yrði fram nýtt frumvarp á alþingi um námslán, en um drög að þessu frumvarpi hafði orðið samkomu- lag milli námsmanna og stjórn- valda vorið 1980. Arangur þessar- ar-baráttu kom í ljós nú rétt fyrir jól, þegar menntamálaráðherra lagði frumvarpið fram. Með þessu frumvarpi nást fram umbætur í tveimur mjög mikil- vægum málum. í fyrsta lagi fæst þar viðurkennd hin áragamla krafa Stúdenta um lán samkvæmt fullu framfærslumati, hundrað prósent lán, en í öðru lagi er námsmönnum tryggð aðild að líf- eyrissjóði. Eins og málum var áð- ur háttað voru námsmenn og hús- mæður þeir einu sem stóðu utan lífeyrissjóðakerfisins. Gildistöku þessara hagsbóta hefur þó verið frestað um tvö ár, frá því sem lofað var, og áteljum við stjórnvöld fyrir að ganga þannig á bak orða sinna, en við vonum að alþingi bjargi því sem Sverrir Ólafsson fulltrúi í stjórn Fé- lagsstofnunar stúdenta: jjÞað hefur komið til hrein hugarfars- breyting síðan vinstrimenn létu af stjórn** bjarga má til að flýta gildistöku þessa hagsmunamáls og afgreiði frumvarpið sem lög frá alþingi fyrir þinglok í vor.“ — Kn endurgreiðsluákvæðin eru hert, er það ekki? „Jú, það er ljóst að endur- greiðslur eru verulega hertar á námsmönnum að námi loknu. Þær verða þannig, að hámarksend- urgreiðsla á ári verður 3,75% af ráðstöfunartekjum, sem miðað við 50% verðbólgu þýðir um 6% af út- svarsstofni. Vaka telur að námsmenn eigi að greiða lán sín til baka að raun- gildi, en vegna þess að lánin eru til beinnar framfærslu, en ekki til fjárfestingar, þá verða endur- greiðslur að vera sveigjanlegar og rúmir möguleikar á undanþágum, vegna félagslegra aðstæðna lán- þega, en í frumvarpinu er sérstök grein þar sem fjailað er um und- anþágur frá endurgreiðslum og mat á aðstæðum í því sambandi. Þá vil ég bæta því við að enda þótt Vaka hafi stutt þetta frum- varp, þá höfum við jafnan hatdið því fram að endurgreiðslur náms- lána ættu fyrst og fremst að mið- ast við heildarskuld lánþega, en ekki einvörðungu við tekjur hans að námi loknu. — Eruð þið óánægðir með frum- varpið? „Fyrir utan áðurtaldar hags- bætur, þ.e. full lán og lífeyris- réttindi, þá teljum við ávinning að því að það tryggir fjárhagsstöðu lánasjóðsins. Það hefur löngum verið erfitt að fá fjármagn til sjóðsins, vegna þess að fjárveit- ingavaldið hefur bent á hve lítið fjármagn skilaði sér til baka til sjóðsins af því sem veitt væri úr honum. En nú, þegar hægt er að sýna framá að endurgreiðslur muni í framtíðinni verða u.þ.b. 85% af heildarfjárþörf sjóðsins, verður án efa auðveldara að fá fjármagn til að framkvæma ýms- ar brýnar endurbætur, sem námsmenn hafa farið fram á varð- andi úthlutun námslána svo sem að ekki dragist allar tekjur námsmanna frá láni. Að þessu leyti hefur þetta frumvarp veru- legt gildi fyrir framtíðarstöðu lánasjóðsins. Við í Vöku lítum á námslán sem tilflutning á framtíðartekjum námsmanna. Hann nýtir hluta af framtíðartekjur sínum til fram- færslu á námsárunum. Síðan skil- ar hann þeim að nýju til sjóðsins, svo hann geti gegnt hlutverki sínu áfram, þegar tekjur fara að skila sér að námi loknu.“ — Hvað viltu segja um samstarf- ið við Félag umbótasinnaðra stúd- enta? „Málefnasamningurinn sem við gerðum okkar á milli, var auðvitað málamiðlun og báðir aðilar gáfu nokkuð eftir. En við höfum þó náð góðum árangri. Enda þótt stund- um hafi komið upp ágreiningur, þá hefur ætíð verið vilji fyrir hendi hjá báðum aðilum, til að starfa saman með hagsmuni stúd- enta að leiðarljósi. Hvað varðar framhaldið, þá erum við reiðubún- ir til að starfa áfram á svipuðum grundvelli, takist samkomulag þar um, en auðvitað eru það stúdentar sjálfir sem í raun ákveða það.“ Sverrir Ólafsson í stjórn Félags- stofnunar stúdenta: „Almennur uppgangur í öllum þáttum Félagsstofn- unarinnar“ SVERRIR Olafsson er fulltrúi í stjórn Félagsstofnunar stúdenta en hann stundar nám í raf- magnsverkfrædi. — Hvernig var ástandið í Félagsstofnuninni þegar núverandi meirihluti tók þar vid eftir kosningarnar fyrir ári síðan? „Það var eins og ekkert hafi ver- ið gert í stofnuninni í tíð vinstri- manna. Það var allt á niðurleið. Bókhald var einu eða tveimur ár- um á eftir timanum og við erum jafnvel ennþá að finna reikninga frá tíð vinstrimanna, sem hafa verið týndir. Fyrir þremur árum var stofnunin nánast gjaldþrota. Ráðherra skipaði nefnd er finna skyldi leiðir til að rétta við rekst- ur stofnunarinnar. Síðan þá hefur þetta verið að skána og það má segja að hlutirnir séu núna á upp- leið. Þegar við tókum við var ekkert búið að færa mikinn hluta bók- haldsins og það háði okkur geysi- lega þegar við ætluðum að fara að gera eitthvað þar sem við vissum ekkert hvernig einstaka mál stóðu, eða hvað mikið við skulduð- um. Við lögðum því mikla áherslu á að koma bókhaldinu í lag og réð- um til þess fjármálafulltrúa. Hann er í fullu starfi við þetta en óreiðan var svo mikil að við erum rétt að koma út ársreikningi fyrir árið 1980 þessa dagana. Matsalan í Félagsstofnun stúd- enta stóð mjög illa á allan hátt þegar við tókum við. Maturinn í matsölunni var niðurgreiddur af innritunargjöldum, en samt var hann óheyrilega dýr og lélegur þannig að fólk hætti að borða þar og hún fór að tapa. Það má segja að ráð vinstrimanna við þessari þróun hafi verið að heimta meiri peninga af ríkinu. Þeir sátu og biðu eftir peningum. Þessi tvö atriði sýna það kannski best að við tókum ekki við neitt mjög yndislegu búi af vinstrimönnum. Við byrjuðum á því að gera vissar breytingar á starfsmannahaldi matsölunnar, þá breyttum við má segja vinnslu hráefna, þannig að maturinn varð fjölbreyttari og fleiri réttir stóðu til boða. Miðakerfið var gert hand- hægara fyrir fólk en það var mjög stirt áður. Þessar breytingar ásamt fjöldamörgum öðrum í rekstri matsölunnar hafa leitt til þess að aðsókn í hana hefur auk- ist, svo að við höfum getað lækkað verðið og nú er matsalan rekin með hagnaði í stað taps, sem yfir- leitt var á henni áður. Og ekki hef- ur eyrir komið frá ríkinu." — En aðrar framkvæmdir? „Við í stjórn Félagsstofnunar stúdenta tókum fljótlega ákvörð- un um að athuga með byggingu áfanga númer tvö af Hjónagörð- um. Aður höfðum við velt því fyrir okkur að kaupa íbúðarhús úti í bæ, sem við myndum innrétta og í því skyni skoðuðum við mikið af húsum. En við hurfum frá þessum áætlunum þar sem ekki fannst viðunandi húsnæði. Svo við höfum nú stefnt að byggingu annars áfanga Hjóna- garða út við Suðurgötu. Teikn- ingar að þeim áfanga voru gerðar fyrir 10 árum síðan þegar bygging fyrsta áfanga hófst. Við höfum áætlað að það verði eftir um tvö, þrjú ár, sem farið verður að ráðast í framkvæmdir. í öðrum áfanga verða 60 íbúðir og kostnaðaráætl- un er 20 milljónir. Þá ákváðum við að fara út í byggingu barnaheimilis. Fjár- magn hafði verið tryggt frá Reykjavíkurborg og ríki og það var komið allt að því að útboði. Mest öll undirbúningsvinna hafði verið unnin. En við afgreiðslu fjárhagsáætlunar Reykjavíkur- borgar var fellt út þeirra framlag til byggingarinnar, sem þýddi að málið stoppaði með sama. Það hafði verið stefnt að því að klára byggingu barnaheimilisins í haust, en það verður ekki á þessu ári. Viðgerðir standa nú yfir á Görð- unum. Það hefur reyndar tekið á þriðja ár að gera við Gamla-Garð en viðgerðum þar er að ljúka. Það má kannski skjóta því hér inn í að síðastliðið sumar varð nokkur hagnaður af hótelrekstri stúdenta eða 440 þúsund krónur. Arið áður hafði verið 15 milljóna króna tap, í gömlum krónum. Undanfarið höfum við verið að reyna að gera samning við hótel hér í Reykjavík, Loftleiði og Esju, um leigu á her- bergjum til handa stúdentum yfir vetrarmánuðina. Það gekk ekki að semja við þá síðast þegar það var gert, því þeir settu upp svo hátt verð. En við erum vongóðir í þetta sinnið. Þetta er umtalsverður fjöldi herbergja sem um er að ræða. Allt upp í 100 herbergi." — En hvað heldur þú að verði efst á baugi í framtíðinni? „Það eru tvímælalaust þessar Garðabyggingar. Ég held það hljóti að vera aðalmálið núna. Það eru aðeins sex prósent stúdenta við Háskóla Islands, sem komast á Garða en það er stefnan hjá okkur að koma þessari tölu upp í 10 pró- sent. Þegar Garðarnir voru byggð- ir komust 20 prósent stúdenta fyrir i þeim. Það er greinilegt að þetta fer hraðminnkandi nema spornað sé við fótum. Það byggist allt á framlögum því við getum ekki staðið undir byggingunum sjálfir. Engan veginn. Svo stefn- um við að því að koma upp barna- heimilinu á næsta ári. Við bindum miklar vonir við ferðaskrifstofuna, sem stúdentar eru með í uppbyggingu og búumst við að hún eigi eftir að gera stúd- entum kleift að ferðast til annarra landa á skaplegu verði.“ — Finnst þér að miklar breyt- ingar hafi átt sér stað með tilkomu samstarfs Vöku og umbótasinna? „Já, tvímælalaust. Það er al- mennur uppgangur í öllum þátt- um félagsstofnunarinnar, nokkuð sem er viðbúið að hverfi komist vinstrimenn aftur til valda í Há- skólanum. Þeir voru orðnir slappir almennt og vinstrisveiflan hefur verið að minnka á síðustu árum. Það hefur komið til hrein hug- arfarsbreyting eins og til dæmis í afstöðunni til ríkisins. Stúdentar eru sjálfir farnir að fjármagna sína þætti skólalífsins í stað þess að standa alltaf í þeirri trú að rík- ið komi með fullt fangið af pening- um til að bjarga öllu. Við erum farnir að athuga reksturinn sjálfir og stýra honum til betri vegar í stað þess að heimta meira og meira frá ríkinu." — Hvernig hefur samstarfið gengið í stjórn Félagsstofnunarinn- ar? „Það hefur gengið ágætlega í meginatriðum og við þyrftum að fá meiri tíma til að vinna saman að hagsmunamálum stúdenta."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.